Morgunblaðið - 25.09.2007, Síða 21
Fréttir
í tölvupósti
„Þetta byrjaði sem algjört grín, en
þegar menn fara að safna einhverju
gerast þeir ástríðufullir og vilja þá
bæði stækka og bæta safnið sitt. Auk
þess er ég mikill sérvitringur og hef
gaman af því að stuða og ögra án
þess þó að vilja móðga fólk. Fyrsta
eintakið barst mér undan bola af
Snæfellsnesi árið 1974 þegar ég var
skólastjóri Gagnfræðaskólans á
Akranesi. Kynfærum nautgripa var
aldrei hent í gamla daga heldur voru
þau hengd upp og þurrkuð og notuð
sem svipur eða pískir. Upp frá þessu
fóru kennarar við skólann, sem réðu
sig í sumarvinnu við hvalstöðina í
Hvalfirði, að stríða mér með því að
færa mér kynfæri hvala. Sú hug-
detta kviknaði þá í kollinum á mér að
gaman væri að safna kynfærum
fleiri dýrategunda,“ segir Sigurður,
sem opnaði safn sitt í húsnæði við
Laugaveg í Reykjavík með 63 ein-
tökum.
Sigurður kenndi sögu og spænsku
við Menntaskólann í Hamrahlíð í 25
ár og segist ekki hafa haft efni á því
að vera með safnið í miðborg
Reykjavíkur eftir að hann komst á
eftirlaun, auk þess sem það húsnæði
hafi verið orðið alltof lítið undir alla
safngripina. Hann brá því á það ráð
að gerast efnahagslegur flóttamað-
ur, flutti norður á Húsavík vorið
2004 og kom safninu sínu fyrir í
Hlöðufelli, húsnæði sem áður hýsti
skemmtistað, en er nú í eigu Glitnis.
Nú státar safnið af 257 alvöru ein-
tökum af 90 tegundum.
Þar af tilheyra 195 eintök 45 teg-
undum íslenskra spendýra.
„Svo er ég með 22 þjóðfræðileg
eintök, sem tilheyra til dæmis huldu-
mönnum, jólasveinum og marbendl-
um, sem verða að eiga sína fulltrúa á
safninu. Sjálfur hef ég aldrei séð
huldumannstyppið þar sem ég er
karlmaður. Sumar konur sjá það
hinsvegar og þegar ég geng á þær og
bið þær að lýsa því fyrir mér, þá ber
þeim ótrúlega vel saman. Ég sé enga
ástæðu til að rengja þessar ágætu
lýsingar, trúi þeim bara eins og nýju
neti.“
Skrýtnasta safn í heimi
Reðasafnið á Húsavík var í sum-
arbyrjun tilnefnt sem skrýtnasta
safn í heimi á heimasíðunni Odd-
Edge.com. Sigurður segist hafa ver-
ið einkar stoltur með þá nafnbót
enda hafi verið um fína auglýsingu
að ræða. „Ég hef varla haft frið fyrir
fjölmiðlamönnum að undanförnu eft-
ir að spænski blaðamaðurinn Xavier
Moret skrifaði grein um safnið mitt
og birti í El Períódico fyrir skömmu.
Ég var til dæmis í þremur útvarps-
viðtölum í síðustu viku, í Kanada,
Kólumbíu og á Írlandi auk þess sem
ég fékk heilsíðugrein í Times með
mynd af mér, þó að ég myndist eins
og sjálfur andskotinn.“
Sigurður lætur vel að aðsókn sum-
arsins enda lætur nærri að um 5.500
gestir hafi sótt safnið heim í sumar,
25% fleiri en í fyrrasumar. „Hróður
safnsins fer því vaxandi. Á því leikur
enginn vafi. Auk alvörutóla er ég hér
með þrjú hundruð listgripi af kyn-
færum alls staðar að úr heiminum og
hér má líka afla sér fróðleiks um reð-
urfræði og reðurdýrkun enda held
ég nákvæmar skýrslur yfir öll mín
typpi á átta tungumálum. Ég hef líka
verið að dunda mér við að skera út í
tré og bera bæði ferðabarinn minn
og fundahamarinn vott um þetta
áhugamál mitt,“ segir Sigurður og
bætir við að safngripirnir berist sér
eftir ýmsum leiðum. Sjálfur hafi
hann aldrei drepið dýr og ekkert dýr
hafi verið drepið safnsins vegna.
Sigurður hefur að undanförnu
verið að velta því fyrir sér hvers kon-
ar gesti hann fái á safnið sitt og hef-
ur komist að því að 70% gestanna
eru útlendingar og 60% gesta eru
kvenkyns. „Sjálfur hef ég komist að
svolítið merkilegum niðurstöðum
eftir sálfræðilega og félagsfræðilega
rannsókn, sem lýtur að greindar-
vísitölum og húmorsvísitölum mann-
fólksins.
Talið er að um helmingur mann-
kyns sé undir meðalgreind. Aðeins
um þriðjungur þeirra, sem eru yfir
meðalgreind, ná hinsvegar meðal-
húmorsvísitölu. Það er því ekki nema
einn þriðji af þeim helmingi, sem
kemur til Húsavíkur eða sjötti hver
gestur á Húsavík, sem hefur andlega
burði til þess að koma á safnið mitt
og meta það. Konur eru þar að sjálf-
sögðu í meirihluta enda eru þær mun
greindari en karlar og hafa auk þess
að jafnaði mun betri húmor.“
Athyglin Reðasafnið, sem minnir
óneitanlega myndarlega á sig í
miðbæ Húsavíkur, vekur athygli
ferðamanna, sem þangað koma.
Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson
Legstaður Búið er að finna lim Páls Arasonar stað í sýningarrýminu.
Reðasafnið á Húsavík er opið dag-
lega frá kl. 12 til 18 á sumrin og á
veturna fyrir hópa, sé þess óskað.
www.phallus.is
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007 21
ÞAÐ hreinlega stirnir á fyrirsætuna sem gekk eftir sýningarpallinum hjá
Giorgio Armani í gær, enda klædd gylltu frá toppi til táar. Tískuvikan í
Mílanó stendur nú yfir og munu ítalskir fatahönnuðir næstu daga keppast
við að sýna tísku komandi sumars.
Reuters
Glitrandi og gyllt klæði
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið
Glæsilegar nýjar íbúðir á Stjörnubíósreit í hjarta Reykjavíkur. Húsið er lyftuhús og er sérlega mikið lagt í
sameign og íbúðir hússins. Íbúðirnar eru 2ja og 3ja herbergja og eru frá 70 til 95 fm. Íbúðirnar eru fullfrá-
gengnar með eikarinnréttingum og eikarplankaparketi á gólfum. Baðherbergi er flísalagt með Granít flí-
sum í hólf og gólf, innfeldum innréttinum með speglahurðum, og stórum sturtuklefa. Þvottahúsið er
flísalagt með Granít flísum á gólfi. Í eldhúsi eru keramik helluborð, blásturofn, vifta, ísskápur og uppþvot-
tavél allt frá AEG. Öllum íbúðunum fylgja svalir. Allt gler í suðurhlið hússins er Sun-stopp gler. Að utan er
húsið fullfrágengið og sérlega vandað í alla staði og að mestu viðhaldsfrítt. Bílastæði á baklóð hússins fyl-
gir öllum íbúðunum. Verð á íbúðunum er frá 29,5 m.
Undirritaðir verða á staðnum á milli kl. 16.00 og 18.00 í dag.
Finnbogi Hilmarsson,
Einar Guðmundsson og
Bogi Pétursson
löggiltir fasteignasalarOpið mán.- fös. frá kl. 9-17
Sími
530 6500
Opið hús í dag á milli kl. 16.00 og 18.00
Laugavegi 86-94. Reykjavík
Daníel
Björnsson
Ragnar
Ingvarsson www.heimili.is
Kaffistjóri er Davíð Þór Jónsson, þýðandi Allir velk
omnir!
Hvað kostar hamingjan?
Efnisleg gæði og lífshamingjan.
Dr. Tinna Laufey Ásgeirsdóttir hjá Hagfræðideild Háskóla Íslands
og dr. Ragna Benedikta Garðarsdóttir hjá Félagsvísindastofnun
Háskóla Íslands ætla að ræða málið.
Annað Vísindakaffið í KVÖLD 25.sept.
- vísindamenn segja frá rannsóknum sem koma öllum við – á mannamáli
Kaffistofa Listasafns Reykjavíkur – Hafnarhúsi frá kl. 20.00 – 21.30