Morgunblaðið - 25.09.2007, Page 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Einar Sigurðsson.
Styrmir Gunnarsson.
Forstjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
DAUÐAGILDRUR
Fyrir tæpum þremur árum létu104 ungmenni lífið í eldsvoða ádiskóteki í Buenos Aires í
Argentínu. Ein af ástæðunum fyrir
þessum harmleik var að eigendur
staðarins höfðu læst öllum neyðarút-
göngum til að koma í veg fyrir að fólk
laumaðist inn á staðinn án þess að
borga. Árið 1942 létust 492 menn og
hundruð slösuðust í eldsvoða á
skemmtistað. Neyðarútgöngunum
hafði verið lokað með logsuðu til að
viðskiptavinirnir hlypu ekki frá
reikningnum.
Af hverju er ástæða til að rifja upp
þessa atburði? Í Morgunblaðinu í gær
segir frá því að lögregla og slökkvilið
hafi um helgina sinnt eldvarnaeftirliti
á skemmtistöðum og gert athuga-
semdir á átta stöðum af þeim 19 sem
skoðaðir voru. Á fjórum stöðum voru
gerðar alvarlegar athugasemdir
vegna þess að flóttaleiðir voru mjög
torfærar. Á einum skemmtistað hafði
neyðarútgangi verið læst með lykli.
Þetta gáleysi er með ólíkindum og
óverjandi að stefna grunlausum al-
menningi í slíka hættu. „Það sem ger-
ist þegar flóttaleiðum er læst er að þá
skapast hætta á stórslysi,“ segir
Bjarni Kjartansson, sviðsstjóri for-
varnasviðs slökkviliðsins. „Þetta er í
raun og veru vítalaus og glórulaus
ósvífni veitingamanns við sína gesti
sem eiga að geta farið og skemmt sér,
öryggir í þeirri vissu að þarna sé allt í
lagi eins og annars staðar.“
Staðurinn þar sem neyðarútgang-
inum hafði verið læst heitir Café Vict-
or eins og fram kemur í Morgun-
blaðinu í dag. Þeir sem reka staðinn
höfðu verið varaðir við munnlega í
þrígang og einu sinni skriflega þegar
eftirlitsferðin var farin um helgina.
Enn voru dyrnar læstar og voru gerð-
ar við það athugasemdir. Á sunnu-
dagskvöld barst lögreglu tilkynning
um að dyrnar væru ennþá læstar.
Lögreglan kom þá á staðinn og ítrek-
aði viðvörunina. Í gærmorgun voru
loks gerðar úrbætur.
Steinþór Hilmarsson, varðstjóri og
rannsóknarlögreglumaður hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu, seg-
ir að framvegis verði ekkert lát á eft-
irliti með veitingastöðum í borginni:
„Svona hlutir verða að vera í lagi,
enda geta verið á milli fimm og átta
hundruð manns inni á einum
skemmtistað og þeir verða að vera
öruggir um að geta komist út í neyð-
artilfellum.“
Veitingamenn bera mikla ábyrgð
og verða að standa undir henni. Það
er ekki hægt að líða að fjölsóttir veit-
ingastaðir séu gerðir að dauðagildr-
um. Hér í upphafi voru nefnd tvö
dæmi um harmleiki þar sem fjöldi
manns lét lífið vegna þess að bruna-
varnir voru ófullnægjandi. Dæmin
eru miklu fleiri. Kröfur um bruna-
varnir og neyðarútganga eru ekki
bara eitthvert nöldur, sem hægt er að
virða að vettugi svo vikum skiptir.
Þeir, sem reka veitingahús, verða að
gera sér grein fyrir því hvað er í húfi
og þegar tilmælum er ekki sinnt á
einfaldlega að loka stöðunum.
MISRÆMI Í GREIÐSLUM FORELDRA
Nú er svo komið að sumir foreldr-ar í Reykjavík þurfa að punga
út 60 þúsund krónum á mánuði til að
fá vistun fyrir barn sitt hjá dagfor-
eldrum. Og það eru foreldrar sem
eru svo heppnir að fá pláss.
Þetta er veruleiki sem margir for-
eldrar búa við þrátt fyrir að niður-
greiðslur borgarinnar til dagfor-
eldra hafi hækkað um tæp 40% á
hvert dvalargildi um síðustu áramót.
Ef ekki hefði komið til þeirrar
hækkunar hefði ástandið líklega
versnað enn frekar, því útlit var fyr-
ir flótta úr greininni.
Þrátt fyrir að dvalarstundum hjá
dagforeldrum hafi fjölgað um 18%
frá því í fyrra, og þjónustan því auk-
ist, er það engan veginn nóg til að
mæta vaxandi eftirspurn. Dagfor-
eldrar eru sjálfstætt starfandi,
verðskráin því frjáls og sumstaðar
hefur þróunin verið sú að gjöld for-
eldra hafa hækkað umtalsvert.
Í gær voru nefnd í Morgunblaðinu
tvö dæmi um greiðslur foreldra,
annars vegar 55 þúsund á mánuði og
hins vegar rúmar 60 þúsund krónur.
Í seinna tilvikinu höfðu foreldrarnir
pantað pláss fyrir barn sitt hjá dag-
móður með löngum fyrirvara og kom
ekki í ljós fyrr en aðlögun var lokið
og skrifað var undir samning hversu
hátt gjaldið var.
„Ég hefði aldrei trúað því að
gjaldið gæti verið svona hátt,“ sagði
annað foreldrið og bætti við að slík-
ar greiðslur hlytu að reynast þungur
baggi á ungu fólki sem er að stíga sín
fyrstu skref í lífinu og koma sér upp
fjölskyldu.
Það er auðvitað óviðunandi að
sumir foreldrar þurfi að greiða tæp
60 þúsund fyrir dagvistun á meðan
aðrir foreldrar greiða tæp 40 þúsund
fyrir sömu þjónustu. Á sama tíma
greiða foreldrar leikskólakrakka að-
eins 20 þúsund, en þar er ætlun
borgarstjórnarmeirihlutans að
koma upp ungbarnadeild fyrir börn
á aldrinum eins árs til átján mánaða.
Það er ljóst að misræmið er mikið
í útgjöldum foreldra vegna barna
sinna. Þess vegna er jákvætt að það
vinnur starfshópur á vegum borgar-
innar að samstarfssamningi við dag-
foreldra, þar sem setja á þak á
greiðslur foreldra fyrir dagvistun.
Samningar munu vera á lokastigi og
bíða afgreiðslu fjárhagsáætlunar í
borgarstjórn. Það hlýtur að vera
markmiðið í slíkum samningi að taka
upp sama fyrirkomulag og í Garða-
bæ, þar sem foreldrar greiða sömu
upphæð fyrir vistun hjá dagforeldri
og leikskóla.
Og til langs tíma hlýtur markmið-
ið að vera að samræma gjöld for-
eldra barna á öllum skólastigum,
enda engin rök fyrir því að foreldrar
þurfi að greiða fyrir skólagöngu
barna sinna í leikskólum þegar öll
skólagangan er ókeypis að öðru
leyti.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Lengi hefur kraumað undirniðri en nú virðist almenn-ingur vera búinn að fánóg: Mótmælin í Búrma
síðustu daga gegn grimmri og
spilltri herforingjaklíkunni sem
stýrir landinu eru þau fjölmennustu
sem orðið hafa í landinu síðan 1988,
talið er að alls hafi um 100.000
manns tekið þátt í þeim í höfuðborg-
inni Rangoon [sem einnig er kölluð
Yangon], Mandalay og fleiri borgum
í gær. Í þetta sinn eru það ekki stúd-
entar sem hafa tekið forystuna eins
og 1988 heldur búddamunkar og
-nunnur.
Það sem endanlega varð til þess
að mælirinn fylltist var fyrirvaralaus
og allt að 500% hækkun á eldsneyti í
ágúst, með tilheyrandi verðhækkun-
um á ýmsum nauðsynjum. Í kjölfar
þessara ráðstafana fóru stúdentar
að mótmæla óstjórn og spillingu.
Flestir leiðtoga þeirra voru hand-
teknir en í liðinni viku tóku munk-
arnir forystuna í aðgerðunum og þá
breyttist andófið skyndilega í fjölda-
hreyfingu.
Efnahagur á heljarþröm
Herforingjar hafa stýrt Búrma
með harðri hendi í rúma fjóra ára-
tugi og tekist að koma efnahagnum í
landi, sem er afar ríkt frá náttúrunn-
ar hendi, gersamlega á heljarþröm.
Stjórnarfarið er á köflum allt að því
súrrealískt. Voldugasti maður lands-
ins, hinn 73 ára gamli Than Shwe,
hershöfðingi og yfirmaður Ríkisfrið-
ar- og þróunarráðsins [SPDC], eins
og klíkan kallar sig, er sagður vera
afar hjátrúarfullur og oft leita ráða
hjá stjörnuspekingum um ákvarðan-
ir sínar.
Fjölmiðlar í Búrma eru allir múl-
bundnir og nefna vart mótmælin,
hvarvetna eru óeinkennisklæddir
snuðrarar stjórnvalda látnir fylgjast
með „hættulegu“ fólki. En útlægir
andófsmenn ráða yfir útvarpsstöðv-
um, m.a. í Noregi og herforingjun-
um hefur ekki tekist að stöðva áróð-
urs- og upplýsingastraum frá
stjórnarandstæðingum um Netið.
Fólkið flykkist nú um málstaðinn.
Einn af ráðherrunum varaði í gær
munkana við, hvatti þá til að hlíta
lögum og virtist beinlínis hóta því að
beitt yrði vopnavaldi til að kveða
stórveldi, Indverjar, hafa
grafið undan viðskiptar
Vesturveldanna með þessa
Kínverjar eru staðráðnir í a
sér aðgang að miklum olíu
indum í landgrunni Búrma
fjárfest mikið í landinu.
Kínverjar komu fyrr á ár
fyrir að öryggisráð SÞ g
mannréttindabrot Búrma
sögðu að ráðið væri ekki r
vangurinn fyrir þá umr
hvað getur valdið því að
istastjórnin í Peking, sem
mjúkum höndum um andó
eigin landi, reyni nú að ha
hald á borðalögðum vinum
grannríkinu?
„Stjórn Búrma sættir sig
mælin og grípur ekki til
gegn munkunum vegna
frá Kínverjum,“ er haft eft
greindum diplómata frá A
íulandi í skeyti AP-fréttas
„Peking verður gestgjaf
sumarólympíuleika. Allir
Kína er helsta stuðningsrík
ingjaklíkunnar og þess ve
andófið í kútinn. Margir óttast að
niðurstaðan verði blóðbað og sagan
frá 1988 endurtaki sig. Þá lágu um
3000 manns í valnum þegar stjórnin
braut mótmælendur á bak aftur.
En búddamunkarnir njóta geysi-
mikils álits meðal almennings og
ljóst er að ráðamenn vita ekki fylli-
lega hvernig þeir eiga að bregðast
við þessari nýju stöðu. Andófið er
talið vera vel skipulagt og tekist hef-
ur að halda fast við friðsamlegt yf-
irbragð þess, þrátt fyrir vaxandi
reiði og örvæntingu almennings sem
í áratugi hefur stunið undan okinu.
Ef mótmælin verða kæfð í blóðbaði
eins og 1988 mun reiðin í garð
spilltra harðstjóranna eflast enn. En
sitji herforingjarnir með hendur í
skauti eiga þeir á hættu að mótmæl-
in færist enn í aukana og niðurstað-
an verði svipuð og í ríkjum komm-
únista: hrun gamla kerfisins.
Enn hika þeir við að beita byss-
unum og í grein á vefsíðu blaðsins
International Herald Tribune í gær
er sagt að skýringarnar geti verið
margvíslegar. Ein er að augu um-
heimsins hvíla nú af enn meiri áhuga
á Búrma en fyrir tveim áratugum,
meðal annars vegna meðferðarinnar
á friðarverðlaunahafanum Aung San
Suu Kyi, helsta leiðtoga stjórnar-
andstöðunnar. Stjórnvöld hafa sætt
aukinni gagnrýni fyrir kúgun og
gegndarlausa spillingu, æðstu menn
eru sagðir flæktir í gróðavænlegt
fíkniefnasmygl.
Grannríkin í
vandræðalegri stöðu
Búrma var hleypt í samtök Suð-
austur-Asíuríkja, ASEAN, fyrir ára-
tug án þess að sett væru raunveru-
leg skilyrði um breytta stefnu. En
aðild landsins er með árunum orðin
sífellt vandræðalegra mál fyrir sam-
tökin, Bandaríkjamenn hafa hunsað
suma fundi með fulltrúum ASEAN í
mótmælaskyni við aðild Búrma.
Þessa dagana heyrast harðar gagn-
rýnisraddir frá Filippseyjum, Singa-
púr og fleiri ríkjum sem krefjast um-
bóta í Rangoon og vara um leið
herforingjana við valdbeitingu.
IHT segir að þrýstingur af hálfu
helsta bandamanns herforingja-
stjórnarinnar, Kína, geti haft veru-
leg áhrif. Þaðan koma nær öll vopn
sem herforingjastjórnin kaupir og
Kínverjar eru stærsta viðskiptaþjóð
Búrmamanna. Þeir og annað Asíu-
Andóf Ungur maður í Rangoon heldur á spjaldi þar sem krafist er betri kjara og jafnframt að pólitískir
voru það búddamunkar sem voru í fararbroddi göngumanna í gær þegar um 100.000 manns tóku þátt í
Mannréttindabrot og gegndarlaus spilling herforingjaklíkunnar í Búrma h
hópast vopnlausir og örvæntingarfullir borgarar út á göturnar og krefjast
Vopnlaus gegn
byssustingjunu
Í HNOTSKURN
»Búrma, sem einnig nefnt Myanmar, var
bresk nýlenda en fékk s
stæði upp úr seinni heim
styrjöld. Herforingjar u
stjórn Ne Wins hershöfð
tóku völdin 1962. Hefur
inn síðan ráðið landinu.
»Árið 1988 kom til frsamlegra mótmæla
herforingjaklíkunni og
stúdentar í fararbroddi
mælin voru barin niður
hörku og talið að um 3.0
manns hafi fallið.
»Flokkabandalag unforystu Aung San S
vann yfirburðasigur í fr
um þingkosningum sem
leyfðar voru 1990, fékk
90% atkvæða. Voru kos
arnar þá lýstar ógildar.
»Suu Kyi, sem nú er 6ára, fékk friðarverð
Nóbels árið 1990. Hún h
lengst af verið í stofufa
í landi sínu eftir að hún
heim frá Bretlandi 1988