Morgunblaðið - 05.07.2007, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
íþróttir
Teddy Sher-ingham,
fyrrverandi
landsliðsmaður
Englands, leik-
maður með Tott-
enham, Man-
chester United
og síðast West
Ham, gekk í gær
til liðs við Colchester, sem leikur í
ensku 1. deildinni. Því er hugsanlegt
að Sheringham leiki gegn 19 ára syni
sínum, Charlie, á næstu leiktíð, en sá
spilar með Crystal Palace. Þessi lit-
ríki leikmaður, sem er 41 árs, gerði
eins árs samning.
West Ham hefur samþykkt aðselja miðvallarleikmanninn
Nigel Reo-Coker til Aston Villa á
átta millj. punda. Reo-Coker, sem er
fyrirliði enska 21 árs landsliðsins,
mun fara í læknisskoðun á Villa Park
í dag og ef allt gengur að óskum
skrifar hann undir samning við liðið
til 2011.
Claudio Pizarro, framherjiChelsea og fyrirliði landsliðs
Perú, tryggði Perúmönnum sæti í 8
liða úrslitum í Suður-Ameríku
keppninni í knattspyrnu er hann
skoraði bæði mörk Perú gegn Bóli-
víu, 2:2. Þá gerðu Úrúgvæ og Vene-
súela markalaust jafntefli og eru
bæði komin í 8 liða úrslitin.
Körfuknattleiksmaðurinn Milo-jica Zekovic er genginn til liðs
við úrvalsdeildarlið Skallagríms. Frá
þessu er greint á heimasíðu félags-
ins. Zekovic er framherji og hefur
leikið með Hetti og Tindastóli. Zeko-
vic skoraði 18 stig að meðaltali í leik
á síðustu leiktíð með Stólunum. Auk
þess er ljóst að Bandaríkjamaðurinn
Darrel Flake verður áfram í Borg-
arnesi.
Skallagrímur réði á dögunum nýj-an þjálfara í stað Vals Ingi-
mundarsonar sem er hættur. Heitir
hann Kenneth Webb og er enginn
aukvissi í körfubolta. Var um tíma
leikmaður hjá New Jersey Nets í
NBA deildinni og hefur þjálfað bæði
í Noregi og Danmörku.
Ólafur Stef-ánsson mun
taka þátt í
kveðjuleik hjá
Stefani
Kretzschmar
sem haldinn verð-
ur í Bördelands-
hallen í Magde-
burg þann 14.
þessa mánaðar. Þar mun lið Magde-
burg í dag leika gegn úrvalsliði
Kretzschmars og verður Ólafur liðs-
maður í því liði. Kretzchmar hóf feril
sinn hjá Blau-Weiss Berlin árið 1991.
Þaðan fór hann til Gummersbach og
síðan til Magdeburg árið 1996. Hann
hefur unnið flesta þá titla sem í boði
og var tvívegis kjörinn handknatt-
leiksmaður ársins, 1994 og 1995.
Fólk folk@mbl.is
Leikurinn hófst rólega en á 3. mín-
útu var Christian Christiansen ná-
lægt því að komast einn í gegn en
hann var hindraður ólöglega af Pétri
Marteinssyni sem hefði vel getað
fengið rautt spjald fyrir það en hann
slapp með gult.
Fátt annað markvert gerðist í
fyrri hálfleik en hættulegustu mark-
tilraunina átti Jóhann Þórhallsson,
framherji KR, þegar hann var ná-
lægt því að skalla knöttinn í netið,
stuttu fyrir leikhlé.
Eftir hlé var um margt sama staða
uppi á teningnum. Fylkismenn
kannski ívið meira með boltann en
sköpuðu lítið líkt og KR-ingar.
Á 62. mínútu átti sér stað annað
umdeilanlegt atvik. Þá var Haukur
Ingi Guðnason kominn inn í vítateig
KR-inga og lék boltanum fram hjá
varnarmanni en var felldur, að því er
virtist. Dómari leiksins lét hins veg-
ar leikinn halda áfram.
Stuttu fyrir leikslok voru Fylkis-
menn svo nálægt því að stela sigr-
inum þegar fyrirgjöf frá vinstri kanti
barst inn á markteig en Christiansen
náði ekki að koma boltanum í netið.
KR-ingar misstu svo Pétur út af
þegar hann fékk sitt annað gula
spjald fyrir að handleika knöttinn,
og verður hann því í banni í bikar-
leiknum gegn Val.
„Vissum að KR-ingar myndu
verjast aftarlega“
„Miðað við hvernig leikurinn spil-
aðist eru þetta sanngjörn úrslit en ég
er ekki sáttur því við ætluðum að
sigra hérna á heimavelli. Við héldum
boltanum ágætlega innan liðsins en
ógnuðum markinu lítið, notuðum of
margar sendingar og boltinn gekk
hægt milli manna,“ sagði Haukur
Ingi Guðnason, fyrirliði Fylkis-
manna, en liðið hefur aðeins skorað
sjö mörk í Landsbankadeildinni í
sumar, líkt og KR-ingar.
KR hefur hins vegar fengið á sig
15 mörk í sumar og í leiknum gegn
Fylki reyndi liðið að stoppa í þau göt
sem verið hafa á vörninni. Haukur
Ingi var óhress með að Fylkisliðið
næði ekki að bregðast betur við því.
„Við vissum að KR-ingarnir
myndu verjast aftarlega og eftir að
hafa byrjað ágætlega drógu þeir sig
til baka enda hafa þeir fengið mörg
mörk á sig í sumar. Það var erfitt að
draga þá framar en við hefðum endr-
um og sinnum mátt keyra hraðar á
þá þegar við fengum boltann.
Það hefur verið okkar Akkilesar-
hæll í sumar að ná ekki að skora og
við erum að reyna að ráða bót á því.
Það gekk ekki í dag og við þurfum að
leita leiða til að bæta ástandið,“ sagði
Haukur Ingi.
„Vörnin orðin miklu betri“
Gunnlaugur Jónsson, fyrirliði KR,
virtist ágætlega sáttur við lyktir
leiksins. „Ég er fyrst og fremst
ánægður með varnarleikinn sem
mér fannst agaður og góður, en við
hefðum mátt fá meira út úr sókn-
arleiknum og nýta eitthvað af öllum
þeim fyrirgjöfum sem við áttum í
þessum leik.
Varnarleikurinn er í mikilli fram-
för frá því sem hefur verið í sumar og
loksins héldum við markinu hreinu,
sem er að sjálfsögðu mjög jákvætt.“
KR-ingar eiga erfiðan leik gegn
Valsmönnum í 16 liða úrslitum
VISA-bikarsins á þriðjudag og verða
án Gunnlaugs, sem fékk að líta sitt
fjórða gula spjald í sumar gegn
Frömurum á dögunum, sem og Pét-
urs Marteinssonar eins og áður seg-
ir. Það er augljóslega vont mál fyrir
KR að vera án beggja miðvarða
sinna en Gunnlaugur segist rólegur
yfir því.
„Það koma menn fyrir okkur og
við munum stilla upp sterku 11
manna liði. Við erum með breiðan
hóp og mannskap til að leysa þetta,
en auðvitað er það bagalegt að við
skulum báðir vera fjarverandi.“
Enginn einn leikmaður átti fram-
úrskarandi leik í gærkvöld, en varnir
liðanna stóðu vel fyrir sínu. Í liði
Fylkismanna voru miðverðirnir
sterkir og bæði Víðir Leifsson og
Peter Gravesen voru mikið í boltan-
um án þess þó að skapa hættu frekar
en aðrir.
KR-liðið var vel samstillt í varn-
arleik sínum og stóð hinn ungi Ás-
geir Örn Ólafsson sig með stakri
prýði á miðjunni, í sínum fyrsta
deildarleik fyrir meistaraflokk liðs-
ins. Guðmundur Reynir, vinstri bak-
vörður liðsins, stóð einnig vel fyrir
sínu, var hreyfanlegur fram á við og
lokaði vel á vængspilið hægra megin
hjá Fylkisliðinu.
Allt í allt má segja að niðurtaðan í
leiknum sé sanngjörn. Bæði lið hafa
eflaust ætlast eftir meiru úr leiknum
en hvorugt þeirra sýndi það með af-
gerandi hætti.
Varnartaktar voru
allsráðandi í Árbænum
Morgunblaðið/ÞÖK
Atgangur Danski framherjinn Christian Christiansen, Fylki, í baráttu við Gunnlaug Jónsson, fyrirliða KR.
ÞEIR áhorfendur sem lögðu leið
sína í Árbæinn í gærkvöld og von-
uðust eftir skemmtilegum sókn-
arbolta fengu ekkert fyrir sinn
snúð þegar lið KR og Fylkis áttust
við í Landsbankadeild karla í knatt-
spyrnu. Engin mörk voru skoruð og
þó að oft sjáist skemmtileg tilþrif í
slíkum leikjum voru fá slík sýnd í
þessum leik. Áhersla á varnarleik
frá aftasta til fremsta manns virtist
mikil og leikmenn liðanna voru oft-
ast fremur silalegir í sínum sókn-
araðgerðum.
Eftir Sindra Sverrisson
sindris@mbl.is
STEFÁN Gíslason, landsliðsmaður í knattspyrnu og leikmaður
Lyn í Noregi, mun á allra næstu dögum ganga til liðs við danska
liðið Bröndby. „Við skulum segja að þetta mjakist allt í rétta átt.
Félögin eru búin að ná samkomulagi og ég er að skoða þetta,“
sagði Stefán í samtali við Morgunblaðið í gær. „Þetta er á loka-
stigi, en auðvitað er ekkert öruggt fyrr en búið er að skrifa und-
ir. En það eru yfirgnæfandi líkur á að ég fari til Bröndby,“ sagði
Stefán sem er 27 ára og hefur verið í atvinnumennsku meira og
minna frá því hann var sextán ára.
Í gær var haft eftir Steven Lustü, leikmanni Silkeborgar, sem
lék með Stefáni hjá Lyn, að Íslendingurinn myndi styrkja
danska liðið mikið. „Hann er hávaxinn og með mikla yfirferð á
vellinum. Hann er líkamlega sterkur og ágengur í leik sínum,
fer vel með bolta og gefur góðar sendingar. Bröndby fær góðan
leikmann ef það fær Stefán og hann mun styrkja liðið mikið,“
sagði Lustü við danskan netmiðil í gær.
Á leið til Bröndby
ÍSLAND hafnaði í 13.-14. sæti í höggleiknum í Evrópukeppni
landsliða í golfi sem fram fer í Skotlandi. Átta efstu liðin munu
leika um sigurinn í holukeppni. Ísland mun leika í holukeppni
um 9.-16. sæti á mótinu. Liðin eru skipuð sex kylfingum sem
allir léku 36 holur í höggleiknum. Reynslumesti maður liðsins,
Örn Ævar Hjartarson, GS, lék best Íslendinganna í gær á 75
höggum eða fjórum yfir pari sem sýnir glögglega að íslensku
kylfingarnir voru nokkuð frá sínu besta. Örn lék fyrri hring-
inn á 77 höggum.
Fyrri keppnisdaginn átti hinn ungi Kristján Þór Einarsson
úr GKJ, besta skorið þegar hann lék á 73 höggum eða tveimur
yfir pari. Hann var hins vegar heillum horfinn í gær og var á
82 höggum. Íslandsmeistarinn Sigmundur Einar Másson,
GKG, fann sig ekki og var á 75 og 79 höggum. Nýliðinn Sigur-
þór Jónsson, GK, var á 77 og 79, Ólafur Loftsson, NK, á 74 og
80, og loks Stefán Stefánsson á 82 og 77.
Vonbrigði á EM
„Ég er mjög sáttur við að halda markinu hreinu enn einu sinni
og við höndluðum vel allt sem á okkur dundi. Við verðum vissu-
lega að bæta sóknarleikinn okkar og ná að skora mörk en það
var engu að síður Fylkisliðið sem fékk langbestu færin í þess-
um leik.“ Þannig mat Leifur Garðarsson, þjálfari Fylkismanna,
leik liðsins við KR í Árbænum í gærkvöld.
Umdeilt atvik átti sér stað í upphafi leiksins þegar Pétur
Marteinsson, varnarmaður KR, togaði framherja Fylkis niður.
Brot sem að margra mati verðskuldaði rautt spjald.
„Það er aldrei að vita hvað hefði gerst ef að þeir hefðu misst
mann út af strax á þriðju mínútu, án þess þó að ég vilji ræða
dómgæsluna eitthvað sérstaklega, en maður veit aldrei ná-
kvæmlega hvaða áhrif slíkt hefur.
Við ætluðum að vinna þennan leik vegna þess að við erum
betri, eins og sást í leiknum, en við náum einfaldlega ekki að
skora þó gæðin séu vissulega til staðar í hópnum,“ sagði Leifur.
„Erum betri en KR“
FYLKIR:
Kristján Valdimarsson
David Hannah
Víðir Leifsson
Andrés Már Jóhannesson
KR:
Guðmundur R. Gunnarsson
Eggert Rafn Einarsson
Ásgeir Örn Ólafsson
Kristinn J. Magnússon