Morgunblaðið - 25.09.2007, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
GÁMAKERRAN Sprettur var vígð
í á Grundartanga síðastliðinn
föstudag. Þetta kemur fram á vef
Faxaflóahafna.
Upp- og útskipunarfyrirtækið
Klafi á Grundartanga keypti
gámakerruna nýlega, og mun hún
vera sú eina sinnar tegundar hér
á landi, að því ef fram kemur á
heimasíðunni. Sprettur er 55 tonn
að þyngd og getur lyft allt að 50
tonnum í einu. Helstu kostir
Spretts, að sögn framkvæmda-
stjóra Klafa, Smára Guðjóns-
sonar, eru að hann getur flutt tvo
20 feta gáma í einu og fer hratt
yfir. Reiknað er með að Sprettur
verði keyrður allan sólarhringinn
á þrískiptum vöktum og muni
þannig geta annað öllum gáma-
akstri frá skipshlið í verksmiðjur
Norðuráls og Járnblendifélags.
Reiknað er með að heildargáma-
fjöldi sem fer um Grundartanga-
höfn verði árlega um það bil
30.000.
Ljósmynd/Faxaflóahafnir
Afköst Hin nýja gámakerra Sprettur er afar afkastamikil.
Ný gámakerra flytur alla
gáma á Grundartanga
ENN á ný hefur það gerst að öku-
menn mótorkrosshjóla hafa lagt
leið sína á Arnarvatnsheiði og vald-
ið þar töluverðum landsskemmdum
með akstri á viðkvæmu landi, segir
á fréttavefnum Skessuhorni. Að
þessu sinni hefur stóru svæði við
Krókavatn verið spillt með akstri á
viðkvæmu og blautu landi. „Það er
engu líkara en þarna hafi verið sett
upp keppni á stóru svæði. Djúp spor
eru í landinu og það mun taka mörg
ár að gróa, ef það þá gerir það,“ er
haft eftir Snorra Jóhannessyni,
bónda og veiðiverði á Arnarvatns-
heiði.
Snorri var í göngum í liðinni viku
þegar hann ásamt fleiri bændum úr
ofanverðum Borgarfirði reið fram
á skemmdirnar. „Við erum alveg
ákveðnir í að leggja fram kæru á
hendur þessum mönnum og höfum
nú þegar aflað okkur vísbendinga
um hverjir voru þarna á ferðinni.
Þetta verður því kært til lögreglu,“
sagði Snorri.
Vinsælt Keppni á vélhjólum verður
stöðugt vinsælli, en full ástæða er
til að sýna aðgát á viðkvæmu landi.
Tjón á við-
kvæmu landi
FORSETI Alþingis, Sturla Böðvarsson, mun ásamt öðr-
um forsetum þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkj-
anna heimsækja Georgíu dagana 23.-25. september nk. Í
för með forseta verður Helgi Bernódusson, skrifstofu-
stjóri Alþingis.
Ferðin er hluti af sameiginlegu verkefni þingforseta
landanna og er markmið hennar að styðja við lýðræð-
isþróunina í Georgíu. Mun m.a. verða rætt um með
hvaða hætti þessi þing geti stutt við þjóðþing Georgíu í
þeirri þróun. Þingforsetarnir munu eiga fundi með
Saakashvili, forseta Georgíu, Nogaideli forsætisráð-
herra og Burjanadze þingforseta og öðrum ráðamönnum.
Þá munu forsetarnir jafnframt taka þátt í tveimur pallborðsumræðum
um málefni tengd heimsókninni.
Þingforsetar til Georgíu
Sturla Böðvarsson
ELDUR kom upp í sófa á svölum á
bakhúsi milli Laugavegar og Hverf-
isgötu 44 um klukkan hálffimm í
fyrrinótt. Að sögn slökkviliðs höf-
uðborgarsvæðisins var útlitið
slæmt í fyrstu. Það logaði glatt í
sófanum og mikill reykur mynd-
aðist. Í húsinu dvelja um 30 leigu-
liðar og var í fyrstu óttast um ör-
yggi þeirra en greiðlega gekk að
slökkva eldinn og reykræsta stiga-
hús. Ekki er vitað um upptök elds-
ins.
Eldur í sófa á
svölum á bakhúsi
FUNDUR um virkjanir og vænt-
ingar verður haldinn á Gamla
Bauk á Húsavík föstudaginn 5.
október klukkan 16.30-18.30.
Örlygur Hnefill Jónsson setur
fundinn og síðan flytur Smári
Geirsson. bæjarfulltrúi í Fjarða-
byggð erindi sem hann nefnir:
Hvers vegna stóriðju á lands-
byggðinni? Jóhannes Hauksson,
Glitnir/GeysirGreenEnergy hf.
flytur erindið: Hvers vegna erum
við í orkugeiranum? Hvar og fyr-
ir hvern erum við að virkja?
nefnist erindi Edvards G Guðna-
sonar, deildarstjóra stóriðju hjá
Landsvirkjun. Halldór Blöndal,
fyrrverandi alþingismaður og
ráðherra, flytur erindið: Hvers
vegna eru stjórnmálamenn með
skoðanir?
Að erindum loknum verða um-
ræður og fyrirspurnir. Að þeim
loknum verða stofnuð Samtök um
náttúruvernd og umhverfi í Þing-
eyjarsýslum, SNUÞ.
Virkjanir og vænt-
ingar á Húsavík
FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, tók á sunnudag við verð-
launum fyrir forystu á alþjóðavett-
vangi í baráttunni gegn loftslags-
breytingum og fyrir að stuðla að
nýrri sýn á nýtingu hreinnar orku
víða um heim.
Verðlaunin eru veitt af Louise T.
Blouin-stofnuninni sem sett var á
laggirnar fyrir fáeinum árum og efn-
ir árlega til leiðtogafundar í New
York sem helgaður er þörfinni á
nýrri forystu í alþjóðamálum –
Global Creative Leadership
Summit.
Verðlaunin voru veitt í hátíðar-
kvöldverði leiðtogafundarins en þau
hafa áður hlotið m.a. William Jeffer-
son Clinton, fyrrverandi forseti
Bandaríkjanna, og Abdullah II kon-
ungur Jórdaníu. Louise T. Blouin og
Elie Wiesel, handhafi Friðarverð-
launa Nóbels, afhentu forseta Ís-
lands verðlaunin, að því er fram
kemur í frétt frá skrifstofu forseta
Íslands.
Leiðtogafundinn í New York sæk-
ir fjöldi stjórnenda alþjóðastofnana,
forystumenn ýmissa ríkja, vísinda-
menn og sérfræðingar sem og
áhrifafólk á vettvangi fjölmiðla og
lista.
Á fundinum tók forseti Íslands
þátt í hringborðsumræðum um ný
viðhorf til loftslagsbreytinga og
hvernig unnt er að virkja almenning
og fyrirtæki í þeirri baráttu. Þá var
einnig fjallað um baráttuna gegn fá-
tækt í Afríku og tækifærin sem ný
tækni skapar í þeim efnum. Forseti
Malaví var málshefjandi á þeim
hluta fundarins. Auk þess verður á
málstofum ráðstefnunnar fjallað um
stöðuna í Mið-Austurlöndum, áhrif
alþjóðavæðingar á viðskipti og
borgarsamfélag og breytingar í
skólum og á menntakerfi sem ætlað
er að búa nýjar kynslóðir betur und-
ir að takast á við vandamál í nýjum
heimi.
Tók við alþjóðlegri viður-
kenningu í New York
Ljósmynd/Stephanie Berger
Viðurkenning Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, tekur við verð-
launum úr hendi Louise T. Blouin í New York síðastliðinn sunnudag.
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
„ÞAÐ hafa verið að eiga sér stað
töluvert miklar breytingar á fíkni-
efnamarkaðnum,
sem allar eru í
þá átt sem menn
hafa verið að sjá
erlendis,“ segir
Karl Steinar
Valsson, yfir-
maður fíkniefna-
deildar lögregl-
unnar á
höfuðborgar-
svæðinu. Hann
segir meira fara
fyrir hörðum efnum en að sama
skapi er hass ekki jafn ríkjandi á
markaðnum og það var áður.
Yfirheyrslur í Fáskrúðsfjarðar-
málinu svonefnda stóðu yfir í gær-
dag auk þess sem Hæstiréttur
staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð
Héraðsdóms Reykjavíkur yfir
tveimur sakborningum. Þeir sæta
varðhaldi til 18. október nk. Til
verndar rannsóknarhagsmunum
var dómur Hæstaréttar ekki birtur
öðrum en verjendum sakborninga
og saksóknara.
Karl Steinar tjáir sig ekki efn-
islega um rannsókn málsins en seg-
ir atburðarás undanfarinna daga
sýna að verið sé að kljást við menn
sem vinna með mjög skipulögðum
hætti, og því sé nauðsynlegt að lög-
regla geri slíkt hið sama. „Þetta
kemur allt út á það sama. Við erum
að tala um mjög skipulagða starf-
semi og eina leið yfirvalda til að
sporna við því er að vera með mjög
skipulagðar aðgerðir sjálfir, og það
teljum við okkur hafa gert. Það er í
raun og veru eina leiðin til að berj-
ast á móti auk þess að fylgjast með
því sem er að gerast erlendis, bæði
flutningsaðferðum og meðhöndlun
á efnum til þess að reyna að koma
þeim framhjá yfirvöldum. Þetta
snýst ekki um neitt annað en að
reyna að vera skrefi á undan.“
Breytingar á
kannabismarkaði
Spurður hvort hægt sé að
merkja aukningu í framleiðslu á
fíkniefnum hér á landi, s.s. í ljósi
þess að lagt var hald á 1,8 lítra af
kókaíni í fljótandi formi sl. föstu-
dag, kveðst Karl Steinar ekki geta
fullyrt það og minnist aðeins
tveggja tilvika þar sem um var að
ræða framleiðslu á amfetamíni frá
grunni. „Síðan eru þessi dæmi um
að menn séu að koma með efni inn
á öðru stigi, og þá er kannski ekki
jafn flókið ferli að gera það neyslu-
hæft.“
Hins vegar nefnir Karl Steinar
að mest af því maríjúana sem er á
fíkniefnamarkaðnum sé ræktað hér
á landi, og það er breyting á til-
tölulega fáum árum.
Snýst ekki um annað en að
vera einu skrefi á undan
Lögregla fylgist vel með erlendum fíkniefnamörkuðum
Karl Steinar
Valsson
SAMGÖNGURÁÐUNEYTIÐ hefur
staðfest ákvörðun Neytendastofu um
að krafa ferðaskrifstofunnar Heims-
ferða til viðskiptavina sinna árið 2006
um viðbótargreiðslur vegna gengis-
falls íslensku krónunnar samræmist
ekki lögum. Forstjóri Heimsferða
segir úrskurðinn ekki svara þeirri
spurningu hvernig standa eigi að lög-
legum verðbreytingum.
„Það er alveg afdráttarlaust í lög-
um að það er heimilt að hækka verð
vegna breyttra forsendna. Um það er
enginn ágreiningur,“ segir Andri Már
Ingólfsson, forstjóri Heimsferða. Í
lögum um svokallaðar alferðir eru
slíkar breytingar heimilaðar en bæði
Neytendastofa og samgönguráðu-
neytið komust að þeirri niðurstöðu að
sé það gert þá þurfi nákvæmlega að
koma fram í samningi við kaupanda
hvernig hið breytta verð sé reiknað
út. Kemur fram í úrskurði samgöngu-
ráðuneytisins að sá háttur sem
Heimsferðir viðhöfðu hafi verið við-
hafður af íslenskum ferðaskrifstofum
um langa hríð.
Tóku hluta fallsins á sig
„Það sem er sérkennilegt í þessum
úrskurði er að ráðuneytið bendir ekki
á hvernig á að gera hlutina. Mér
finnst eiginlega eins og þeir kasti
vandanum bara frá sér. Við ætlum
þess vegna að funda með þeim í
næstu viku og athuga hvort þeir geti
ekki útfært nánar hvernig þessu eigi
að vera háttað. Við viljum bara fá leik-
reglur til að vinna eftir – það er það
sem allir þurfa.“
Andri tekur einnig fram að Heims-
ferðir hafi á sínum tíma tekið á sig
stóran hluta gengisfellingarinnar.
Heimsferðir vilja skýrari
reglur um verðbreytingar
Í HNOTSKURN
» Árið 2006 féll krónan meðþeim afleiðingum að for-
sendur verðlagningar utan-
landsferða breyttust.
» Í málinu sem Neyt-endastofa úrskurðaði í
hafði neytandi verið rukkaður
um rúmar 13 þúsund krónur
aukalega vegna þessa.
» Talið var að Heimsferðirhefðu ekki gert nægilega
grein fyrir reikniaðferðinni.