Morgunblaðið - 25.09.2007, Síða 18

Morgunblaðið - 25.09.2007, Síða 18
|þriðjudagur|25. 9. 2007| mbl.is daglegtlíf Reðasafnið á rætur sínar í söfn- un sem hófst sem græskulaust gaman af hálfu Sigurðar Hjart- arsonar. »20 daglegt Skref til sjálfshjálpar í lestri og ritun er námskeið sem veitir kennurum innsýn í hvernig hjálpa megi lesblindum. »20 menntun Þ að er mjög gefandi að fylgjast með krökkunum þegar þau snúa við blaðinu og sjá blikið í aug- unum á þeim þegar þau uppgötva hæfileika sína og lífsgleðina,“ segir Hrafndís Tekla Pétursdóttir, sálfræð- ingur hjá ráðgjafarfyrirtækinu Nýrri leið, en þar hefur verið boðið upp á námskeið fyrir unglinga sem heitir Lífslistin. Þar eru farnar nýjar leiðir til að takast á við vanlíðan og hegðunarvandamál. „Þetta er forvarnar- og meðferðarúrræði sem er tilraunaverkefni og við erum að fara af stað í þriðja sinn núna á næstu dögum. Þetta er byggt upp eftir erlendri fyrirmynd en prófessor Harvey Milkman hefur rekið svona verkefni í Bandaríkjunum frá því árið 1974 og það hefur gefið góða raun. Við höf- um verið í þjálfun hjá honum og hann fylgist vel með starfinu okkar en við erum fyrst landa í Evrópu til að fá leyfi hjá honum til að fara af stað með svona námskeið. Útgangspunkturinn í Lífslistinni er vellíðan án vímuefna. Við drögum fram hæfileikana sem unglingarnir búa yfir og virkjum sköp- unargáfu þeirra og áhuga með listnámi. Við bjóðum þeim upp á að taka þátt í leiklist, tónlist, dansi og myndlist og í vetur verðum við líka með kvikmyndagerð. Þessir krakkar stríða oft við námsörðugleika og eiga erfitt með bókleg fög, en þau búa kannski yfir hæfileikum sem hafa ekki fengið að blómstra. Þegar þau sýna okkur og foreldr- unum árangurinn í lokaverkefni sínu, þá verður öllum ljóst hvað þau eru klár og það er mjög uppbyggjandi fyrir þau sjálf að upp- götva það.“ Ævintýraferðir og aðstoð við samskipti Í námskeiðinu felst einnig hópmeðferð þar sem hugrænni atferlismeðferð er beitt til að kenna unglingunum nýjar leiðir til að bregð- ast við erfiðum aðstæðum og auka félags- færni þeirra. Einnig er farið í ævintýraferð- ir. Hrafndís Tekla segir að lögð sé áhersla á að vinna náið með skólunum sem og fjöl- skyldum barnanna. „Á námskeiðinu er boðið upp á sálfræði- viðtöl, bæði einkaviðtöl fyrir krakkana og viðtöl fyrir foreldrana. Oft eru samskipta- vandamálin mikil hjá þessum krökkum og fjölskyldum þeirra og við þurfum að vinna með allt umhverfið sem þau þrífast í. Þeim finnst þau oft í lausu lofti þegar þau eru hætt í neyslu af því að allir vinirnir tilheyra þeim hópi. Þetta eru oft spennufíklar og við erum í raun að kenna þeim að næra þá þörf á heilbrigðan hátt. Við kennum þeim að lifa lífinu lifandi. Við erum með fjölskyldukvöld þar sem allir leika saman, spila eða syngja, og þótt krakkarnir haldi að það sé glatað þá skemmta yfirleitt allir sér mjög vel.“ Þegar unglingur er kominn á það stig að honum finnst hann vera búinn að bregðast foreldrum sínum, sjálfum sér og skólanum, þá þarf hann á sjálfsstyrkingu að halda og það þarf að veita allri fjölskyldunni ráð. „Þessir krakkar leita oft í vímuefni til að nálgast einhverja vellíðan sem þau vantar. Á námskeiðinu leggjum við áherslu á að það er hægt að finna vellíðan án þess að reykja hass eða gera eitthvað annað neikvætt sem brýtur þau niður. Við erum í raun að hjálpa þeim að finna út hvað er hægt að gera í staðinn, því þau kunna það oft hreinlega ekki, heldur eru föst í þeirri hugsun að allt sé ömurlegt og leiðinlegt og að þau kunni ekki neitt og geti ekki neitt. Þau eru mjög oft ofvirk, kvíðin, í uppreisn og sum eru farin að fikta við áfengi og jafnvel vímuefni en eru samt ekki komin á það stig að þau þurfi vist- un á stofnun. Persónulega finnst mér of mik- il áhersla á stofnanir hér á landi, við eigum að leita annarra leiða fyrst, því það hentar alls ekki öllum unglingum að fara á stofnun í meðferð.“ Einn sótti um í Söngskólanum og annar kominn í hljómsveit Hrafndís Tekla segir að mikið sé lagt upp úr því að mynda traust innan hópsins, bæði milli krakkanna en einnig milli þeirra og ráð- gjafanna. „Það ríkir fullur trúnaður í hópn- um og við segjum foreldrum ekki frá því sem krakkarnir treysta okkur fyrir. Þau átta sig líka fljótt á að það skilar engu jákvæðu fyrir þau að halda áfram í neyslu og að jákvætt samskiptamunstur við foreldra er nokkuð sem kemur sér vel fyrir þau sjálf.“ Lífslistin er fyrir krakka á aldrinum 14-18 ára og stendur yfir í þrjá mánuði þar sem krakkarnir mæta tvisvar í viku, þrjá tíma í senn. „Krökkunum gefst tækifæri til að koma aftur á námskeið, sem er mjög gott því þau eru góð fyrirmynd fyrir þau sem eru ný og eins styrkjast þau enn frekar við það að vera lengur.“ Hrafndís Tekla segir að reynsl- an af fyrstu tveimur námskeiðunum sé góð. „Við erum sannfærð um að það skiptir máli að grípa inn í nógu fljótt, áður en vandamálin eru orðin mjög djúptæk, auk þess sem það sparar gríðarlega peninga fyrir samfélagið að þurfa ekki að vista krakkana á stofnunum. Og sumir þessir krakkar hafa staðið sig virkilega vel. Ég man eftir stelpu sem ætlaði ekki að fást til að fara upp á svið og syngja og hafði enga trú á sjálfri sér, en við fengum hana til að syngja stórt hlutverk í söngleik og þar blómstraði hún, enda er hún mjög hæfileikarík söngkona og við hjálp- uðum henni til að komast í einkatíma í söng. Einn af strákunum sem hafa verið hjá okkur er búinn að sækja um í Söngskólanum og annar er kominn í hljómsveit. Það er svo ár- íðandi að koma þeirri hugsun að, bæði hjá krökkunum og foreldrunum, að það er aldrei allt vonlaust. Það er alltaf leið út til betra lífs.“ Hrafndís Tekla segir að þau hjá Nýrri leið langi til að bjóða upp á eftirfylgni að nám- skeiði loknu og enn fjölbreyttari námskeið, en það kosti peninga. „Það er eilíf barátta að fá fjármagn í verkefnið og okkur langar að gera meira af skemmtilegum hlutum fyrir krakkana. Við erum vissulega með tveggja ára samning við heilbrigðis- og félagsmála- ráðuneytið og frá þeim fáum við 40% fjár- magn og Minningarsjóður Margrétar Björg- ólfsdóttur styrkti okkur um eina milljón og eins safnaði SPRON fyrir okkur í átakinu Gefðu styrk. En það vantar alltaf meira.“ Gaman að lifa Unglingar þurfa stundum leiðsögn til að finna hæfileika sína og gleðina. Morgunblaðið/G.Rúnar Nýjar leiðir Hrafndís Tekla segir Lífslistina reynast vel sem forvarnar- og meðferðarúrræði . Vellíðan án vímuefna Allir eru góðir í einhverju og all- ir búa yfir hæfileikum. Kristín Heiða Kristinsdóttir heyrði um námskeið þar sem sköpunargáfa unglinga er virkjuð til að styrkja þá sem eru með áhættuhegðun og kenna þeim að njóta lífsins án neikvæðrar spennu. Við bjóðum þeim upp á að taka þátt í leiklist, tónlist, dansi og myndlist og í vetur verðum við líka með kvikmyndagerð. Þessir krakkar stríða oft við námsörð- ugleika og eiga erfitt með bók- leg fög, en þau búa kannski yfir hæfileikum sem hafa ekki feng- ið að blómstra. Kynningarfundur um Lífslistina verður í dag kl. 17.30 í Hinu húsinu, Pósthússtræti 3-5. www.nyleid.is ÞEIR líta óneitanlega girnilega út diskarnir sem hér hefur verið raðað upp og ekki órökrétt að álykta að hér sé boðið til veislu þar sem ilmur fram- andi rétta æsi upp hungur væntanlegra veislugesta. Þessi veisla verður þó víst aldrei nema fyrir augað því að réttirnir eru búnir til úr grjóti. Þeir eru verk Taívanbúans og steinastafnarans Hsu Chun-I from Taiwan og þá er að finna á listsýningu á Þjóðlistasafninu í Singa- pore. Hsu hóf að safna steinum fyrir tuttugu árum og hefur æ síðan leitast við að nota þá til að búa til myndræna líkingu flókinna kínverskra rétta. Veisla fyrir augað Reuters Sannkallað lostæti Það er erfitt að trúa því að réttirnir séu ekki ætir. Reuters

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.