Morgunblaðið - 13.07.2007, Page 2

Morgunblaðið - 13.07.2007, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ bílar Bresk stjórnvöld hafa slegist í lið með fjölda stofnana og samtaka og mæla með því að skrikvörn verði staðalbúnaður allra bíla. Í rannsókn á vegum stjórnarinn- ar kom í ljós, að bílar búnir skrik- vörn koma 25% sjaldnar við sögu banaslysa en bílar sem ekki voru búnir þessum öryggisbúnaði. Dregin er sú ályktun af rann- sókninni, að 380 mannslíf hefðu bjargast á ári væru allir bílar á götum Bretlandi búnir skrikvörn. Með sama móti hefðu alvarlega slösuðum fækkað um 1.100 og lítt meiddum um 6.300. Í ljósi niðurstöðu skýrslu um rannsóknina hefur Stephen La- dyman, sem fer með samgöngu- öryggismál í bresku stjórninni, beinlínis hvatt kaupendur nýrra bíla að velja sér aðeins bíl með skrikvörn. „Ég hvet einnig bílaframleiðend- ur til að setja þennan mikilvæga öryggisbúnað í alla bíla – hann er ekki dýr og getur gert vegina miklu öruggari en nú er,“ sagði Ladyman. Fyrir röskum mánuði hratt framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins úr vör herferð þar sem hvatt er til þess að skrikvörn verði staðalbúnaður í öllum bílum. Skrikvörn gæti fækkað banaslysum Fyrsti fólksbíllinn sem fer í almenna umferð á Íslandi og knúinn er með vetnisrafala var afhentur Lands- virkjun og Orkuveitu Reykjavíkur í fyrradag. Er bíllinn af tegundinni Mercedes Benz A-Class og er leigð- ur af bílaframleiðandanum Daim- lerChrysler. Friðrik Sophusson, for- stjóri Landsvirkjunar, og Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, tóku við bílnum við hátíðlega athöfn fyrir framan Perluna. Um er að ræða fyrsta skrefið í svokölluðu SMART- H2-verkefni Íslenskrar NýOrku og VistOrku, en í því verkefni verður vetnisbílum fjölgað jafnt og þétt á næstu þremur árum. Fram til 1. ágúst verða starfsmenn í þjálfun og rekstri og viðhaldi vetnisbílsins en síðan fer hann í almennan rekst- ur sem þjónustubíll. Nýi vetnisbíllinn tekur vetni á vetnistöðinni á Grjóthálsi þar sem það er unnið úr vatni með rafmagni- .Viðbragðstíminn úr núlli í hundrað km/klst er 14 sekúndur og hægt er að aka honum á allt að 140km/klst. Fyrsti vetn- isfólksbíllinn kominn til landsins Morgunblaðið/G.Rúnar Vetnisvæðing Markmið Íslenskrar NýOrku er að fjölga vetnisbílum á Ís- landi í minnst 30 fyrir árið 2010 en líklegt er að þeir verða jafnvel fleiri. HENRIK Fisker er hönnuður sem lætur drauma sína og annarra rætast og ber hann til dæmis ábyrgð á nokkrum best heppnuðu bílum síðustu ára, bílum eins og BMW Z8, Aston Martin DB9 og V8 Vantage. Fisker og við- skipta félaga hans Bernard Koehler þótti hinsvegar ekki nóg að hanna fyrir aðra framleiðendur heldur fannst þeim tími til komin að koma sínu eigin vörumerki á markað og þannig koma draumum sínum fullkomlega til skila. Þannig hófst saga Fisker Coachbuilding í Kali- forníu fyrir 2 árum og nú hefur fyrsti Fisker-bíllinn verið framleiddur, seldur og afhentur. Byggður á BMW M6 Fisker Latigo CS V10 er byggður á BMW M6-bílnum og hefur hann fengið nýja yfirbyggingu, hannaða af Fisker, ásamt nýrri innréttingu og ýmsum endurbótum á vélbúnaði og fjöðrun sem skilar sér í bíl sem er töluvert áhugaverðari og jafnframt miklu dýrari en BMW M6. Bíllinn er útbúinn V10 verðlaunavélinni frá BMW en með nokkrum breytingum hefur tekist að auka aflið úr 507 hestöflum sem flestum þykir nú nokkuð ríflegt í hvorki meira né minna en 648 hestöfl. Árangurinn er hröðun frá 0-100 km/klst á aðeins rétt rúmum 4 sekúndum og bíll sem er rúmlega þrisvar sinn- um dýrari en BMW M6. Útlit Fisker-bíla þykir geysilega vel heppnað sem fyrri hönnun Fisker og hafa bílarnir hvarvetna vakið at- hygli þar sem þeir hafa verið sýndir. Aðeins verða framleidd 150 eintök af Fisker Latigo en eftir það mun taka við ný hönnun frá Fisker sem á að tryggja frískleika merkisins og gera það einstakt. Sjaldgæfur Fisker Latigo CS V10 er byggður á BMW M6 en þónokkru öflugri eða 648 hestöfl. Bíllinn verður að- eins framleiddur í 150 eintökum og kostar þrisvar sinnum meira en BMW M6. Vagnasmiðurinn Fisker selur fyrstu bílana TENGLAR ....................................................................... http://fiskercb.com/ N1 BÍLAÞJÓNUSTA SÆKTU UM VIÐSKIPTA- OGSAFNKORT Á WWW.N1.IS ER BÍLLINN KLÁR Í FRÍIÐ? ALLT A Ð 10% A FSLÁTT UR! Safnko rtshafa r fá 3% afslátt í form i punk ta. Viðskip takorts hafar f á 7% a fslátt, auk 3% í form i Safnk orts- punkta – sam tals 10% af slátt. Láttu smyrja bílinn og athuga hjólbarðana hjá Hjól- barðaþjónustu N1 og farðu áhyggjulaus í sumarfríið. Réttarhálsi 2, Rvík, hjólbarða- og smurþjónusta 587 5588 Fellsmúla 24, Rvík, hjólbarðaþjónusta 530 5700 Fellsmúla 24, Rvík, smurþjónusta 530 5710 Ægisíðu 102, Rvík, hjólbarða- og smurþjónusta 552 3470 Langatanga 1a, Mosfellsbæ, hjólbarða- og smurþj. 566 8188 Reykjavíkurvegi 56, Hafnarfirði, hjólbarðaþjónusta 555 1538 Dalbraut 14, Akranesi, hjólbarðaþjónusta 431 1777 Tryggvabraut, Akureyri, smurþjónusta 462 1080

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.