Morgunblaðið - 25.09.2007, Side 12
Á AÐALFUNDI Alfesca í
gær var samþykkt heim-
ild til stjórnar að skrá
hlutafé félagsins í evrum.
Þá var og samþykkt heim-
ild til stjórnar að auka
hlutafé Alfesca um tæp-
lega 30%.
„Stjórnin mun beita sér
fyrir því að þetta [skrán-
ing í evrum] verði fram-
kvæmt eins fljótt og kost-
ur er og tæknilegar
lausnir hjá kauphöllinni
og seðlabanka ríkisins
liggja fyrir,“ sagði Ólafur
Ólafsson, stjórnarformaður Alfesca, í samtali við Morgunblaðið.
Hann segir hlutafjáraukninguna skiptast í tvennt, helmingurinn sé án
forkaupsréttar sem stjórnin geti þá ráðstafað sem greiðslu vegna frekari
fjárfestinga. Hinn hluta hlutafjáraukningarinnar eigi að bjóða út á mark-
aði. Ólafur segir að m.a. sé búið að kynna þá aukningu í Ósló og Lundúnum
og áhugi fjárfesta á félaginu hafi reynst umtalsverður.
Aukning Ólafur Ólafsson segir hlutafjáraukn-
ingu m.a. ætlaða vegna frekari fjárfestinga.
Alfesca fer í evrur
um leið og kostur er
Morgunblaðið/Árni Sæberg
12 ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
● BRESKI bankinn HSBC, þriðji
stærsti banki heims, hefur ákveðið
að leggja niður starfsemi Decision
One Mortgage, dótturfélags síns í
Bandaríkjunum. Ástæðan er ástand-
ið á veðlánamarkaði en félagið hefur
séð um ótrygg veðlán HSBC í þrem-
ur ríkjum Bandaríkjanna. Wall Street
Journal segir Decision One hafa ver-
ið með áhrifamestu aðilum á mark-
aðnum með ótrygg veðlán og vitnar í
miðlara sem segir að með lokun fé-
lagsins sé endanlega hægt að lýsa
yfir andláti þess markaðar. HSBC
hefur fengið sinn skerf af vandamál-
unum en að sögn WSJ olli Decision
One ekki þeim vanda. Ákvörðunin sé
hins vegar til marks um þá stefnu hjá
bankanum að taka upp meiri aga í
lánveitingum sínum.
Til marks um
meiri aga
! "#$%& '()*!)++,
78"
%"
"% % "
% %
%"
" %"
% %
"
% %
+
!# 82
#"#
A! #
-8
*)* (* ')) (** )*(()
''('( * )
' ' *
)'(
+
'')'
)'*' )()) *' ) ( )' * +
)(**
( ()''' +
('
+
)'( +
+
) &)
&)
* &*
&*(
*&)(
(& ) ''& +
)&)(
&)
&*
))'& )& )'& (& )& +
* +
+
) * &((
&*(
*&((
&)(
) &*(
) )&*
&(
&*(
)(& )& )&(
(& &(
)& '&)
+
*)* )&(
&((
:
!# 82
*
*
(*
+
*'
)
(
)
+
'
*
))
+
+
+
+
@#2""
!# !#
) ) ) ' ( 9 :
" %2 B8 C.
D : B8 C.
6E#2 C.
5 B8 C.
B2" " C.
. 6
# 8.F $#"#
GH" B8 C.
-8;" " C.
5"#" $#"# C.
4#H #C"# C.
2
+D!7# 7. C.
A
C.
I## C.
;
9#<= "
*( C.
%.#H C.
%2"2H J2
J,
6 D"
B8 C.
K D"
GH"H B8 C.
4 C.
?9C C.
A "
!#2:!" C.
L""##2:!" C.
">
"6<? !
M"2 %
"
M
D B" C.
8!" C.
>4N @
>4N A
" &%
'%
>4N B
C DN
" &%
&%
@O <"#
?#P
'%"
'%
A 6
@%N
"
&%
'%
>4N D)(
>4N >
%
'%
ÞETTA HELST ...
● ÚRVALSVÍSITALA OMX á Íslandi
stóð því sem næst í stað í gær og er
nú í 7.889 stigum en velta með
hlutabréf nam um 10,8 milljörðum
króna. Mest hækkun varð á gengi
bréfa Atorku Group eða 1% en mest
lækkun varð á gengi bréfa FL Group
og 365 eða um 1,6% hjá báðum fé-
lögum.
Rólegt yfir mörkuðum
● FINNSKA trygg-
ingafélagið
Sampo, sem Ex-
ista er stærsti
hluthafi í, fær
sæti í kjörnefnd
sænska stór-
bankans Nordea.
Frá þessu greinir
sænska frétta-
þjónustan Direkt
og vitnar í fréttatilkynningu frá Nor-
dea.
Sampo hefur á undanförnum mán-
uðum hamstrað hlutafé í bankanum
og byggt þar upp stóra stöðu þrátt
fyrir að Björn Wahlroos, forstjóri
finnska félagsins, hafi sífellt neitað
því að hann hygðist ná völdum í Nor-
dea. Það að Sampo skuli hafa sóst
eftir sæti í kjörnefnd bendir hins veg-
ar til annars því kjörnefnd tilnefnir
einstaklinga til setu í stjórnum fé-
laga og fylgja því mikil áhrif setu í
kjörnefnd.
Sampo fær sæti í
kjörnefnd Nordea
Björn Wahlroos
● BANDARÍSKA matsfyrirtækið
Standard & Poor’s staðfesti í gær
lánshæfiseinkunn hollenska bank-
ans NIBC, sem Kaupþing yfirtók ný-
lega. Langtímaeinkunn bankans er
A-, með stöðugar horfur, og skamm-
tímaeinkunnin er A-2, með neikvæð-
ar horfur.
Í fréttatilkynningu frá S&P segir að
neikvæðar horfur endurspegli efa-
semdir S&P um að full samlegðar-
áhrif náist til skamms tíma og að
samþættingarhætta sé töluverð.
Einkunnin staðfest
HÆKKUN tólf mánaða verðbólgu
í september var ekkert einsdæmi
ef marka má nýja verðbólguspá
greiningardeildar Landsbankans.
Samkvæmt henni mun vísitala
neysluverðs hækka um 0,8% í
október og mælast 278,8 stig. Vísi-
tala neysluverðs í október í fyrra
mældist 266,2 stig og gangi spáin
eftir mun tólf mánaða verðbólga
mælast 4,8% og hækka um 0,6 pró-
sentustig frá september.
Í verðbólguspá Landsbankans
segir að ástæðuna fyrir hárri verð-
bólgu megi m.a. rekja til áhrifa út-
söluloka, áframhaldandi hækkunar
húsnæðisverðs og veikingar krón-
unnar; veiking hennar frá því upp-
hafi ágústmánaðar muni að ein-
hverju leyti skila sér inn í
vöruverð í mánuðinum. Bent er á
að íslenska krónan sé nú 7% veik-
ari en þegar hún var sterkust á
árinu. Gengisbreytingar skili sér
hins vegar með nokkurri töf inn í
vöruverð.
Þá segir greiningardeild Lands-
bankans að gera megi ráð fyrir að
hækkun heimsmarkaðsverðs á hrá-
olíu hafi einhver áhrif en olíuverð
hefur aldrei verið hærra en um
þessar mundir.
Spá mikilli hækk-
un verðbólgu
Morgunblaðið/Golli
OR hluthafi
í Landsneti
● Á HLUTHAFAFUNDI í Landsneti hf.
sem haldinn var í gær var stjórn fé-
lagsins heimilað að hækka hlutafé
félagsins um fjögur hundruð milljónir
króna með útgáfu nýrra hluta til
Orkuveitu Reykjavíkur (OR) gegn því
að OR leggi tilteknar eignir inn í
Landsnet. Eftir þessar breytingar
verður eignarhlutur Landsvirkjunar í
Landsneti 64,7% Rafmagnsveitna
ríkisins 22,5% Orkuveitu Reykjavíkur
6,8% og Orkubús Vestfjarða 6%.
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
VANDRÆÐI þau sem Northern
Rock lenti í virðast að vísu vera liðin
hjá í bili en þau eru engu að síður vís-
bending um þær hættur sem gætu
leynst handan við hornið í Bretlandi,
þ.e. áhrif af alþjóðlegri lánsfjár-
kreppu á breska fasteignamarkað-
inn og síðan á breska hagkerfið allt.
Um þetta er fjallað í nýrri grein í
The Wall Street Journal en þar er
bent á hvernig kreppan vegna
ótryggra veðlána vestur í Bandaríkj-
unum gæti teygt sig til Bretlands;
fleiri lánveitendur á borð við North-
ern Rock eigi nú erfiðleikum með að
fá fjármagn til frekari lánveitinga
sem geti síðan haft áhrif á fasteigna-
markaðinn sem virðist vera á toppi
uppsveiflunnar. Þetta geti haft í för
með sér að niðursveiflan á fasteigna-
markaðinum verði meiri og dýpri en
reikna hefði mátt með.
Áhrif á neyslu og hagvöxt
Howard Archer, aðalhagfræðing-
ur hjá Global Insight, segir að ef
þetta gerist muni það síðan að öllum
líkindum draga úr neyslu breskra
heimila og þar með úr hagvextinum.
Hagvöxturinn í ár er um 3% en
Archer telur að kreppa á fjármála-
mörkuðum muni verða til þess að
hagvöxturinn fari niður fyrir 2% á
næsta ári. Veðskuldir heimilanna
hafa vaxið hröðum skrefum í Bret-
landi – þær hafa tvöfaldast á einum
áratug og nema nú um 80% af vergri
landsframleiðslu. Fasteignaverð
hefur snarhækkað og aukin eigna-
myndun í gegnum húsnæðismarkað-
inn hefur bein áhrif á neyslu heim-
ilanna. Þannig skiluðu auknar
lántökur heimilanna vegna hækk-
andi fasteignaverðs þeim um 13,2
milljörðum punda á fyrsta fjórðungi
ársins en það gerði um 6,1% af ráð-
stöfunartekjum þeirra. Fari svo að
fasteignaverð lækki, kannski veru-
lega, myndi það snarlega draga úr
neyslunni, auk þess sem fjöldi fólks,
sem hefur tekið lán í botn út á fast-
eignir sínar, gæti lent í að skulda
meira í fasteigninni en fengist fyrir
hana á markaði.
Alvarleg áhrif kreppu
á fasteignamarkaðinn
Hækkanir Húsnæðisverð í London
hefur rokið upp á síðustu árum.