Morgunblaðið - 08.03.2007, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 08.03.2007, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 8. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Kristín Sig-mundsdóttir fæddist í Reykjavík 9. ágúst 1932. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Skógarbæ 1. mars. Foreldrar hennar voru Hanne Sofie Halldórsson, hús- móðir, f. 1904 í Haugasundi, Nor- egi, d. 1988 og Sig- mundur Hall- dórsson, húsasmíðameistari, f. 1903 í Skeljavík í Strandasýslu, d. 1971. Systur Kristínar eru Dóra Sigríður, f. 1933, d. 1937, Dóra. f. 1937, Jenný Bergljót, f. 1940, Guðrún, f. 1943 og Bene- 1962. Börn hennar eru Margrét Heiður Jóhannsdóttir, Marteinn Hörður Kristínarson og Þórhild- ur Vígdögg Þráinsdóttir. 5) Ingi- mundur, f. 1967. 6) Guðni Arnar, f. 1972. Kona hans er Jóhanna Þórisdóttir. Sonur Guðna er Nikulás. 7) Valgerður Guðrún, f. 1976. Sambýlismaður hennar er Rögnvaldur Þórsson. Dætur hennar eru Bergdís Júlíana Ben- der og Ástríður Embla Rögn- valdsdóttir. Barnabarnabörn Kristínar eru Hrafnhildur Diljá, Karlotta Ólöf, Matthías Esra og Tristan Máni. Kristín ólst upp í Reykjavík. Hún tók gagnfræðapróf frá Ingi- marsskólanum.Hún var lengst af heimavinnandi en starfaði einnig við ræstingar hjá KRON, á Land- spítalanum og Kleppsspítalanum. Kristín og Guðni bjuggu allan sinn búskap á Langholtsvegi 96 í Reykjavík. Útför Kristínar verður gerð frá Langholtskirkju í dag, 8. mars og hefst athöfnin kl. 13.00. dikta Sigurrós (sam- feðra), f. 1929. Kristín giftist 6.6. 1953 Guðna Baldri Ingimundarsyni, húsasmíðameistara, f. 6.6. 1926, d. 13.1. 2003. Foreldrar hans voru: Ástríður Gróa Guðmunds- dóttir og Ingimund- ur Guðmundsson. Börn Kristínar og Guðna eru: 1) Ásta, f. 1953. Maður henn- ar er Jón Eggert Bragason. Börn þeirra eru: Guðný, Gylfi og Hlynur. 2) Soffía, f. 1954. Dóttir hennar er Sunna Björg Simonardóttir. 3) Sonur, f. 1955, d. 1955. 4) Kristín Elfa, f. Mamma stóð úti á tröppum í morgunslopp á inniskóm með mig í fanginu, ég var á öðru ári. Þetta var yndislegur sumardagur. Þá birtist nágranni okkar efst í tröppunum, hann var veikur maður og að þessu sinni mjög æstur, það blikaði á eitt- hvað í hægri hendinni. „Ég ætla að drepa ykkur,“ orgaði hann. „Já, er það, vinur,“ sagði mamma. „Viltu ekki bíða aðeins með það, ég var að laga svo gott kaffi og sólin skín. Komdu inn og fáðu þér sopa og við skulum tala saman.“ Mamma hafði róandi áhrif á fólk. Ungir og aldnir komu til hennar og léttu á hjarta sínu og mamma var alltaf jafnáhugasöm og ráðagóð. Hún var svo lánsöm að eiga tengda- mömmu sem var dásamleg kona og mikil og góð vinkona hennar. Einu sinni sem oftar, þegar ömmu var far- ið að förlast, kom hún í kaffi til mömmu og sagði henni sögu sem ég hafði oft heyrt áður. Athygli mömmu hvarflaði ekki frá sögunni eitt augna- blik. Eftir á spurði ég mömmu hvernig hún gæti hlustað svona oft á sömu söguna full áhuga? „Hvað áttu við?“ spurði mamma hvumsa. „Finnst þér til of mikils mælst að ég spjalli við hana Ástu mína yfir kaffi- bolla?“ Ég nefni þessar spjallstundir mömmu ekki bara til að lýsa henni heldur vegna þess að ég sakna þeirra. Bernskuvinkona mín hefur sagt mér hvað henni fannst alltaf gott að koma heim og hversu vel var tekið á móti henni. Slíkt athvarf er ómetanlegt fyrir börn. En mamma var líka sjálf barnsleg; einlæg, tilfinningarík og hrifnæm. Tónlist var hennar líf og yndi og hún hafði stórkostlega rödd. Þegar ég var barn fannst mér hún eins og Maria Callas, bara fallegri og röddin flottari. Ég fékk oft að heyra það í bernsku hvað mamma mín væri fal- leg. Hún hafði geðslag listamannsins en auk þess hafði hún þennan und- arlega hæfileika að sjá inn í mann og segja það rétta þegar eitthvað bját- aði á. Hún og pabbi voru samhent í að gagnrýna okkur ekki, við fengum aldrei að heyra að við værum ómögu- leg eða ákvarðanir okkar heimsku- legar. Ég lærði margt af mömmu. Að dæma aldrei fólk af fyrstu kynnum. Að dæma fólk ekki yfirleitt. Að þrá að kynnast nýjum stöðum og hafa opinn huga gagnvart nýrri reynslu. Að láta ekki deigan síga þótt eitt- hvað bjátaði á. Að elska tónlist. Að meta menntun. En sumt gat mamma ekki kennt mér hversu mjög sem hún reyndi. Ég man margar stundir þar sem við mamma stóðum á gang- inum eða úti ef vel viðraði og hún reyndi að kenna mér að jóðla og henda á lofti mörgum boltum í einu. Hún var snillingur í þessu en ég réð ekki nema við tvo. Við bjuggum með afa, ömmu og föðursystur minni í húsinu sem fjöl- skyldan byggði á sjötta áratug síð- ustu aldar. Með okkur bjuggu þó enn fleiri, ýmist tímabundið eða til lang- dvalar og ýmist lífs eða liðnir. Mamma fagnaði þessum gestum eins og öðrum og var þess fullviss að draugar væru til og meðal okkar. Ég var efagjarnari en það var óneitan- lega gaman að alast upp í húsi þar sem draugar gerðu sig svo heima- komna. Þessi hæfileiki mömmu til að hafna hvorki hugmyndum né fólki (eða draugum) og taka opnum örm- um hverju því sem lífið færði henni hefur reynst okkur börnunum ómet- anlegt veganesti. Hún var líka lunkin að finna leiðir til að glæða lífið ein- hverju aukalega þegar bjargir þraut. Mamma hafði yndi af að ferðast og sem barn og unglingur réð hún sig í vist hingað og þangað til að kynnast nýjum stöðum og fólki. Á fullorðins- árum var þröngt í búi en þá skráði hún sig í skógræktarfélag og fór á þess vegum í skógræktarferðir til Norðurlanda. Einu sinni fór mamma með Guðrúnu föðursystur minni til Spánar og síðar bauð Jenný systir mömmu henni með sér til Finnlands. Mamma átti ótal góðar minningar frá þessum frábæru ferðum með konunum tveim sem voru henni svo kærar. Mamma var norsk í móðurætt og þegar hún bauð góðgæti sagði hún gjarnan „ta’ mange, ta’ to“ (frb. tú) til að hvetja mann til að fá sér sem allra mest. Hún var rausnarleg í hví- vetna og eldaði eins og hún ætti von á hundrað manns í mat. Okkur systkinunum lætur ekki vel að elda fyrir fáa frekar en mömmu. Þegar við erum beðin um uppskriftir svör- um við á sama hátt og hún: „Slump- aðu þessu út í og settu svo slatta af hinu.“ Mamma mældi ekki hráefnið í réttina frekar en hún mældi andleg- ar og veraldlegar góðgjörðir, sjálfrar sín og annarra. Þetta voru lífsþræðir sem átti ekki að setja á vogarskálar. Mömmu minni auðnaðist ekki að verða öldruð og hún var ekki einu sinni orðin gömul þegar Alzheim- erssjúkdómurinn sló sinni köldu eignarkrumlu á hug hennar og smám saman einnig líkama. Fyrir nokkrum árum orti ég prósaljóð um líf mömmu og samband okkar mæðgna í þessu nýja og óþekkta landi. Ljóðið heitir Alzheimer og hér er brot úr því: Ef þér væri rænt bundið fyrir aug- un á þér fötin rifin af þér keyrt með þig langar leiðir og hent út í dimmri auðn sem þú þekkir ekki. Ef eina lífsmarkið á staðnum eru þoku- kenndar verur sem þú skilur ekki og þær ekki þig, hvernig myndi þér líða? Þó er þetta betra en þeir dagar sem hún þraukar í gegnum, þú hefðir enn hugsun þína, þú værir sjálfur bandamaður þinn. Ég horfi á hana hlýja gestrisna, ég man hlátur henn- ar og söng hvað hún var sterk, já- kvæð, skaprík, geislandi og góð. Ég segi var því ég horfi á hana núna og spyr: hvar ertu, mamma? Þetta er það versta að finnast hún horfin. Á hverjum degi vakna ég með kalda krumlu um hjartað. Ég ætti að halda í höndina á henni, syngja fyrir hana, hætta að vinna til að vera hjá henni. Hvers vegna? spyr ég, andskotinn! blóta ég, bít svo á jaxlinn einsog hún gerði alltaf áður en nú skilur hún ekki af hverju heimurinn er vondur og fjölskyldan ekki alltaf hjá henni. Ég veit að ef ég væri sú veika myndi hún fórna öllu. Það er munurinn á að vera móðir og barn. Við sem elskum mömmu erum sár og reið yfir að lífið hafi fært henni svo margar sorgir; dauða systur á barnsaldri, dauða nýfædds sonar, fá- tækt og rýr tækifæri til að gera það sem hana langaði til og loks þennan illvíga sjúkdóm. En einhvern veginn stendur það upp úr núna hvað hún gaf öðrum margar ómetanlegar gjaf- ir og hversu hún sjálf hefur auðgast af þeim sökum. Það stendur upp úr hvað þau pabbi voru samhent og þótti innilega vænt hvoru um annað. Pabbi sinnti mömmu af ást og enda- lausri þolinmæði árin sem hún var veik og enn búsett á heimili þeirra beggja. Honum fannst það ekki til- tökumál þótt hann væri sjálfur mjög heilsuveill, ekki frekar en henni fannst ekki til of mikils mælst að hlusta á ömmu mína forðum daga. Mamma gladdist yfir hinu smæsta og þakkaði fyrir það. Oft rakst mað- ur á snepla sem hún hafði párað á eitthvað um dásamlegan göngutúr í grasagarðinum eða golu sem var svo hlý og kyrrðin svo falleg eða kórinn sem söng svo vel. Þá brást ekki að í lokin kom setning sem innifól orðið „þakklæti“. Mamma var þakklát fyr- ir svo margt; náttúruna sem hún elskaði, blómin í garðinum, Amelitu Gallicurci, Jussi Björling, Lang- holtskirkju og músíkina þar, börnin sín, manninn sinn, þakið yfir höfuðið, systur og mægðafólk og aðra vini og vandamenn, bækurnar sem hún las af mikilli áfergju og góða veðrið en ekki síst fegurðina í mannfólkinu. Hún var fagurkeri og elskaði harm- óníu í öllum hlutum. Áhugi minn í bernsku á hráslagalegum málverk- um Goya var ekki hennar en hún gerði ekki lítið úr honum. Ég var bara öðruvísi en hún og margbreyti- leiki var góður. Fyrir mömmu var ekkert mannlegt ljótt eða slæmt, nema falskur tónn. Hún sjálf átti ekki svo mikið sem einn slíkan tón í sínu tónverki. Kristín Elfa. Mamma fæddist og ólst upp í mið- bænum. Hún bjó í Grjótaþorpinu og Þingholtunum þar til fjölskyldan flutti í Efstasund þegar hún var á unglingsaldri. Mamma átti margar skemmtilegar sögur í fórum sínum af leikjum barnanna og lífinu á stríðsárunum. Rætur hennar lágu einnig norður á Strandir og til Nor- egs. Þegar mamma var þriggja ára sigldi hún til Noregs með mömmu sinni til að heimsækja ömmu og afa í Haugasundi. Einn daginn týndist hún og þegar farið var að leita að henni fannst hún umkringd áheyr- endum, syngjandi fagurri röddu. Þessi fallega rödd og tónlistargáfa átti eftir að fylgja henni alla tíð. Með- an krakkarnir í hverfinu fóru út í leiki sat mamma oft og hlustaði hug- fangin á óperusöng í útvarpinu, og hreifst sérstaklega af rödd Amelitu GalliGurci sem hún þreyttist aldrei á að lýsa fyrir okkur. Mamma hafði alla tíð mikla útþrá og ánægju af ferðalögum. Hún var aðeins 10 ára þegar hún tók strætisvagninn á Ráðningarskrifstofu Bændasamtak- anna og réð sig í sveit um sumarið. Eftir það var hún meira og minna í sveit á sumrin fram undir tvítugt og sagði okkur margar skemmtilegar sögur af ævintýrum sínum, t.d. þeg- ar hún stytti sér leið yfir girðingar og tún og slapp naumlega fram hjá mannýgu nauti. Sögurnar hennar mömmu voru líflegar, hvort sem hún sagði okkur frá skemmtilegum út- reiðartúrum eða skrautlegum per- sónum sem hún kynntist hér og þar. Hún hvatti okkur börnin sín óspart til að ferðast, hún hefði sjálf gjarnan viljað ferðast meira til útlanda en hún gerði. Við systkinin eigum öll minningar um ferðalög með mömmu og pabba um landið þó að aldurs- munurinn í systkinahópnum sé yfir 20 ár. Mamma og pabbi að fara í sunnudagsbíltúr upp í sveit með litlu stúlkurnar Ástu, Soffíu og Kristínu. Mamma í fínum doppóttum kjól með slæðu og á háum hælum. Pabbi kaffi- brúnn í nælonskyrtu með uppbrettar ermar, fer í heljarstökk á flötinni. Mamma 20 árum seinna í útilegu með Völu, Guðna og Ingimundi, ennþá fín og falleg en komin í síðbux- ur og pabbi alltaf jafn brúnn og töff- aralegur en kominn með staf. Það voru mikil forréttindi fyrir okkur að eiga mömmu sem var heimavinnandi. Við komum heim, hentum skólatöskunni í ganginn og kölluðum ,,mamma“ og hún svaraði um hæl. Það skipti okkur miklu máli að vita að hún var til staðar ef við höfðum þörf fyrir hana. Mamma var einstaklega gestrisin kona, alltaf var heitt á könnunni og þó að ekkert virtist vera til í ísskápnum tókst mömmu að reiða fram kræsingar. Hún gaf sér líka alltaf góðan tíma til að spjalla og því var mikill gesta- gangur á heimilinu. Mamma var mikill húmoristi og hafði ótrúlega smitandi hlátur, það var erfitt að vera í fýlu nálægt henni. Í barnaaf- mælum, á gamlárskvöld og við hin ýmsu tækifæri spilaði mamma á gít- arinn og söng með sinni yndislegu rödd. Þó að við eigum margar sameig- inlegar minningar um mömmu eig- um við einnig ólíkar minningar. Þeg- ar við elstu systurnar vorum litlar var ekkert sjónvarp til. Þá var ým- islegt gert sér til skemmtunar á kvöldin, m.a. dansað í stofunni, hlustað á útvarpsleikrit, spilað og spjallað saman. M.a. var mikið hlust- að á Fats Domino, Miriam Makeba, The Shadows og Harry Belafonte. Vala litla fer með mömmu sinni út í Viðey eða í sund og heim að spjalla í eldhúsinu. Litla stúlkan biður mömmu sína að syngja og spila fyrir sig á gítarinn eða lesa fyrir sig sög- una af stúlkunni í turninum. Mamma las mikið og smitaði okkur börnin af þessum mikla bókaáhuga. Það var helst að maður næði ekki sambandi við hana ef hún var niðursokkin í spennandi bók. Hún hafði einnig mikinn áhuga á kvikmyndum og það var alltaf hægt að leita til hennar ef við mundum ekki nafnið á einhverj- um leikaranum. Mamma elskaði að fara á tónleika en þoldi ekki falska tóna og varð stundum alveg ómögu- leg við þær aðstæður. Hún dreif sig oft í messu á sunnudögum, ekki síst til þess að hlusta á fallegan söng. Tónlistin var það sem hvarf henni einna síðast þegar Alzheimerssjúk- dómurinn hafði náð tökum á henni. Síðustu árin voru henni mjög erfið en eitt af því sem veitti henni gleði og ánægju var að fara í bíltúr með Guðna sínum upp að Esjunni og hlaupa þar upp hlíðarnar og tína blóm. Henni þótti líka gott að vera innan um fólkið sitt. Við höfum oft syrgt örlög mömmu síðustu árin hennar, það að hún gat ekki notið lífsins og hæfileika sinna lengur. Við getum þó huggað okkur við það að gleðistundirnar í lífi hennar voru margar og að hún kunni öðrum frem- ur að njóta augnabliksins. Við sökn- um mömmu mikið, hún mun alltaf lifa með okkur. Ásta, Soffía og Vala. Elsku amma. Þegar ég frétti af andláti þínu og lagði af stað upp í Skógarbæ til þess að hitta fjölskylduna og kveðja þig var margt sem fór í gegnum hugann. Margar góðar stundir og minningar á ég af þér og okkur við hina ýmsu iðju. Það sem stóð upp úr þegar ég velti öllum þessum stundum fyrir mér var hlátur þinn og hin eilífa lífs- gleði. Mér leið alltaf rosalega vel inni á Langholtsvegi og hlakkaði alltaf til að koma þangað. Hversu vel mér leið hjá ykkur afa sést vel á því að ég var ekki gamall þegar mamma kenndi mér að ganga til ykkar frá Skipholti og eftir það jukust heimsóknir mínar inn á Langholtsveg til muna. Ég hef átt góða ævi og á mjög góða að en fá- ar manneskjur hafa verið jafn góðar við mig og hlýjar og þú varst. Að fá að alast upp við jafn mikla hlýju frá ömmu sinni og ég gerði er ómetan- legt og er ég fullviss um að það hefur haft mikil áhrif á mig og þá mann- eskju sem ég er í dag. Þú fylltir mig ævinlega gleði og góðmennsku, enda varstu einstaklega glöð og góð kona. Að senda slíka strauma út í sam- félagið og vera hluti af þeim alheims- krafti sem manngæskan er, er ómet- anlegt fyrir alla. Ég er betri manneskja í dag heldur en ég hefði orðið hefði ég aldrei kynnst þér og sú hlýja sem ég fékk frá þér er hluti af þeirri hlýju sem ég gef frá mér í dag til sonar míns og annarra. Ég sakna þín en þú munt lifa áfram í minningu minni og mun ég segja syni mínum frá langömmu sinni og hversu góð kona hún var. Það þótti fleirum en mér gott að koma til þín því þegar ég tók vini mína með mér í heimsókn til þín úr skólanum voru þeir allir sam- mála um hvað ég ætti góða ömmu og hversu góðar veitingar væru alltaf á boðstólum. Ég kem til með að sakna þína mikið og hef reyndar saknað þín töluvert síðustu ár líka, en ég er sannfærður um að á þessari stundu ert þú einhvers staðar með afa og þið eruð ung og frjálsleg í fasi og laus við þær þjáningar og erfiðleika sem fylgdu ellinni á jörðinni. Takk fyrir allt. Gylfi Jónsson. Þegar við setjumst niður frænk- urnar til að skrifa þessi orð kemur strax upp í hugann hvað það var allt- af gott að koma í heimsókn til ömmu því maður var alltaf svo velkominn. Amma bauð til sætis í eldhúsinu og dró fram allan þann mat sem til fannst í húsinu (að því er virtist) og Andrés-blöðin ómissandi til að lesa með. Henni var umhugað um að allir hefðu allt til alls og að vel færi um alla. Hún var alltaf síðust til sætis því aldrei fannst henni vera nógur mat- ur á boðstólum. Þegar amma loksins settist niður eyddum við löngum stundum í rabb um alla skapaða hluti, bæði þessa heims og annars. Hún smitaði okkur af áhuga sínum á álfum og draugum og hvatti okkur til að halda ávallt opnum huga. Amma var mikil æv- intýrakona og vakti hjá okkur öllum mikinn áhuga á ferðalögum, bæði innanlands og utan. Það var lýsandi fyrir ömmu hvað hún hafði mikinn áhuga á fólki á öll- um aldri og hún gaf sér alltaf tíma til að setjast niður með okkur. Annað sem átti sér stað í eldhús- inu var regluleg klipping okkar frænkna. Amma klippti ágætlega og var mikið í mun um að við tolldum í tískunni, þess vegna klippti hún allt- af á okkur hliðar. Þegar fram liðu stundir vöktu hliðarnar með okkur mikla skelfingu en ekki vildum við mótmæla ömmuklippingunni af hættu við að sýna vanþakklæti. Amma var mjög músíkölsk og naut þess bæði að hlusta á tónlist og spila og syngja sjálf. Hún hafði yndislega söngrödd en hápunkturinn að okkar mati var þó jóðlið, sem ávallt vakti mikla lukku. Þegar amma var aðeins byrjuð að veikjast komu stundum upp skondin tilfelli t.d. í skírn litlu frænku. Hún ber seinna nafnið Vígdögg, en þegar nafnið var lesið upp í kirkjunni segir amma hátt og snjallt: „Heitir barnið Vígtönn?“ Þetta vakti mikla kátínu meðal viðstaddra. Sjúkdómurinn herjaði æ meira á ömmu og síðustu ár voru henni mjög erfið, sem og okkur í fjölskyldunni. Við erum þakklátar fyrir þann stutta tíma sem við fengum að njóta sam- vista við hana og munum ávallt muna hana eins og hún var; falleg, bros- mild og syngjandi. Sunna, Guðný og Margrét. Kristín Sigmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.