Morgunblaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ íþróttir CRAIG Bellamy, velski knatt- spyrnumaðurinn hjá Liverpool, fullyrðir að ekkert alvarlegt hafi gerst í æfingaferð liðsins til Portú- gal í síðustu viku. Fullyrt hefur ver- ið að hann hafi slegið félaga sinn, John Arne Riise, í fæturna með golfkylfu í kjölfar þess að sá síð- arnefndi neitaði að taka þátt í ka- rókí-keppni. Í fyrrakvöld voru þeir félagar í aðalhlutverki þegar Liverpool vann frækinn útisigur á Barcelona, 2:1, í Meistaradeild Evrópu. Þeir skor- uðu hvor sitt markið og Bellamy lagði upp sigurmarkið fyrir Riise. „Ég get orðað þetta svona: Hefði eitthvað alvarlegt gerst hefði ég ekki spilað gegn Barcelona. Stjór- inn er grjótharður og hefði aldrei tekið það í mál. Það hefur ekkert gerst, mér hefur ekki verið refsað, stjórinn hefur ekki rætt við mig um neitt og ég veit ekki hvort hann mun gera það,“ sagði Bellamy eftir sigurinn á Barcelona. Liðsandinn aldrei betri Hann sagði jafnframt að liðsand- inn hjá Liverpool hefði aldrei verið betri en einmitt núna. „Við af- greiddum málið á réttan hátt – hlógum mikið að því. Það hefur aldrei verið eins mikið grín og glens í liðinu eins og einmitt síðustu vikuna,“ sagði Bellamy. Riise hefur ekkert viljað segja um það sem gerðist í Portúgal. Um fögnuð félaga síns, sem þóttist slá með golfkylfu eftir að hann jafnaði gegn Barcelona, sagði Norðmað- urinn: „Þetta var stór stund fyrir hann. Síðasta vika var honum erfið og það er magnað að skora í svona leik. Ég skil vel að hann skuli hafa fagnað því á sérstakan hátt,“ sagði Riise. Bellamy: Ekkert alvarlegt gerðist BIRKIR Bjarnason, knattspyrnu- maðurinn ungi, sem leikur með norska úrvalsdeildarliðinu Viking Stavanger, fór í gær í aðgerð á hné. Birkir meiddist í æfingaleik Viking gegn FC Köbenhavn í Danmörku á þriðjudaginn og þurfti að fara af velli í fyrri hálfleiknum. Í ljós kom að lið- þófi hafði skemmst og hann var strax drifinn í aðgerð sem var framkvæmd í Ósló. „Ef allt fer að óskum mun hann fara með liðinu í æfingaferðina til La Manga. Hann fer að sjálfsögðu ekki beint á æfingar með bolta en byrjar strax í endurhæfingu. Það er ekki hægt að segja strax til um hvenær hann getur farið að æfa af fullum krafti því það fer eftir því hvernig aðgerðin heppnast. En það er alla- vega mjög jákvætt að það var hægt að láta hann gangast undir hana svona fljótt,“ sagði Knut Andersen hjá Viking við vef félagsins í gær. Lið Viking fer til La Manga á Spáni á morgun. Birkir er aðeins 18 ára en hann lék samt 16 leiki með Viking í norsku úr- valsdeildinni í fyrra, fjóra þeirra í byrjunarliðinu, og þá spilaði hann þrjá leiki með íslenska 21-árs lands- liðinu á síðasta ári. Birkir í aðgerð á hné Phil Jacksonþjálfari LA Lakers í banda- rísku NBA- deildinni í körfu- knattleik sá sitt lið tapa, 112:108, gegn Portland Trailblazers í fyrrinótt en þetta var sjötti tapleikur Lakers í röð og hefur Jackson aldrei tapað jafn mörgum leikjum í röð sem þjálfari. Hann getur státað sig af 10 meist- aratitlum en hann varð meistari sem leikmaður New York Knicks, sex sinnum sem þjálfari Chicago Bulls og þrívegis sem þjálfari La- kers.    Steve Nash lék á ný með Phoe-nix Suns í NBA-deildinni eftir fjögurra leikja hvíld vegna meiðsla á öxl. Í fjarveru hans tapaði Suns þremur af fjórum leikjum sínum en í fyrrinótt sigraði Suns lið LA Clip- pers, 115:90.    Norska úrvalsdeildarliðið Aale-sund hefur falast eftir því að fá Guðmann Þórisson, knatt- spyrnumann úr Breiðabliki, til reynslu. Líklegt er að hann fari til æfinga hjá norska félaginu í apr- ílmánuði. Guðmann er tvítugur varnarmaður og lék tvo leiki með 21-árs landsliðinu á síðasta ári en hann skoraði tvö mörk í átta leikj- um með Kópavogsliðinu í úrvals- deildinni í fyrra.    Hörður Már Magnússon, elsti ogreyndasti leikmaður HK, ný- liðanna í úrvalsdeildinni í knatt- spyrnu, þarf að gangast undir upp- skurð á fæti en hann hefur verið frá æfingum og keppni vegna meiðsla síðan í ágúst. Ljóst er að Hörður Már spilar ekki með liðinu fyrstu vikur Íslandsmótsins í það minnsta.    Ola Lindgren,einn af kunnustu hand- knattleik- mönnum Svía á seinni árum, hef- ur verið ráðinn aðstoðarþjálfari sænska lands- liðsins og verður aðalþjálfaranum Ingemar Linnéll innan handar. Lindgren lék 376 landsleiki á árunum 1986–2003 en hann er nú þjálfari þýska liðsins Nordhorn og sinnir því landsliðinu í hlutastarfi.    Halldór Jóhann Sigfússon náðiekki að skora og brást boga- listin í einu vítakasti þegar lið hans, Tusem Essen, gerði jafntefli, 28.28, við Bayer Dormagen í suðurhluta þýsku 2. deildarinnar í handknatt- leik í fyrrakvöld. Essen hefur eftir sem áður örugga forystu í deildinni og virðist stefna rakleitt upp í efstu deild. Halldór hefur glímt við meiðsli og kom ekki mikið við sögu í leiknum af þeim sökum. Fólk sport@mbl.is Liverpool, sem hampaði Evrópumeistaratitlin- um 2005, varð fyrsta liðið til að leggja Börsunga á Nou Camp í Evrópukeppni í hart nær fjögur ár og í fjórum viðureignum Barcelona og Liver- pool á Nou Camp hefur Liverpool unnið tvo leiki og tvívegis hafa liðin skilið jöfn. ,,Kraftaverk er það eina sem eftir er,“ segir í íþróttablaðinu Sport í Barcelona. Madridingurinn niðurlægði Barcelona Rauði þráðurinn í umfjöllun spænsku blað- anna er að þau telja möguleika Barcelona hverf- andi að komast áfram í 8-liða úrslitin. Marca, söluhæsta dagblað Spánar og er hlið- hollari Real Madrid, erkióvinum Barcelona, slær upp á forsíðu; ,,Madridingur niðurlægði Barce- lona“. Þar er vísað til þess að Rafael Benítez, knattspyrnustjóri Liverpool, hafi á árum áður leikið með varaliði Real Madrid og verið þjálfari hjá félaginu. Blaðið segir að Benítez geti byrjað að undirbúa sína menn fyrir 8-liða úrslitin því Barcelona hafi aldrei í sögu Evrópukeppninnar tekist að komast áfram eftir tap á heimavelli í fyrri viðureign. Frank Rijkaard þjálfari Evrópumeistaranna er þó ekki búinn að játa sig sigraðan. ,,Ég geri mér grein fyrir að við þurfum að ná fram algjör- um toppleik og allt þarf að ganga upp ef okkur á að takast að fara áfram. Það eru 90 mínútur eftir af þessu einvígi og allt getur enn gerst. Við er- um ekki búnir að gefast upp,“ sagði Rijkaard við fréttamenn í gær. Eto’o eina vonin ,,Eto’o er eina vonin“ segir í Sport og á þar við kamerúnska sóknarmanninn Samuel Eto’o sem varð að sætta sig við að fylgjast með leiknum úr VIP-stúkunni, hvítklæddur sem gerði sjón- varpsmönnum auðveldara fyrir að beina vélum sínum að honum. Eto’o er ekki orðinn heill heilsu eftir hnémeiðsli en Börsungar halda í von- ina um að hann verði með í seinni leiknum á An- field. Sport segir ennfremur; ,,Með Ronaldinho í toppformi og Eto’o í fremstu víglínu þá er Barcelona með betra lið en Liverpool en ef það getur ekki orðið þá er þetta óyfirstíganleg hindrun fyrir Barcelona.“ Börsungar sleikja sárin en þeir taka upp þráð- inn í spænsku deildinni á sunnudagskvöld þegar þeir fá Atletico Bilbao í heimsókn. Deco, marka- skorari Barcelona gegn Liverpool, verður í banni en Evrópu- og Spánarmeistararnir hafa byrjað árið illa – hafa aðeins unnið þrjá af síð- ustu átta leikjum sínum í deildinni og standa verulega höllum fæti í baráttunni um að verja Evrópumeistaratitilinn. Glæsilegt Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, gæti verið að segja hollenska miðjumanninum Boudewijn Zenden – „Þú þekkir allt hér. Láttu verkin tala. Við þurfum á sigri að halda.“ Zenden lék með Barcelona áður en hann gekk til liðs við Liverpool, sem fagnaði sigri á Nou Camp, 2:1. Barcelona þarf kraftaverk gegn Liverpool á Anfield KRAFTAVERK – er lýsingarorðið sem mörg af spænsku blöðunum slá upp varðandi möguleika Evrópumeistara Barcelona að slá Liverpool út í Meistaradeildinni eftir sigur Liverpool á Nou Camp í fyrrakvöld. AP

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.