Morgunblaðið - 29.08.2007, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
YEMEN-búar sem tilheyra Bagefer-ættbálknum veifa
þar sem þeir eru á leið til brúðkaups í Wadi Lesser, Ha-
dramout. Hadramount er einangrað svæði á suðurhluta
Arabíuskagans og hefur helst verið í umræðunni und-
anfarið sökum þess að Osama bin Laden mun eiga ræt-
ur að rekja þangað.
Reuters
Ekið til brúðkaupsveislu
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
BARÁTTAN vegna sveitarstjórnar-
kosninganna í Noregi 10. september
næstkomandi stendur nú sem hæst
og hafa flokkarnir verið iðnir við að
kynna kjósendum stefnumál sín,
ekki síst í fjölmenninu í Ósló. Þeir
virðast þó ekki vera mjög fundvísir á
það, sem er hinum almenna höfuð-
borgarbúa efst í huga. Hann setur
lög og reglu í algeran forgang en þau
mál eru aðeins ofarlega á blaði hjá
Framfaraflokknum einum.
Dagblaðið Aftenposten bað full-
trúa flokkanna að raða upp stefnu-
málum sínum í borginni eftir mik-
ilvægi og var útkoman sú, að
umhverfismálin voru einna efst á
blaði hjá þeim flestum. Hjá Fram-
faraflokknum, sem hefur lengi lagt
mikla áherslu á lög og reglu, var ör-
yggi borgaranna í öðru sæti og í því
fimmta hjá Verkamannaflokknum.
Hjá öðrum var það ekki á blaði sem
eitt af mikilvægustu málunum.
Könnun, sem Aftenposten gerði
meðal kjósenda í Ósló, sýnir, að þeir
leggja mesta áherslu á öryggi borg-
aranna og að alls kyns glæpastarf-
semi verði upprætt í bænum, einkum
í miðborginni. Skólamál og málefni
aldraðra eru í öðru og þriðja sæti en
umhverfismálin í því fjórða ásamt al-
menningssamgöngum.
Stóru málin vantar
Athygli vekur, að Hægriflokkur-
inn skuli ekki hampa lögum og reglu
eins og hann hefur þó oft gert en nú
er helsta kosningamál hans „Bærinn
við fjörðinn“, þ.e.a.s. þróun hafnar-
innar og hafnarsvæðisins í Ósló. Að-
eins 5% kjósenda telja, að þau mál
muni vega þungt í kosningunum.
Leikskólamálin munu heldur ekki
skipta sköpum, 17% nefna þau, og
andstaða Framfaraflokksins við inn-
flytjendur er aðeins ofarlega á blaði
hjá 15% kjósenda í Ósló.
Hugmyndir um einkarekin hjúkr-
unarheimili virðast heldur ekki njóta
vinsælda, a.m.k. ekki hjá frambjóð-
endum flokkanna en 68% þeirra eru
þeim andvíg. Hafa þær ekki einu
sinni meirihlutafylgi innan Hægri-
flokksins.
Óslóarbúar vilja
aukið öryggi
Stjórnmálaflokkarnir virðast flestir
vera í litlu jarðsambandi við kjósendur
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr-
ópusambandsins hyggst leggja til
að komið verði á fót varanlegum
almannavarnasveitum til að bregð-
ast við skógareldum, flóðum og
öðrum náttúruhamförum.
Talsmaður framkvæmdastjórn-
arinnar í umhverfismálum sagði
að til greina kæmi að almanna-
varnasveitunum yrði einnig beitt
til að bregðast við hryðjuverkum
og stórfelldum mengunarslysum.
Markmiðið væri að geta sent slík-
ar sveitir á hamfarasvæði með
nokkurra klukkustunda fyrirvara.
Um 20 lönd hafa sent slökkvi-
liðsmenn til Grikklands til að að-
stoða við slökkvistarfið þar vegna
skógarelda sem kostað hafa að
minnsta kosti 64 lífið og brenna
enn.
Manntjónið og eyðileggingin af
völdum eldanna hefur vakið reiði
meðal Grikkja og líklegt er að
málið verði eitt af helstu hitamál-
unum í þingkosningunum í Grikk-
landi 16. næsta mánaðar. Margir
hafa sakað stjórnina um að hafa
ekki brugðist nógu skjótt við
skógareldunum.
Georg Papandreou, leiðtogi
grískra sósíalista, sakaði stjórn
hægrimannsins Costas Karamanlis
forsætisráðherra um að hafa
brugðist grísku þjóðinni. Karam-
anlis hvatti til „þjóðareiningar“ í
baráttunni við eldana og hét því
að láta endurreisa hús og end-
urrækta skóga sem hafa brunnið.
Sjö menn hafa verið ákærðir
fyrir að kveikja skógarelda í
Grikklandi og 26 aðrir fyrir önnur
lögbrot í tengslum við eldana.
Meðal annars leikur grunur á að
ófyrirleitnir verktakar hafi e.t.v.
staðið fyrir íkveikjunum í von um
að geta reist einbýlishús á svæð-
um sem urðu eldunum að bráð.
ESB komi á fót hraðliði
gegn náttúruhamförum
%
F
$
@2%;
F
9$ "
: 8;'
! 1 + , , = F 5 R
0 2
'
"
#$
"$3
%&'()*+,-)* (*.&&,)/-.
.$% $ ) < $ ( +%):.=8$%()5">!$ (
*' " $( ) 5 ")) $( $
#
4' * 5*6
&
$&
.""
7&
:?@4>6:7>A9B
2:CD4>E.F42@6<>1?42@1
/ / -
/ 0 9 ;/ % D%
)/% # : ")/%
9 ) 0% " # 00 0 0 ) #0 ! # 0 2# )
M/ 2# 20 : /0/ # 00 & 5&: 2 / 0
#/7 # : % # ) /% " # 0 0 # #/7 / D
9 . 1 < H F
; &/7
%
/0 0
)
SYKUR veldur svipaðri fíkn og
eiturlyf. Er það niðurstaða til-
rauna á rottum, sem voru háðar
kókaíni, en þær tóku sykurinn
fram yfir kókaínið þegar því var
að skipta.
Sykur veldur líkri vellíð-
unartilfinningu í líkamanum og
kókaín, jafnt hjá mönnum sem
rottum, en munurinn er þó sá, að
hætti menn sykurátinu fylgja því
lítil fráhvarfseinkenni. Áætlað er,
að 25% jarðarbúa séu háð sykri.
Sykurinn verri
en kókaín?
EHUD Olmert,
forsætisráðherra
Ísraela, og
Mahmoud Ab-
bas, leiðtogi Pal-
estínumanna,
komu saman í
gær og ræddu
erfiðustu deilur
þjóðanna – end-
anleg landa-
mæri, Jerúsalem og palestínska
flóttafólkið.
Erfiðustu deil-
urnar ræddar
Ehud Olmert og
Mahmoud Abbas.
ALÞJÓÐLEG nefnd vísinda-
manna, sem sænsk heilbrigðisyf-
irvöld fólu að kanna hvaða afleið-
ingar það hefði ef farið væri að
selja áfengi í 8.000 matvöruversl-
unum í Svíþjóð, telur, að áfeng-
isneyslan muni aukast um 29%.
Dauðsföllum muni fjölga um
1.500, veikindadögum um 16
milljónir og 14.000 fleiri ofbeldis-
mál muni koma til kasta lögregl-
unnar.
Vituð ér enn?
BANDARÍSKUR dómstóll sam-
þykkti í gær beiðni um að Manuel
Noriega, fyrrverandi leiðtogi Pan-
ama, yrði framseldur til Frakk-
lands eftir að hann hefur afplánað
fangelsisdóm 9. september. No-
riega, sem var handtekinn í innrás í
Panama 1989, hefur verið dæmdur
í 10 ára fangelsi í Frakklandi fyrir
peningaþvætti.
Fer til Frans
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
ABDULLAH Gül, nýr forseti Tyrk-
lands, segir að halda verði áfram
umbótum í stjórn- og dómskerfi
landsins til að greiða fyrir aðildar-
viðræðum við Evrópusambandið,
ESB. Gül, sem var áður utanrík-
isráðherra og var frambjóðandi
stjórnarflokksins, AK, náði loks
kjöri á þingi landsins í gær í þriðju
atkvæðagreiðslunni á nokkrum vik-
um. Hann virtist boða sættir, sagð-
ist myndu gæta hlutleysis í störfum
sínum og vera trúr lýðræðinu og
hinu veraldlega stjórnkerfi Tyrk-
lands sem hefur verið við lýði frá
1923.
Yfirmenn herja landsins hafa
lagst eindregið gegn framboði Güls
vegna trúaráherslna hans og AK og
virtust jafnvel fram á síðasta dag
hóta valdaráni ef hann yrði forseti.
AK er skipaður trúuðum múslím-
um og margir forystumennirnir eiga
fortíð í samtökum harðlínu-íslamista
en segjast nú styðja aðskilnað trúar
og stjórnmála. Hafa stjórnarsinnar
bent á að í stjórnartíð AK hafi með
engum hætti verið reynt að þröngva
strangari trúarreglum upp á þjóð-
ina. Sumar hugmyndir ráðamanna
bera þó keim af bókstafstrú.
Ósigur fyrir yfirstéttina
Forseti Tyrklands getur beitt
neitunarvaldi og stöðvað þannig lög,
einnig er hann æðsti yfirmaður
varnarmála. AK-flokkurinn vann
glæsilegan kosningasigur í landinu í
júlí. Varð það til þess að Recep Ta-
yyip Erdogan forsætisráðherra
ákvað að reyna ekki að friðmælast
við andstæðinga sína með því að láta
Gül draga framboð sitt til baka.
Sagt er í grein í The New York
Times að fyrst og fremst sé hér um
að ræða sigur fyrir ungt og vel-
menntað fólk úr röðum trúaðra
millistéttarmanna. Veraldlega sinn-
uð yfirstétt með rætur í stærstu
borgunum, einkum Istanbúl, hafi í
meira en 80 ár einokað völdin í land-
inu en nú séu íbúar afskiptari
byggða að taka við. Þeir vilji að ísl-
am verði andlegt og siðferðislegt
leiðarljós þjóðarinnar en leggi um
leið áherslu á lýðræði og aukin
tengsl við vestræn ríki.
Talsmenn jafnt Bandaríkjanna
sem Evrópusambandsins fögnuðu
kjöri Güls. Sagði Jose Manuel Bar-
roso, forseti framkvæmdastjórnar
ESB, að niðurstaðan gæti hraðað
viðræðum um aðild Tyrklands.
Gül hlaut atkvæði 339 þingmanna
af 550 þingmönnum á tyrkneska
þinginu en í þriðju umferð kosning-
anna dugði einfaldur meirihluti at-
kvæða. Fagnaðarlæti brutust út
meðal þingmanna stjórnarliða þegar
úrslitin voru tilkynnt.
Helstu fjölmiðlar tóku tíðindunum
vel. „Kjör Güls mun verða tímamót í
stjórnmálasögu okkar og getur fært
okkur skrefi nær því að fullorðnast í
pólitískum skilningi,“ sagði blaðið
Milliyet sem er frjálslynt.
Gül leggur
áherslu á sættir
Í HNOTSKURN
»Gül er 56 ára gamall, hann ersanntrúaður múslimi frá Mið-
Tyrklandi. Hann lauk dokt-
orsprófi í hagfræði og stundaði
þá m.a. nám við háskóla í London
og Exeter. Síðar var hann banka-
starfsmaður í átta ár í Sádi-
Arabíu.
»Bæði eiginkona Güls og dótt-ir bera hefðbundinn höf-
uðklút á almannafæri. Klúturinn
er í augum veraldlega sinnaðra
Tyrkja tákn ofstækisfullra ísl-
amista.
Reuters
Loksins! Abdullah Gül, nýkjörinn
forseti Tyrklands.