Morgunblaðið - 27.08.2007, Síða 35

Morgunblaðið - 27.08.2007, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2007 35 Náman námsmannaþjónusta Landsbankans 410 4000 | landsbanki.is            LEIKARINN Ryan Phillippe segist aðeins fara burt frá börnum sínum til að leika í alvarlegum myndum. Hann hefur ekki áhuga á að leika í gamanmyndum því það sé honum mikilvægara að vera góður faðir. „Ég vil leika í myndum sem fá fólk til að hugsa. Ég vel myndir sem ýta á einhverja takka innra með fólki eða láta því líða óþægi- lega og efast um heiminn í kringum sig. Það er eitthvað sem full- nægir mér þegar ég vel að eyða tíma fjarri börnum mínum og helga mig vinnunni. Ég nýt þess að horfa á gamanmyndir en ef ég einbeiti mér að verkefni vil ég að það merki eitthvað. Ég held að góð list ögri fólki og það finnst mér spennandi,“ sagði Phillippe. Phillippe, sem er 32 ára, á tvö börn, sjö ára dóttur og þriggja ára son, með leikkonunni Reese Witherspoon. Þau skildu í nóv- ember í fyrra eftir sjö ára hjónaband. Í nýjustu mynd sinni, Breach, leikur Phillippe ungan FBI- mann sem er settur í erfitt verkefni. „Myndin er mjög ó-Hollywood leg svo mér finnst flott að Uni- versal hafi framleitt hana. Þetta er mjög hrá dramamynd og það höfðar til mín,“ sagði Phillippe um Breach. Vill ekki gamanmyndir Reuters Fyrrverandi Ryan Phillippe með Reese Witherspoon þegar allt lék í lyndi. LINDSAY Lohan hefur játað að hún sé háð fíkniefnum og áfengi. Leikkonan er núna stödd á Ut- ah’s Cirque Lodge afeitrunarstöð- inni og segist skammast sín fyrir hegðun sína að undanförnu og hef- ur tekið undir það að hún hafi ekki stjórn á sjálfri sér. „Mér er ljóst að líf mitt hefur ver- ið óviðráðanlegt vegna þess að ég er háð áfengi og fíkniefnum. Ég hef gert hluti sem ég skammast mín mjög mikið fyrir,“ var haft eftir Lohan eftir að hún var dæmd í lið- inni viku fyrir að keyra undir áhrif- um. „Ég braut lögin og ég tók ábyrgð á því broti með því að játa mig seka fyrir dómnum. Ég kenni engum öðrum en sjálfri mér um hvernig fór og þakka guði fyrir að ég skað- aði ekki aðra manneskju en það hefði auðveldlega getað farið svo.“ Lohan segist vilja vera heilbrigð og ná stjórn á lífi sínu og starfsferli en hún hafi þurft að biðja um lækn- isaðstoð við það. „Ég tek þessi skref til að bæta líf mitt. Sem betur fer er ég ekki ein í minni daglegu baráttu og ég veit að fólk eins og ég hefur náð árangri. Kannski mun þetta verða auðveldara með tímanum, ég vona það,“ sagði hún. Lohan var handtekin 26. maí eft- ir að hún keyrði á í Beverly Hills og þann 24. júlí var hún tekin fyrir of- hraðan akstur í Santa Monica. Hún var með kókaín á sér í bæði skiptin. Reuters Sek Leikkonan Lindsay Lohan ját- ar áfengis og fíkniefna vanda sinn. Lohan játar sig seka JESSICA Alba er byrjuð aftur með fyrrverandi kærasta sínum Cash Warren. Leikkonan og kvikmynda- framleiðandinn sáust í rómantískri gönguferð í Kaliforníu á miðviku- daginn. Vitni sem sá til þeirra sagði að þau hefðu litið út fyrir að vera mjög hamingjusöm, faðmað hvort annað og kysst. Alba, 26 ára, var nýverið kosin kynþokkafyllsta kona heims á lífi af FHM tímaritinu. Alba og Warren hittust fyrst árið 2005 við tökur á Fantastic Four myndinni. Það var Alba sem sagði Warren upp í júlí síðastliðnum eftir að hún fékk nóg af því að bíða eftir því að hann bæði hana um að giftast sér. Reuters Sæt Jessica Alba er tekin aftur saman við Cash Warren. Aftur á fast

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.