Morgunblaðið - 14.04.2007, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 14.04.2007, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2007 3 börn Jógvan Hansen er 28 ára Færeyingur sem hefur verið búsettur á Íslandi síðastliðin 3 ár. Hér rekur hann fyrirtæki sitt ásamt félögum sínum, hár- greiðslustofuna Unique, en á án efa eftir að vera ansi upptekinn af skemmtanahaldi á næstunni þar sem hann sigraði í X-Factor keppninni um síðustu helgi. Við hittum þennan ljúfa, hógværa og sjarmerandi söngvara sem sagði okkur lítið eitt frá sjálfum sér. Hvers vegna ákvaðst þú að taka þátt í X-Factor? Mig langaði til þess þegar ég sá keppnina aug- lýsta en endanleg ákvörðun var ekki mín þar sem Hara systurnar skráðu mig. Þá gerði ég mér grein fyrir að þetta gæti verið gott tækifæri til að komast eitthvað áfram í tónlist á Íslandi. Ég kynntist Hara systrum, þeim Hildi og Rakel, í gegnum fyrrverandi kærustu mína sem býr í Hveragerði. Það var í Evr- óvisjónpartíi þegar Ruslana vann og við höfum verið vinir síðan. Hvað var það skemmtilegasta við að taka þátt í X- Factor? Félagsskapurinn fyrst og fremst og líka að fá að kynnast Einari, Kristjönu og Yasmin. Er einhver munur að búa á Íslandi og í Fær- eyjum? Já, lífsgæðakapphlaupið er miklu meira hér. Svo er tungumálið líka skrítið. Hafðir þú eitthvað fengist við tónlist áður en þú fluttir til Íslands? Já, alveg heilmikið. Ég byrjaði í klassískri tónlist þegar ég var 9 ára og þá lærði ég á fiðlu. Ég fór svo seinna í Sinfóníuhljómsveit Færeyja. Ég var líka fiðluleikari í hljómsveit frænda míns sem hét Vísu- menn. Þegar ég var 17 ára byrjaði ég að syngja og var söngvari í hljómsveit sem hét Aria. Við gáfum við út eina plötu. Ég fór líka í tónlistarlýðháskóla í Danmörku. Seinna gaf ég svo út þrjár plötur fyrir börn sem kallast Kularrötur. Hvaða hljóðfæri finnst þér skemmtilegast að spila á? Uppáhaldshljóðfærin mín eru fiðla og gítar. Annars kann ég aðeins á munnhörpu og mandólín líka. Hvort langaði þig meira til að vera hárgreiðslu- maður eða söngvari þegar þú varst barn? Þetta er létt spurning, söngvari. Hvernig tónlist hlustaðir þú á þegar þú varst barn? Þegar ég var lítill strákur hlustaði ég mest á kristilega barnatónlist. Mér fannst líka gaman að stela plötum frá systur minni eins og Kiss og Twis- ted sisters. Áttir þú þér uppáhaldsleikfang þegar þú varst barn? Það er hræðilegt að segja það en uppáhaldsleik- fangið mitt var hnífur, ég elskaði að tálga. Svo elsk- aði ég líka bambusveiðistöngina mína. Foreldrar mínir voru svo duglegir að gefa mér svoleiðis hluti og sýndu mér hvernig ætti að nota þá. Hræðistu eitthvað? Já. Sjálfan mig stundum. Varstu prakkari? Nei, ég var frekar góður strákur nema ég stríddi systur minni stundum. Hver var þín helsta fyrirmynd í tónlistinni þegar þú varst barn og hver er þín helsta fyrirmynd í dag? Sem barn var það frændi minn sem ég fór síðar að spila tónlist með. Í dag er það örugglega tónlist- armaðurinn Sting Hvað tekur svo við hjá þér núna? Nú er bara meira að gera og ég ætla að reyna að fá fleiri tónlistartækifæri. Við kveðjum þennan ljúfa söngvara og væntum þess að fá að heyra í honum á öldum ljósvakans á næstunni. Lífsgæðakapphlaupið meira á Íslandi og tungumálið skrítið Morgunblaðið/ÞÖK Hæfileikar Jógvan Hansen syngur eins og engill og spilar líka á fiðlu, gítar, munn- hörpu og mandolín. Þessir hlutir eru í felum á efri myndinni. Getið þið fundið þá án þess að kíkja á lausnina? Ef þið gef- ist upp þá er lausnin aftast. Annars skulið þið reyna eins og þið getið áður en þið lítið á lausnina. Píanósnillingur í feluleik Hér fyrir ofan sjáið þið 16 hluti, tannbursta, ánamaðk, límtúpu, tungl, sleikjó, fána golfkylfu, pens- il, nál, skál, appelsínubát, fugl, skíðahúfu, banana, opna bók og umslag. dæmis mynd af ís mynduð þið leita að reitum sem mynda tveggja stafa orð og setja orðið ís þar inn í. Það sem Á myndunum sérðu fimm sælgætis- tegundir. Heiti þeirra passa inn í reit- ina á einungis einn veg. Ef það væri til gerir þetta svolítið flókið er að hér eru tvö sjö stafa orð og þrjú níu stafa orð. Gangi ykkur vel. Nammi, namm Þegar þið eruð í fjöruferð getið þið á einfaldan hátt búið til lítinn bát, sjósett hann og horft á eftir honum sigla sína leið. Það eina sem þið þurfið að finna á leiðinni er lítill trébútur og stór fjöður. Trébúturinn þarf að vera frekar slétt- ur öðrum megin og fjöðrin þarf að vera heilleg. Þið einfaldlega stingið fjöðurstafn- um (harða endanum á fjöðrinni) ofan í viðarbútinn og þá eruð þið komin með bát. Ef þið viljið eiga meira við bátinn þá getur verið gaman að tálga viðarbút- inn til en munið samt að fá leyfi hjá fullorðnum áður en þið handleikið hníf. Fjöðrina skuluð þið þá þvo vel því á henni geta leynst hinar ýmsu bakterí- ur og er ágætt að losna við þær áður en báturinn verður skraut í herberginu ykkar. Svo skuluð þið festa band í bát- inn svo hann sigli ekki frá ykkur. Gangi ykkur vel og góða skemmtun. Fjaðrabátar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.