Morgunblaðið - 25.09.2007, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007 27
Ekki þurfti mikið til að gleðja
hana. Man ég eftir því í vor er ég var í
vinnunni og keyrði fram á hana gang-
andi á leið til vinnu. Tók ég hana upp
og skutlaði á leiðarenda. Það fór ekki
fram hjá mér að þessi litli greiði
gladdi hana mjög.
Mín síðustu samskipti við Eddu
voru í sumar, er hún kom með okkur
systkinunum öllum í sumarbústað.
Þar náðum við aðeins að ræða saman
og fann ég fyrir því að henni leið vel
með okkur.
Það vona ég að guð gefi að nú sért
þú komin á betri stað og þér líði vel.
Þinn bróðir,
Sigurður Reynir Jónsson.
Hvað allt okkar líf getur snúist um
hluti sem ekki skipta máli. Þar til vin-
ur kveður.
Ég veit þó að þú hefur það gott þar
sem þú ert í dag.
Fyrr en varir verður þessi sársauki
farinn og bara ljúfar minningar okk-
ar eftir. Þar til við hittumst næst
Edda mín.
Kveðja
Ólafur.
Elsku Edda mín, nú ertu farin frá
okkur á vit ævintýranna. Ég er svo
þakklát fyrir að hafa átt svona hjarta-
hlýja mágkonu eins og þig. Þú varst
alltaf svo ljúf og vildir ávallt þóknast
öllum öðrum þannig að þú værir full-
viss að öllum í kringum þig liði vel. Þú
bjóst yfir þeim kosti að þú gerðir öll-
um jafn hátt undir höfði og mismun-
aðir engum. Þú varst alltaf að hrósa
okkur fyrir hvað við værum dugleg
en í raun varst það þú sem varst dug-
legust því þú varst búin að afreka
mikið aðeins 22 ára gömul. Ég vildi
óska þess að ég hefði sagt þér oftar
hve dugleg þú værir.
Þú varst mikil barnagæla og lað-
aðir börnin okkar að þér með góð-
mennsku þinni í þeirra garð. Þegar
þú komst í heimsókn þá byrjaðir þú
að leika við börnin og oftar en ekki
lastu fyrir Birgittu Birtu bók eftir
bók og þá var skottan litla aldeilis
ánægð með frænku sína. Þú sýndir
Hákoni Daða alltaf athygli og þið
spjölluðuð oft saman. Þú varst líka
ávallt dugleg að mæta í afmæli
barnanna og það þurfti mikið til svo
að þú kæmist ekki. Við söknum þín
ólýsanlega mikið og stöndum frammi
fyrir því nú að geta ekkert gert sem
færir þig til okkar aftur. Ég vona að
þú öðlist frið og ró í hjarta þínu nú á
þeim stað sem þú ert. Ég er þér æv-
inlega þakklát fyrir þær stundir sem
við áttum með þér og allar þær gæða-
stundir sem þú veittir börnunum
okkar, þær eru ómetanlegar. Minn-
ing um góða mágkonu mun lifa.
Þín
Olga Birgitta.
Jæja Edda mín. Tilveran er búinn
að vera ansi skrítinn þessa daga síðan
þú fórst frá okkur. Sorg og söknuður
yfir því að fá ekki að sjá og hitta þig
aftur. En um leið þakklæti fyrir að
hafa fengið að eiga samleið með þér
þennan tíma. Ég veit að lífið var ekki
alltaf bein braut fyrir þig og stundum
voru lagðar á þig byrðar sem mörg-
um kann að finnast erfitt að takast á
við. Að búa við þá fötlun frá fæðingu
að vera sjónskert var eitt af því. Samt
tókst þér að yfirstíga margt og ég
dáðist alltaf jafnmikið að þér þegar
þú vannst þína eigin persónulegu
sigra. Til dæmis þegar þú kláraðir
stúdentsprófið með stæl. Eða þegar
þú fluttir í íbúðina þína. Svo varstu
líka nýbyrjuð í Háskólanum þegar
kallið kom.
Ég mun sakna þess að heyra ekki
hláturinn þinn framar og heyra þig
ekki skella á mig nokkrum fimm-
aurabröndurum sem þú varst svo oft
með á takteinunum. Þér þótti heldur
ekki verra ef ég svaraði þér á svip-
uðum nótum. Keðjuhúmorinn var
okkar og hefur gengið nokkuð lengi
okkar á milli. Og enginn skildi hann
nema við. Þannig verður það líka. Þú
komst líka oft til okkar vestur og þá
alltaf með flugi. Eins og þér var nú
illa við að fljúga, þá léstu þig nú samt
hafa það. En alltaf varstu samt
ákveðin í að koma til okkar aftur jafn-
vel þó flugið hafi verið ömurlegt og
þú hvít eins og snjór þegar ég tók á
móti þér á flugvellinum. Þú hlóst
bara að því síðar.
Síðustu daga hefur mér mikið verið
hugsað til þess dags í sumar þegar ég
keyrði þig heim úr sumarbústaðnum
sem við höfðum verið í ásamt systk-
inum þínum og fjölskyldum. Það var í
grenjandi rigningu og umferðin til
Reykjavíkur gekk hægt. En það gaf
okkur í staðinn færi á að tala saman í
næði og í trúnaði. Ýmislegt sem við
ræddum þá hefur öðlast dýpri merk-
ingu í huga mér eftir að þú ert nú far-
in. Ég er þakklátur fyrir að hafa átt
þá stund með þér og mun alltaf
geyma hana í huga mér.
Elsku Edda mín. Þú kvaddir mig
alltaf með þeim orðum hvað þér þætti
ofboðslega vænt um okkur og ég vona
að þú hafir á móti fundið hvað mér og
okkur þótti vænt um þig og við elsk-
uðum þig mikið. Krakkarnir okkar
hændust líka að þér og sóttu mikið í
þig þegar þau voru nálægt þér. Þú
komst líka alltaf fram við þau sem
jafningja og hafðir áhuga á þeirra
hugðarefnum. Þú varst hjá okkur
tvenn síðustu jól og við áttum von á
þér um næstu jól líka. Við munum öll
sakna þess að hafa þig ekki hjá okkur
þá. Það verður skrítið. En þó sökn-
uður okkar sé mikill yfir því að þú
sért farin þá verður þú samt alltaf í
hugum og hjörtum okkar fjölskyld-
unnar á Engjaveginum.
Megi allar góðar vættir vaka yfir
og styrkja mömmu þína og pabba og
systkini þín í þeirra miklu sorg og
styðji þau í að standa saman til að
komast yfir þetta.
Hvíldu í friði, elsku Edda Sigrún.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
„Hugsandi um engla ég hugsa til þín.“
Brynjar.
Hann lyftir sér hátt
yfir hrannir og él
sá hugur sem góðvildin mótar.
Þú geymdir í hjartanu
gullið svo vel
að grófu þar fáir til rótar.
(Heiðrekur Guðmundsson.)
Haustið 2001 fór stór hópur ný-
nema Kvennaskólans í Reykjavík í
árlega Þórsmerkurferð. Athygli mína
vakti stúlka sem gekk hægum og svo-
lítið óstyrkum skrefum um kjarri
vaxnar brekkur og grundir. Við urð-
um viðskila við hópinn og tókum tal
saman. Hún var að koma í fyrsta sinn
í Þórsmörk og var algerlega heilluð af
haustlitadýrðinni.
Það er gott að eiga þessa björtu
minningu um Eddu Sigrúnu Jóns-
dóttur þegar skugginn vegna fráfalls
hennar sest að í huganum. Edda er
eftirminnilegur nemandi. Þraut-
seigja og vandvirkni einkenndi alla
hennar vinnu. Hún gerði miklar kröf-
ur til sjálfrar sín, var vel máli farin,
hafði skemmtilegan og græskulausan
húmor, sérstaklega fyrir sjálfri sér.
Áhugasvið hennar var á sviði sálar-
og uppeldisfræði. Hún þurfti oft að
hafa mikið fyrir náminu vegna sjón-
skerðingar en stóð sig með prýði og
lauk stúdentsprófi vorið 2005.
Ég veit að Edda mat mikils veru
sína í skólanum og var þakklát fyrir
stuðninginn sem hún fékk við námið.
Við, starfsfólk Kvennaskólans í
Reykjavík, kveðjum Eddu í djúpri
hryggð og vottum aðstandendum
innilega samúð.
Ingibjörg Guðmundsdóttir.
Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð, leiddu mig,
og lýstu mér um ævistig.
Ég reika oft á rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt sem miður fer,
og man svo sjaldan eftir þér.
Sú ein er bæn í brjósti mér,
ég betur kunni þjóna þér.
Því veit mér feta veginn þinn
og verðir þú æ Drottinn minn.
(Pétur Þórarinsson.)
Kveðja,
bekkjarfélagarnir
í Kvennaskólanum.
Á grænudeild á Hofi hefur alltaf
verið gott að koma. Þar hafa traustir
faðmar tekið á móti börnunum sem
eru að stíga sín fyrstu skref á leik-
skólabrautinni. Þar hefur Anna verið
eins og amman í hópnum með svo
áberandi hlýtt viðmót. Svo kom hún
Edda. Hún Edda sem á sinn einstaka
hátt náði svo vel til barnanna. Hún
lagði sig svo fram í starfinu, var svo
alúðleg við krakkana og kurteis og
hlýleg við mömmur og pabba. Hún
hafði eitthvað sérstakt og var greini-
lega í miklum metum á þessu heimili.
Hún Edda var góð fóstra sem gleym-
ist seint.
Kæra Anna, við vottum þér og fjöl-
skyldu þinni samúð okkar á þessum
erfiðu tímum.
Elsku Edda – takk fyrir að passa
mig og fyrir að hafa verið svona góð.
Bergey og fjölskylda.
Elsku hjartans Edda
Útvalds sólar ljós þér lýsi
hann leiði þig um ævistig,
elsku hjartans blómið bjarta
blessun Drottins verndi þig.
(Höf. ók.)
Við vitum að amma Gróa, sem þótti
svo undurvænt um þig, hefur tekið
vel á móti þér og að Guð hefur kallað
þig til sín til starfa sem hann treystir
ekki öðrum fyrir.
Við kveðjum þig með þessu litla
versi sem okkur finnst svo fallegt.
Friðarins ljós það fylli huga þinn.
Fegursta rós á vegi þínum verði.
Blessaða ljós það flytur boðskap sinn.
Búðu við ljós sem Guð á himnum gerði.
(H.H.)
Elsku Anna, Nonni, systkini og
fjölskyldan öll, missir ykkar er mikill
og eru orðin ein vanmegnug á slíkri
stundu. Megi ljós minninganna fylla
huga ykkar, leiða ykkur og styrkja,
því minningin mun lifa og hana tekur
enginn frá ykkur. Þið eruð í huga
okkar og bænum.
Ingibjörg, Gróa og fjölskyldur.
Á þessum tveimur árum sem Edda
vann með okkur hér á Hofi fengum
við að kynnast einstökum persónu-
leika hennar. Hún hafði sig kannski
ekki mikið í frammi á kaffistofunni en
átti það til að koma með einstaklega
hnyttin innskot í umræðuna.
Það var okkur samstarfskonunum
mikil gleði þegar hún vann flugmið-
ana í fyrrahaust og bauð mömmu
sinni með til Kaupmannahafnar, þar
áttu þær góðar stundir saman á svor-
dögum.
En nú er komið að leiðarlokum.
Elsku Anna og fjölskylda, við biðjum
góðan Guð að gefa ykkur styrk í sorg
ykkar.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sigurður Jónsson frá Presthólum.)
Hofgyðjur.
Legsteinar og fylgihlutir
MOSAIK Hamarshöfða 4 110 Rvk
sími 587 1960 www.mosaik.is
• Mikið úrval
• Yfir 40 ára reynsla
• Sendum myndalista
✝
Ástkæri sonur okkar, faðir, bróðir, barnabarn og
frændi,
FINNBOGI MÁR ÓLAFSSON,
Nottingham,
er látinn.
Minningarathöfn verður á Íslandi innan skamms.
Ólafur Ísleifsson,
Sigriður Rósa Finnbogadóttir, Völundur Þorgilsson,
Alma Hrund Hafrúnardóttir,
Sigvaldi Búi Þórarinsson, Sylvía Erna Waage,
Ollý Björk Ólafsdóttir,
Eydís Björk Ólafsdóttir,
Rósa Signý Ólafsdóttir
og aðrir aðstandendur.
✝
Vinur okkar og frændi,
BJÖRN JÓNSSON
frá Bakka í Kelduhverfi,
andaðist mánudaginn 17. september á
Vífilsstöðum.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir til hjúkrunar- og starfsfólks á
Vífilsstöðum fyrir góða umönnun.
Aðstandendur.
✝
Okkar ástkæri
ÁRNI EYJÓLFSSON,
Vaðlaseli 6,
Reykjavík,
lést af slysförum miðvikudaginn 19. september.
Jarðaförin verður auglýst síðar.
Þórunn Ólöf Sigurðardóttir,
Sigríður Anna Árnadóttir, Gísli Sigurjón Brynjólfsson,
Eyjólfur Árnason, Arnhildur Eva Steinþórsdóttir,
Birna Hrund Árnadóttir,
Finnur Darri Gíslason,
Kristófer Blær Jóhannsson,
Eyjólfur Árnason
og systkini hins látna.
✝
Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma,
KRISTÍN GUÐBRANDSDÓTTIR,
Svölutjörn 44,
áður Smáratúni 29,
Keflavík,
sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
miðvikudaginn 19. september, verður jarðsungin
frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 27. september
kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnst hennar er bent á Krabba-
meinsfélag Íslands.
Jóhann R. Benediktsson,
Benedikt Jóhannsson, María Hákonardóttir,
Kristbjörg Jóhannsdóttir, Jóhann Frímann Valgarðsson,
Jóhanna A. Jóhannsdóttir, Andre Masumbuko
og barnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og systir,
GUÐRÚN JÓHANNA ANDRÉSDÓTTIR
Norðdahl
frá Hamri,
lést fimmtudaginn 20. september á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund í
Reykjavík. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn
26. september kl. 11.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en
þeim sem vilja minnast hennar er bent á Barnaspítala Hringsins.
Hreggviður Norðdahl, Svava H. Guðmundsdóttir,
Svala Norðdahl,
Hrönn Norðdahl, Elís Rúnar Víglundsson,
Magnús M. Norðdahl, Elín Jónasdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og systkin.