Morgunblaðið - 25.09.2007, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv.
Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Unni H. Jóhannsdóttur
uhj@mbl.is
„ÉG held að Hallgrímur lýsi vel til-
finningum þeirra sem eru krist-
innar trúar á öllum tímum, ekki
bara þeim sem hann var uppi á.
Hann hafði djúpt innsæi í mannlegt
eðli,“ segir Íslandsvinurinn og
sálmaskáldið Johan Klein sem þýtt
hefur Passíusálmana og gefið út á
bók ásamt nótum. Bókina nefnir
hann „Í skugga kross þíns“. Hann
hefur lagt sig fram um að kynna
sálmana í hollenskum kirkjum við
góðar undirtektir. „Þegar skáldið
syngur um gyðinga og Rómverja á
tímum Jesú Krists, þá vísar það
bæði til tilveru fólksins sem uppi
var á 17. öld jafnt sem núna. Sálm-
arnir eru í raun tímalausir.“
Passíusálmarnir hafa verið þýdd-
ir á nokkur tungumál á undan-
förnum árum eins og ensku, þýsku,
dönsku, norsku, ungversku og
ítölsku en þetta mun vera í fyrsta
sinn sem nótur fylgja þýðingunni.
„Hollendingar eru söngmenn góðir
og ég fékk í lið með mér David de
Jong, sem útsetti sálmana fyrir
kóra. Þeir voru fyrst sungnir í
þessum útsetningum í hollenskum
kirkjum í kyrruviku árið 2006.“
Klein lagðist í rannsóknir til þess
að finna uppruna íslensku laganna
sem sungin eru við sálmana og
komst að því að þrjú þeirra eru
hollensk. „Þau höfðu vitanlega
breyst í munnlegri geymd en í bók-
inni hef ég bæði upprunalegu lögin
og íslensku útgáfuna,“ segir hol-
lenska sálmaskáldið sem er hvergi
nærri hætt í útgáfumálunum á ís-
lensku. ,,Nú er í undirbúningi
geisladiskur sem áætlað er að komi
út árið 2008, þar sem valdir Pass-
íusálmar verða sungnir á hol-
lensku. Vonandi verður hann bara
tvöfaldur,“ segir hann að endingu
og brosir.
„Lýsir vel tilfinningum þeirra
sem eru kristinnar trúar“
Morgunblaðið/RAX
Ánægðir Johan Klein og Sigurbjörn Einarsson biskup voru ánægðir með hollenska þýðingu Passíusálmanna.
Þýddi Passíusálm-
ana á hollensku og
gaf út með nótum
ÞEIR SEM reka skemmtistaðinn Café Victor brugðust
ekki við tilmælum slökkviliðs og lögreglu um úrbætur á
lyklalæstum neyðarútgangi fyrr en í gærmorgun, þrátt
fyrir að hafa fengið þrjár munnlegar viðvaranir og eina
skriflega. Framkvæmdastjóri Café Victor sagði að
gleymst hefði að taka hurðina úr lás um helgina.
Í Morgunblaðinu í gær var sagt frá eftirlitsferð lög-
reglu og slökkviliðs á veitinga- og skemmtistaði um
helgina, en hún leiddi í ljós að víða er pottur brotinn þeg-
ar brunavarnir eru annars vegar. Á fjórum stöðum voru
gerðar alvarlegar athugasemdir þar sem flóttaleiðir voru
mjög torfærar og á einum þeirra var t.a.m. neyðarút-
gangi læst með lykli.
Hjá forvarnasviði slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins
fengust þær upplýsingar að um ítrekað brot væri að
ræða en hinn 18. september sendi starfsmaður forvarna-
sviðs erindi til framkvæmdastjóra Café Victor þar sem
bent var á að í vettvangsskoðun 13. september sl. hefði
hið sama komið í ljós. „Þar sem um ítrekað brot er að
ræða verður gripið til viðeigandi aðgerða ef ekki hefur
verið úr bætt við næstu skoðun slökkviliðs höfuðborg-
arsvæðisins,“ segir m.a. í erindinu.
Um miðjan ágúst sl. gerði slökkvilið einnig athuga-
semd við neyðarútganginn og gefin voru munnleg fyr-
irmæli um að skipta um lás.
Eftirlitsmennirnir voru á ferð aðfaranótt föstudags og
laugardags og þrátt fyrir að gera athugasemdir við
rekstraraðila vegnar neyðarútgangsins barst lögreglu
tilkynning á sunnudagskvöld um að dyrnar væru enn
læstar. Voru lögreglumenn því sendir á staðinn og við-
vörunin ítrekuð. Í gærmorgun voru gerðar úrbætur sem
tryggja að hægt sé að komast út.
Steinþór Hilmarsson, varðstjóri og rannsóknarlög-
reglumaður hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir
að ekkert lát verði á eftirliti með veitingastöðum í fram-
tíðinni og tjáði Steinþór veitingamönnum það um
helgina. „Þetta er komið til að vera og það verður fylgst
með öllum svona hlutum í framtíðinni. Þessir hlutir verða
að vera í lagi, enda geta verið á milli fimm og átta hundr-
uð manns inni á einum skemmtistað og þeir verða að vera
öruggir um að geta komist út í neyðartilvikum.“
Ítrekað hafa verið
gerðar athugasemdir
Úrbætur voru gerðar á neyðarútgangi í gærmorgun
Ljósmynd/SHS
Útgangur Þröngur gangur er að neyðarútganginum
á Café Victor sem reyndist læstur um helgina.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef-
ur staðfest að Flugþjónustan á
Keflavíkurflugvelli (IGS), dótt-
urfélag Icelandair, hafi brotið gegn
samkeppnislögum og að álögð sekt
samkeppnisyfirvalda sé í samræmi
við alvarleg brot félagsins. Í mars á
síðasta ári komst Samkeppniseft-
irlitið að þeirri niðurstöðu að IGS
hefði misnotað markaðsráðandi
stöðu sína við afgreiðslu farþega-
flugvéla. Var félaginu gert að
greiða stjórnvaldssekt upp á 60
milljónir króna.
Í tilkynningu frá Samkeppniseft-
irlitinu kemur fram að fyrirtækið
braut 11. gr. samkeppnislaga þegar
það gerði 10 einkakaupasamninga
við flugfélög sem lenda á Keflavík-
urflugvelli og með því að gera flug-
félaginu LTU samkeppnishamlandi
tilboð.
Gert að greiða
60 milljónir
SÍFELLT fjölgar þeim ökumönnum
sem lögreglan hefur handtekið fyrir
akstur undir áhrifum ávana- og
fíkniefna. Ríkislögreglustjóri hefur
sent frá sér afbrotatölfræði ágúst-
mánaðar fyrir landið allt og kemur
þar m.a. fram að í liðnum ágúst voru
98 bílstjórar teknir við akstur undir
áhrifum slíkra efna.
Í maí voru 32 teknir fyrir sams
konar brot en fjöldi þeirra hefur
stigvaxið síðan þá. Hafa 392 slík
brot verið skráð það sem af er þessu
ári.
Umferðarlagabrotum hefur í
heild fjölgað um rúm 20% sé miðað
við ágúst í fyrra en þar af hefur
hraðakstursbrotum fjölgað um 35%.
Skráðum umferðarlagabrotum
fjölgaði mest á Snæfellsnesi á milli
ára en það má skýra með nýjum
hraðamyndavélum þar.
Enn fleiri aka
í fíkniefnavímu
HANN var bíræfinn þjófurinn sem
stal um hábjartan dag tækjum og
búnaði úr lögreglubíl í Borgarnesi
um helgina. Maðurinn sá hins vegar
að sér um síðir og skildi tækin eftir
utan við lögreglustöðina í Kópa-
vogi.
Maðurinn var farþegi í bíl félaga
síns, sem lögreglan í Borgarnesi
hafði afskipti af. Var sá ökumaður
handtekinn og færður á stöð en far-
þeginn var frjáls ferða sinna. Mikið
annríki var á þessum tíma hjá lög-
reglunni, sem hafði tekið annan
ökumann fyrir ölvunar- og fíkni-
efnaakstur þá rétt áður. Tveir lög-
reglumenn voru á vakt og þurftu
þeir að yfirheyra mennina og gera
leit í bílunum. Að sögn lögregl-
unnar eru fleiri grunaðir um að
hafa verið í vitorði með þeim sem
stal tækjunum. Vitað er hver mað-
urinn er og verður hann yfirheyrð-
ur þegar til hans næst.
Stal frá lögreglu en skilaði aftur