Morgunblaðið - 25.09.2007, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
London. AFP. | Alþjóðasamfélagið og
ríki heimsins hafa brugðist og sýnt
sinnuleysi gagnvart sívaxandi
straumi flóttafólks frá Írak til ná-
grannalandanna, einkum Sýrlands
og Jórdaníu. Þetta er mat mann-
réttindasamtakanna Amnesty Int-
ernational en þau sendu frá sér
harðorða skýrslu um málið í gær.
Amnesty hrósar stjórnvöldum í
Sýrlandi og Jórdaníu fyrir að hafa
haldið landamærum sínum opnum
þannig að flóttafólk frá Írak hefur
komist í öruggt skjól. Slæleg við-
brögð annarra ríkja við vandanum
eru hins vegar gagnrýnd og athygli
vakin á því að Sýrland og Jórdaníu
hafa ekki fengið tilhlýðilega aðstoð
til að mæta þörfum þeirra tveggja
milljóna Íraka sem löndin hýsa.
Lýsir Amnesty sérstökum
áhyggjum sínum af því að yfirvöld
bæði í Sýrlandi og Jórdaníu hafi nú
innleitt nýjar reglur um dvalarleyfi
í löndunum, en þær muni gera það
að verkum að færri Írakar geti nú
leitað þar hælis.
Fjórar milljónir manna á flótta
Að minnsta kosti fjórar milljónir
Íraka hafa neyðst til að yfirgefa
heimili sín, að sögn Amnesty. Í Sýr-
landi séu nú 1,4 milljónir Íraka, í
Jórdaníu rúmlega hálf milljón og
2,2 milljónir Íraka séu á flótta í eig-
in landi undan ófremdarástandinu
sem þar geisi.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
kynnti sér aðstæður íraskra flótta-
manna í Jórdaníu í júlí.
AP
Til Sýrlands Íraskir flóttamenn fylla út skjöl við Al-Tanaf-landamærin
milli Íraks og Sýrlands, um 275 km norðaustur af Damaskus.
Írakar hafa mætt sinnuleysi
Pristina. AP. | Tveir fórust og níu
særðust þegar sprengja sprakk í
verslunarmiðstöð í miðborg
Pristina, höfuðborg Kosovo, í fyrri-
nótt. Þetta var ein öflugasta
sprengjuárásin í Pristina frá því í
stríði Atlantshafsbandalagsins og
stjórnarinnar í Serbíu 1999.
Yfirvöld í Pristina sögðu
sprengjutilræðið ekki tengjast við-
ræðum um framtíð héraðsins sem
fram hafa farið milli Kosovo-
Albana og Serba fyrir milligöngu
erindreka Sameinuðu þjóðanna.
Fullyrtu þau að tilræðið tengdist
glæpastarfsemi í Kosovo.
Sprengingin varð í verslunar-
húsnæði við Bill Clinton-breið-
strætið og urðu miklar skemmdir á
fjórum verslunum. Fatmir Sejdiu,
forseti Kosovo, sagði að árásin ógn-
aði stöðugleika í héraðinu og lagði
áherslu á að hafa þyrfti hendur í
hári ódæðismannanna. „Kosovo er
við það að fá sjálfstæði,“ sagði í yf-
irlýsingu hans. „Einangra verður
þá sem leggja á ráðin um svona
árásir og framkvæma þær og sækja
þá til saka.“
AP
Tilræði Sprengingin olli miklum
skemmdum á fjórum verslunum.
Tveir týndu
lífi í Pristina
Tókýó. AFP. | Shinzo Abe bað japönsku þjóðina í gær af-
sökunar á því að hafa sagt skyndilega af sér sem for-
sætisráðherra, en stjórnarflokkurinn í Japan valdi á
sunnudag Yasuo Fukuda í hans stað. Fukuda tók form-
lega við af Abe sem forsætisráðherra í gær.
Abe kom í gær fram opinberlega í fyrsta sinn síðan
hann sagði af sér fyrir tæpum tveimur vikum og lagðist
inn á sjúkrahús. Hann talaði heldur hægt og þótti veiklu-
legur á fréttamannafundi sem hann hélt á sjúkrahúsi í
Tókýó. Tveir læknar sátu við hlið hans en Abe er sagður
hafa þjáðst af streitu og ofþreytu. Mun hann hafa lést
um 5 kg á undanförnum mánuðum, en spilling og hneykslismál settu svip
sinn á tæplega árslanga forsætisráðherratíð Abes. „Mig langar til að biðja
fólk afsökunar á því að hafa valdið því ama,“ sagði Abe á fréttamannafund-
inum. „Ég harma það að ég skuli ekki hafa staðið undir væntingum al-
mennings.“
Abe biður þjóð sína afsökunar
Shinzo Abe
YFIRMENN hjá Öryggis- og sam-
vinnustofnun Evrópu (ÖSE) vonast
enn til þess að pólsk stjórnvöld
heimili ÖSE að viðhafa eftirlit með
þingkosningum sem fram eiga að
fara í Póllandi í næsta mánuði.
Pólsk stjórnvöld hafa áður sagt að
slíkt þurfi ekki, lýðræði sé virt að
fullu í landinu.
Eftirlit í Póllandi?
ÞÚSUNDIR manna hafa flúið heim-
kynni sín vegna átaka í austurhluta
Kongó síðustu daga, að sögn emb-
ættismanna Sameinuðu þjóðanna.
Þeir segja að alls hafi 300.000
manns flúið heimili sín á átaka-
svæðinu á einu ári.
Flóttafólki fjölgar
GEORGE W. Bush Bandaríkja-
forseti spáir því að Hillary Clinton
beri sigurorð af Barack Obama í
forkosningum demókrata vegna
forsetakosninganna á næsta ári.
Hann telur hins vegar að Clinton
muni tapa fyrir frambjóðanda
Repúblikanaflokksins í forseta-
kosningunum.
Bush forspár?
Forval Hillary Clinton er sigurstrangleg.
STJÓRN Bandaríkjanna kvaðst í
gær hafa miklar áhyggjur af hand-
töku nokkurra stjórnarand-
stöðuleiðtoga í Pakistan að und-
anförnu og hvatti til þess að
fangarnir yrðu látnir lausir.
Á móti handtökum
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
RÍKISLÖGMAÐUR Ísraels, Mena-
hem Mazuz, fyrirskipaði í gær lög-
reglunni að hefja rannsókn á fast-
eignakaupum Ehuds Olmerts
forsætisráðherra.
Olmert er grunaður um að hafa í
raun þegið mútur þegar hann keypti
íbúðarhús í vesturhluta Jerúsalem-
borgar árið 2004 á verði sem talið er
vera langt undir markaðsverði.
Grunur leikur á að Olmert og sam-
starfsmenn hans hafi í staðinn hjálp-
að fyrirtæki, sem seldi honum húsið,
að fá ábatasamt byggingarleyfi í
Jerúsalem. Olmert var borgarstjóri
Jerúsalem á árunum 1993 til 2003.
Olmert sagði í gær að ekkert væri
athugavert við kaupin á húsinu og
verðið hefði verið sanngjarnt.
Fjölmiðlar í Ísrael segja að Ol-
mert og eiginkona hans hafi keypt
húsið fyrir jafnvirði 75 milljóna
króna og er kaupverðið talið um
átján milljónum undir markaðsverði.
Á þessum tíma var Olmert ráðherra
í ríkisstjórn Ísraels.
Þetta er í annað skipti sem lög-
reglunni er falið að rannsaka meinta
spillingu Olmerts frá því að hann
varð forsætisráðherra í maí á síðasta
ári. Lögreglan hefur þegar hafið
rannsókn á því hvort Olmert hafi
sem fjármálaráðherra árið 2005 haft
afskipti af einkavæðingu næst-
stærsta banka Ísraels, Leumi-bank-
ans. Olmert er sakaður um að hafa
hlaupið undir bagga með tveimur
kaupsýslumönnum, sem hann var í
vinfengi við, og reynt að tryggja
þeim bankann.
Ríkisendurskoðandi Ísraels,
Micha Lindenstrauss, hefur einnig
sakað Olmert um að hafa misnotað
áhrif sín sem viðskiptaráðherra árið
2003 til að tryggja samstarfsmanni
sínum ríkisstyrk. Lindenstrauss hef-
ur ráðlagt ríkislögmanninum að fyr-
irskipa einnig rannsókn á því máli.
Nýja lögreglurannsóknin er áfall
fyrir Olmert sem hefur sótt í sig
veðrið að undanförnu eftir að hafa
verið rúinn trausti í marga mánuði
vegna hneykslismála og hernaðarins
gegn Hizbollah-hreyfingunni í Líb-
anon í fyrrasumar. Skoðanakannan-
ir benda til þess að vinsældir for-
sætisráðherrans hafi aukist
skyndilega eftir að skýrt var frá því
að Ísraelsher hefði gert loftárás á
sýrlenskt landsvæði fyrr í mánuðin-
um.
Rannsókn á meintri
spillingu Olmerts
Grunaður um að hafa keypt hús langt undir markaðsverði
og aðstoðað seljandann við að fá ábatasamt byggingarleyfi
Reuters
Spilltur? Ehud Olmert (t.h.) og Ehud Barak varnarmálaráðherra á fundi.
Í HNOTSKURN
» Rannsóknin kemur á við-kvæmum tíma fyrir við-
ræður Olmerts og forseta Pal-
estínumanna um meginatriði
friðarsamnings fyrir ráð-
stefnu sem Bandaríkjaforseti
hefur boðað síðar á árinu.
Kabúl. AP. | Tólf ára afganskur
drengur sem leikur eitt aðal-
hlutverkanna í kvikmynd eftir bók
Khaleds Hosseinis, Flugdreka-
hlauparanum, óttast að hann og
fjölskylda hans muni sæta útskúf-
un, jafnvel árásum, vegna nauðg-
unarsenu í myndinni sem hann seg-
ist hafa verið tregur til að leika í og
sem fjölskylda hans vill að verði
klippt út úr myndinni.
Ahmad Khan Mahmidzada leikur
Hassan, ungan dreng sem er
nauðgað af fanti einum í Kabúl, en
þessi atburður skiptir miklu um
framvinduna í metsölubók Hossein-
is. Hassan er besti vinur aðalsögu-
hetjunnar, Amirs, en Amir verður
einmitt vitni að atburðinum, gerir
hins vegar ekkert til að hjálpa vini
sínum og harmar það alla tíð, at-
burðurinn breytir eðli vináttu
þeirra varanlega.
Spenna í samskiptum þjóðanna
Fjölskylda Ahmads segir að þessi
sena í myndinni muni móðga alla
Afgana. „Nauðganir eru algerlega
bannaðar í Afganistan. Þær ganga
gegn mannlegri reisn í augum
Afgana. Þær eru ósamrýmanlegar
afganskri menningu,“ segir Ahmad
Jaan Mahmidzada, faðir drengsins.
Bennett Walsh og Rebecca Yeld-
ham, framleiðendur Flug-
drekahlauparans, segjast hafa orðið
afar undrandi er þau heyrðu að fað-
ir Ahmads væri ósáttur við þessa
erfiðu senu. Þau hefðu lagt alla
áherslu á að drengjunum sem leika
í myndinni liði vel. „Þegar við átt-
um fund með leikurunum í mynd-
inni og fjölskyldum þeirra í Kabúl
fyrr á þessu ári þá lýstu fjölskyld-
urnar áhyggjum sínum en sögðust
engar mótbárur gera vegna þessa
atriðis, ef fyllstu nærgætni yrði
gætt við upptökur,“ segja Walsh og
Yeldham.
Mahmidzada eldri segist óttast
að sagan stuðli að spennu í sam-
skiptum þjóðarbrotanna í Afganist-
an, enda ali hún á ímynd pastúna
sem þjóðar sem sýni hinum þjóð-
arbrotunum í landinu yfirgang (en
nauðgarinn er pastúni), en hazarar
birtist þar sem undirmálsfólk
(Hassan er hazari í sögu Hosseini).
Pastúnar eru fjölmennasta þjóðin
í Afganistan og börðust m.a. við
hazara í borgarastríðinu í landinu
sem braust út eftir brotthvarf
Sovétmanna 1989. Sambúð þjóð-
arbrotanna í Afganistan hefur verið
tiltölulega góð frá falli talibana-
stjórnarinnar 2001 en Afganar ótt-
ast þó að ekki þurfi mikið til að
kveikja aftur í púðurtunnunni.
Ahmad Khan fékk greidda 10.000
dollara fyrir að leika Hassan, sem
er gríðarlegt fé í Afganistan. Pilt-
urinn segir hins vegar að hann
hefði aldrei tekið að sér hlutverkið
ef hann hefði vitað að Hassan væri
nauðgað í sögunni. Faðir hans
deildi við kvikmyndagerðarmennina
á upptökustað – myndin var tekin í
Kína – en þeir sögðu honum að
myndin gengi ekki upp án þessarar
tilteknu senu. „Fólk í Afganistan
mun ekki skilja að atriðið er leikið.
Menn munu halda að þetta hafi
gerst í raun og veru,“ segir Mah-
midzada.
Óttast að nauðgunarsena
valdi spennu í Afganistan
AP
Flugdrekahlaupari Ahmad Khan Mahmidzada leikur Hassan í kvikmynda-
gerð Flugdrekahlauparans, metsölubók Khaleds Hosseinis.
Flugdrekahlaup-
arinn frumsýndur
í nóvember