Morgunblaðið - 25.09.2007, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 25.09.2007, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Guðmundur G.Pétursson, öku- kennari og leigubif- reiðarstjóri, fæddist í Ólafsvík 12. ágúst 1925. Hann lést að- faranótt fimmtu- dagsins á líkn- ardeild Landspítala á Landakoti 13. september síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Ingibjörg Ólafsdóttir, f. 28.6. 1904, d. 25.6. 1985, og Pétur Ásbjarn- arson, f. 19.5. 1904, fórst með togaranum Apríl 1.12. 1930. Guð- mundur bjó í Ólafsvík til 10 ára ald- urs en flutti þá til Reykjavíkur með afa sínum, Ásbirni Eggertssyni, og ömmu, Ragnheiði Eyjólfsdóttur, sem tóku hann að sér og ólu upp. Systkini Guðmundar eru Ásbjörn, f. 1926, og Guðrún, f. 1927, d. 1993. Hálfsystkini hans sammæðra eru Haraldur, f. 1933, d. 2006, Theo- dóra, f. 1935, d. 1960, Gunnleifur, f. 1941, d. 2007, og Pétur, f. 1946. Guðmundur kvæntist 20.3. 1948 Báru Sigurðardóttur, f. 1.3. 1928, d. 31.5. 1982. Foreldrar hennar voru Sigurður Pétur Guðbjartsson og Esther Helga Ólafsdóttir. Börn Guðmundar og Báru eru: 1) Est- her, f. 10.7. 1948, gift Björgvini Jónssyni. Dætur þeirra eru: a) félags Íslands á árunum 1946-1960 skyndihjálp og björgun úr sjáv- arháska um land allt. Einnig sá hann um umferðarfræðslu í skól- um. Jafnframt kenndi hann skyndi- hjálp fyrir Rauða kross Íslands, í Iðnskólanum í Reykjavík og Fjöl- brautaskólanum í Breiðholti. Guð- mundur var framkvæmdastjóri Umferðarnefndar Reykjavík- urborgar og Stöðumælasjóðs 1960–1965. Hann hóf ökukennslu 1955 en gerði hana að sínu að- alstarfi 1965 til 1985 er hann gerð- ist einnig leigubifreiðarstjóri. Guð- mundur starfaði innan skátahreyfingarinnar, fyrst sem ylfingaforingi og síðan skátafor- ingi. Hann var í stjórn Skátafélags Reykjavíkur og í stjórn Bandalags íslenskra skáta. Auk þess gegndi hann ýmsum nefndarstörfum á vegum hreyfingarinnar. Guð- mundur sat í stjórn Ökukenn- arafélags Íslands í mörg ár bæði sem varaformaður og formaður og var heiðursfélagi Ökukenn- arafélagsins. Hann var formaður Andvara, félags leigubifreiða- stjóra, um skeið. Guðmundur átti sæti í Umferðarráði og í nokkrum nefndum sem fjölluðu um bætta umferðarmenningu, um ökupróf og aukna og betri ökukennslu. Út- för Guðmundar verður gerð frá Bústaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Bára, f. 1970, d. 1991. Var í sambúð með Birni Ingvarssyni. b) Helga Dögg, f. 1974, gift Bjarna Hauks- syni og eiga þau Björgvin Hauk og Ingu Sif. c) Ragnheið- ur, f. 1980, gift Jó- hannesi Andra Kjart- anssyni og er þeirra sonur Atli Þór. 2) Sig- ríður, f. 14.2. 1954, gift Kristjáni Ey- steinssyni. Dóttir þeirra er Ragnheiður Merima, f. 1993. Fyrir á Kristján Eystein og Úlf. 3) Pétur Steinn, f. 13.5. 1958, kvæntur Önnu Toher. Sonur þeirra er Róbert Orri, f. 1992. Seinni kona Guðmundar var Kristjana Gunnarsdóttir, f. 30.4. 1938, d. 6.1. 2003. Foreldrar henn- ar voru Gunnar Leó Þorsteinsson og Guðmunda Sveinsdóttir. Synir Kristjönu og Guðmundar Sigurðs- sonar eru Örn Leó, Guðmundur Leó og Geir Leó. Guðmundur bjó hjá afa sínum og ömmu á Skólavörðustíg og lauk barnaskólaprófi frá Austurbæj- arskóla. Hann lauk námi í uppeldis- og kennslufræðum frá Kennarahá- skóla Íslands 1976. Guðmundur fékk snemma áhuga á kennslu og kenndi sem erindreki Slysavarna- Öll eigum við í hugskotinu leiftur- myndir úr æsku, sem gaman er að. Enn skemmtilegra er þó þegar hægt er að tengja minninguna persónum sem verða á vegi manns löngu síðar á lífsleiðinni. Ég minnist þess þegar ég var smápatti, á Húsavík, að auglýst var sýning á kvikmynd sem heitir „Björgunin við Látrabjarg.“ Móðir mín sem var ötul í slysavarnafélagi staðarins fór í fararbroddi fyrir fjöl- skyldunni í bíó. Ég man að myndin var spennandi og hafði mikil áhrif á mig. Minnisstæðara er þó hvernig farið var að því að sýna hana. Hávax- inn maður kom fyrir sýningarvél á miðju gólfi „Samkomuhússins“. Fullt af snúrum, kössum og dóti, suðandi vélin og áhorfendur sátu allt um kring. Sú hugsun hvarflaði auðvitað ekki að mér þá að þarna stæði tilvon- andi tengdafaðir minn. En svona er lífið. Meira en þrjátíu árum síðar hitti ég „sýningarmanninn“ sem tengda- sonur, en hann mundi reyndar ekkert eftir mér, guttanum sem kom sér fyr- ir sem næst kvikmyndasýningarvél- inni. Ég skil það svo sem, þeir voru margir peyjarnir sem hann hitti á þessum ferðum sínum um landið. Guðmundur hefur nú lagt upp í sína hinstu för. Hún var honum lang- þráð eftir löng og erfið veikindi. Þrautirnar eru að baki. Nú „ekur hann væntanlega beina, örugga og breiða braut, með grösugar lendur á báðar hendur“. Öryggismál og slysavarnir voru honum hjartans mál og þessum mál- um helgaði hann sitt líf. Í áraraðir vann Guðmundur að fræðslumálum og við erindrekstur hjá Slysavarna- félagi Íslands. Hann starfaði sem ökukennari og leigubílstjóri í áratugi og bar því vel skynbragð á það sem ógnað gat öryggi vegfarenda. Þessi mál ræddum við oft og einatt og vor- um oftast sammála. Saman erum við búnir að skipuleggja umferðarmálin í borginni, til langrar framtíðar, en það er önnur saga. Öðru máli gegndi um pólitíkina, þar tókum við margan snúninginn. Aldrei rifumst við þó en „Framsókn- armennska“ mín var honum ekki allt- af að skapi. Guðmundur var „pólitísk- ur“ í þess orðs bestu merkingu. „Íhaldsmaður“ alla sína tíð, en sagð- ist þó ekki átta sig á öllu í stefnu „flokksins“ á síðari árum. Ég spurði hann fyrir stuttu hvort hann væri ekki í raun orðinn krati, og hann svar- aði „Jú, sjálfstæður íhaldskrati.“ Þessi kraftakarl, sjálfsprottinn í því harða umhverfi sem hann ólst upp í, endurspeglaði lífskraft og sjálf- stæðisvilja Íslendingsins. Guðmund- ur, tengdafaðir minn, er búinn að fara í gegn um marga „Látrabjargasjói“ á sinni lífsleið. Af þeim hefur hann sagt mér marga söguna. Áður en Guð- mundur lagðist á sjúkrahús í síðasta sinn áttum við margar góðar stundir þegar við elduðum okkur saman sig- inn fisk eða saltkjöt, horfðum á fót- bolta og „formúlu“ eða tókum bara snerru í pólitíkinni. Það voru fín sam- kvæmi. Ég vil nú við leiðarlok kveðja þenn- an ljúfa mann fyrir þær góðu stundir sem við höfum átt saman. Þær mun ég geyma í minningunni rétt eins og bíósýninguna í „Samkomuhúsinu“ forðum. Hvíl þú í friði. Kristján Jón Eysteinsson. Fyrir rúmum tíu árum sótti afi mig heim, nú skyldi ég læra að keyra. Þessi fyrsti ökutími gekk hálfbrösu- glega, hvort sem það var snjónum sem huldi göturnar að kenna eða reynsluleysi unglingsins sem hafði ekki hugmynd um hvar tengslin á bílnum voru. Smám saman hvarf þó snjórinn og ökulagið batnaði og í kringum sautjánda afmælisdaginn var ég komin með bleika skírteinið í hendurnar. Ökuskírteinið var þó ekki eini afrakstur ökutímanna því á þess- um tíma kynntist ég afa mínum á nýj- an hátt. Eftir því sem minni tími fór í að leiðbeina mér urðu frásagnirnar af yngri árum afa og öðrum fjölskyldu- meðlimum fleiri. Ég kvaddi afa í síðasta sinn fyrir rúmum mánuði en þá var það nokkuð ljóst að ég myndi ekki sjá hann aftur á lífi. Vegna þess hve veikur hann var orðinn var það mikils virði að hann skyldi koma í brúðkaupsveislu okkar Guðmundur G. Pétursson Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is ✝ Ástkær dóttir okkar, systir, barnabarn og mágkona, EDDA SIGRÚN JÓNSDÓTTIR, Álftamýri 8, lést þriðjudaginn 11. september. Útförin fer fram frá Laugarneskirkju þriðjudaginn 25. september kl. 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Barnaspítala Hringsins. Anna Reynisdóttir, Jón Baldvin Sveinsson, Halldór Jónsson, Helena H. Júlíusdóttir, Guðbjörg R. Jónsdóttir, Brynjar Ingason, Sigurður R. Jónsson, Svala Hilmarsdóttir, Kristinn S. Jónsson, Hólmfríður E. Gunnarsdóttir, Kjartan V. Jónsson, Olga B. Bjarnadóttir, Svandís E Jónsdóttir, Ólafur Þráinsson, Hrefna V. Jónsdóttir, Tómas Rúnarsson, Anna Sigurjónsdóttir, Kristján J. Ólafsson. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, PÁLL INGI JÓNSSON, Útskálum 3, Hellu, andaðist á Dvalarheimilinu Lundi, Hellu, fimmtu- daginn 20. september 2007. Útförin fer fram frá Oddakirkju laugardaginn 29. september kl. 11.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Dvalarheimilið Lund. Þórný Guðbjörg Oddsdóttir, Oddrún María Pálsdóttir, Magnús Kristjánsson, Ingþór, Gísli Svan, Almar, Jóna Björg Pálsdóttir, Steina Guðbjörg, Baldvin Páll, Þórný Björg. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma, og langalangamma, GUÐBJÖRG GUÐJÓNSDÓTTIR sjúkraliði, sem lést á Dvalarheimilinu Kirkjuhvoli, Hvolsvelli, föstudaginn 14. september, verður jarðsungin frá Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu, Hátúni 2 Reykjavík föstudaginn 28. september kl. 15.00. Þeir sem vilja minnast hennar er bent á ABC barnahjálp í síma 414 0990. Daníel Jónasson, Ase Johanne Jónasson, Dóra Mirjam Jónasdóttir, Ernst Olsson, Guðjón Jónasson, Þóra Jenný Hendriksdóttir, Ríkarður Bergstað Jónasson, María Árnadóttir, Rebekka Jónasdóttir, Yngvi Guðnason, Guðný Ragnhildur Jónasdóttir, Hinrik Þorsteinsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. ✝ Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, KRISTJÁN EBENEZERSSON, Borgarholtsbraut 29, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju fimmtu- daginn 27. september kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð. Halldóra Gísladóttir, Aðalheiður Kristjánsdóttir, Haukur Bergmann, Halldóra Rún, Þóra Lilja og Hekla Lind. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, LILLÝ KRISTJÁNSSON, Hrafnistu, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 27. september kl. 11.00. Karl Harrý Sigurðsson, Hrönn Helgadóttir, Ari Guðmundsson, Fríður Sigurðardóttir, Kristjana G. Guðmundsdóttir, Jonathan Motzfeldt, Guðrún Guðmundsdótttir, Guðmundur E. Hallsteinsson, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar og ömmu, GRÉTU JÓNSDÓTTUR húsfreyju, Efri-Grímslæk, Ölfusi. Sérstakar þakkir fær starfsfólk gjörgæsludeildar á Landspítalanum við Hringbraut. Gunnar Konráðsson, Konráð Gunnarsson, Jón Gunnarsson, Gunnar Gunnarsson, Viktor Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.