Morgunblaðið - 22.06.2007, Blaðsíða 1
föstudagur 22. 6. 2007
bílar mbl.isbílar
Sportbíllinn Audi TT sómir sér vel og veitir ánægju undir stýri » 4
4.3”
!!
EFLAUST hafa margir hugsað sér að
keyra hringinn í kringum landið í sum-
ar. Líklega hefur fáum öðrum en
Bjarka Hermannssyni, Birni Krist-
inssyni, Guðfinni Eiríkssyni, Helenu
Sigurðardóttur og Óttari Johnson þó
dottið í hug að aka fjarstýrðum bíl
hringinn.
Þessi hópur leggur af stað í leið-
angur með fjarstýrðan bíl aðfaranótt
sunnudagsins 24. júní og áætluð heim-
koma er að morgni þriðjudags 26. júní
og vonast til að slá heimsmetið í slíkum
akstri. Bílinn er um fimmtungur af
stærð venjulegs bíls, 82 sm á lengd og
tæplega 10 kg, og gengur fyrir 95 okt-
ana bensíni.
Bjarki, sem verður farþegi í bíl sem
eltir fjarstýrða bílinn, mun stýra hon-
um. Helena mun keyra við hlið bílsins á
fjórhjóli til þess að varna því að aðrir
bílar keyri yfir hann.
Hópurinn fékk leyfi frá lögreglunni
og sérstök viðvörunarljós verða sett á
bílana. Fjarstýrði bíllinn keyrir hrað-
ast fimmtíu kílómetra á klukkustund,
og ástæða þykir til að gæta þess að
gera öðrum ökumönnum aðvart.
Hópurinn sem skipulagði ferðina
veit ekki til þess að fjarstýrður bíll hafi
verið keyrður jafn langa vegalengd og
vonast því til þess að setja heimsmet.
Ferðin er farin til styrktar Rjóðrinu
sem er hvíldarheimili fyrir langveik
börn. Þeir sem vilja styrkja Rjóðrið
geta hringt í síma 901 5000 og bætast
þá þúsund krónur á símreikning við-
komandi. Einnig má senda skilaboð um
framlög í farsímanúmer 864 6812 eða á
netfangið helenaos@simnet.is.
Morgunblaðið/Frikki
Fjarstýrður bensínbíll Þessir krakkar munu aka fjarstýðum bíl af gerðinni Baja í kringum landið. Bı́llinn
gengur fyrir bensíni. Þau vonast til þess að setja heimsmet í akstri á fjarstýrðum bíl í hringferðinni.
Hyggjast aka fjarstýrðum bensínbíl hringinn í kringum landið á tveimur dögum
Vonast til
að setja
heimsmet
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111