Morgunblaðið - 22.09.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.09.2007, Blaðsíða 1
laugardagur 22. 9. 2007 íþróttir mbl.isíþróttir FH-ingar geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn á morgun >> 2 BIKARÚRSLIT KVENNA OLGA FÆRSETH, FYRIRLIÐI KR, LÉK SINN FYRSTA BIKARÚRSLITALEIK MEÐ KEFLAVÍK FYRIR 16 ÁRUM >> 4 Eftir Víði Sigurðsson vs@mbl.is Fulltrúar Vals og Fram settust að samningaborðinu í gær, eftir að ljóst varð að niðurstaða í málinu fengist ekki fyrir dómstólum á næstunni. Framarar hafa frá því um miðjan júlí neitað að samþykkja félagskipti Sig- fúsar og hafnað tveimur tilboðum Valsmanna. Á þriðjudaginn kemur rennur út frestur til að tilkynna liðsskipan fyrir Meistaradeild Evrópu og útlit var fyrir að Sigfús Páll myndi missa af leikjum Vals þar, ásamt meiru af Ís- landsmótinu, en hann var að sjálf- sögðu ekki með í tveimur fyrstu leikj- unum, gegn Haukum og Stjörnunni, sem Íslandsmeistarar Vals töpuðu. Valsmenn óskuðu eftir því við Hér- aðsdóm Reykjavíkur fyrir skömmu að matsmaður á hans vegum myndi meta sanngjarnt félagaskiptagjald Sigfúsar. Valsmenn höfðu boðið Fram 1.500 þúsund krónur en Fram- arar munu hafa farið fram á ríflega tvöfalda þá upphæð. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins var niðurstaða matsmanns- ins sú að Val bæri að greiða 2,7 millj- ónir króna fyrir Sigfús Pál og félögin munu hafa orðið ásátt um þá upphæð í gærkvöld. Svartsýnni í dag en nokkru sinni fyrr „Mér leið satt að segja mjög illa fyrr í dag og held að einmitt þá hafi ég verið svartsýnni á lausn í málinu en nokkru sinni fyrr. Það leit út fyrir að ég myndi missa alveg af sex frá- bærum leikjum í Meistaradeildinni, ásamt öðrum leikjum Vals á næst- unni. Svo var mér tilkynnt rétt áðan að málið væri leyst og ég er heldur betur sáttur og get ekki beðið eftir því að komast á fyrstu æfinguna hjá Val á morgun,“ sagði Sigfús Páll við Morgunblaðið í gærkvöld, rétt eftir að hann fékk tíðindin af niðurstöðu viðræðnanna. Eins og fram kom í viðtali við Sig- fús Pál í Morgunblaðinu fyrir skömmu hefur hann æft uppá eigin spýtur síðan um miðjan júlí, þegar hann tók þá ákvörðun að ganga til liðs við Valsmenn. „Þetta hefur verið leiðinlegur tími en nú er hann að baki og ég get ein- beitt mér að því að sýna mig og sanna á æfingunum hjá Val,“ sagði Sigfús Páll Sigfússon, sem lék sína fyrstu A- landsleiki fyrir Íslands hönd síðasta vetur. Sáttum náð um Sigfús Pál Morgunblaðið/Kristinn Valsmaður Sigfús Páll Sigfússon í leik með Fram gegn Val á síðasta tímabili. Nú getur hann klæðst Valsbún- ingnum eftir að félögin náðu samkomulagi um félagaskiptaverð hans í gærkvöld. VALUR og Fram komust í gær- kvöld að samkomulagi um fé- lagaskipti handknattleiksmannsins Sigfúsar Páls Sigfússonar úr Fram yfir í Val. Hann getur því byrjað að æfa með Valsmönnum í dag og verður gjaldgengur með þeim í næsta leik í úrvalsdeildinni sem er gegn Aftureldingu á þriðjudags- kvöldið. Hann getur jafnframt spil- að með Valsmönnum þegar þeir mæta Gummersbach í fyrsta leik sínum í Meistaradeild Evrópu næsta föstudagskvöld.  Valur og Fram komust að samkomulagi  Valur greiðir um 2,7 milljónir fyrir Sigfús Pál Sigfús- son  Sest niður í gær þegar ljóst varð að niðurstaða fengist ekki fyrir dómstólum á næstunni STEFÁN Gíslason, landsliðsmaður í knattspyrnu, verður fyrirliði danska liðsins Bröndby þegar liðið tekur á móti nágrönn- um sínum í FC Kö- benhavn í dönsku úr- valsdeildinni á morgun. Bæði Stefán og félagi hans á miðj- unni, Svíinn Samuel Holmén, mæta þar sterkum miðju- mönnum FC Köbenhavn í fyrsta sinn og er bú- ist við skemmtilegri rimmu miðjumanna liðanna. „Það er mikill heiður að vera fyrir- liði, sérstaklega í stóru félagi eins og Bröndby. Mér finnst ég stöðugt falla bet- ur að liðinu og hlakka mikið til þessa nágran- naslags. Það verður gaman að kljást við miðjumenn þeirra,“ segir Stefán á heimasíðu fé- lagsins. Per Nielsen er venjulega fyrirliði Bröndby, en hann verður fjarri góðu gamni þeg- ar nágrannaliðin leiða saman hesta sína. Tom Köhlert þjálfari segir eðlilegt að velja Stefán þegar Nielsen er fjarverandi. „Hann er leiðtogi, bæði í leikjum og á æfingum. Ég er því ekki í nokkrum vafa um að þetta er gott val,“ sagði þjálfarinn. Stefán tekur við fyrir- liðabandinu hjá Bröndby Stefán Gíslason ÍÞRÓTTAFÉLAG stúdenta, eina félagið sem hefur átt lið í efstu deild kvenna í körfu- knattleik allt frá byrjun, hefur dregið lið sitt úr keppni og verður ekki með á Íslands- mótinu í vetur. Flestir leik- manna ÍS eru gengnir til liðs við Val, sem ætlaði að senda lið í 1. deildina í vetur og vera með á Íslandsmótinu í fyrsta skipti í ellefu ár, en hefur nú þegið boð KKÍ um að taka sæti í úrvalsdeildinni. Deildin verður þó ekki full- skipuð, með átta liðum eins og fyrirhugað var, þar sem Breiðablik hætti við þátttöku í deildinni fyrr í sumar og verð- ur í staðinn með lið í 1. deild. Liðin sjö sem leika í úrvals- deild kvenna í vetur eru því Haukar, Keflavík, Grindavík, Hamar, Fjölnir, KR og Valur. ÍS hefur verið með á Ís- landsmóti kvenna allt frá byrjun, árið 1981, en þá voru aðeins þrjú lið með, ÍS, KR og ÍR. Stúdínur, eins og lið þeirra var jafnan kallað, urðu Íslandsmeistarar 1984 og 1991 og bikarmeistarar 1991 og 2003. Þá urðu þær deild- armeistarar árið 2002 en töp- uðu síðan í úrslitum Íslands- mótsins og höfnuðu í öðru sæti, rétt eins og árið 2004. Síðasta vetur höfnuðu Stúdínur í fjórða sæti af sex liðum og töpuðu fyrir Hauk- um í undanúrslitunum um Ís- landsmeistaratitilinn. Valur í stað Íþróttafélags stúdenta í kvennakörfu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.