Morgunblaðið - 25.09.2007, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 25.09.2007, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Heilsa Mikið úrval fæðubótarefna Prótein - Kreatín - Glútamín - Gainer Ármúla 32. Sími 544 8000 Opið mán.-fös. frá kl. 10-18. Nudd Heilnudd, svæðanudd, sogæðanudd, saltnudd og regndropa- meðferð. Öll almenn snyrting. Snyrtistofan Hrund, Grænatúni 1, Kópavogi. Sími 554 4025. Heimilistæki Símens eldavél með keramik hellum til sölu. Kostaði kr. 120.000 fyrir 7árum. Mjög barnvæn með tökkum sem falla inn og gleri á ofni sem verður ekki heitt. Verðtilb. kr 45.000. Upplýsingar í síma 892 7828. Húsnæði í boði Leigusali auglýstu frítt Leigjandi leitaðu frítt Leiga.is býður  Leiguráðgjöf  Mat á leigjendum  Gerð leigusamninga og trygginga Leiga.is Löggild leigumiðlun Geymslur Stafnhús Eyrarbakka. Geymsla - vöktun - viðgerðir. Erum núna að taka á móti ferðabílum, hjólhýsum o.fl. Verð m² X 3.500 yfir veturinn. Upplýsingar og móttaka í sími 899 1128. Sumarhús Sumarhús - orlofshús . Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratuga reynsla. Höfum til sýnis á staðnum fullbúin hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Einnig til sölu lóðir á Flúðum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Námskeið Upledger höfuðbeina og spjald- hryggjarmeðf. Byrjendanámskeið í Upledger höfuðb. og spjaldhryggjar- meðf. verður haldið dagana 4.-7. október næstkomandi í Reykjavík. Uppl. og skráning í s: 466-3090 og einnig á www:upledger.is Handverksnámskeið Þjóðleg námskeið, baldýring – hekl – prjón – leðursaumur- orkering - sauðskinnsskór – víravirki tóvinna – þjóðbúningasaumur – o.m.fl. HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN Nethyl 2E- 110Reykjavík s. 551-7800 895-0780 www.heimilisidnadur.is skoli@heimilisidnadur.is Handverksnámskeið Þjóðleg námskeið, baldýring – hekl – prjón – leðursaumur- orkering - sauðskinnsskór – víravirki tóvinna – þjóðbúningasaumur – o.m.fl. HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN Nethyl 2E- 110Reykjavík s. 551-7800 895-0780 www.heimilisidnadur.is skoli@heimilisidnadur.is Tómstundir Vorum að fá sendingu af púslu- spilum í miklu úrvali. Tómstundahúsið, Nethyl 2, sími 587 0600. www.tomstundahusid.is Til sölu Tékkneskar og slóvenskar kristalsljósakrónur. Mikið úrval. Frábær verð. Slóvak Kristall, Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, s. 544 4331. www.skkristall.is. Þjónusta Traktorsgrafa Case 590 K 4x4. Tek að mér skurðgröft og aðra jarðvinnu . Uppl. í síma 567 2424 og 892 9011. Hitaveitur/vatnsveitur Þýskir rennslismælar fyrir heitt og kalt vatn. Boltís sf., s. 567 1130 og 893 6270. Byggingavörur Hjallabrekku 1 • Kópavogi Símar: 564 3000 – 564 0030 www.loft.is Ekið inn Dalbrekku PÍPULAGNIR Nútíma lausnir Heitt og kalt Kaldsuða HTA® SYSTEM www.vidur.is Harðviður til húsbygginga. Vatns- klæðning, panill, pallaefni, parket o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði. Sjá nánar á vidur.is. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Einangrunarplast - takkamottur Framleiðum einangrunarplast, takkamottur fyrir gólfhitann, fráveitu- brunna Ø 400, 600 og 1000 mm, vatnslásabrunna, vatnsgeyma, sand- föng, olíuskiljur, fituskiljur, rotþrær, vegatálma og sérsmíðum. Verslið beint við framleiðandann, þar er verð hagstætt. Einnig efni til fráveitulagna í jörð. Borgarplast, Seltjarnarnesi, sími 561 2211, Borgarplast, Mosfellsbæ, sími 437 1370. Heimasíða: www.borgarplast.is Ýmislegt GreenHouse haust -vetrarvaran er komin. Verið velkomin að sækja frían bækling. Opið í dag, þriðjudag 13-19. GreenHouse, Rauðagerði 26. Bílar Toyota Hilux 4x4 96 módel Ekinn 195.000. Breyttur 33”. Bíll í fínu standi. Tengdamömmubox fylgir, skoðaður 08.Verð 590.000. Nánari upplýsingar s. 661 3315 og 861 3727. Hjólbarðar Góð Goodyear nagladekk notuð tæpan vetur. Stærð 175/70 með felgum sem passa undir Polo og Skoda Fabia. Verðtilboð 45.000 kr. Upplýsingar í síma 892 7828. Mótorhjól Til sölu Suzuki GSX - R 600 2002 árg. ekið aðeins 11.000 þ. í toppstandi. Verð 600.000. Upplýsingar í síma 669 1487. Hippar Á afmælistilboði 298.000 þús, með götuskráningu. 250 cc, með fjarstarti, þjófavörn, rollbar, töskum, abs brem- sur, 2 litir, svart og vínrautt. Ítalskar vespur 50cc, með fjarstarti og þjófavörn, abs bremsukerfi, breið dekk, 4 litir. Verð 188.000 þús, með hjálmi, götu- skráningu og boxi að aftan. Skoðið vefsíðu okkar: www.motorog sport.is Mótor og sport ehf. Stórhöfði 17 110 Reykjavík Sölusímar 567 1040, 845 5999 Varahlutir og viðgerðaþjónusta 567 1040. Þjónustuauglýsingar 5691100 EVRÓPUMEISTARAMÓT í flokkum barna- og unglinga lauk sl. sunnudag í Zagreb í Króatíu en alls tóku þrjú íslensk ungmenni þátt. Hjörvar Steinn Grétarsson (2.168) hóf keppni í flokki 14 ára og yngri með miklum krafti þegar hann fyrstu þrjár skákir sínar. Í næstu fjórum umferðum náði hann hins vegar ein- göngu einum vinningi en vann tvo góða sigra í lokaumferðunum og lauk því keppni með 6 vinninga af 9 mögu- legum og lenti í 6.-14. sæti af 84 þátt- takendum. Sverrir Þorgeirsson (2.068) tefldi í flokki 16 ára og yngri og náði einnig góðum endaspretti þegar hann fékk 2½ vinning í síðustu þrem umferðunum svo að hann lauk keppni með 4½ vinning og hafnaði í 38.-52. sæti af 88 keppendum. Hall- gerður Helga Þorsteinsdóttir tefldi í flokki stúlkna 16 ára og yngri og fékk fjóra vinninga sem gerði að verkum að hún lenti í 43.-50. sæti af 71 kepp- anda. Hjörvar Steinn tefldi nokkrar áhugaverðar skákir á mótinu en hann tapaði m.a. fyrir verðandi Evrópu- meistaranum, rússneska alþjóðlega meistaranum Sanan Sjuriov (2.407), en sá fékk hvorki fleiri né færri en 8½ vinning af 9 mögulegum. Ein besta skák Hjörvars var gegn þýska skák- manninum Felix Graf (2.273). Eftir nokkuð sérstaka byrjun þar sem Hjörvar stýrði hvítu mönnunum fékk hann biskupaparið á meðan andstæð- ingurinn hrókeraði langt og hugðist hefja sókn á kóngsvæng. Í stað þess að loka taflinu að hleypti svartur hvít- um of langt með peð sín á drottning- arvæng og það nýtti Hjörvar sér í 24. leik: 24. c6! Bc8 25. Bxa5! Með þessari biskupsfórn opnast allar línur að svarta kóngnum og við það getur svartur ekki ráðið með góðu móti. Framhaldið varð: 25. … bxa5 26. d5+ Kb8 27. b6 exd5? Svartur hefði fremur getað varist eftir 27. … Ba6 28. Hfb1 Ka8. 28. Hfb1 d4 29. Db3! cxb6 30. Dxb6+ Bb7 31. Da6 og svartur gafst upp. Af taflmennsku Hjörvars verður ráðið að hann er að bæta sig og ljóst að ef hann leggur áfram rækt við skákina verða framfarirnar mjög örar á næstu misserum. Hann mun hækka um 19 stig á mótinu í Króatíu en Sverrir hækkaði um 9 stig og Hall- gerður um 11 stig. Nánari upplýsing- ar um mótið er að finna á www.skak- .blog.is. Jón Viktor efstur á Boðsmóti TR Taflfélag Reykjavíkur bryddaði upp á þeirri nýjung í ár að gera Boðs- mót félagsins að alþjóðlegu móti þar sem tveir íslenskir alþjóðlegir meist- ara taka þátt og einn frá Litháen. Þetta gerði ungum og efnilegum skákmönnum félagsins kleift að eygja möguleika á að verða sér úti um áfanga að alþjóðlegum meistaratitli. Alþjóðlegi meistarinn Jón Viktor Gunnarsson (2.427) hefur leitt mótið allan tímann og hafði sex vinninga af sjö mögulegum þegar þessar línur voru ritaðar. Næstir á eftir honum komu Daninn Espen Lund (2.396) og Guðmundur Kjartansson (2.306) með fimm vinninga. Nánari upplýsingar um mótið er að finna á heimasíðu TR, www.taflfelag.is. Anand með vinningsforskot á HM Að loknum níu umferðum af fjórtán hefur stigahæsti skákmaður heims, Indverjinn Viswanathan Anand (2.792), eins vinnings forskot á Boris Gelfand (2.733) frá Ísrael á heims- meistaramótinu í skák sem fer fram þessa dagana í Mexíkó. Í níundu um- ferðinni gerði Anand stutt jafntefli við Armenann Levon Aronjan (2.750) á meðan bæði Gelfand og rússneski heimsmeistarinn Vladimir Kramnik (2.769) töpuðu sínum skákum. Rúss- inn Alexander Grischuk (2.726) lagði Gelfand að velli í langri skák og Kramnik hugðist með svörtu tefla djarft gegn landa sínum Alexander Morozevich (2.758) en það átti ekki við hann og Mórinn, eins og Moroze- vich er stundum kallaður, innbyrti vinninginn eftir að hafa haft betur alla skákina. Skákirnar eru sýndar í beinni útsendingu á vefslóðinni http:// partidas.chessmexico.com/ en þær hefjast kl. 20.00 að íslenskum tíma. Mótinu lýkur 30. september næst- komandi. SKÁK Zagreb í Króatíu EVRÓPUMEISTARAMÓT Í BARNA- OG UNGLINGAFLOKKUM 14.-23. september 2007 daggi@internet.is Helgi Áss Grétarsson Að tafli Hjörvar Steinn Grétarsson. Hjörvar á meðal efstu manna á EM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.