Morgunblaðið - 25.09.2007, Síða 6

Morgunblaðið - 25.09.2007, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FRÉTTASKÝRING Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is DRÖG að samningum við dagfor- eldra í Reykjavík, þar sem m.a. verður sett þak á gjaldskrá þeirra, verða kynnt fyrir dagforeldrum í borginni fljótlega. Nú er gjaldskrá þeirra frjáls en borgin greiðir nið- ur verð til foreldra. Með samning- unum verður m.a. lögð áhersla á stuðning við dagforeldra, að þeir geti nálgast faglega aðstoð, t.d. sálfræðinga og félagsráðgjafa. Dagforeldrum verður í sjálfsvald sett hvort þeir gera samning við borgina eða ekki. Er vonast til að dagforeldrum fjölgi með þessari breytingu. Í undirbúningi er að auki að koma á fót ungbarnadeild- um við leikskóla borgarinnar og m.a. hugmynd um að einn leikskóli í hverju hverfi sérhæfi sig í þjón- ustu við börn á aldrinum 0-3 ára. Í bókun fulltrúa Samfylkingar í leik- skólaráði frá síðasta fundi ráðsins kemur fram að fjölga þurfi pláss- um á leikskólum um 850 vegna þessa. Hugmyndin er að dagfor- eldrar verði í framtíðinni valkostur við ungbarnadeildirnar. Dagforeldrar valkostur „Í samningsdrögunum eru ýmis ákvæði til að auka faglega vinnu dagforeldra, skerpa á vinnureglum og til að koma til móts við þá ein- angrun sem starfinu fylgir,“ segir Fanný Gunnarsdóttir, varaformað- ur leikskólaráðs Reykjavíkur. Samningsdrögin hafa verið unnin í samstarfshópi sem fulltrúar meiri- og minnihluta leikskólaráðs eiga sæti í sem og t.d. fulltrúi frá Barnavist, félagi dagforeldra, og starfsmenn leikskólasviðs. „Hóp- urinn vinnur að því að ákveða sanngjarnt þak, sem tæki þá mið af gjaldskrá yngstu barna í leik- skólum [á ungbarnadeildum],“ seg- ir Fanný. Enn er því óljóst hvert þakið verður þar sem útfærsla á ungbarnadeildunum liggur ekki ljós fyrir. Það er hins vegar stefna meirihlutans í borginni að deild- unum verði komið á laggirnar áður en kjörtímabilið er úti. Í Morgunblaðinu í gær kom fram að dæmi væru um að for- eldrar þyrftu að greiða um 60 þús- und krónur fyrir vistun barns hjá dagforeldri. Reykjavíkurborg hækkaði niðurgreiðslur sínar vegna dagforeldravistunar um síð- ustu áramót og eru þær nú rúm- lega 31 þúsund kr. mánaðarlega fyrir hjón og sambýlisfólk og um 49 þúsund kr. fyrir einstæða for- eldra og námsmenn. Fanný segir erfitt að bera saman verðskrár dagforeldra þar sem þeir veiti mis- munandi þjónustu. En hvernig sem á það sé litið megi segja að 60 þúsund krónur á mánuði verði að teljast hátt gjald fyrir unga for- eldra. „Hins vegar er það þannig að við búum við að leikskólagjöld eru mjög lág,“ bendir hún á. 18% fleiri vistunarstundir Dagforeldrar fylgja að jafnaði vísitölu við verðlagningu sína. Önnur laun í þjóðfélaginu hafa hækkað undanfarin misseri og sömuleiðis gjaldskrár dagforeldra. Um 160-170 dagforeldrar eru starfandi á höfuðborgarsvæðinu og mega þeir að hámarki hafa fimm börn í vistun. Það getur því varla talist að dagforeldrar séu að græða á tá og fingri. Spurð hvort til greina komi að hækka niðurgreiðslur til foreldra sem eru með börn hjá dagfor- eldrum svarar Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, formaður leikskóla- ráðs: „Við hækkuðum niður- greiðsluna mjög mikið um síðustu áramót. Og sú hækkun hefur með- al annars haft þau áhrif að vistundarstundum hjá dagforeldr- um hefur fjölgað um 18%.“ Hún telur að sú fjölgun skýrist ekki af því að flöskuháls hafi myndast í kerfinu þar sem erfitt er að koma ungum börnum inn á leikskólana. Fjöldi barna hjá dagforeldrum í Reykjavík er nú 887. Flest þeirra eru fædd á árinu 2006 eða 656, fimmtíu börn eru fædd árið 2007. Það þýðir að 181 barn er fætt árið 2005 eða fyrr og er því a.m.k. tveggja ára eða að nálgast þann aldur. Helst vantar dagforeldra í Miðborg, Hlíðum og Vesturbæ. „Dagforeldrum hefur ekki fjölg- að mikið, þeir eru hins vegar að bjóða foreldrum betri þjónustu, m.a. lengri vistunartíma,“ segir Þorbjörg Helga. „Ég ætla ekki að gera lítið úr því að álag á dagfor- eldra er gríðarlegt vegna vandans á leikskólunum. En við þurfum að hugsa okkur vel um áður en við hækkum niðurgreiðsluna enn frek- ar. Það þarf að minnsta kosti að huga að því að bæði hið opinbera og fjölskyldurnar taki þátt í þess- um kostnaði í ljósi manneklunnar sem nú er á leikskólunum.“ Mikil hreyfing Rofað hefur til í mannaráðning- um á leikskólum undanfarnar vik- ur. Hins vegar er starfsmanna- velta ennþá mjög mikil. Árlega eru ráðnir um 700 nýir starfsmenn á leikskólana. Starfsmannavelta var um 26% á síðasta ári, mest hjá ófaglærðum starfsmönnum (35,1%) en mun minni hjá leikskólakenn- urum (9,7%). 5.321 barn er nú skráð í leik- skóla í Reykjavík. Erfiðast gengur að fullmanna leikskóla í nýjustu hverfum borgarinnar, þ.e. Grafar- holti og Norðlingaholti. Fátt verður um svör hjá borg- inni þegar spurt er hvernig manna eigi nýjar ungbarnadeildir þegar manneklan á leikskólunum er þeg- ar gríðarlega mikil. Starfsmenn vantar nú í um 150 stöðugildi og 250 börn 18 mánaða og eldri bíða eftir plássi á leikskóla. „Ef allt væri eðlilegt þá væru þessi 250 börn komin inn á leikskóla núna,“ segir Ragnhildur Erla Bjarnadótt- ir, sviðsstjóri menntasviðs, en bendir á að ástandið hafi batnað mikið undanfarnar tvær vikur er 100 börn, 18 mánaða og eldri, sem voru á biðlista eftir plássi, voru tekin inn á leikskóla. „Það hefur verið erfiðara að manna leik- skólana nú í haust en síðasta haust. Á þessum tíma í fyrra vor- um við búin að ráða fleiri, þá vant- aði okkur um 100 manns en núna vantar um 150.“ Launakröfum mætt „Þetta er auðvitað stórt vanda- mál og á þessu er augljóslega eng- in töfralausn,“ segir Þorbjörg Helga um mönnunarvandann. Samráðshópur borgarstjóra hefur skoðað ýmsar hugmyndir en þær snúa m.a. að því að leysa vanda- málið til langs tíma litið, m.a. hef- ur verið óskað eftir því að fjölga nemum í leikskólakennaranámi. Þá hefur átak verið gert í að auglýsa eftir fólki. Hins vegar er það mat flestra að lítill áhugi á leikskólastarfinu sem slíku skýri ekki mannekluna held- ur launin. „Ég tel að það þurfi að fara í eðlisbreytingar á þessu dag- vistunar- og menntakerfi til að mæta launakröfum og til að geta keppt um gott starfsfólk á mark- aði,“ segir Þorbjörg Helga. Margir vilja ungbarnadeildir Á fyrirhugðum ungbarnadeild- um verður gjaldskráin hærri en á öðrum deildum leikskólanna þar sem þjónusta við ung börn er dýr- ari en við eldri. Starfshópurinn sem vinnur að verkefninu á að ljúka störfum í október og skilar þá skýrslu til leikskólaráðs. Fram- kvæmdaáætlun vegna ungbarna- deildanna verður svo lögð fram jafnhliða fjárhagsáætlun næsta árs nú í haust. Nú þegar eru rúmlega 900 börn á aldrinum 8-18 mánaða á leik- skólum í Reykjavík eða hjá dagfor- eldrum. Hildur Skarphéðinsdóttir, skrifstofustjóri leikskólaskrifstofu Reykjavíkurborgar, segir mikinn áhuga hjá leikskólum að opna ung- barnadeildir. Þegar sé mikil þekk- ing og reynsla á mörgum leik- skólum í þjónustu við þennan hóp. Verðþak á dagforeldra  Í undirbúningi að koma á ungbarnadeildum fyrir 0-3 ára börn við leikskóla Reykjavíkur  Fjölga þarf plássum um 850 vegna þessa  „Engin töfralausn til,“ segir borgin um mönnunarvandann Ljósmynd/SCANPIX „SÍÐASTLIÐINN föstudag afgreiddi Kaupmannahafn- arborg fjárhagsáætlun fyrir árið 2008. Þegar ég hjól- aði þann daginn með yngri dóttur mína á vöggustofuna voru foreldrar og starfsfólk búin að loka aðgengi að stofnuninni rétt eins og gert hafði verið á yfir 100 öðr- um dagvistunarstofnunum í borginni,“ skrifar Rósa Guðrún Erlingsdóttir blaðamaður, búsett í Kaup- mannahöfn, á bloggsíðu sína, rosin.blog.is. „Áætlanir voru um að skera niður yfir hundrað millj- ónir danskra króna til dagvistunarmála [á ári] en þá brast á mótmælahrina foreldra og starfsfólks á leik- skólum, frístundaheimilum og vöggustofum. Meirihluti jafnaðarmanna og vinstriflokka í borginni hlustaði á samtök foreldra og lækkaði niðurskurðinn um tugi milljóna. Hér stendur fólk saman. [...] Mikið væri gam- an að sjá íslenska foreldra standa með starfsfólki (kon- um) í umönnunarstörfum og fara hreinlega í verkfall með þeim þangað til þær fá mannsæmandi laun fyrir vinnu sína. Ég greiði um 3.600 danskar krónur fyrir heilsdagsvistun fyrir báðar stelpurnar. Hildi 3 ára og Katrínu 2 ára. Um 15.000 þúsund íslenskar fyrir hvora þeirra eftir systkinaafslátt,“ skrifar Rósa. Í frétt Berlingske Tidende kemur fram að foreldr- arnir hafi mótmælt við a.m.k. 125 skóla í borginni. „Hér stendur fólk saman“           ! " #$   ! "  !  !   ! !  % " ! & &' ()* *+, &, (+ '&' ,&*, ('' )&,') '+&*) ()                                               „ÞETTA hefur verið endalaus barningur við kerfið sem byrjaði strax þegar ég var ólétt. Ég var náms- maður og fékk 40 þúsund krónur í fæðingarorlof og þegar ég ætlaði að finna dagmömmu fyrir dóttur mína þegar hún var 7-8 mánaða, þá var það algjörlega út úr myndinni. Það endaði með því að ég greip konu í Bónus sem var að gera magninnkaup á stoðmjólk og spurði hvort hún væri dagmamma og svo reyndist vera.“ Þannig lýsir einstæð móðir, sem nú er flutt út á lands- byggðina, því þegar hún fyrir nokkrum mánuðum leit- aði að vistun fyrir dóttur sína í Reykjavík. Ekki tók betra við þegar hún þurfti að koma barninu á leikskóla 18 mánaða gömlu. „Ég gekk á milli leikskóla en alls staðar voru biðlistar. Loks rættist þannig úr að ég var á kaffihúsi þar sem kona heyrði á tal mitt og benti mér á að pláss væri að losna á einkareknum skóla. Ég fór beint þangað og fékk plássið. Það hefur farið óhemju mikill tími og orka í þetta al- veg frá því að ég var ólétt. Þegar upp er staðið snýst „Algjörlega óþolandi“ þetta um heppni, mikla vinnu og kunningsskap.“ Svo vildi til að leikskólinn var hinum megin í bænum. „Ég vildi reyna að vera sem mest með dóttur mína heima og í vistun hluta úr degi, en það reyndist fjár- hagslegt sjálfsmorð.“ Barnsfaðir konunnar fékk þrjá mánuði greidda í fæðingarorlof þrátt fyrir að hann tæki stúlkuna ekkert á þeim tíma, en rétturinn á orlofinu er ekki framselj- anlegur. „Þetta bitnar allt saman mest á konum, líka þeim sem eru í hjónabandi. Þetta hefur svo mikil marg- földunaráhrif í samfélaginu, m.a. á atvinnulífið. Bæði vegna þess að konur eru frá vinnu vegna þessa og að þeim konum sem vinna við umönnun eru ekki greidd mannsæmandi laun. Þetta er viðhorfið árið 2007. Þetta er algjörlega óþolandi. Það er dýrt að lifa á Íslandi og við þurfum að vinna mikið. Ofan á allt saman getur hið opinbera ekki boðið upp á þessa grundvallarþjónustu. Í því felst mikið óréttlæti. Það er mjög fráhrindandi til- hugsun fyrir mig í dag að eignast annað barn.“ Engan niðurskurð Foreldrar og börn mótmæla fyrir utan leikskólann Krauseren á Austurbrú í Kaupmannahöfn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.