Morgunblaðið - 13.07.2007, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
Hönnunarstefna ChrisBangle hefur tryggtBMW mikla sölu hin síð-ustu ár en hönnun hans
hefur tryggt frískleika BMW svo
um munar og var engin vanþörf á
eftir heldur hversdagslega bíla í lok
níunda áratugarins. Fáir bílar fanga
stefnu Bangle eins vel og BMW Z4
og er hinn nýi M Coupé, þakútgáfa
Z4-bílsins, einnig efstur í fæðukeðj-
unni ef svo mætti segja þar sem M
Coupé er án efa mesti harð-
kjarnabíllinn sem BMW framleiðir í
dag.
Bílablaðið fékk á dögunum slíkan
bíl til reynsluaksturs og gat tekið
hann, nokkurn veginn, til kostanna í
sól og blíðu.
Síðasta M-sexan
M Coupé er útbúin sex strokka
línuvél og er að öllum líkindum síð-
asti M-bíllinn frá BMW sem mun
fást með sexunni, um sinn í það
minnsta því næsti M3 mun verða V8
og líklegt er að í framtíðinni muni
V8-vélar einnig prýða arftaka Z4.
Vélin skilar 343 hestöflum úr 3,2
lítrum af rúmmáli og nær bíllinn 100
km/klst á aðeins fimm sekúndum
sem er síður en svo slæmt fyrir bíl í
þessum flokki – reyndar bara nokk-
uð gott. M coupé fæst auk þess að-
eins með beinskiptingu og er reynd-
ar almennt frekar strípaður enda
ætlaður sem akstursbíll. Þó má
nefna að bíllinn er að sjálfsögðu
útbúin Xenon-ljósabúnaði, leið-
sögukerfi, leðursætum og rafmagn
knýr flest sem hægt er að knýja
með rafmagni. Þó má nefna atriði
sem vantar eins og lyklalaust að-
gengi og bluetooth-tengingu en slík-
ur búnaður mætti gjarnan vera
staðalbúnaður í bílum í þessum
verðflokki.
Z4 M Coupé er ætlað að taka
slagin við Porsche Cayman S og
munu kaupendur líklega taka valið
með hliðsjón af útliti bílanna enda
eru þeir mjög ólíkir, Cayman öllu
hefðbundnari en M Coupé heldur
óvenjulegri.
BMW Z4 M Coupé hefur flest
það, ef ekki allt, sem þarf til að
tryggja skemmtilegan akstur. Það
fyrsta sem þarf til þess er drif á aft-
urhjólin og svo koma ekki síður mik-
ilvæg atriði eins og jöfn þyngd-
ardreifing, mjög góð fjöðrun, góðar
bremsur og frábær vél. Í blönduna
hefur svo verið bætt, að hætti
BMW, góðum sex gíra beinskiptum
gírkassa sem hefur mjög stutt á
milli gíra. Gírstöngin fer afskaplega
vel í hendi en gírskiptingin og svo
næmi stýrisins er punkturinn yfir i-
ið því með þessum verkfærum er
hægt að nýta sér bestu eiginleika
bílsins.
Því miður var prófunarbíllinn á
röngum dekkjum, vetrardekkjum í
breiddinni 225/45 18 allan hringinn,
en bíllinn ætti að vera á 255/40 18 að
aftan og auðvitað helst á vönduðum
sumardekkjum og munar um minna.
Áhersla á akstur
Einföld breyting sem þessi hefur
mikil áhrif á aksturseiginleika bíls-
ins og færir til dæmis allt jafnvægi
bílsins til þar sem gripið að aftan er
mun minna en ella. Það var því
nauðsynlegt að reyna að gera sér í
hugarlund eiginleika bílsins án
dekkjanna og sem betur fer ljómaði
bíllinn þrátt fyrir þennan galla.
Bíllinn er vel stífur í akstri en þó
mun mýkri í glímu sinni við holur og
Langt húdd fullt af hestöflum
Morgunblaðið/Frikki
Sérstakur BMW M Coupé er líklega eitt helsta stolt Chris Bangle en línur bílsins sækja mikið til eldloga þar sem mjúkar línur og skörp horn koma saman.
Afl Í húddinu er 3,2 lítra 6 strokka
línuvél sem skilar 343 hestöflum og
það án aðstoðar túrbínu. Aflið fæst
því á afskaplega mjúkann og not-
endavænan máta við inngjöf.
REYNSLUAKSTUR
BMW Z4 M Coupé
Ingvar Örn Ingvarsson
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
„HveR nenniR að Hanga
Í bænUM á SUMRin?“