Morgunblaðið - 25.09.2007, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 25.09.2007, Qupperneq 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI AUSTURLAND Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is SAMBAND íslenskra sveitarfé- laga hefur beðið Hagfræðistofnun Háskóla Íslands um ítarlega úttekt á áhrifum kvótaskerðingarinnar á sveitarfélögin. Er niðurstöðu að vænta innan skamms og brýnt að ljóst liggi fyrir hvernig mótvægis- aðgerðir ríkisstjórnarinnar koma út gagnvart bæjar- og hafnasjóð- um sveitarfélaganna. Þetta kom m.a. fram í máli Halldórs Halldórs- sonar, formanns sambandsins á að- alfundi Sambands sveitarfélaga á Austurlandi, sem haldinn var á Vopnafirði á föstudag og laugar- dag. Fjölga þarf skattstofnum Fjölmargar ályktanir voru að vanda samþykktar á aðalfundin- um. M.a. ályktaði allsherjarnefnd að ríkisvaldið hæfi nú þegar heild- arendurskoðun á tekjustofnum sveitarfélaganna með það að mark- miði að fjölga skattstofnum. T.d. með hlutdeild í fjármagnstekju- skatti og skatti af einkahlutafélög- um og orkumannvirkjum. Einnig að tekin verði upp ný vinnubrögð í samskiptum ríkis og sveitarfélaga svo þessi tvö stjórnsýslustig geti átt eðlileg samskipti. Sambandið fagnar jákvæðum til- lögum að byggðaðagerðum ríkis- stjórnarinnar vegna niðurskurðar aflaheimilda og telur mikilvægt að grunngerð landsbyggðarinnar verði styrkt enn frekar, t.d. með fjárfestingu ríkisins í samgöngum, menntun og aukinni atvinnuþróun. Þó komi ríkisstjórnin ekki nægj- anlega til móts við hina miklu kjaraskerðingu sem blasi við sjó- mönnum, landverkafólki og ein- yrkjum í sjávarútvegi. SSA hvetur sveitarstjórnir á sambandssvæðinu til að setja sér jafnréttisáætlanir og minnir á ábyrgð þeirra í jafnréttismálum. Þjóðgarðsvinnan hafin Meðal þess sem fjallað var um á aðalfundinum var Vatnajökuls- þjóðgarður. Sagði Eiríkur Bj. Björgvinsson, bæjarstjóri Fljóts- dalshéraðs, að eiginleg undirbún- ingsvinna væri nú hafin. Gríðarleg vinna væri framundan við að yf- irfara reglugerðir, ræða við land- eigendur sem hlut eiga að máli og kynna verkefnið vel. Reiknað er með að um 1.150 milljónum verði varið til sveitarfélaganna næstu fimm árin vegna þjóðgarðsins og næsta ár verður t.d. hafist handa um byggingu gestastofa, t.d. á Skriðuklaustri og Klaustri. Þá þarf að huga að byggingu landvörslu- stöðva og upplýsingamiðstöðva, auk ráðningar þjóðgarðsvarða. Þórður Ólafsson hefur verið ráðinn starfsmaður stjórnar Vatnajökuls- þjóðgarðs. Kristján Þ. Júlíusson, 1. þing- maður NA-kjördæmis, sagði þing- menn kjördæmisins nýverið hafa átt sameiginlegan fund og standi til fundaferð þeirra um kjördæmið allt dagana 23. til 25. október nk. Meðal stærstu verkefna sveitar- félaganna framundan má telja uppbyggingu Vatnajökulsþjóð- garðs, eflingu námsmöguleika, þ.á m. háskólanáms og sameigin- legar úrlausnir á úrgangs- og sorp- málum. Formaður SSA er Björn Hafþór Guðmundsson, sveitarstjóri Djúpavogshrepps. Samþykktir aðalfundar SSA má sjá á vefnum ssa.is. Austfirskar sveitarstjórnir kalla eftir nýjum vinnubrögðum í samskiptum Samskipti sveitarfélaga og ríkis ofarlega á baugi Spjall Þórður Skúlason, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveit- arfélaga, og Kristján L. Möller samgönguráðherra ræða málin. Sam- gönguráðuneyti tekur málefni sveitarfélaga yfir um næstu áramót. Í HNOTSKURN »Sveitarfélögin á Austur-landi telja nú rúmlega 15 þúsund íbúa, eða um 5% lands- manna, sem er um 1% aukning frá því fyrir byggingu álvers og virkjunar. »Sveitarfélögin eru níu tals-ins og búa 67% íbúa í Fjarðabyggð og á Fljótsdals- héraði. »Helstu verkefni SSA eruefling háskólanáms, úr- lausnir í úrgangs- og sorp- málum og uppbygging Vatna- jökulsþjóðgarðs. »Kallað er eftir bættu sam-starfi við ríkisvaldið. Reyðarfjörður | Hringrás á Reyðarfirði hefur verið gert að hætta allri móttöku úr- gangs á svæði sínu, hreinsa lóð sína á Hjallaleiru og koma efni til útskipunar án tafar. Starfsleyfi Hringrásar rann út nú í haust og hafnaði Heilbrigðiseftirlit Austur- lands því að gefa út nýtt starfsleyfi vegna vanefnda á aðgerðum til úrbóta á svæði þess á Reyðarfirði. Sótti Hringrás í kjölfar- ið um undanþágu til umhverfisráðuneytis vegna tímabundinnar starfsemi án starfs- leyfis og hefur því verið hafnað. Einar Ás- geirsson, framkvæmdastjóri Hringrásar, segir núverandi stöðu ekki vefjast sérstak- lega fyrir Hringrás, en mikið efni falli til á Austurlandi. Tæplega 90% tilskilinna fram- kvæmda á vinnslusvæðinu á Reyðarfirði sé lokið, þær verði kláraðar og starfsemi haldi áfram við að hreinsa landið og miðin. Að- staðan á Reyðarfirði verði í hæsta gæða- flokki og fengur fyrir Austfirðina að hafa jafnfullkomna aðstöðu og þessa. Hringrás vinnur að úrlausn mála Fáskrúðsfjörður | Þessar ungu dömur ákváðu á dögunum að leggja Rauða kross- inum á Fáskrúðsfirði lið og söfnuðu 8.447 krónum í því skyni. Þær heita Arna Lísa Ingimarsdóttir, Gígja Guðnadóttir, Freydís Guðnadóttir og Guðrún Birta Hafsteins- dóttir og eru búsettar á Fáskrúðsfirði. Styðja starf Rauða krossins Morgunblaðið/Albert Kemp SAMHERJI hefur ákveðið að hætta allri skreiðarverkun á Hjalt- eyri við Eyjafjörð, en starfsmönn- um þar, 11 talsins, verður boðin vinna í öðrum deildum fyrirtækis- ins skv. upplýsingum fram- kvæmdastjóra landvinnslu þess. Trúnaðarmaður starfsmanna segir þá reyndar heldur trega til að þiggja þá vinnu og oddviti Arnar- neshrepps segir ákvörðun Sam- herja vonbrigði og hreppurinn verði af töluverðum tekjum vegna þessa. Hagræðing og nýsköpun Starfsmönnum Samherja var til- kynnt ákvörðun fyrirtækisins á fimmtudaginn og vinnslu þegar hætt. „Það er ljóst að minna verður af fiski til að vinna á næsta ári og við erum að bregðast við því. Hluti af því hráefni sem þarna hefur verið unnið verður sendur í hausaþurrk- un okkar á Dalvík en hluti fer ann- að,“ er haft eftir Gesti Geirssyni, framkvæmdastjóra landvinnslu Samherja hf., í fréttatilkynningu sem fyrirtækið sendi frá sér í gær. Gestur segir ennfremur: „Þetta er fyrsta skrefið til að bregðast við minnkandi veiðiheimildum í þorski. Við ætlum okkur að mæta niður- skurðinum með hagræðingu, ný- sköpun og öflugt markaðsstarf að vopni.“ Starfsstöð Samherja á Hjalteyri hefur verið stærsti vinnustaðurinn í Arnarneshreppi og að sögn Axels Grettissonar oddvita kemur þetta sér illa fyrir hreppinn. „Okkur var tilkynnt þetta form- lega á föstudaginn og munum eiga fund með Gesti, framkvæmda- stjóra landvinnslu Samherja, um málið í næstu viku þegar hann verður kominn frá útlöndum,“ sagði Axel við Morgunblaðið í gær. Axel segir fyrstu viðbrögð hreppsins vonbrigði en í stöðunni sé ekki annað hægt að gera en bíða aðeins og sjá hvernig mál þróast. „Starfsemin hefur farið fram í hús- næði sem er í eigu hreppsins og ég reikna með að þeim leigusamningi verði sagt upp. Þar verðum við af tekjum og ekki fáum við útsvar frá fólkinu ef það þiggur ekki þá vinnu sem nú verður í boði eða flytur annað.“ Axel segir hreppinn vitaskuld helst hafa viljað starfsstöð Sam- herja áfram á staðnum en úr því sem komið sé verði athugað hvort önnur fyrirtæki vilji hefja þar starfsemi. „Við hefðum kosið að fá einhvern atvinnurekanda í þetta húsnæði og helst að sá tæki að minnsta kosti eitthvað af fólkinu í vinnu.“ Axel segir tvö lítil fyrirtæki reyndar þegar haft samband við sig en hann kveðst ekki vilja hefja slíkar viðræður á meðan Samherji er með húsið á leigu. Hreppsnefnd hittist á fundi í dag til þess að fara yfir stöðu mála. Mun minna hráefni „Okkur var mörgum óneitanlega brugðið,“ segir Egill Ragnarsson, trúnaðarmaður starfsmanna Sam- herja á Hjalteyri, spurður um við- brögð starfsfólksins eftir fundinn á fimmtudaginn þar sem því var til- kynnt ákvörðun fyrirtækisins. Egill segir reyndar mun minna hráefni hafa borist undanfarið en löngum fyrr – aðeins uppundir 8 tonn frá því eftir sumarfrí – og fólk því gert sér grein fyrir því að svona kynni hugsanlega að fara, en tíð- indin samt komið á óvart. Egill bendir á að flestir starfsmennirnir séu komnir á þann aldur að líklega verði ekki gott að komast aftur út á vinnumarkaðinn. „Flestir eru 55 ára eða eldri,“ segir hann. Fáeinir munu vera komnir fast að eftir- launaaldri. Samherji hefur boðið starfsfólk- inu vinnu hjá fyrirtækinu á Dalvík, en Egill segir að menn virðist held- ur tregir til þess að vinna þar, mið- að við fyrstu viðbrögð. Flestir búa á Hjalteyri, sem er í rúmlega 25 km fjarlægð frá Dalvík, en þrír eru bú- settir á Akureyri, en þaðan eru 25 km að Hjalteyri og því 50 km til Dalvíkur. Samherji býðst til þess að aka starfsfólkinu frá Hjalteyri til Dal- víkur sem er „sem er ágætlega boðið,“ segir Egill en sumum finnst samt dálítið langt að fara, ekki síst fyrir Akureyringana þrjá. Samherji hættir skreiðarverkun á Hjalteyri en býður fólkinu vinnu á Dalvík Fólki óneitanlega brugðið Morgunblaðið/Kristján Dalvík Samherji er með mikla starfsemi á Dalvík, þar sem myndin er tekin í frystihúsinu. Fólkinu frá Hjalteyri hefur verið boðin vinna þar. Í HNOTSKURN »Aðeins búa 176 manns íArnarneshreppi og starfs- stöð Samherja var stærsti vinnustaðurinn í hreppnum. Þar unnu 11 manns. »Egill Ragnarsson, trún-aðarmaður starfsfólks hjá Samherja á Hjalteyri, hefur starfað í skreiðarverkun fyr- irtækisins þar síðastliðin 17 ár og hann segir flesta starfs- menn hafa verið svo lengi. » „Þetta hefur verið góðvinna,“ sagði Egill í gær. Oft hefur verið unnið lengi en undanfarið 8 tíma á dag. ÞRÍR voru fluttir á Sjúkrahúsið á Ak- ureyri til skoðunar eftir mjög harðan árekstur tveggja fólksbíla á gatnamót- um Þingvallastrætis og Mýrarvegar seinnipartinn í gær. Enginn var alvar- lega slasaður en viðkomandi fundu fyrir eymslum og var því farið með þá á slysadeild til öryggis. Bílarnir eru hins vegar mjög skemmdir, annar reyndar úrskurðaður ónýtur á staðnum því ekki borgar sig að gera við hann, að sögn lögreglu. Annar bíllinn kom niður Þing- vallastræti og yfir Mýrarveginn, en hin- um var ekið upp upp Þingvallastrætið og beygði sá til vinstri, suður Mýrarveg í veg fyrir hinn. Ónýt bifreið en enginn slasaðist VINIR Akureyrar, sem staðið hafa að há- tíðinni Einni með öllu á Akureyri um verslunarmannahelgina undanfarin ár, hafa ákveðið að láta gott heita og halda há- tíðina ekki framar breyti bæjaryfirvöld ekki settum viðmiðum varðandi aðgang ung- menna að tjaldstæð- unum umrædda helgi. Meirihluti bæjar- stjórnar Akureyrar ákvað skömmu fyrir verslunarmannahelg- ina síðustu að setja þau viðmið að ung- mennum á aldrinum 18-23 ára yrði ekki hleypt inn á tjaldsvæði bæjarins þá helgi, í því skyni að skapa ró á tjaldsvæðunum á meðan Ein með öllu stæði yfir. Vinir Akureyrar, félagsskapur hags- munaaðila í verslun og þjónustu, voru af- ar ósáttir og tilkynntu fyrrgreinda ákvörðun sína nýverið á samráðsfundi allra sem að hátíðinni komu með ein- hverjum hætti. Koma ekki áfram að Einni með öllu Sýning Einni með öll lauk ætíð með flugeldasýningu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.