Morgunblaðið - 08.03.2007, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 08.03.2007, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 8. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN MIKIL umræða er í þjóðfélag- inu um hugsanlega stækkun ál- versins í Straumsvík og uppbygg- ingu stóriðju á Íslandi. Menn hafa mjög misjafnar skoðanir á þessum málum og er öll mál- efnaleg umræða af hinu góða. Mín skoð- un er sú að hér ætti að hafa færri álver og styrkja þau sem fyrir eru og gera þau hag- kvæm og arðbær. Við þurfum einnig að spyrja okkur hvort við getum neitað fyr- irtækjum að vaxa og dafna. Hér er ekki verið að byggja nýtt álver heldur er verið að gera fyrirtæki með langa sögu kleift að vera samkeppnishæft á sínu sviði. Starfsöryggi stefnt í hættu Menn hafa deilt á ýmsa þætti eins og umhverfismál, sjónræn áhrif verksmiðjunar og fleira. Það sem hefur gleymst í umræðunni er fólkið sem vinnur nú hjá álverinu í Straumsvík. Hvernig snúa þessi mál að því. Jú, það er verið að kjósa um störf þess hvort sem því líkar betur eða verr. Við stöndum frammi fyrir því hvort störf okkar og lifibrauð síðustu 40 árin verði tryggð til frambúðar. Getum við réttlætt að stefna starfsöryggi 450 starfsmanna álversins og velferð fjölskyldna þeirra í hættu. Þeir sem eru á móti stækkun segja að verksmiðjan verði áfram og starfs- fólk þurfi ekki að óttast um störf sín. Það er hins vegar staðreynd að verksmiðjan er orðin 40 ára gömul og ekkert sjálfgefið að svo gömul verksmiðja án stækkunar gangi vel ár eftir ár. Margar for- sendur eru fyrir því að hún geng- ur vel núna eins og hátt álverð á heimsmarkaði. En hvernig vitum við hvernig staðan verður eftir nokkur ár? Það er einnig stað- reynd að Isal er með háan fram- leiðslukostnað á hvert framleitt tonn innan Alcan-samsteypunnar og þarf því að stækka til að verða samkeppnishæf. Orkusamningar Isal renna út árið 2014, eftir 7 ár og engin veit hvað gerist eftir það. Að óbreyttu gæti þá lokun verk- smiðjunnar blasað við. Góður vinnustaður Margir hafa mjög ranga sýn á starfsemi Isal. Þeir halda að starfsfólkið starfi við óviðunandi mengun allan daginn og óþrifalegar að- stæður. Þetta er á miklum misskilningi byggt. Það segir sig sjálft að starfsfólk myndi ekki vinna hjá Isal í 30 til 35 ár ef aðbúnaður starfs- manna væri ekki góð- ur. Nei, það myndi enginn láta bjóða sér. Ástæðan fyrir því að fólk vinnur í Isal er sú að mikið er lagt upp úr góðum aðbúnaði fyrir starfsfólk. Starfs- menn hafa glæsilega búningsklefa og sturtur. Starfsfólk á kost á rútuferðum í vinnu án endur- gjalds, frábæru mötuneyti sem býður upp á mikinn fjölbreytileika og vinnufatnaði sem Isal útvegar og þvær einnig. Aðsókn í vinnu hja Isal væri ekki svona mikil sem raun ber vitni ef þessir hlutir væru ekki í lagi. Hér er einnig mikil aðsókn í sumarstörf. Hjá Isal fá um 130 skólanemar vinnu á sumrin og komast ekki nærri allir að sem vilja. Þessir skólakrakkar koma aftur og aftur. Myndu þessir krakkar gera það ef þau upplifa að hjá Isal væri aðbúnaður og um- hverfismál í ólestri. Nei, ég held ekki. Mikil þekking er innan fyr- irtækisins sem tekur langan tíma að byggja upp. Með löngum starfsaldri innan fyrirtækisins hef- ur hún byggst upp. Isal rekur Stóriðjuskóla þar sem verkamenn og iðnaðarmenn eiga kost á að mennta sig. Nú hafa um 160 manns útskrifast og því lang- stærsti hluti starfsmanna hjá Isal menntað fólk. Þessi skóli hefur byggt upp mikla sérþekkingu inn- an Isal og enn eitt dæmið um metnað Isal til að ná langt og auka þekkingu innan fyrirtæk- isins. Frábær árangur í umhverfismálum Isal er vottað af umhverfisstaðl- inum ISO 14001 eitt fárra fyr- irtækja í þessu landi. Hér er því mikið eftirlit með umhverfismálum bæði innan sem utan vinnusvæðis. Þessi staðall krefst ekki eingöngu þess að við séum innan við ákveð- in tilskilin mörk heldur krefst hann þess að við bætum okkur ár frá ári. Upplýsingar um útblástur frá fyrirtækinu eru því stað- reyndir en ekki tölur sem Isal getur búið til. Margir hafa áhyggj- ur af mengun frá fyrirtækinu og umhverfismálin vega þungt þegar fólk myndar sér skoðanir. Ég myndi skilja þessar áhyggjur ef þau væru í ólestri hjá fyrirtækinu sem þau eru alls ekki. Einnig er verið að framleiða ál á eins vist- vænan hátt og kostur er með orkugjöfunum sem við höfum hér á landi. Ef við notum ekki orkuna hér, eykur það líkurnar á að álið verði framleitt með kolum og gasi sem orkugjöfum. Það kallar á mun meiri losun gróðurhúsalofttegunda í heiminum. Líka kosið um störf okkar Þegar gengið verður að kjör- borðinu hinn 31. mars verður ekki eingöngu kosið um stækkun Isal og fjölgun starfa og fleira. Það er einnig verið að kjósa um starfs- öryggi okkar til frambúðar sem nú vinnum hjá Isal. Setjið því ykkur í okkar spor þegar kosið verður um stækkun Isal. Við erum jú líka fólk. Við erum líka fólk Sigurður Egill Þorvaldsson segir frá starfsemi álversins í Straumsvík frá sjónarhóli starfsmanns » Það sem hefurgleymst í um- ræðunni er fólkið sem vinnur nú hjá álverinu í Straumsvík Sigurður Egill Þorvaldsson Höfundur er starfsmaður Alcan á Íslandi. Í DAG er alþjóðanýrnadagurinn (World Kidney Day) haldinn í annað sinn. Þessu framtaki var hrundið af stokkunum í fyrra af Alþjóða- samtökum nýrnalækna (Int- ernational Society of Nephrology) og Alþjóðasamtökum nýrnafélaga (International Federation of Kidney Foundations) í þeim tilgangi að vekja athygli almennings, forystu- manna heilbrigðismála og heilbrigð- isstofnana, og sjúklinga og fjöl- skyldna þeirra á mikilvægi nýrnasjúkdóma – að þeir séu al- gengir, alvarlegir og síðast en ekki síst að meðferðarúrræði séu fyrir hendi. Einstaklingum sem þurfa að gangast undir lífsnauðsynlega með- ferð vegna nýrnabilunar á lokastigi, ýmist með svokallaðri skilun (blóð- hreinsun, e. dialysis) eða ígræðslu á nýra, hefur fjölgað mjög á und- anförnum áratugum. Þessi aukning hefur haldist í hendur við fjölgun sjúklinga með aðra langvinna sjúk- dóma, s.s. háþrýsting, sykursýki, of- fitu og hjarta- og æðasjúkdóma. Auk þess að vera þung byrði fyrir sjúk- linga og fjölskyldur þeirra, hefur lokastigsnýrnabilun áhrif á sam- félagið allt því meðferð hennar krefst sérhæfðs starfsfólks, aðstöðu og tæknibúnaðar og er því er mjög kostnaðarsöm. Ígræðsla á nýra er kjörmeðferð við lokastigsnýrnabilun en hentar þó ekki öllum sjúklingum. Á Íslandi hefur lokastigs- nýrnabilun reyndar verið mun fátíð- ari en víðast hvar á Vesturlöndum en aukningin hefur engu að síður verið umtalsverð (sjá mynd). Árlega hefja nú um 20 Íslendingar meðferð við nýrnabilun á lokastigi. Í árslok 2006 voru 66% sjúklinga með loka- stigsnýrnabilun með starfandi íg- rætt nýra og er það hlutfall eitt hið hæsta sem þekkist. Til að reyna að stemma stigu við sívaxandi fjölda sjúklinga með loka- stigsnýrnabilun hefur áhugi manna í auknum mæli beinst að því að greina langvinnan nýrna- sjúkdóm snemma og beita meðferð sem miðar að því að hindra framrás sjúkdómsins. Við greiningu sjúk- dómsins er stuðst við mælingar á svonefndu kreatíníni í blóði og þvagrannsóknir. Kreatínín er efni sem skilst út um nýrun og hækkar því í blóði við hnignun á nýrna- starfsemi. Besti mæli- kvarðinn á starfsemi nýrna er þó svonefndur gaukulsíun- arhraði (GSH) og eru eðlileg gildi á bilinu 90–120 ml/mín./1,73 m2 lík- amsyfirborðs. Hægt er að reikna GSH út frá kreatíníni í blóði. Með einfaldri þvagrannsókn er unnt að greina merki um nýrnaskemmdir, t.d. blóð og/eða aukið magn próteina í þvagi. Skilmerki langvinns nýrna- sjúkdóms eru þau að GSH sé undir 60 ml/mín./1,73 m2 líkamsyfirborðs og/eða að þvagrannsókn bendi til nýrnaskemmda. Nýlegar rann- sóknir er byggjast á þessum skil- merkjum sýna að tíðni langvinns nýrnasjúkdóms er talsvert há á Vesturlöndum. Nýleg rannsókn sýndi að langvinnur nýrna- sjúkdómur er til staðar hjá um 7% karla og 12% kvenna hér á landi og er það svipað og komið hefur fram í öðrum löndum. Orsakir langvinns nýrnasjúkdóms geta verið mismunandi milli landa, t.d. er alvarlegt nýrnamein af völd- um sykursýki fátítt hér á landi þar sem innan við 10% af sjúklingum með lokastigsnýrnabilun eru með sykursýki en er allt upp í 40–50% annars staðar. Aðrar helstu orsakir langvinns nýrnasjúkdóms meðal fullorðinna eru háþrýstingur, æða- kölkun og gauklabólga. Útlit er því fyrir að tíðni langvinns nýrna- sjúkdóms muni halda áfram að aukast á næstu árum samfara öðrum langvinnum sjúkdómum og helst það í hendur við vaxandi fjölda aldraðra í samfélaginu. Fyrir utan heilsutjón sem hlýst af nýrnabilun hefur verið sýnt fram á að langvinnum nýrna- sjúkdómi fylgir stóraukin hætta á hjarta- og æðasjúkdómum. Lang- vinnur nýrnasjúkdómur er því um- fangsmikið lýðheilsuvandamál í vestrænum samfélögum. Meðferð langvinns nýrna- sjúkdóms beinist einkum að því að seinka eða koma í veg fyrir hnignun nýrnastarfsemi ásamt því að huga að öðrum áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma. Sýnt hefur verið fram á að hægt er að hafa áhrif á framrás langvinns nýrnasjúkdóms með góðri blóð- þrýstingsstjórnun og markvissri meðferð und- irliggjandi orsaka. Fylgikvillar nýrnabilunar, s.s. vökvasöfnun, há- þrýstingur og blóðleysi, koma fram er nýrnabil- unin ágerist og þarf þá að hyggja að meðferð þeirra. Fyrri hluta þessa árs mun Rann- sóknastofa í klínískri lífefnafræði á Landspítala – háskólasjúkrahúsi byrja að gefa upp reiknaðan GSH fyrir alla einstaklinga sem eru yfir 18 ára aldri, til viðbótar við kreat- íníngildið. Vonast er til að þessi ný- breytni muni gera greiningu og meðferð langvinns nýrnasjúkdóms markvissari. Einnig er þýðing- armikið að upplýsa sjúklinga og gera þá meðvitaða um reiknaðan GSH og blóðþrýsting sinn og stuðla þannig að því að þeir verði þátttakendur í eigin meðferð að því marki sem færni þeirra leyfir. Telja margir að með tímanlegri greiningu og bættri meðferð megi stórlega minnka tíðni lokastigsnýrnabilunar og þannig draga úr sívaxandi útgjöldum vegna meðferðar hennar. Ólafur Skúli Indriðason og Runólfur Pálsson skrifa í tilefni af Alþjóðanýrnadeginum » Alþjóðanýrnadag-urinn er haldinn í þeim tilgangi að vekja athygli á mikilvægi nýrnasjúkdóma. Ólafur Skúli Indriðason Ólafur Skúli er sérfræðingur í nýrna- lækningum. Runólfur er yfirlæknir nýrnalækninga á Landspítala –há- skólasjúkrahúsi. Runólfur Pálsson Vaxandi algengi meðhöndlaðrar lokastigs- nýrnabilunar á Íslandi. 0 100 200 300 400 500 600 1968-76 1976-80 1981-85 1986-90 1991-95 1996-00 2001-05 2006- A lg en gi ( á m il lj ón íb úa ) Langvinnur nýrnasjúkdómur ÞAÐ er spurning sem allir ættu að spyrja sig á alþjóðanýrnadaginn 8. marz 2007, til að reyna að fyrirbyggja að lenda í skilun eða þurfa ótímabæra ígræðslu á nýra og er það mest áríðandi boð- skapur þessa dags. Alþjóðanýrnadag- urinn 8. marz er hald- inn annað árið í röð af Alþjóðasamtökum nýrnafélaga og Al- þjóðasamtökum nýrnalækna. Félag nýrnasjúkra gekk í þessi samtök fyrir tæpu ári. Við erum einnig aðilar að Evr- ópusamtökum nýrna- félaga og Norrænum samtökum nýrna- félaga. Fulltrúar nor- rænu samtakanna hittast einu sinni á ári til að bera saman bæk- ur sínar. Félag nýrnasjúkra var stofnað 30 október 1986. Markmið þess er að styðja alla sjúklinga með þráláta nýrna- sjúkdóma og einkum og sér í lagi að vinna að hagsmunum skilunarsjúklinga og nýraþega. Í tilefni þessum degi hefur Félag nýrnasjúkra ákveðið að hafa opið hús hinn 8. marz að Hátúni 10B, 9. hæð milli kl.15 og 17 til kynningar á félaginu og störfum þess og eru allir velkomnir. Markmið og tilgangur Félags nýrnasjúkra er eftirfarandi : Félagið gefur út upplýsinga- og fræðslubæklinga til að auka þekk- ingu á nýrnasjúkdómum og leiðbein- ingar fyrir skilunarsjúklinga og sjúklinga með ígrætt nýra. Margir sérfræðingar halda fræðsluerindi á félagsfundum og veita þannig sjúklingum og aðstand- endum þeirra þýðingarmiklar leið- beiningar. Að fræða almenning og sjúklinga um nýrnasjúkdóma, meðferð þeirra og félagsleg vandamál, sem þeim fylgja. Að efna til fræðslufunda, skemmtifunda, skemmtiferða og annarra félagsstarfa. Að halda sambandi við systurfélög á Norðurlöndum og víða erlendis. Fjáröflun félagsins er með félagsgjöldum, sölu minningarkorta, og styrkjum frá Ör- yrkjabandalagi Íslands og öðrum aðilum. Góð samvinna er milli félagsins, nýrna- lækna og starfsfólks nýrna- og skil- unardeildar Landspít- ala – háskólasjúkra- húss. Þar eru reyndir starfsmenn sem þjóna nýrnasjúklingum fag- mannlega. Fyrsta ígræðsla á nýra í Íslending var framkvæmd í Englandi 1970. Fyrir nokkrum árum var farið að græða nýru í fólk hér á landi og eru gerðar um það bil 8–12 aðgerðir á ári. Fyrsta ígræðslan hér heima var fram- kvæmd í desember 2003. Biðtími eftir nýra getur verið allt að eitt ár því ígræðsluaðgerð- irnar eru aðeins gerðar nokkrum sinnum á ári. Hvernig sem á það er litið aukast lífsgæði sjúk- linga til muna eftir nýraígræðslu og fara sumir jafnvel aftur út á vinnu- markaðinn. Annað sem þarf að hyggja að sem fyrst er að þeir sem gefa nýra fari ekki af launaskrá hjá sínum vinnu- veitendum og veikindaréttur skerð- ist ekki á meðan þeir eru að ná sér eftir aðgerð. Líklega þurfa stjórn- völd að koma að þessu máli. Þeir sem vilja styrkja Félag nýrnasjúkra fjárhagslega geta gerst styrktarfélagar. Ágætu lesendur, ef fleiri upplýsinga er þörf farið þá á heimasíðu okkar www.nyra.is Þar eru tengingar út um allan heim og mun meira af upplýsingum en í þess- ari stuttu samantekt. Eru þín nýru í lagi? Kristján Pétursson skrifar í til- efni af alþjóðanýrnadeginum Kristján Pétursson »MarkmiðFélags nýrnasjúkra er að styðja sjúk- linga með þrá- láta nýrna- sjúkdóma og að vinna að hags- munum skil- unarsjúklinga og nýraþega. Höfundur er formaður Félags nýrnasjúkra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.