Morgunblaðið - 04.05.2007, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
úrslit
PHOENIX Suns og San Antonio
Spurs mætast í undanúrslitum Vest-
urdeildar í NBA-deildinni í körfu-
knattleik. Spurs lagði Denver Nug-
gets í fjórða sinn og hafði betur 4:1
og það sama var uppi á teningnum
hjá Suns gegn LA Lakers.
Kobe Bryant, aðalstjarna LA La-
kers, lét óánægju sína með uppbygg-
ingastarfið hjá félaginu sem hefur
tekið þrjú ár. „Ég er meira en pirr-
aður á ástandinu. Við höfum eytt
þremur árum í að byggja upp lið og
við erum enn ekki komnir upp úr
kjallaranum. Það skiptir því miklu
máli hvað gerist í sumar og þá sjáum
við í hvaða átt félagið ætlar að
stefna. Ef við ætlum að taka skref
fram á við þá þarf að gera það núna.
Þeir verða bara að gera eitthvað og
það strax,“ sagði Bryant en hann
skoraði 33 stig í leiknum. Þetta er
annað árið í röð sem Lakers fellur úr
keppni í fyrstu umferð úrslitakeppn-
innar en liðið hefur ekki komist
áfram frá því að Shaquille O’Neal lék
með liðinu árið 2004. Bryant er 28
ára gamall og hann getur óskað eftir
því að fara frá Lakers árið 2009. Það
er því mikilvægt fyrir forráðamenn
liðsins að finna „aukaleikara“ sem
geta lyft Lakers á hærra plan strax á
næstu leiktíð. Vandamálið er að La-
kers getur ekki boðið helstu stjörnum
deildarinnar álitlegan samning þar
sem liðið er við efri mörk launaþaks
NBA-deildarinnar. Kevin Garnett,
Jason Kidd og Jermaine O’Neal eru
allt leikmenn sem forráðamenn La-
kers hefðu áhuga á að fá til liðsins en
það er ekki auðvelt.
Steve Nash leikmaður Suns sagði
að liðið hefði ekki leikið vel þrátt fyr-
ir 119:110-sigur liðsins en hann skor-
aði 17 stig og gaf 10 stoðsendingar.
að það eru ekki nema eitt til tvö ár
eftir af ferlinum og ég ætla að njót
þess á meðan ég get,“ sagði Finley
hann er 34 ára gamall. Allen Ivers
náði sér ekki á strik í liði Nuggets
eftir að hafa leikið gríðarlega vel í
fyrsta leiknum sem var eini sig-
urleikur Denver. „Ég hef aldrei le
ið eins illa í úrslitakeppni áður. Þa
eru gríðarleg vonbrigði og ég kom
Denver til þess að hjálpa liðinu á
næsta stig en því miður tókst það
ekki,“ sagði Iverson en hann kom
Philadelphia í febrúar í stórum lei
mannaskiptum.
„Við áttum aldrei í sérstökum vand-
ræðum í þessum leik en við vissum að
Lakers hefði engu að tapa og þeir
myndu mæta grimmir til leiks,“ sagði
Nash en hann hitti aðeins úr 5 af 15
skotum sínum í leiknum og tapaði
boltanum 7 sinnum.
Denver er úr leik eftir 93:78-tap
liðsins gegn San Antonio Spurs.
Michael Finley, leikmaður Spurs,
hitti úr 8 af alls 9 skotum sínum utan
þriggja stiga línunnar og skoraði
hann alls 26 stig. „Þetta var í raun fá-
ránleg hittni,“ sagði Gregg Popovich
þjálfari Spurs eftir leikinn. „Ég veit
Bryant er að missa þolinmmæðina
HANDKNATTLEIKUR
HK – Stjarnan 29:26
Digranes, deildabikar karla, DHL-bikar-
inn, úrslit, fyrsti leikur, miðvikudagur 2.
maí 2007.
Gangur leiksins: 0:1, 3:1, 4:4, 7:7, 9:11,
11:11, 12:13, 14:13, 14:16, 17:18, 23:18,
26:21, 27:24, 29:25, 29:26.
Mörk HK: Augustas Strazdas 9, Tomas Ei-
tutis 8, Ragnar Hjaltested 5, Valdimar
Þórsson 3, Sergei Petraytis 3, Ólafur
Bjarki Ragnarsson 1.
Varin skot: Egedijus Petkevicius 14/2.
Mörk Stjörnunnar: Davíð Kekelia 8, Pat-
rekur Jóhannesson 7, Björn Óli Guðmunds-
son 6, Ívar Markússon 2, Elías Már Hall-
dórsson 2, Arnar Theódórsson 1.
Varin skot: Roland Valur Eradze 8/1, Árni
Þorvarðarson 1.
Þýskaland
Magdeburg – Düsseldorf..................... 33:24
Staðan:
Kiel 27 22 2 3 989:773 46
Hamburg 27 22 2 3 877:742 46
Magdeburg 28 21 2 5 899:774 44
Nordhorn 27 20 2 5 838:751 42
Gummersbach 28 20 2 6 965:866 42
Flensburg 27 20 1 6 891:790 41
Lemgo 27 18 1 8 855:788 37
Kr-Östringen 28 16 2 10 815:782 34
Göppingen 28 14 1 13 828:823 29
Grosswallst. 27 12 3 12 726:741 27
Wilhelmshav. 28 9 2 17 798:852 20
Düsseldorf 28 8 0 20 733:848 16
Balingen 27 6 3 18 707:796 15
Minden 28 7 1 20 692:817 15
Melsungen 28 7 0 21 766:865 14
Wetzlar 28 5 1 22 727:882 11
N-Lübbecke 28 5 0 23 794:897 10
Hildesheim 25 2 1 22 659:772 5
KNATTSPYRNA
UEFA-bikarinn
Undanúrslit, seinni leikir:
Sevilla – Osasuna..................................... 2:0
Luis Fabiano 37., Dirnei Renato 53.
Sevilla í úrslit, samanlagt 2:1.
Werder Bremen – Espanyol................... 1:2
Hugo Almeida 4. – Ferran Coro 50., Jesus
Lacruz 61. Rautt spjald: Miroslav Klose
(Bremen) 19.
Espanyol í úrslit, samanlagt 5:1.
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA-deildin
Leikir í fyrrinótt:
Vesturdeild, 8-liða úrslit:
Denver – San Antonio...........................78:93
San Antonio vann 4:1
LA Lakers – Phoenix........................100:119
Phoenix vann 4:1.
í kvöld
KNATTSPYRNA
Lengjubikar kvenna
A-deild, úrslitaleikur:
Egilshöll: KR – Valur............................19.15
Lengjubikar karla
B-deild, úrslitaleikur:
Boginn: Afturelding – Fjarðabyggð.........20
Jordan var sex sinnum í sigurliði Chi-
cago Bulls í NBA-deildinni og fimm sinn-
um var hann kjörinn besti leikmaður
NBA-deildarinnar, MVP.
„Það er erfiðara fyrir Tiger að sigra á
stórmóti þar sem hann þarf að gera allt
sjálfur en ég var hluti af góðu liði. Ef ég
átti slæman dag þá voru aðrir sem tóku
við og hjálpuðu liðinu. Það er ekki hægt í
golfi,“ sagði Jordan í gær. Hann er ágæt-
ur kylfingur og bandarískir fjölmiðlar
greina frá því að forgjöf hans sé á bilinu
2–4.
Jordan tók upp á ýmsu í gær og spark-
aði m.a. í golfbolta sem Tiger Woods var
búinn að setja upp á tíið á teig. Boltinn
endaði hjá ungum dreng sem var hæst
ánægður með sendinguna og Woods virt-
ist nokkuð sáttur við niðurstöðuna. Það
vakti athygli að Jordan lék ekki með
Nike golfkylfum en Nike vörumerkið og
Jordan eru líklega á meðal þekktustu
vörumerkja heims eftir áratuga sam-
vinnu. Jordan sló boltann með Ping kylf-
um og tókst nokkuð vel upp.
Woods sagði í sjónvarpsviðtali að Jor-
dan hefði á sínum tíma haft samband við
sig og frá þeim tíma hefðu þeir verið góð-
ir vinir. „Hann er í raun eins og stóri
bróðir minn. Það eru ekki margir
íþróttamenn sem hafa fengið eins mikla
athygli og Michael Jordan. Hann vissi
því hvernig átti að bregðast við ýmsum
hlutum sem ég átti eftir að ganga í gegn-
um þegar minn ferill var að hefjast. Ég
lærði ótrúlega margt af þeirri reynslu og
þekkingu sem hann bjó yfir. Við
skemmtum okkur alltaf þegar við leikum
golf og það breytist aldrei,“ sagði Woods.
Reut
Tveir góðir Tiger Woods bendir Michael Jordan á hvert upphafshögg hans fór á fimmtu braut.
MICHAEL Jordan segir að það sé erf-
iðara fyrir Tiger Woods að sigra á
stórmóti í golfi í samanburði við að
vera leikmaður í meistaraliði NBA-
deildarinnar. Jordan og Woods léku í
gær saman í ráshóp í Pro/Am móti
fyrir Wachovia -meistaramótið á PGA-
mótaröðinni sem hófst í gær. Þeir fé-
lagar vöktu gríðarlega athygli en þeir
þekkjast mjög vel og gerði Jordan
óspart grín að besta kylfingi heims á
hringnum.
Tiger Woods lærir
af Michael Jordan
íþróttir
ÞAÐ verða spænsku félögin Sevilla
og Espanyol sem mætast í úrslita-
leik UEFA-bikarsins í knattspyrnu
en þau slógu Osasuna frá Spáni og
Werder Bremen frá Þýskalandi út í
undanúrslitunum í gærkvöld. Sevilla
vann Osasuna 2:0 og 2:1 samanlagt
og Espanyol gerði góða ferð til
Þýskalands, sigraði þar lið Bremen
2:1 og samanlagt 5:1.
Úrslitaleikurinn fer fram á Hamp-
den Park í Glasgow miðvikudags-
kvöldið 16. maí.
Þetta er annað árið í röð sem Se-
villa leikur til úrslita um UEFA-
bikarinn. Liðið lagði Middlesbrough
í úrslitaleiknum í fyrra og getur
orðið annað liðið í sögu keppninnar
til að vinna hana tvisvar í röð en
Real Madrid lék þann leik árin 1985
og 1986. Sevilla á enn góða mögu-
leika á spænska meistaratitlinum og
er komið í úrslit í bikarkeppninni,
gegn Barcelona, þannig að liðið get-
ur unnið þrjá titla á tímabilinu.
Það voru Brasilíumennirnir Fa-
biano og Renato sem skoruðu mö
in fyrir Sevilla, hvort í sínum hál
leik.
Espanyol er litla liðið í Barcelo
borg og á nú möguleika á sínum
fyrsta Evróputitli. Félagið hefur
aldrei orðið spænskur meistari en
komst í UEFA-bikarinn með því a
verða spænskur bikarmeistari í
fjórða sinn síðasta vor. Þá slapp
ið naumlega við fall úr 1. deildin
en það siglir nú lygnan sjó í 12. s
deildarinnar.
Espanyol fór með 3:0 forskot ti
Þýskalands en Bremen, sem er í
þriðja sæti þýsku 1. deildarinnar
eygði von eftir að Almeida skora
byrjun leiks. Sóknarmaðurinn Mi
roslav Klose var hinsvegar rekin
velli á 19. mínútu, þegar hann fék
sitt annað gula spjald, fyrir leik-
araskap. Tíu Þjóðverjar áttu að v
um erfitt uppdráttar og eftir að þ
Coro og Lacruz skoruðu fyrir Es
anyol snemma í seinni hálfleik, 2
voru úrslitin ráðin.
Sevilla og Espanyol
í úrslitaleik á Hampden
ENSKA knattspyrnusambandið
hefur sektað Arsene Wenger,
knattspyrnustjóra Arsenal, um
2.500 pund, tæpar 320 þúsund
krónur, og áminnt hann alvarlega
fyrir framkomu sína eftir úrslita-
leik deildabikarsins gegn Chelsea í
lok febrúar. Wenger neitaði ásök-
unum sambandsins en aganefnd
þess kom saman í gær og komst að
þeirri niðurstöðu að rétt væri að
sekta hann og áminna. Þetta er í
þriðja sinn á þessu tímabili sem
Wenger er sektaður fyrir fram-
komu sína og samtals hefur hann
þurft að greiða 15 þúsund pund,
eða tæpar tvær milljónir króna.
Wenger sekt-
aður í þriðja sinn