Morgunblaðið - 22.06.2007, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
A
udi hefur nýverið kynnt
aðra kynslóð sportbíls-
ins TT og er hann
kominn í sölu hjá
Heklu, umboðsaðila
Audi. Bíllinn var tekinn til kostanna
sl. helgi og uppfyllti hann allar
væntingar, sem voru þó nægar fyr-
ir. Audi TT er boðinn með tveimur
vélargerðum, 2 lítra túrbóvél og er
þá framhjóladrifinn og 3,2 lítra, sex
strokka vél og er þá fjórhjóladrif-
inn. Þeim fyrrnefnda var prufuekið
og öll 200 hestöflin nýtt til hins ýtr-
asta.
Vinur ökumanns
Stærri vélin skilar 250 hestöflum
en báðir koma þeir sjálfskiptir 6
gíra, en má beinskipta með S-tronic
skiptingu Audi. Audi TT reyndist
sannur sportbíll, ótrúlegt afl, magn-
aðir aksturseiginleikar og öndvert
við margan sportbílinn, einstaklega
auðveldur í akstri og verður strax
vinur ökumanns.
Einstök hönnun
Hönnun Audi á TT bílnum er
aðdáunarverð, þótt skiptar skoðanir
séu um hvort nýi bíllinn sé fallegri
en forveri hans. Helst heyrist gagn-
rýni á afturendann en framhlutinn
er óumdeilanlega fríður. Bíllinn hef-
ur stækkað á alla kanta, er 13,7 cm
lengri og 7,8 cm breiðari. Mjög erf-
itt er að setja út á nokkuð í útfærslu
Algjör akstursánægja
Morgunblaðið/Kristinn
Breyttur Útlit Audi TT er talsvert breytt frá fyrstu kynslóð bílsins.
Straumlínur Vindskeiðin kemur upp við 120 km hraða. Haganleiki Fallegt mælaborð og allt á réttum stað.
REYNSLUAKSTUR
Audi TT
Finnur Orri Thorlacius
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
„HveR nenniR að Hanga
Í bænUM á SUMRin?“