Morgunblaðið - 25.09.2007, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 25.09.2007, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007 25 Hringbraut 32 Gengið inn Tjarnargötumegin Opið hús í dag frá kl. 19:30-21:00 FASTEIGNA- MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is Heimasíða: http://www.fastmark.is/. Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali. Björt og afar falleg 96 fm hæð í þessu fallega húsi í miðbænum. Samliggjandi stofa og borð- stofa, eldhús uppgert í upprunalegum anda, 2 rúmgóð herbergi og baðherbergi. Mikil lofthæð er í íbúðinni og stórir bogadregnir gluggar fylla íbúðina birtu. Hús nýviðgert að utan. Allir gluggar og gler er nýtt, hljóðvistargler að götu. Eign sem vert er að skoða. Verð 34,9 millj. Eignin verður til sýnis í dag, þriðjudag, frá kl. 19:30-21. Verið velkomin. M b l 9 14 21 2 Rannsóknir í sátt við umhverfið Verið velkomin á fyrirlestraröð Umhverfisstofnunar Fyrirlesarar eru: Ragnheiður Ólafsdóttir, umhverfisfulltrúi Landsvirkjunar og Sigurrós Friðriksdóttir, starfsmaður Umhverfisstofnunar. Ragnheiður og Sigurrós munu kynna niðurstöður norræns vinnu- hóps um mögulegar aðgerðir til að draga úr umhverfisáhrifum rannsókna. Allir velkomnir. Heitt á könnunni. Fyrirlesturinn fer fram þriðjudaginn 25 sept. að Suðurlandsbraut 24 , 5. hæð og hefst kl. 15:00. UNG manneskja lendir í áföllum. Hún veikist af geðsjúkdómi. Hún leggst inn á geðdeild, í flestum til- fellum, og fær þar umönnun lækna og annars fagfólks. Sjúk- dómurinn er þess eðlis, að hún gerir sér ekki grein fyrir hvað hefur komið fyrir hana og hún er ráðvillt og sjálfsmyndin brotin. Smátt og smátt áttar hún sig á að hún er með geðsjúkdóm. Dóm sem hún þarf að bera alla ævi. Á þessu stigi málsins getur Sam- herji komið inn í líf þessarar manneskju. Hann hefur reynsluna, hann er búinn að vinna úr helstu fylgifiskum geðveikinnar. Og hann er í góðu andlegu jafnvægi. Hann er það sem unga manneskjan þarf að upplifa og sjá. Að geðveik- isdómurinn er ekki endalok. Hún þarf að vita að hún þarf að vinna heið- arlega vinnu með sjálfa sig til að ná góðum bata. Hún þarf að vita að sjálf- sögðu að hún þarf leiðbeiningar geð- læknis og annars fagfólks til að dæm- ið gangi endanlega upp. Samherjinn er ekki meðferðaraðili. Hann er hlustandi, getur verið leið- beinandi, en fyrst og fremst miðlar hann, sé þess æskt, af reynslu sinni. Þetta tilbúna dæmi hér að ofan er klassískt fyrir þá leið sem geðfatl- aður einstaklingur þarf að rata. Til að ná bata þurfa púslurnar í lífi þess geðfatlaða að falla saman í heila mynd. Eins og áður segir þurfa geðlækn- ar og annað fagfólk að fá að stunda sína vinnu og gefa þeim geðfatlaða tíma og skilning. Samt er það nú svo, að „sér- hver er sérfræðingur í sjálfum sér“ upp að vissu marki. Stuðningur og lyfjagjöf eru oftast nauðsynleg. Við í Hugarafli höfð- um í eitt og hálft ár unn- ið að því að mynda hóp fólks innan okkar sam- taka, hæfa í að tala við aðra geðfatlaða og veita þeim stuðning með reynslu okkar að vopni. Þetta eru Samherjarnir. Þessi hugmynd er ekki ný af nálinni og nægir að nefna Peer Support í Bandaríkjunum. Þar hefur þessi þjónusta gefið góða raun. Þótt þessi þjónusta Samherja hafi farið þokka- lega af stað og við fengið þónokkrar beiðnir vantar mikið á að við séum ánægð með undirtektirnar. Teljum við helst að þar sem þessi þjónusta er ný af nálinni hérlendis njótum við ekki stuðnings fagfólks í stöðunni. Nú vil ég ekki halla á neinn en ég bið meðferðaraðila að vera opna fyrir þessu úrræði. Því við erum sammála um í Samherjahópnum að ef slík þjónusta hefði verið í boði þegar við vorum að veikjast í fyrsta sinn þá hefðum við tvímælalaust þegið hana. Í tilefni geðheilbrigðisdagsins er því tilvalið að landsmenn átti sig á að til er fólk sem var geðveikt, en er nú í góðum bata og hefur það sem eitt af markmiðum sínum að hjálpa ein- staklingum sem eru að byrja á þeirri löngu leið sem leiðir til góðs bata. Og vaða ekki í neinni villu um það að fag- fólk vinnur mestu vinnuna. En eins og áður sagði eru Samherjar nýtt úr- ræði fyrir geðsjúka á Íslandi. Samherjar Herdís Benediktsdóttir skrifar um nýtt úrræði fyrir geðsjúka Herdís Benediktsdóttir » Á þessu stigi geturSamherji komið inn í líf þessarar manneskju. Hann hefur reynsluna, hann er búinn að vinna úr helstu fylgifiskum geðveikinnar. Höfundur er meðlimur í Hugarafli. HINN 11. maí 2005 samþykkti Al- þingi breytingar á lögum um fjar- skipti. Með breytingum á lögunum kom m.a. fram nýtt ákvæði sem hér fer á eftir: „Samgönguráðherra leggur á þriggja ára fresti fram á Alþingi tillögu til þingsálykt- unar um fjarskipta- áætlun sem leggur grunn að framþróun ís- lensks samfélags með því að bjóða bestu, ódýrustu og öruggustu rafrænu samskiptin með beitingu fjar- skipta- og upplýsinga- tækni. Í fjar- skiptaáætlun skal skilgreina markmið stjórnvalda sem stefna skuli að og gera grein fyrir ástandi og horfum í fjarskiptamálum í landinu. Jafnframt skal mörkuð stefna fyrir næstu sex ár. Þá skal í fjarskiptaáætlun meta og taka tillit til þarfa annarra þátta samfélagsins fyr- ir bætt fjarskipti." Þegar fjarskiptaáætlunin kom síð- an fram var eftirfarandi t.d. að finna í áætluninni: Háhraðavæðing – markmið Allir landsmenn sem þess óska geti tengst háhraðaneti og notið hag- kvæmrar og öruggrar fjarskiptaþjón- ustu. Menntastofnanir verði tengdar öfl- ugu háhraðaneti. Undirmarkmið Að allir landsmenn sem þess óska hafi að- gang að háhraðateng- ingu árið 2007. Í kjölfar áætlunar- innar var lagt fram stjórnarfrumvarp á Al- þingi um fjarskiptasjóð sem þáverandi sam- gönguráðherra, Sturla Böðvarsson mælti fyrir. Ráðherrann sagði m.a: „Með þessu er styrk- ari stoðum rennt undir ályktun Al- þingis um stefnu í fjarskiptamálum fyrir árin 2005–2010 sem ég lagði fram á hinu háa Alþingi síðasta vor og var samþykkt 11. maí sl.“ Og enn fremur: „Loks er gert ráð fyrir að sjóðurinn taki þátt í kostnaði við uppbyggingu á háhraðatengingum á þeim svæðum sem ætla má að ekki verði þjónað á markaðslegum forsendum.“ Kristján L. Möller, núverandi sam- gönguráðherra, tók þátt í umræðunni og sagði m.a: „Ég er, virðulegi forseti, að reyna að segja að ég er þeirrar skoðunar að þetta átti að vera búið að gera fyrir lifandi löngu, sérstaklega t.d. með há- hraðatengingar til ýmissa smærri staða á landsbyggðinni sem hafa setið eftir og ekki setið við sama borð og aðrir landsmenn vegna þess að þar hafa menn ekki átt aðgang að há- hraðatengingum fyrr en þá í fram- haldi af stofnun þessa sjóðs" Siv Friðleifsdóttir hafði m.a. eftir- farandi fram að færa: „Í upphafi þegar kom til tals að selja Símann varð mikil umræðu um það mál í Framsóknarflokknum, í þingflokknum og á vettvangi flokks- ins, og sitt sýndist hverjum. Að lok- um var ákveðið að styðja sölu Símans en við lögðum sérstaka áherslu á að byggja upp fjarskiptakerfi um allt land þannig að sem flestir landsmenn hefðu aðgang að sambærilegri þjón- ustu fyrir sambærilegt verð og að sjálfstæður sjóður yrði stofnaður í því skyni, þ.e. fjarskiptasjóður.“ Jón Bjarnason tók einnig þátt í umræðum og sagði m.a: „Frú forseti. Ég styð samt viðleitn- ina þó að þarna sé hálfpartinn verið að koma aftan að hlutunum. Miklu betra væri ef þjóðin hefði átt sinn Síma og getað beitt honum með eðli- legum hætti til að byggja upp öflugt og gott fjarskiptakerfi um allt land á jafnræðisgrunni en þurfa ekki að fara þessa fjallabaksleið til að reyna að bjarga því sem bjargað verður í þeim efnum.“ Hinn 9. des. 2005 voru lögin um fjarskiptasjóð samþykkt á Alþingi. 51 þingmaður sagði já en 12 voru fjarverandi. Af framansögðu má sjá að mikill samhljómur var á Alþingi um að greiða fyrir aðgengi fólks í hinum dreifðu byggðum að háhraðateng- ingum. Fjármunir voru/eru til reiðu í kjölfar sölu Símans. Því miður virðist minna um efndir. Enn meira miður er, að íbúum og sveitarstjórnum í dreifbýlissveitarfélögum berast litlar fréttir af framgangi málsins þrátt fyrir fyrirspurnir. Það er athygli vert að um þessar mundir er að koma fram þriðja kyn- slóð farsíma þar sem fólk getur talast við í mynd. Þessi þjónusta nær þó eingöngu til höfuðborgarsvæðisins. Látum það vera. Á sama tíma býr hins vegar fjöldi fólks í landinu við ISDN-nettengingu með þeim kostn- aði sem slíkri tengingu fylgir. Það er óþolandi. Fólk sem við slíkar aðstæður býr hefur ekki möguleika til bankavið- skipta um tölvu né til fjarnáms, en við Íslendingar höfum um langt skeið gumað af því að jafnrétti skyldi vera til náms. Fyrirtæki hafa ekki mögu- leika til kynninga á framleiðslu sinni vegna hins bága ástands. Því miður skilur sá lítt hvernig við er að búa sem ekki hefur reynt. Mál sem tengjast Grímseyjarferju fara hátt um þessar mundir. Mér seg- ir svo hugur um að þar snúist málið ekki endilega um hagsmuni Gríms- eyinga, heldur leit að sökudólgi, sem bætir stöðu vina minna í Grímsey ekki nokkurn skapaðan hlut. Með þessum greinarstúfi er und- irritaður ekki að leita að sökudólgi, heldur upplýsingum og efndum. Háhraðatengingar á landsbyggðinni Hvað líður aðgengi fólks í hinum dreifðu byggðum að háhraðatengingum? spyr Sigbjörn Gunnarsson » Fólk sem við slíkar aðstæður býr hefur ekki möguleika til fjar- náms. Því miður skilur sá lítt hvernig við er að búa sem ekki hefur reynt. Sigbjörn Gunnarsson Höfundur er sveitarstjóri í Þingeyjarsveit. ÞAÐ heyrist ekki mikið frá okkur öryrkjum, það er erfitt að skrifa undir nafni og viðurkenna að vera öryrki, að vera að berjast við þung- lyndi og önnur veikindi. Það að geta ekki unnið fyrir sér og sínum er sárt, það var erfitt að lækka í laun- um þegar ég veiktist fyrst, og það var mjög erfitt að hætta að vera það sem ég vann við og verða að öryrkja. Barátta fyrir hag öryrkja hefur ekki verið mjög sýnileg þessi síðustu misseri, við erum ekki sterkur hagsmunahópur og verðum oft eftir þegar verið er að bæta hag fólks, mér finnst erfitt að skilja hvers vegna, allir virðast skilja að þetta er eitthvað sem þarf að laga. Ég er að skrifa þetta til að reyna að koma af stað einhverri um- ræðu um réttindamál öryrkja og aldraðra. Ég ætlast ekki til að verða ríkur sem öryrki, en ég vil geta klætt mig og fætt og vil geta gert eitthvað með börnunum mínum annað en að labba alltaf niður í bæ, sem er annars mjög gaman og höfum við mikla ánægu af, fara annað slagið í bíó, vera „maður með mönnum“ en ekki alltaf blankur og þurfa jafnvel að leita til ættingja um peninga til að eiga fyrir mat. Öryrkjar fá enga desemberuppbót, samt eru líka jól hjá okkur, við eigum börn, foreldra og vini sem við viljum gleðja á jólum eins og aðrir en það er erfitt þegar bæturnar eru svona naumt skammt- aðar. Er ekki kominn tími til að leið- rétta þetta? Fyrir kosningarnar núna í vor var mikið talað um að bæta þyrfti hag öryrkja og fór Jóhanna Sigurð- ardóttir þar fyrir með mikilli rögg- semi og hafði mörg orð um hvað mætti betur fara, en núna virðist sem hún sé orðin gleymin. Eldri borgarar fengu einhverja leiðrétt- ingu á sínum hag, sem betur fer, en við öryrkjarnir virðumst hafa gleymst. Laun mín eru það sem ég fæ frá lífeyrissjóðnum mínum og heilar 19,800 kr. frá Trygginga- stofnun ríkisins. Satt best að segja finnst mér að lífeyrissjóð- urinn sem ég vann fyrir hörðum höndum ætti ekki að lækka örorku- lífeyrinn, mér finnst eins og það sé verið að stela frá mér. Að bæta hag okkar þarf að gera núna, það þarf ekki að velta þessu fyrir sér eða láta málið í nefnd, bara að stíga fram, axla ábyrgð sína og bæta hag okkar öryrkja. Ekki veit ég hvaðan nafnið „öryrki“ kom fyrst, en mér finnst þetta ljótt orð fyrir þennan hóp af veiku fólki sem getur ekki unnið fyrir sér, og von- andi verður einhvern tímann hægt að finna betra orð. Það þarf að bæta hag öryrkja strax, segir Trausti Rúnar Traustason Trausti Rúnar Traustason »Ég ætlast ekki til aðverða ríkur sem ör- yrki, en ég vil geta klætt mig og fætt og vil geta gert eitthvað með börn- unum mínum ... Höfundur er öryrki. Þunglyndur öryrki í leit að bættum hag

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.