Morgunblaðið - 27.08.2007, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2007 35
Náman námsmannaþjónusta Landsbankans
410 4000 | landsbanki.is
LEIKARINN Ryan Phillippe segist aðeins fara burt frá börnum
sínum til að leika í alvarlegum myndum.
Hann hefur ekki áhuga á að leika í gamanmyndum því það sé
honum mikilvægara að vera góður faðir.
„Ég vil leika í myndum sem fá fólk til að hugsa. Ég vel myndir
sem ýta á einhverja takka innra með fólki eða láta því líða óþægi-
lega og efast um heiminn í kringum sig. Það er eitthvað sem full-
nægir mér þegar ég vel að eyða tíma fjarri börnum mínum og
helga mig vinnunni.
Ég nýt þess að horfa á gamanmyndir en ef ég einbeiti mér að
verkefni vil ég að það merki eitthvað. Ég held að góð list ögri
fólki og það finnst mér spennandi,“ sagði Phillippe.
Phillippe, sem er 32 ára, á tvö börn, sjö ára dóttur og þriggja
ára son, með leikkonunni Reese Witherspoon. Þau skildu í nóv-
ember í fyrra eftir sjö ára hjónaband.
Í nýjustu mynd sinni, Breach, leikur Phillippe ungan FBI-
mann sem er settur í erfitt verkefni.
„Myndin er mjög ó-Hollywood leg svo mér finnst flott að Uni-
versal hafi framleitt hana. Þetta er mjög hrá dramamynd og það
höfðar til mín,“ sagði Phillippe um Breach.
Vill ekki gamanmyndir
Reuters
Fyrrverandi Ryan Phillippe með Reese Witherspoon þegar allt lék í lyndi.
LINDSAY Lohan hefur játað að
hún sé háð fíkniefnum og áfengi.
Leikkonan er núna stödd á Ut-
ah’s Cirque Lodge afeitrunarstöð-
inni og segist skammast sín fyrir
hegðun sína að undanförnu og hef-
ur tekið undir það að hún hafi ekki
stjórn á sjálfri sér.
„Mér er ljóst að líf mitt hefur ver-
ið óviðráðanlegt vegna þess að ég
er háð áfengi og fíkniefnum. Ég hef
gert hluti sem ég skammast mín
mjög mikið fyrir,“ var haft eftir
Lohan eftir að hún var dæmd í lið-
inni viku fyrir að keyra undir áhrif-
um.
„Ég braut lögin og ég tók ábyrgð
á því broti með því að játa mig seka
fyrir dómnum. Ég kenni engum
öðrum en sjálfri mér um hvernig
fór og þakka guði fyrir að ég skað-
aði ekki aðra manneskju en það
hefði auðveldlega getað farið svo.“
Lohan segist vilja vera heilbrigð
og ná stjórn á lífi sínu og starfsferli
en hún hafi þurft að biðja um lækn-
isaðstoð við það. „Ég tek þessi skref
til að bæta líf mitt. Sem betur fer er
ég ekki ein í minni daglegu baráttu
og ég veit að fólk eins og ég hefur
náð árangri. Kannski mun þetta
verða auðveldara með tímanum, ég
vona það,“ sagði hún.
Lohan var handtekin 26. maí eft-
ir að hún keyrði á í Beverly Hills og
þann 24. júlí var hún tekin fyrir of-
hraðan akstur í Santa Monica. Hún
var með kókaín á sér í bæði skiptin.
Reuters
Sek Leikkonan Lindsay Lohan ját-
ar áfengis og fíkniefna vanda sinn.
Lohan játar
sig seka
JESSICA Alba er byrjuð aftur með
fyrrverandi kærasta sínum Cash
Warren. Leikkonan og kvikmynda-
framleiðandinn sáust í rómantískri
gönguferð í Kaliforníu á miðviku-
daginn.
Vitni sem sá til þeirra sagði að
þau hefðu litið út fyrir að vera mjög
hamingjusöm, faðmað hvort annað
og kysst.
Alba, 26 ára, var nýverið kosin
kynþokkafyllsta kona heims á lífi af
FHM tímaritinu.
Alba og Warren hittust fyrst árið
2005 við tökur á Fantastic Four
myndinni. Það var Alba sem sagði
Warren upp í júlí síðastliðnum eftir
að hún fékk nóg af því að bíða eftir
því að hann bæði hana um að giftast
sér.
Reuters
Sæt Jessica Alba er tekin aftur
saman við Cash Warren.
Aftur á fast