Morgunblaðið - 25.09.2007, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007 11
FRÉTTIR
-
!"#
$#"#
%
!
. !"#
$#"#
%
!
/# !"#
$#"#
%
!
0
# !"#
$#"#
%
!
&'
&(
)&'
&*
&
&)
+
&
)&
)&
) &
* * * ) ,
) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) )
( (
*(
* (
)(
) (
! !
! " ! ! !
! !
! " ! ! !
-.
/.#
0#
1#
-
23
4!
52
. 23
4!
52
0 23
4!
52
&1 +
+
+
+
+
+
+
+
+
2
" !3
$
4
6 7#2 889#"
.# #: .# !
7
! ; 7
7"
! !
! " ! ! !
-5 !2
$
6 4
%# # '& 2"" 7 .#
! ;
7""" #82
0 . *& 2"" .
# 7 ' ,
" """ # # ; ;## "
#
#
#
$#
VERÐ á laxi lækkaði um 2% á er-
lendum mörkuðum í síðustu viku.
Þar með hefur laxaverð lækkað
fimm vikur í röð. Meðalverðið í síð-
ustu viku var 26,4 norskar krónur á
kíló en var í vikunni þar á undan um
27,0 norskar krónur Þetta kemur
fram í tölum norsku hagstofunnar.
Laxaverð hefur haldist á bilinu 25-
30 norskar krónur síðastliðið ár.
Verðstöðugleiki mikilvægur
Sagt er frá þessu í Morgunkorni
Glitnis. „Verðið nú er ásættanlegt
fyrir flesta framleiðendur þar sem
framleiðslukostnaður þeirra er á
bilinu 16-21 norskar krónur. Verðið
er einnig ásættanlegt fyrir flesta
kaupendur. Spár gera ráð fyrir tals-
verðu framboði af laxi frá framleið-
endum það sem eftir er árs sem ætti
að öðru óbreyttu að þrýsta á verðið
til lækkunar. Hins vegar er eftir-
spurn á mikilvægustu mörkuðum, til
að mynda Evrópumarkaði, mikil og
eru horfur á áframhaldandi sterkri
eftirspurn á síðari hluta ársins.
Stöðugleiki í verði er mikilvægur
fyrir bæði framleiðendur og kaup-
endur, til dæmis Alfesca. Ágætar
líkur eru á nokkuð stöðugu verði á
næstunni í ljósi nægs framboðs frá
helstu framleiðendum,“ segir í
Morgunkorninu.
Verð á laxi lækkar
',
'
),
)
,
,
/ ##
0
'
, ,,
')
< 4 % 4 < < = > ? @4 < < = > ? @ < 4 % 4 < < =
ÚR VERINU
MJÖG rólegt er nú á markaðnum fyr-
ir leigukvóta. Eftirspurn er eftir
þorski á 200 krónur og heyrzt hafa
hærri upphæðir en framboðið er nán-
ast ekkert. „Það vantar alla kvóta eft-
ir niðurskurðinn. Það munar um
minna en þriðjung,“ segir Björn Jóns-
son, kvótamiðlari hjá LÍÚ.
Hann telur að framboðið verði
mjög lítið á þessu fiskveiðiári, en seg-
ir þó erfitt að meta stöðuna svona í
upphafi þess. Menn séu enn að fara
yfir stöðuna hjá sér eftir kvótaára-
mótin og meta framhaldið. Það sé þó
allt útlit fyrir það að erfitt verði á
stóla á leigumarkaðinn. Þar komi
bæði til lítið framboð og væntanlega
hátt verð.
Hvað varðar sölu varanlegra afla-
heimilda er sama staðan uppi. Það er
nánast engin hreyfing og engar sölur
skráðar hjá LÍÚ. Í síðustu viðskipt-
um með aflahlutdeild í þorski var
verðið um 2.800 krónur á kílóið. Björn
segir að staðan þarna sé mjög óljós en
þó séu margir með litlar heimildir
sem vilji selja nú. Þarna setji þorsk-
skerðingin einnig strik í reikninginn.
Þeir sem hafi haft lítið fyrir megi ekki
við þriðjungs niðurskurði. Annars sé
illmögulegt að spá nokkuð fyrir um
gang mála.
Rólegt í
leigunni
Eftir Birnu Önnu Björnsdóttur
í New York
bab@mbl.is
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir ut-
anríkisráðherra og Þórunn Svein-
bjarnardóttir umhverfisráðherra
tóku í gær þátt í ráðstefnu Ban
Ki-moon, framkvæmdastjóra Sam-
einuðu þjóðanna, um loftslagsbreyt-
ingar í höfuðstöðvum SÞ í New York
ásamt 150 ráðherrum og leiðtogum
aðildarríkja SÞ. Ingibjörg Sólrún tók
til máls í einni af málstofum ráðstefn-
unnar og sagðist, í samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi, hafa rætt mik-
ilvægi þess að ríki heims stefndu
eindregið að því að ná niðurstöðu í
loftslagsmálum og að þau gerðu með
sér skuldbindandi samkomulag í
þeim efnum.
„Ég lagði líka áherslu á að þó að
það sé mikilvægt að iðnríki heims,
stóru þjóðirnar, sýni ákveðið frum-
kvæði þá megi ekki taka þessi mál út
af vettvangi Sameinuðu þjóðanna,“
segir Ingibjörg Sólrún. „Niðurstaðan
í loftslagsmálunum verður að vera á
vettvangi Sameinuðu þjóðanna, hún
verður að vera skuldbindandi fyrir
allar þjóðir. Það er líka mikilvægt að
smáríki eigi aðild að þessu og að til
verði niðurstaða sem bæði iðnríkin
geta lifað við sem og þróunarríki.“
Ingibjörg Sólrún segir að á ráð-
stefnunni hafi mátt finna skýra af-
stöðu þess efnis að loftslagsmál séu
„mál málanna“ í dag á alþjóðavett-
vangi. Og það er lögð „áhersla á að ná
samkomulagi sem verði skuldbind-
andi fyrir þjóðir heims,“ segir hún.
Þar eru bundnar vonir við Loftslags-
ráðstefnu SÞ sem haldin verður á
Balí í desember en þar verður lagður
grunnurinn að annarri slíkri ráð-
stefnu sem haldin verður í Kaup-
mannahöfn á næsta ári. Þar er vonast
til að þýðingarmiklir samningar ná-
ist.
Vinnur með Íslandi
að vera smáríki
Að ráðstefnunni lokinni sat Ingi-
björg Sólrún tvíhliðafundi með öðr-
um utanríkisráðherrum þar sem
meginumræðuefnið var framboð Ís-
lands til setu í öryggisráði SÞ. Slíkum
fundum verður haldið áfram í dag og
fram eftir vikunni. Ingibjörg Sólrún
segir fundina hafa byrjað vel og að
hún finni almennt fyrir góðum und-
irtektum vegna framboðs Íslands.
Aðspurð nefnir hún nokkur atriði til
sögunnar sem vinna með framboðinu:
„Við erum smáríki og stór hluti ríkja
heims er smáríki. Þau greiða öll at-
kvæði – eitt ríki er með eitt atkvæði –
og það hjálpar okkur í þessari bar-
áttu. Við erum heldur ekki með hags-
muni sem neinum stendur ógn af. Og
svo erum við norrænt framboð og það
vinnur með okkur,“ segir Ingibjörg
Sólrún.
Brýnasta úrlausnarefni
samtímans
Þórunn Sveinbjarnardóttir um-
hverfisráðherra tók einnig þátt í
loftslagsráðstefnunni í New York í
gær og sat síðan tvíhliðafundi með
öðrum umhverfisráðherrum fram
eftir degi. Í samtali við Morgunblaðið
í gærkvöldi sagði hún hin pólitísku
skilaboð ráðstefnunnar hafa verið
mjög skýr. „Við þurfum að ná öllum
þjóðum að samningaborðinu og utan-
ríkisráðherra tók undir þetta sjónar-
mið,“ segir Þórunn. „Þetta er brýn-
asta úrlausnarefni samtímans og
verður að vinnast í sameiningu en það
er ekki þar með sagt að allir þurfi að
grípa til sömu aðgerða, því aðstæður
eru auðvitað ólíkar eftir löndum.“
Aðspurð segir Þórunn ljóst að
loftslagsmál þyki almennt orðið eitt
allra mikilvægasta úrlausnarefnið á
alþjóðavettvangi. „Það að hér skuli
mættir fulltrúar 150 ríkja segir sína
sögu. Og hér talar enginn sem dregur
í efa mikilvægi þess að bregðast við
loftslagsbreytingum. En síðan er
hægt að deila um leiðir og til þess að
fá botn í það þarf að fá öll ríkin að
samningaborðinu. Og það er ekki að
ástæðulausu að höfuðáhersla er lögð
á að loftslagssamningaferlið fari fram
hér því það er ekkert sambærilegt því
þegar aðildarríki Sameinuðu þjóð-
anna koma saman,“ segir Þórunn.
AP
Ráðstefna Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, ávarpaði loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem haldin er í New York.
„Niðurstaðan í loftslagsmálum
verður að vera á vettvangi SÞ“
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir á ráðstefnu Ban Ki-moon, framkvæmdastjóra SÞ, um loftslagsmál
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Þórunn Svein-
bjarnardóttir
Í HNOTSKURN
» Leiðtogar og fulltrúar frá150 ríkjum funda nú hjá
SÞ um hvernig best sé að eiga
við hlýnun loftslags á jörðinni.
» Fundurinn er sá stærstisem SÞ hafa haldið um
hlýnun loftslags en Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, utanrík-
isráðherra, lagði þar áherslu á
að málið yrði leyst á vettvangi
SÞ.
» Þórunn Sveinbjarn-ardóttir, umhverfis-
ráðherra, segir að þótt ríki
heims verði að vinna í samein-
ingu að málinu þá þurfi þau
ekki öll að grípa til sömu að-
gerða.