Morgunblaðið - 25.09.2007, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007 13
ERLENT
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
og Boga Þór Arason
„HIÐ illa er komið,“ sagði á forsíðu
dagblaðsins New York Daily News
í gær en fyrirsögnin vísaði til þess
að Mahmoud Ahmadinejad, forseti
Írans, kom til Bandaríkjanna í
gær. Fleiri blöð í New York slógu
þennan sama tón, New York Post
kallaði Ahmadinejad „brjálæðing“
og „óheiðursgest“. Heimsókn Ah-
madinejads hefur þrátt fyrir þetta
vakið umræðu um málfrelsi, en
margir eru ósáttir við að Írans-
forseta skuli hafa verið boðið að
flytja fyrirlestur við virta mennta-
stofnun í New York, Columbia-há-
skóla, í ljósi þess að hann er í hópi
þeirra sem neita því að helförin
hafi átt sér stað.
Ahmadinejad ávarpar allsherjar-
þing Sameinuðu þjóðanna í dag –
nokkru á eftir George W. Bush
Bandaríkjaforseta en spenna í
samskiptum Írans og Bandaríkj-
anna er mikil um þessar mundir og
hafa verið uppi vangaveltur um að
Bandaríkjastjórn undirbúi árás á
kjarnorkuver Írana. Setur sú deila,
og spennan sem nú ríkir í sam-
skiptum landanna, talsverðan svip
á heimsókn Ahmadinejads.
Fær ekki að skoða staðinn þar
sem World Trade Center stóð
Ahmadinejad hafði óskað eftir
því að fá að skoða staðinn þar sem
World Trade Center stóð áður.
Þeirri beiðni var hins vegar hafnað
af borgaryfirvöldum. Lögreglan
sagði öryggisástæður hafa valdið
því að útilokað var talið að heimila
Ahmadinejad að heimsækja stað-
inn þar sem um 3.000 manns týndu
lífi í hryðjuverkaárásum 11. sept-
ember 2001 en margan grunar þó
að aðrar ástæður hafi legið hér til
grundvallar. Sjálfur segist Ahmad-
inejad undrandi á því að fá ekki að
votta fórnarlömbum hryðjuverka-
árásanna virðingu sína og kveðst
ekki skilja að heimsókn sín myndi
særa tilfinningar Bandaríkja-
manna. Er rifjað upp í því sam-
hengi að þúsundir ungmenna í Íran
mættu á minningarathafnir í Te-
heran sem boðað var til eftir at-
burðina 11. september 2001.
Að þessu sinni var hins vegar
ákveðið að heimila heimsókn Ah-
madinejads í Columbia-háskóla en
í fyrra, þegar forsetinn mætti á
allsherjarþing SÞ, var slík heim-
sókn blásin af.
Gríðarlegar öryggisráðstafanir
höfðu verið gerðar í gær vegna
komu Ahmadinejads í háskólann
en á götunum í kring mátti sjá fólk
með mótmælaspjöld og þar höfðu
m.a. verið rituð ýmis þau ummæli
sem Ahmadinejad hefur viðhaft um
Ísraelsríki. Sem kunnugt er hefur
forsetinn lýst því yfir að eyða beri
Ísrael af landakortinu.
„Ekki gefa hatri gjallarhorn,“
sagði á einu spjaldi sem haldið var
á lofti og á öðrum var Ahmadinejad
lýst sem „litlum Hitler“.
„Grimmur einræðisherra“
Lee Bollinger, rektor Columbia-
háskóla, varði þá ákvörðun að
bjóða Ahmadinejad að heimsækja
skólann. Hann sagði að menn yrðu
að gæta að því að málfrelsið væri
mikilvægt og sömuleiðis frelsi
menntastofnana til að hugleiða
brýnustu spursmál samtímans,
hversu óviðeigandi sem þau kynnu
að virðast.
Hét Bollinger því að leggja erf-
iðar spurningar fyrir Ahmadinejad
og rektorinn stóð við það loforð
þegar hann ávarpaði forsetann í
háskólanum síðdegis í gær.
„Herra forseti, þú sýnir öll
merki lítilmótlegs og grimms ein-
ræðisherra,“ sagði Bollinger. Rekt-
orinn gagnrýndi síðan Ahmadine-
jad fyrir mannréttindabrot,
umdeilda kjarnorkuáætlun Írana
og afstöðuna til helfararinnar í síð-
ari heimsstyrjöld, þ.e. tilraunar
nasista til að útrýma öllum gyð-
ingum í Þýskalandi.
Ahmadinejad tók gagnrýnina
óstinnt upp, kvartaði yfir „móðg-
unum“, „rangfærslum“ og „óvin-
samlegum móttökum“ gestgjafans.
Þegar forsetinn var spurður um
helförina kvaðst hann einfaldlega
vilja að allar hliðar sögunnar yrðu
rannsakaðar til hlítar. Hann bætti
við að Ísraelar hefðu notfært sér
helförina til að réttlæta illa með-
ferð þeirra á Palestínumönnum.
Þegar forsetinn var spurður um
illa meðferð á konum og samkyn-
hneigðu fólki í Íran svaraði hann:
„Það er ekkert samkynhneigt fólk í
Íran eins og í landi ykkar“.
„Ekkert stríð
í uppsiglingu“
Ahmadinejad sagði fyrr um dag-
inn í viðtali við fréttastofuna AP að
Íranar myndu ekki gera árás á Ísr-
ael að fyrra bragði. Hann kvaðst
ekki telja að Bandaríkjastjórn væri
að undirbúa stríð við Íran.
Daginn áður sagði Ahmadinejad
í sjónvarpsviðtali að Íran hefði alls
enga þörf fyrir kjarnorkusprengju.
„Það er ekkert gagn að kjarnorku-
sprengjum í pólitískum samskipt-
um ríkja í dag. Ef þær væru gagn-
legar þá hefðu þær líka komið í veg
fyrir fall Sovétríkjanna,“ sagði
hann. „Það er líka rangt að halda
að Íran og Bandaríkin séu á leið í
stríð. Hver heldur slíku fram?
Hvers vegna skyldum við fara í
stríð? Það er ekkert stríð í uppsigl-
ingu.“
Reuters
Umdeild heimsókn Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, flytur ræðu í Columbia-háskóla í New York.
Forseti Írans gagnrýndur í heimsókn til háskóla í New York
Ahmadinejad segir að
ekki sé hætta á stríði
Ekki velkominn Hópur fólks stóð fyrir mótmælum við Columbia-háskóla í
gær og fyrradag vegna heimsóknar Mahmouds Ahmadinejads í skólann.
Í HNOTSKURN
» Þetta er þriðja heimsóknMahmouds Ahmadinejads
Íransforseta til New York á
þremur árum.
» Ahmadinejad var kjörinnforseti Írans í kosningum
sem haldnar voru 2005.
» Forseti Írans er ekkivaldamesti maðurinn í
landinu, þrátt fyrir þá athygli
sem Ahmadinejad fær á Vest-
urlöndum. Ali Khameini erki-
klerkur hefur þá stöðu.
AP
bmvalla.is
Söludeild :: Breiðhöfða 3 :: Sími: 412 5050
Opið mánudaga til föstudaga 8–18
og laugardaga 9–14.
Uppspretta af
hugmyndum fyrir
sælureitinn þinn!
Nýja handbókin er komin
Handbókin okkar kveikir ótal nýjar hugmyndir.
Landslagsarkitekt okkar í Fornalundi aðstoðar þig síðan
við að breyta garðinum þínum í sannkallaðan sælureit.
Hringdu í síma 412 5050 og fáðu tíma í ráðgjöf.
Pantaðu handbókina í síma 800 5050
eða á bmvalla.is
ar
gu
s
0
7
-0
4
7
1
Flekar
Óðalshleðsla