Morgunblaðið - 25.09.2007, Síða 15

Morgunblaðið - 25.09.2007, Síða 15
Látbragð Marcel Marceau hvítmál- aður í kunnu hlutverki trúðsins. FRANSKI látbragðsleikarinn Mar- cel Marceau er látinn, 84 ára að aldri. Marceau, sem hét Marcel Mangel réttu nafni, var einn þekktasti lát- bragðsleikari heimsins. Hann varð fyrst þekktur fyrir hlut- verk trúðsins Bip árið 1947, en Bip er trúður með hvítt andlit og í röndóttri peysu með svartan kúluhatt. Árið 1978 setti hann á stofn lát- bragðsleikaraskólann Ecole de Mimodrame í París. Hann stofnaði sinn eigin látbragðshóp og var hann sá eini sinni tegundar starfandi í heiminum á sjötta og sjöunda ára- tugnum. Eitt af frægustu hlutverkum Marc- eaus var að segja einu setningu myndarinnar Silent Movie eftir Mel Brooks. Marceau gerði einnig nokkr- ar kvikmyndir, m.a. Un Jardin Public og Barbarella með Jane Fonda. Marceau fæddist í Strasbourg árið 1923 og lærði hjá látbragðsmeist- aranum Etienne Decroux í París. Innblásturinn að því að gerast lát- bragðsleikari fékk Marceau frá Hollywoodleikurum þöglu myndanna eins og Charlie Chaplin, Buster Keaton og Harry Langdon. Árið 2001 var hann kosinn sendi- herra Sameinuðu þjóðanna fyrir eldri kynslóðina. Marceau kom fram á skemmtunum vel fram á áttræðisaldur. Marceau látinn Einn þekktasti lát- bragðsleikari heims MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007 15 MENNING AMERÍSKI rit- höfundurinn og kvikmyndafram- leiðandinn Mir- anda July vann írsku Frank O’Connor-smá- sagnaverðlaunin sem afhent voru við hátíðlega at- höfn í Millennium Hall í Cork á sunnudagskvöldið. Þetta er í þriðja sinn sem þessi verð- laun eru veitt en þau eru stærstu smásagnaverðlaun sem afhent eru í heiminum. July fékk þau fyrir smá- sagnasafnið No One Belongs Here More Than You. Sex rithöfundar voru tilnefndir til verðlaunanna í ár og meðal þeirra var Ólafur Jóhann Ólafsson sem var til- nefndur fyrir bók sína Aldingarðinn. Allir rithöfundarnir sex voru við- staddir athöfnina á sunnudaginn og komu fram á Frank O’Connor- smásagnahátíð sem átti sér stað í borginni í seinustu viku. Miranda July, eða Miranda Jenni- fer Grossinger eins og hún heitir réttu nafni, fæddist árið 1974 í Ver- mont. Auk þess að vera rithöfundur er hún listamaður, tónlistarkona, leikkona og kvikmyndagerðarkona. July var alin upp í Berkeley í Kali- forníu í bókmenntafjölskyldu en báð- ir foreldrar hennar eru rithöfundar. No One Belongs Here More Than You kom út í maí síðastliðnum og er 224 blaðsíðna safn af sögum. Ásamt July og Ólafi voru eftirtaldir höfundar tilnefndir til verðlaunanna: Simon Robson, Etgar Keret, Char- lotte Grimshaw og Manuel Munoz. O’Connor- verðlaunin Miranda July FJÓRÐU tónleikar tónleika- raðar Jazzklúbbsins Múlans á þessu hausti verða á morgun, miðvikudaginn 26. september. Að þessu sinni mun hljóm- sveitin Burkina Faso koma fram. Sveitin leikur fönkaðan jazz úr smiðju manna eins og John Scofield og Joshua Red- man. Meðlimir sveitarinnar eru Ásgeir Ásgeirsson gít- arleikari, Ólafur Hólm trommuleikari, Róbert Þórhallsson bassaleikari og Vignir Þór Stefánsson hljómborðsleikari. Tónleikarnir á DOMO bar hefjast kl. 21 og er aðgangseyrir 1.000 kr. Tónleikar Burkina Faso á Múlanum Tveir af meðlimum Burkina Faso. AFRÍKA sunnan Sahara – í brennidepli er heiti á nýútkom- inni íslenskri bók sem ætlað er að auka almennan fróðleik og skilning á álfunni, sögu hennar og samtíma. Útgefendur bók- arinnar eru félagið Afríka 20:20, félag áhugafólks um málefni Afríku sunnan Sahara, og Háskólaútgáfan. Bókin er sneisafull af litríku myndefni ásamt því sem umfjöllunar- efnið er einstaklega fjölbreytt. Tólf höfundar skrifa hver sinn kafla en bókin skiptist í fjóra hluta: Sagan, lifnaðarhættir og lífsafkoma, listir og bókmenntir og Afríka og umheimurinn. Bókmenntir Afríka sunnan Sa- hara – í brennidepli Afríka sunnan Sa- hara- í brennidepli. ELLEFU íslenskir, græn- lenskir og danskir listamenn opna í dag samsýningu í Græn- landshúsinu í Kaupmannahöfn. Frá Íslandi sýna: Anna Gunnarsdóttir, Hrefna Harð- ardóttir, Ragnheiður Björk Þórsdóttir, Sigríður Ágústs- dóttir og Sveinbjörg Hall- grímsdóttir. Grænlensku lista- mennirnir eru: Camilla Nielsen og Naja Rosing og frá Danmörku sýna: Else Marie Gert Nielsen, Anette Andersen, Heidrun Sörensen og Ingelise Busach- er. Sýningin stendur til 2. nóvember 2007. Grænlandshúsið er að Løvstræde 6. Samsýning Ísland, Grænland og Danmörk Íslensku lista- konurnar. Eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur sigridurv@mbl.is FYRIR 25 árum stunduðu Sólrún Bragadóttir og Sigurður Flosason tónlistarnám í Indiana-háskóla í Bandaríkjunum. Mörgum árum síð- ar heimsótti Sigurður Sólrúnu á heimili hennar í Danmörku. Það var þá sem Sólrún sagðist þurfa að bera undir hann hugmynd. Hvernig væri ef þau prófuðu að spila saman? „Sigurður leit svolítið undarlega á mig,“ segir Sólrún hlæjandi. Það er enda ekki á hverjum degi sem óperusöngkona og saxófónleikari leiða saman hesta sína. „Seinna spurði hann mig hvort við ættum ekki að prófa. Við fórum að fikta við þetta og fannst þetta svona líka svakalega gaman. Á endanum kölluðum við til fjölskylduna, stillt- um henni upp og létum hana hlusta. Við vissum í raun ekkert hvernig þetta hljómaði í eyrum annarra. Þeim fannst þetta hins vegar svo skemmtilegt að við ákváðum að halda áfram,“ segir Sólrún. Tilraunastarfsemin vatt upp á sig og óperusöngkonan og saxófónleik- arinn spreyttu sig á æ fleiri lögum. Tveimur árum síðar er geisladisk- urinn Dívan og jazzmaðurinn kom- inn út. Af því tilefni halda þau tón- leika í Laugarneskirkju annað kvöld. Allt mögulegt getur gerst Lögin sem Sólrún og Sigurður flytja eru þekkt íslensk lög í óhefð- bundnum útsendingum, sem frjáls- um spuna er blandað saman við. Þar má nefna lög eftir Sigfús Einarsson, Pál Ísólfsson, Sigvalda Kaldalóns og Jón Ásgeirsson. Sólrún syngur og Sigurður spilar á saxófón en ekki er um frekari undirleik að ræða. „Við erum með ákveðna beina- grind en inni í lögunum höfum við ákveðið frelsi. Við ákveðum kannski að ég geri eitthvað þarna og hann þarna og allt mögulegt getur gerst. Síðan erum við líka með syrpu þar sem fyrir koma í einni bendu setn- ingar úr öllum mögulegum lögum,“ segir Sólrún. „Við vitum aldrei hvað gerist!“ Tuttugu ára starfsafmæli Sólrún hefur sungið óperur um víða veröld og átti raunar 20 ára starfsafmæli fyrir rétt rúmri viku: Hinn 17. september 1987 steig hún á svið í Kaiserslautern í Þýskalandi og söng Mimi í La Bohéme. Fyrir óperusöngkonu hlýtur óneitanlega að vera óvenjulegt að spinna við djass-saxófón … „Já, það er það. Þessi búningur er nýstárlegur og mér finnst hann vekja hjá mér ofsalegan sköp- unarkraft. Það er gaman að gera hvort tveggja og mér finnst það styðja hvort annað. Mér finnst það hafa ýtt við einhverju nýju í mér.“ Sólrún bendir á að þegar óperu- söngvarar komu upprunalega fram hafi allir beðið eftir aríunum. Í þeim hafi söngvararnir fengið að sýna hvað í þeim byggi. „Það sem þeir gerðu var allt spunnið á staðnum en þetta hætti smám saman. Núna eru aríurnar meira og minna niðurnjörv- aðar,“ segir hún. „Það sem við Sigurður gerum er aldrei eins því við erum bæði að spinna. Fyrir klassíska söngkonu eins og mig er þetta náttúrlega svakalega gaman. Það er frábært að fá tækifæri til að láta ímyndunar- aflið fara á fullt en ekki vera föst í ákveðnu formi. Fyrst var ég mjög feimin og tók þessi skref varlega en Sigurður var duglegur að hvetja mig áfram. Við erum gamlir vinir og það skilar sér svo sannarlega í samstarf- inu. Við þurfum ekki að segja mikið, enda þekkst lengi.“ Gaman að ferðast og syngja Dívan og djassmaðurinn eru ný- komin úr tónleikaferð um landið þar sem þau léku á Ísafirði, Höfn í Hornafirði, Stykkishólmi og í Eyja- firði. „Mér finnst ofsalega gaman að ferðast um Ísland og syngja. Hver einasti áhorfandi er mikilvægur og það skiptir í raun ekki máli hvort það er í stóru óperuhúsi eða annars staðar. Maður vandar sig alltaf jafn- mikið,“ segir Sólrún. Tónleikarnir annað kvöld hefjast kl. 20.30 í Laugarneskirkju. „Veit aldrei hvað gerist!“ Tilraunaverkefni dívu og djassmanns endaði með tónleikahaldi og geisladiski Morgunblaðið/Þorvaldur Örn Djassmaður og díva Sigurður Flosason og Sólrún Bragadóttir nálgast þjóðlög og íslensk klassísk sönglög með óvenjulegum hætti. Í HNOTSKURN » Hjá Dimmu er nýútkominngeisladiskurinn Dívan og jazzmaðurinn. » Diskurinn inniheldur þjóð-lög og klassísk íslensk söng- lög í útsetningu dívunnar Sól- rúnar Bragadóttur og djassmannsins Sigurðar Flosa- sonar. » Sólrún og Sigurður frum-fluttu lögin á Listahátíð í fyrra. Í KVÖLD leikur tríóið Frisell Proj- ekt tónlist eftir bandaríska gítarleik- arann Bill Frisell í Salnum í Kópa- vogi. „Þetta verða óvenjulegir tónleikar og þarna verður eitthvað fyrir alla – blús, rokk, djass, þjóðlagatónlist, nú- tíma klassík og svo framvegis,“ segir trommuleikarinn Scott McLemore. Auk Scotts eru í tríóinu Róbert Þórhallsson á bassa og Sunna Gunn- laugsdóttir á rafpíanó. Eins og Scott bendir á verða tónleikarnir því gít- arlausir. Píanóleikarinn Sunna mun hins vegar leika á 30 ára gamalt Wurlitzer-rafpíanó sem hún á. „Það hljómar mjög ólíkt venjulegu píanói,“ útskýrir Scott. Fjórtán ára trommuleikari Scott var 14 ára gamall þegar hann byrjaði að leika á trommur og segir hlæjandi að langan tíma hafi tekið að telja foreldra sína á að leyfa sér að koma trommusetti fyrir á heimilinu. Í dag kennir Scott fólki á öllum aldri í Mosfellsbæ að spila á trommur en hann og kona hans Sunna fluttu frá New York til Ís- lands fyrir tæplega þremur árum. Tónleikar Frisell Projekts hefjast kl. 20 í Salnum í Kópavogi. Gítarlaus gítar- tónlist í Salnum Trommuleikari Scott McLemore kennir Íslendingum að tromma. ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.