Morgunblaðið - 25.09.2007, Page 1

Morgunblaðið - 25.09.2007, Page 1
STOFNAÐ 1913 261. TBL. 95. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is FRJÁLST FIKT ALLT GETUR GERST Í SAMSTARFI DJASSMANNSINS OG DÍVUNNAR >> 15 FRÉTTASKÝRING Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is EKKI hefur mikið farið fyrir undir- búningi að lagningu Sundabrautar að undanförnu og fer ekki á milli mála að nokkurrar óþreyju er farið að gæta hjá forsvarsmönnum Faxaflóahafna, sem boðist hafa til að annast verkið. Mat á umhverfisáhrifum beggja áfanga framkvæmdarinnar stendur nú yfir. Í mars sl. sendi stjórn Faxaflóa- hafna bréf til forsætisráðherra og samgönguráðherra þar sem Faxa- flóahafnir bjóðast til að taka að sér að leggja Sundabraut í einum áfanga. Í framhaldinu voru forsvarsmenn Faxaflóahafna boðaðir á fund for- sætisráðherra og fleiri ráðherra og var ákveðið að skipa nefnd með fulltrúum fjármálaráðuneytis, sam- gönguráðuneytis og hafnarstjórnar. „Þar er málið statt núna og satt að segja hefur ekki nægilega mikið gerst í þessu á þessu kjörtímabili. Okkar til- boð stendur ennþá en mér finnst ekki hafa verið nægilega mikill gangur í þessu,“ segir Björn Ingi Hrafnsson, formaður stjórnar Faxaflóahafna. „Á þessum fundi kom skýrt fram af hálfu ríkisvaldsins mikill áhugi á þessu máli. Boltinn er hjá samgönguyfir- völdum.“ Unnið hefur verið að rannsókna- borunum og jarðfræðirannsóknum að undanförnu vegna mögulegra jarð- ganga og er allri útivinnu lokið á þessu sumri. Endanleg skýrsla er væntanleg á næstunni, að sögn Jóns Rögnvaldssonar vegamálastjóra. Þá er verkfræðistofa að fara nánar yfir kostnaðarhlið verksins. Spurður um boð Faxaflóahafna segist Jón ekki vita hvar það mál stendur. Gísli Gísla- son, hafnarstjóri Faxaflóahafna, sem á sæti í starfshópnum segir hópinn hafa komið nokkrum sinnum saman og þar sé verið að ýta verkefninu áfram „en nokkrum veigamiklum spurningum er ósvarað,“ segir Gísli. „Þá er alveg ljóst að af hálfu ríkisins þarf að liggja fyrir skýr stefna um með hvaða hætti þeir vilji ráðast í framkvæmdina sjálfa,“ segir hann. „Það stendur sem við höfum áður sagt að við erum tilbúnir að koma áfram að verkefninu en til þess að það megi fá frekari framgang þarf að höggva á ýmsa hnúta og taka ákvarð- anir.“ Höggva þarf á hnúta Faxaflóahafnir bíða svars við boði um gerð Sundabrautar                    GANGNAMENN á Landmannaafrétti lentu í óvenjumikilli snjókomu að þessu sinni, að sögn Kristins Guðnasonar fjallkóngs. „Það snjóaði allan laugardaginn hjá okkur. Farið var aftur á svæði sem verst gekk að smala og fannst talsvert af fé. Þó vantar nú með meira móti fé af fjalli. Farið verður í eftirleit á afréttinum fyrstu helgina í október. Það var mjög dimmt og vont að leita. Svo var snjórinn það mikill að það var erfitt að reka féð. Bæði var snjórinn djúpur og frostlítið svo hlóðst í ullina,“ sagði Kristinn. Morgunblaðið/RAX Smalamennska í snjókomu Má bjóða þér sæti? >> 37 Leikhúsin í landinu SÞ. AFP. | Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-moon, hrósaði í gær búddamunkum og -nunnum í Búrma fyrir að berjast gegn herforingjastjórninni með friðsamlegum mótmælum. Jafnframt varaði hann her- foringjana eindregið við að beita vopnavaldi. Um 100.000 manns tóku í gær þátt í mótmælum munk- anna og stuðningsmanna andófshetjunnar Aung San Suu Kyi sem er í stofufangelsi í Rangoon. George W. Bush Bandaríkjaforseti mun í dag kynna hertar refsiað- gerðir gegn herforingjastjórninni í ræðu á allsherjar- þingi Sameinuðu þjóðanna. Vesturveldin hafa á síðari árum beitt ýmsum refsiaðgerðum gegn stjórninni en Kína og Indland graf- ið undan þeim með því að auka enn viðskipti sín við Búrma sem er ríkt af ýmsum náttúrauðlindum, þ. á m. olíu og gasi. | 22 Hertar aðgerðir gegn herforingjum Aung San Suu Kyi Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is UNDIRBÚNINGUR að ungbarnadeildum fyrir 0–3 ára börn við leikskóla í Reykjavík er vel á veg kominn. Er m.a. uppi sú hugmynd að einn leikskóli í hverju hverfi borgarinnar hafi slíka deild. Verður framkvæmdaáætlun vegna þessa kynnt með fjár- hagsáætlun borgarinnar nú í haust. Verða slíkar deildir valkostur við dagforeldrakerfið en borgin ætlar sér að semja við dagforeldra og setja þak á verðskrá þeirra sem í dag er frjáls. Í samningnum mun að auki felast bætt þjónusta við dagforeldra. Er vonast til þess að með samningunum fjölgi dag- foreldrum. Í bókun fulltrúa Samfylkingar á fundi leikskóla- „Engin töfralausn til“  Fjölga þarf plássum á leikskólum í Reykjavík um a.m.k. 850 með ungbarna- deildum sem eru í undirbúningi  Setja á þak á gjaldskrá dagforeldra í borginni ráðs í síðustu viku kemur fram að fjölga þyrfti leikskólaplássum um 850 ef taka ætti inn á leik- skóla öll börn sem eru orðin eins árs í september ár hvert. 250 börn, 18 mánaða og eldri, bíða nú þegar eftir leikskólaplássi í borginni. 150 stöður á leikskól- unum eru enn ómannaðar. Það verður hins vegar fátt um svör þegar spurt er hvernig manna eigi nýju ungbarnadeildirnar. „Það er engin töfralausn til,“ segir Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, formaður leikskólaráðs. Vegna manneklunnar hafa fleiri útlendingar verið fengnir til starfa á leikskólum. Er sú krafa gerð að fólk hafi ákveðna kunnáttu í íslensku. „Okkur finnst auðvitað slæmt að eiga þessi pláss í leikskólunum, en við getum ekki nýtt þau,“ segir Ragnhildur Erla Bjarnadóttir, sviðsstjóri menntasviðs. „Við höfum aðstöðuna en okkur vantar fólk.“ Í HNOTSKURN »181 barn sem er hjá dagforeldri er fætt2005 eða fyrr og því orðið tveggja ára eða að nálgast þann aldur. »Yfir 900 börn 8–18 mánaða eru nú þeg-ar á leikskólum í Reykjavík eða hjá dag- foreldrum. Um 1.400 börn fæðast í borginni ár hvert.  Verðþak á dagforeldra | 6

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.