Morgunblaðið - 14.04.2007, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
börn
Í þessari viku þurfið þið að skoða Íslandskortið vel.
Á því finnið þið nokkur bæjarnöfn og þeirra skulið
þið leita í stafasúpunni. Aðeins eitt bæjarnafn
finnst ekki í stafasúpunni og þegar þið hafið fundið
út hvaða bæjarnafn það er þá hafið þið leyst verð-
launaleik vikunnar. Þetta eina bæjarnafn skrifið
þið á blað og sendið okkur fyrir 21. apríl. Munið að
láta fylgja með upplýsingar um nafn, heimilisfang
og aldur, þá eigið þið möguleika á að vinna DVD–
myndina um Litla kjúllann.
Framan á umslagið skrifið þið:
Morgunblaðið
Börn – verðlaunaleikur
14.4. 2007
Hádegismóum 2
110 Reykjavík
Fyrir tveimur vikum áttuð þið að leysa púsl-
þraut og reyndist sú þraut nokkrum töluvert erfið
en þeir sem sendu inn rétta lausn og voru dregnir
út fá geisladiskinn Emil í Kattholti.
Vinningshafar eru:
Katrín Edda Möller
8 ára
Kópalind 1
201 Kópavogi
Linda Björk Brynjarsdóttir
5 ára
Faxastíg 37
900 Vestmannaeyjum
Orri Heiðarsson
7 ára
Háuhlíð 14
105 Reykjavík
María Björg Fjölnisdóttir
6 ára
Sunnuholti 2
400 Ísafirði
Verðlaunaleikur vikunnar
Katrín Lilja Pétursdóttir
9 ára
Krossalind 35
201 Kópavogi
Til hamingju krakkar! Þið getið nálgast geisla-
diskana ykkar í afgreiðslu Morgunblaðsins eða
hringt og fengið þá senda.
Við viljum minna ykkur enn og aftur á að setja
teikningar í sérmerkt umslög. Því miður lenda allt
of margar teikningar í ruslinu okkar þar sem við
opnum ekki allar innsendar lausnir við verðlauna-
leiknum.
Gauti Páll, 8 ára, teiknaði þessa glæsilegu mynd af dröng-
unum í Vík. Þjóðsagan segir að tvö tröll hafi verið að draga
þrísiglt skip að landi en þau voru of sein að helli sínum í fjall-
inu. Þau voru rétt við fjallsræturnar við sólarupprás og þá
urðu þau bæði og skipið að steini.
Reynisdrangar
Gunnar Hubert, 9 ára, teiknaði þessa ógurlegu mynd af eld-
verðinum. Ætli eldvörðurinn sé góður eða slæmur? Það er
ekki gott að segja til um það.
Eldvörðurinn
Athugaðu hvort þú kemst í gegnum völundarhúsið að höfði
slöngunnar. Byrjaðu við einn af slönguhölunum þremur.
Slönguvölundarhúsið
Karítas, 9 ára, teiknaði þessa fallegu páskamynd af páska-
eggjum undir regnboganum. Ætli hún Karítas sé nú samt
ekki búin að borða páskaeggin sín núna?
Páskaegg
Þórdís María, 6 ára, teiknaði þessa fallegu mynd af henni
Rósalind prinsessu sem er búin að breyta sér í hænu. Það væri
nú gaman að kunna að galdra eins og hún Rósalind prinsessa
og halda fallegar fiðrildaveislur eins og hún gerir gjarnan.
Fallegasta hænan
á bænum
Dragðu línu frá 1–49 og kláraðu að teikna og lita myndina.