Morgunblaðið - 25.09.2007, Side 4

Morgunblaðið - 25.09.2007, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is SAMNINGUR Reykjavíkurborgar og ríkisins um lóð Kleppsspítalans er runninn út og standa viðræður yfir um framtíðarnýtingu á þessu u.þ.b. 10 hektara svæði, sem er í eigu Faxaflóahafna. Ekki stendur þó annað til en að Landspítalanum muni áfram standa til boða að reka þar starfsemi Kleppsspítala eins og verið hefur en hluti landsvæðisins verður væntanlega nýttur til ann- ars. Ríkið greiddi Reykjavík árlega 1. kr í leigu fyrir lóðina í 100 ár. Árið 1905 samdi bæjarstjórinn í Reykjavík við ríkið um leigu á landi Klepps til 100 ára um að þar yrði rekið sjúkrahús fyrir geð- sjúka. „Þetta svæði hefur tekið ýmsum breytingum í áranna rás og nú blasir við að lóðarleigusamn- ingur sem gerður var á sínum tíma er runninn út,“ segir Gísli Gíslason, hafnastjóri Faxaflóahafna. „Við höfum átt viðræður við for- stöðumenn Landspítala um hvaða framtíðarstarfsemi þeir hyggjast hafa á svæðinu. Það liggur ekki fyrir hvernig þeir hyggjast nýta svæðið. Það stendur ekki annað til af hálfu Faxaflóahafna en að bjóða þeim áframhaldandi not af stærst- um hluta svæðisins. Eftir sem áður er áhugi á því að ramma þetta svæði betur inn og semja þá við ríkið um framtíðarafnot þess af því sem þeir þurfa. Það gæti orðið ei- lítið minna svæði en þeir hafa í dag.“ Svæðið er fyrst og fremst nýtt í beinum tengslum við spítalann en þar eru einnig gamlir starfs- mannabústaðir sem eru í frekar lé- legu ástandi og munu ekki vera mikið notaðir, að sögn Gísla. Að mati forráðamanna Faxaflóa- hafna er kominn tími til að menn setjist niður og skipuleggi svæðið til lengri framtíðar litið. „Í dag liggur ekki fyrir nein stefna um landnýtingu eða hvernig menn ætla að nýta þær fasteignir sem þarna eru fyrir utan spítalann sjálfan,“ segir Gísli. Mjög verðmætt land Landsvæðið er mjög verðmætt og segir Gísli augljóst að ef afnot þess væru frjáls væri þarna um gríðarleg verðmæti að ræða. „En segja má að verðmætin verði að vissu leyti takmörkuð þegar fallist er á að það verði notað undir starf- semi ríkisins að einhverju leyti. Það er vilji til þess að semja við rík- ið um það en línan þarf líka að vera skýr af hálfu ríkisins um hvernig á að standa að verki,“ segir hann. Skv. upphaflegum leigusamningi greiddi ríkið eina krónu á ári í leigu í heila öld vegna Kleppsspít- alalóðarinnar. „Þetta hefur verið mjög hagkvæmur samningur af hálfu ríkisins,“ segir Gísli. „En frá 2005 hefur ekkert verið borgað af þessu þannig að starfsemin er þarna í boði Faxaflóahafna. Á því þarf að verða breyting þannig að það séu eðlileg viðskiptasjónarmið sem gilda á milli fyrirtækisins og ríkisins í því efni,“ segir hann. Viðræður um framtíðarnýt- ingu á lóð Kleppsspítalans Áfram spítali Leigusamningur Reykjavíkurborgar og ríkisins um lóð Kleppsspítalans er runninn út. Ríkið greiddi ár- lega 1 kr. í 100 ár Í HNOTSKURN »Land Kleppsspítala er99.417 fermetrar. »Kleppsspítali varð 100 áraí maí sl. »Lóðarleigusamningur ríkisins og Reykjavík- urborgar frá 1905 er runninn út. »Landspítalanum munáfram standa til boða að veita geðheilbrigðisþjónustu á Kleppsspítala. FASTEIGNAVERÐ mun haldast hátt og ekkert sem bendir til þess að það muni lækka, allra síst verð á vel staðsettum góðum fasteignum, að mati Ingibjargar Þórðardóttur, for- manns Félags fasteignasala (FF). „Það hefur sýnt sig á liðnum árum að fasteignakaup eru góð fjárfesting og þeir sem hafa lagt sitt í fasteignir hafa fengið ríflega ávöxtun,“ sagði Ingibjörg. Hún sagði að fasteigna- salan hefði verið ágæt í haust. „Ég heyri ekki fasteignasala bera sig illa yfir samdrætti í fasteigna- sölu,“ sagði Ingibjörg. Hún sagði söluna góða í grónum hverfum og eins í nýjum hverfum. „Það hefur t.d. gengið mjög vel að selja á Völl- unum í Hafnarfirði og allt að mestu leyti selt þar. Íslendingum hefur fjölgað og við erum orðin á fjórða hundrað þúsund. Það verður að hýsa allt þetta fólk. Eins er íbúum í hverri íbúð alltaf að fækka og vísitölufjöl- skyldan að minnka. Einstaklingar búa lengur einir og fólk eignast börnin seinna.“ Ingibjörg sagði að nýir Íslending- ar keyptu íbúðarhúsnæði í síauknum mæli. Þeir fara nokkuð öðruvísi að en þeir sem eru fæddir hér og upp- aldir. Nýbúarnir sætta sig við að búa þrengra en landinn og kaupa fremur í hverfum höfuðborgarsvæðisins þar sem fermetraverðið er lágt en þar sem það er hátt. „Mikið af því fólki sem kemur hingað til að vinna kem- ur með tvær hendur tómar. En það hefur staðið í skilum og er mjög ráð- deildarsamt í fjárfestingum,“ sagði Ingibjörg. Kaupendahópurinn er mjög breið- ur og bilið breitt milli dýrasta og ódýrasta íbúðarhúsnæðis. Ingibjörg sagði ekki óalgengt að einbýlishús á allt að 200 milljónir kæmu á markað og seldust. Mest væri þó spurt eftir 4-5 herbergja íbúðum og taldi hún að algengasta íbúðaverð væri á bilinu 25 til 40 milljónir. Ingibjörg sagði að haustið legðist ágætlega í sig og hún bæri engan kvíðboga fyrir framtíðinni í fast- eignaviðskiptum. „Það er mikið byggt og uppgangur bæði í bygging- ariðnaði og sölu fasteigna. Ég get ekki séð að það sé neinu að kvíða.“ Fasteignaverð mun haldast áfram hátt Formaður Félags fasteignasala kvíðir ekki framtíðinni Morgunblaðið/Árni Torfason Fasteignaviðskipti Íbúðarhúsnæði hefur selst vel, bæði í grónum hverfum og nýjum, að sögn Ingibjargar Þórðardóttur, formanns FF. FJÖLDI kvart- ana barst Lög- reglunni á Sel- fossi frá öku- mönnum á Suðurlandsvegi vegna sands sem fauk á bíla þeirra frá malarflutn- ingabílum. Var töluvert hvasst á þessum slóðum í gær. Brást lögreglan við með því að beina þeim tilmælum til flutn- ingabílstjóra við malarnámurnar á svæðinu að nota ábreiður líkt og skylt er samkvæmt lögum. Ekki urðu allir við tilmælunum og stöðv- aði lögreglan því, bæði á Selfossi og höfuðborgarsvæðinu, nokkra bíla sem ekki breiddu yfir farminn og kærðu þá. Átak gegn ábreiðuleysi Flutningar Sandur fauk af bílum í gær. „ÉG HARMA þessa frétt, sem er til- hæfulaus með öllu,“ segir Valtýr Sigurðsson, forstjóri Fangelsis- málastofnunar, um fréttaflutning DV af láti fanga á Litla-Hrauni. Í mánudagsútgáfu DV hefur blaðið eftir heimildarmanni sínum í fang- elsinu að líklegt sé talið að mað- urinn hafi svipt sig lífi með því að taka of stóran skammt af lyfjum. Þetta segir Valtýr alrangt. Maðurinn, sem var á fertugs- aldri, fannst í klefa sínum á laug- ardagsmorgun. Í tilkynningu frá Afstöðu – félagi fanga kemur fram að ekkert bendi til þess að mað- urinn hafi tekið eigið líf og sam- kvæmt upplýsingum sem félagið hefur var um hjartaáfall að ræða. Valtýr staðfestir að enginn grunur leiki á að um sjálfsvíg hafi verið að ræða. Dánarorsök liggur hins veg- ar ekki fyrir. Hann segist harma at- burðinn og vottar aðstandendum mannsins samúð sína. Maðurinn hafði dvalið á Litla- Hrauni í tæp tíu ár og hafði á þeim tíma eignast stóran félagahóp, bæði í röðum fanga og fangavarða, að því er kemur fram í tilkynningu frá Afstöðu. Þetta er annað dauðsfallið í fang- elsinu á rúmum mánuði. Ekkert bendir til sjálfsvígs FRÁ OG með 10. október mun Ice- landair Cargo hefja nýtt vikulegt fraktflug milli Keflavíkur og Stokk- hólms en flogið verður alla mið- vikudaga. Frá Keflavík er áætlað að fljúga með lifandi hross og ann- an útflutning auk fraktar frá Bandaríkjunum. Frá Stokkhólmi er áætlaður almennur innflutningur til Íslands en meginuppistaða frakt- ar verður þó áframflutningur í flugkerfi Icelandair Cargo Fraktflug til Stokkhólms

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.