Morgunblaðið - 22.06.2007, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2007 9
25 ml.
www.stilling.is // stilling@stilling.is
Skeifan 11, 108 Reykjavik | Bíldshöfði 12, 110 Reykjavík | Smiðjuvegur 68, 200 Kópavogur | Dalshraun 13, 220 Hafnarfjörður
Draupnisgata 1, 600 Akureyri | Eyrarvegur 29, 800 Selfoss. | Sími: 520-8000
Upplifðu Ísland með Thule
ferðavörum
Ferðabox verð frá 24.900,-
G
C
IA
LM
AN
N
AT
EN
G
SL
-G
R
EY
C
O
M
M
U
N
IC
AT
IO
N
S
IN
TE
R
N
AT
IO
N
AL
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | www.mazdabrimborg.is
mazdabrimborg.is
Skoðaðunýjasta
pallbílinnfráMazda.
MazdaBT-50.Smelltu
ámazdabrimborg.is.
Gerðugóðkaup.
KomduíBrimborg.
VertuMazda.
NýrMazda
Mazda BT-50 4x4 DoubleCab. Verð frá
2.890.000 kr.*
*Brimborg og Mazda áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara og að auki er kaupverð háð gengi. Nánari upplýsingar veita söluráðgjafar Brimborgar.
Smelltu á
FRÖNSKU bílasmiðjurnar Renault
hafa ákveðið að stofnsetja eigið
dótturfyrirtæki til sölu og dreifing-
ar framleiðslu sinnar, varahluta og
annarrar eftirþjónustu við kaupend-
ur í Svíþjóð, Noregi, Finnlandi og
Danmörku frá og með næstu ára-
mótum.
Renault hyggst verja 10 milljón-
um evra til fjárfestinga við að koma
Renault Nordic á fót. Segist fyr-
irtækið vera að leggja upp í „sögu-
lega sókn“ með bíla sína inn á
Norðurlöndin. Takmarkið er að
auka hlutdeild Renault á norrænum
markaði fyrir fólksbíla og létta
sendibíla úr 4% árið 2006 í 7% 2013.
Höfuðstöðvar norræna dótturfyr-
irtækisins verða í Stokkhólmi og af
um 165 manna starfsliði verða um
100 þar. Útstöðvar verða svo í Hels-
inki, Kaupmannahöfn og Ósló. Að
öðru leyti verður engin breyting á
núverandi umboðakerfi Renault í
löndunum fjórum.
Á heimamarkaði í Frakklandi
hyggst Renault hins vegar stokka
upp sölukerfi sitt, sem er í eigu
dótturfyrirtækisins REAgroup. Það
er að fullu í eigu Renault en verður
að hluta til selt sjálfstæðum fjár-
festum, að sögn franska viðskipta-
blaðsins Les Echos. Tilgangurinn
er að tryggja hagnað bílafyrirtæk-
isins þrátt fyrir tapaða markaðs-
hlutdeild. REAgroup á ennfremur
hluta sölufyrirtækja Renault í Bret-
landi.
Stofnun Renault Nordic er hluti
af markmiðasetningu sem gengur
út á að Renault selji 800.000 fleiri
bíla árið 2009 en árið 2005. Á Norð-
urlöndunum mun Renault bjóða
upp á 25 ný módel undir merkjum
Renault og Dacia á næstu árum,
þar af 13 á næsta ári, þar á meðal
Megane-bíl sem brúkar lífrænt
E85-eldsneyti. Verða þessir bílar
sérstaklega útbúnir til að þola hið
kalda loftslag norðursins.
Renault blæs til sókn-
ar á Norðurlöndum
EKKI vantar fjölbreytnina þegar
kemur að aukahlutum og ýmsum
smáhlutum sem bíladellufólk get-
ur keypt sér en stundum er
kannski farið of langt í dellunni.
Nú hefur fyrirtæki eitt hafið
framleiðslu á hringum og gifting-
arhringum sem eru sérstakir fyr-
ir þær sakir einar að það eru
þekkt dekkjamynstur frá sport-
bíla-, jeppa- eða mótorhjóla-
dekkjum á hringunum.
Að biðja sinnar heittelskuðu
með hringum af þessu tagi yrði
vissulega til marks um bílaáhuga
viðkomandi. Það er þó ekki beint
líklegt að bónorðinu verði tekið
játandi ef hringar af þessu tagi
eru dregnir upp á sama tíma og
það er borið fram.
Framleiðandi hringanna heldur
því fram að hringarnir séu ætl-
aðir til að minna þann sem þá ber
á að hann hafi ástríðu fyrir bílum
og má velta því fyrir sér hvort
bitur reynsla hönnuðarins af
hjónabandi hafi skilað sér í þess-
ari óvenjulegu hönnun hans.
Hringarnir gætu þó vel höfðað
til þeirra sem vilja einfaldlega
hafa skemmtilegan skartgrip á
fingri sem minnir þá á bíladelluna
og fyrir þá sem eru þannig þenkj-
andi má segja frá því að hring-
arnir fást í silfri, 10-18 karata
gulli í hvítu eða gulu, palladíum
og platínu. Platínuhringur er dýr-
astur og kostar eitt stykki af
stærstu gerð um 3700 dollara eða
um 230 þúsund íslenskar krónur.
Ódýrustu hringarnir úr silfri
kosta hinsvegar frá 7 þúsund
krónum.
Með þessu
dekki giftist
ég þér
TENGLAR
..............................................
http://www.tirerings.com/