Morgunblaðið - 22.06.2007, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
VW Passat 4 Motion Station,
árg. 2002, ek.7 0 þús. km. Verð 1.390
þús. kr. Áhv. 875 þús. kr.
Kia Sportage Grand Classic, árg.
2002, ek. 85 þús.km. Verð 950 þús. kr.
Áhv. 854 þús. kr.
Toyota Avensis Wagon Terra,
árg. 1999, ek. 147 þús. km.
Verð 640 þús. kr.
M.Benz M ML350, árg. 2005,
ek. 56 þús. km. Verð tilboð 3.990 þús. kr.
Verð áður 4.490 þús. kr.
Ford F150 Super Crew 35”, árg. 2005,
ek.25þús.km. Verð 3.850 þús. kr.
Áhv. 2.400 þús. kr.
VW Golf Comfort 4 Motion, árg. 2005,
ek. 39 þús. km. Verð 1.470 þús. kr.
Áhv.1.170 þús. kr.
Subaru Impreza Wagon GX 4WD, árg.
2003, ek. 53 þús. km. Verð 1.210 þús. kr.
Áhv. 610 þús. kr.
Toyota Land Cruiser 100 VX 35”, árg.
2006, ek. 20 þús. km. DÍSEL.
Verð 9.490 þús. kr.
Porsche Cayenne, árg. 2004, ek. 67 þús.
km. Verð 6.490 þús. kr. Stgr.
Tilboð 5.890 þús. kr.
Lincoln Mark LT,
árg. 2006, ek.10 þús. km.
Verð 4.490 þús. kr.
Funahöfða 1 • Opið vd kl. 10:00-18:30 • Lokað laugardaga í júní og júlí
TUTTUGU og einn ökukennari, sem var á vegum
stofnunar Kennaraháskóla Íslands, Símenntun-
Rannsóknir-Ráðgjöf, lauk nýlega námi til kennslurétt-
inda á bifhjól. Í þeim hópi eru tvær konur sem munu
vera þær fyrstu hér á landi sem öðlast slík réttindi.
Námið stóð yfir í heila viku og fór að mestu leyti fram
erlendis, á kennslusvæði SKA skammt utan við Kaup-
mannahöfn. Í fréttatilkynningu frá aðstandendum
námsins segir að það sé von þeirra og hinna nýútskrif-
uðu kennara að ný viðhorf og nýjar kennsluaðferðir
sem þeir kynntust í námi sínu í Danmörku komi til með
að nýtast vel við bifhjólakennslu hérlendis.
Kennsluréttindi á bifhjól
Nýútskrifaðir 21 nemandi útskrifaðist með réttindi til að kenna á bifhjól eftir að hafa numið í Danmörku.
ÁHUGAMENN um kappakstur
eiga þess senn kost að sjá keppanda
í formúlu-1 aka keppnisbíl hér á
landi. Þar verður á ferð þýski öku-
þórinn Nico Rosberg sem keppir
fyrir Williams. Mun hann sýna
kúnstir á Williams-bíl við Smáralind.
Sýning Rosberg mun eiga sér stað
næstkomandi þriðjudag. Annars
vegar klukkan 16.30 og hins vegar
klukkan 18. Fyrir og eftir aksturinn
mun hann gefa eiginhandaráritun
þeim sem hennar óska.
Daginn áður verður hægt að fylgj-
ast með vélvirkjum Williams setja
bílinn saman í Vetrargarðinum í
Smáralind. Aðgangur að því og sýn-
ingunni daginn eftir er ókeypis.
Þetta mun vera í fyrsta sinn sem
keppnisbíl úr formúlu-1 er ekið hér á
landi. Hingað kemur Nico Rosberg á
vegum Baugs og Hagkaupa. Í tilefni
komu hans til Íslands verður Hag-
kaup með sérstakan leik þar sem
vinningshafi fær ferð fyrir tvo á
breska kappaksturinn í Silverstone í
Englandi í júlí.
Rosberg er sonur heimsmeistar-
ans frá 1982, Finnans Keke Ros-
berg, sem þá var einnig keppandi
Williams. Að honum hefur talsvert
kveðið í mótum ársins en þó brást
bíllinn honum í síðasta móti, banda-
ríska kappakstrinum í Indianapolis.
Þar hafði hann með vel útfærðri her-
fræði unnið sig úr 14. sæti á rás-
marki í það sjötta á endamarki er
mótorinn gaf sig.
Daginn eftir Íslandsheimsóknina
verður Rosberg 22 ára. Hann er
jafnaldri Lewis Hamiltons en fædd-
ur síðar á árinu. Hann er því yngst-
ur reglulegra keppenda, en Þjóð-
verjinn Sebastian Vettel, sem hljóp í
skarðið hjá BMW í Indianapolis um
síðustu helgi vegna fjarvistar Ro-
berts Kubica, er þó mun yngri, að-
eins 19 ára.
Kappi Nico Rosberg kappaksturs-
maður verður á Íslandi í næstu viku
og sýnir þar formúlu 1 kappakst-
ursbíl frá Williams-liðinu.
Rosberg spyrnir
á Williams-bíl
við Smáralind
BMW mótorhjólaklúbbur var stofnaður
í liðinni viku í húsakynnum B&L. Á
fundinum var kosin undirbúningsstjórn
til að ganga frá umsókn til BMW auk
þess sem stofnfundurinn valdi merki fé-
lagsins.
Stjórninni var jafnframt falið að
undirbúa drög að samþykktum félags-
ins og fyrsta stjórnarkjör og verður
boðað til almenns félagsfundar um leið
og þetta tvennt liggur fyrir, ásamt
aðildarumsókninni til alþjóðasamtaka
BMW-klúbba.
Undirbúningsstjórnina skipa Gunnar
Biering ritari, Helga Guðrún Jónas-
dóttir gjaldkeri og Njáll Gunnlaugsson
formaður.
Mótorhjólaklúbbur BMW
Morgunblaðið/Golli
Torfæruhjól Nýja BMW HP2 torfæruhjólið var til sýnis á stofnfundinum.Rennileg bifhjól BMW-hjólin voru hvert öðru glæsilegra.