Morgunblaðið - 25.09.2007, Síða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
TORFÆRA
Heimsbikarmótinu í torfæruakstri lauká sunnudaginn en tvær síðustu um-ferðir mótsins voru eknar umhelgina á Hellu. Veðurguðirnir léku
ekki við torfærumenn um helgina því veðrið var
afleitt báða keppnisdagana og þó öllu verra á
sunnudeginum en þá var stormur og sandrok
sem gerði bæði keppnishöldurum og keppendum
erfitt fyrir.
Finn Erik með yfirburðastöðu
Alls voru eknar sex umferðir í Heimsbik-
armótinu þetta árið en staða íslensku keppend-
anna var ekki vænleg þegar kom að tveimur síð-
ustu umferðunum þar sem engin þeirra hafði
farið til Finnlands til þátttöku í tveimur fyrstu
umferðum mótsins. Sex íslenskir keppendur í
flokki sérútbúinna bíla tóku þátt í 3. og 4. um-
ferð mótsins sem eknar voru í Skien í Noregi í
byrjun september og var staða Gunnars Gunn-
arssonar á Trúðnum vænlegust eftir þær keppn-
ir en þó var ljóst að hann myndi eiga við ramm-
an reip að draga þar sem var Norðmaðurinn
Finn Erik Løberg en Finn Erik leiddi heimsbik-
arkeppnina með 16 stiga forskot á Gunnar. Finn
Erik mátti því ekki fá fleiri en þrjú stig í báðum
keppnunum á Hellu og Gunnar varð að vinna
báðar keppnirnar.
Vonlítil barátta
Gunnar Gunnarsson byrjaði sókn sína að Finn
Erik Løberg vel og sigraði í keppninni á laug-
ardeginum en þá strax varð ljóst að Gunnari
myndi ekki takast að hafa titilinn af Finn Erik
því hann náði þriðja sætinu og 6 stigum. Finn
Erik Löberg var því búinn að tryggja sér tit-
ilinn á laugardeginum og hann gerði síðan enn
betur í lokaumferðinni og sigraði þar en Gunnar
varð að láta sér lynda 5. sætið.
Guðlaugur Sindri á uppleið
Árangur Guðlaugs Sindra Helgasonar frá
Fellabæ á Héraði vakti nokkra athygli en Guð-
laugur náði 2. sæti í lokaumferð
Heimsbikarmótsins. Guðlaugur Sindri hefur ver-
ið að sækja í sig veðrið allt frá því hann mætti
17 ára gamall, með tíu daga gamalt ökuskírteini
í vasanum í sína fyrstu torfærukeppni á Hellu
fyrir fjórum árum.
Kom með titilinn í vasanum
Dalamaðurinn Bjarki Reynisson var eini Ís-
lendingurinn sem fór til Noregs til að reyna að
halda uppi heiðri Íslendinga í flokki breyttra
götubíla en þar hitti hann fyrir ofjarl sinn sem
var sænska torfæruprinsessan, Sofia Schollin-
Borg. Sofia sigraði í tveimur fyrstu umferðum
mótsins í Finnlandi og gekk svo vel í keppn-
unum í Noregi að hún var búin að tryggja sér
titilinn eftir fjórar keppnir. Sofia mætti til Ís-
lands til að innsigla titilinn en gengi hennar á
Hellu var ekki gott. Á laugardeginum bilaði vél-
in í bíl hennar, Affe, í fyrstu braut og fékk hún
varahluti í vélina það seint að henni tókst ekki
að mæta í fleiri brautir þann daginn. Á sunnu-
daginn braut hún hjöruliðskross og öxul, einnig
í fyrstu braut en tókst að gera við bíl sinn.
Missti hún af 2. brautinni og þurfti að fara aftur
fyrir í 3. braut þar sem hún mætti of seint í
hana. Þá lenti Sofia í erfiðleikum í ánni á Hellu
og í mýrinni en ljóst var að hana skorti verulega
afl til að vera samkeppnisfær þar.
Sigur í fyrstu keppni
Athygli vakti að sigurvegarinn í flokki
breyttra götubíla á sunnudeginum, Ingvar A.
Arason, var að keppa í sinni fyrstu torfæru-
keppni en Ingvar hafði fengið N1 Willysinn lán-
aðan hjá Ragnari Róbertssyni sem ákvað að
hvíla þessa keppni. Ingvar var að vonum himin-
lifandi eftir keppnina og mun það koma veru-
lega á óvart ef hann á ekki eftir að taka þátt í
fleiri keppnum á næstu árum.
Ljósmynd/JAK
Á siglingu Guðlaugur Sindri Helgason, sem þenur Galdragul hér í tímabrautinni, náði öðru
sætinu en hann hefur sótt í sig veðrið frá því hann mætti 17 ára í sína fyrstu torfærukeppni.
Í erfiðleikum Sofia Schollin-Borg berst við mýrina á Hellu en varð að játa sig sigraða þar sem
hana skorti afl í svona erfiða braut. Hún tryggði sér hins vegar titilinn eftir fjórar keppnir.
Titlarnir til Nor-
egs og Svíþjóðar
Kraftur Finn Erik Løberg sýndi fantagóðan akstur á bíl sínum og tryggði sér heimsbikarinn í Hróarslæknum.
Efst Heimsbikarmeistararnir 2007, Sofia Schollin-Borg frá Svíþjóð og Finn Erik Løberg frá Noregi.
Góður Ingvar A. Arason mætti ákveðinn til leiks í flokki breyttra götubíla
og vakti mikla athygli er hann sigraði í sinni fyrstu torfærukeppni.
jak@ismennt.is
Sérútbúinn flokkur
1. Finn Erik Løberg,
Racerunner, Nor.
2. Benedikt Eiríksson,
Musso, Ísl.
3. Guðlaugur S. Helgason,
Galdragulur, Ísl.
4. Ólafur Bragi Jónsson,
Refurinn, Ísl.
5. Gunnar Gunnarsson,
Trúðurinn, Ísl.
6. Sigurður Þór Jónsson,
V-Power Tröllið, Ísl.
7. Hans Maki, Insane, Sví.
8. Eyjólfur Skúlason,
Hlébarðinn, Ísl.
9. Erlingur Klemenzson,
Hrafninn, Ísl.
10. Ásgeir Jamil Allansson,
Green Thunder, Ísl.
11. Daníel G. Ingimundars.,
Green Thunder, Ísl.
12. Leó Viðar Björnsson,
IronMaiden, Ísl.
13. Sigurjón Leifsson,
Refsarinn, Ísl.
Sérútbúnir götubílar
1. Ingvar A. Arason,
N1 Willysinn, Ísl.
2. Christian Austad,
Reloaded, Nor.
3. Geir Haug, Trollet, Nor.
4. Sofia Schollin-Borg, Affe, Sví.
5. Vignir Vignisson,
N1 Willysinn, Ísl.
6. Sigfús Benediktsson,
Hlunkurinn, Ísl.
7. Bjarki Reynisson, Dýrið, Ísl.
8. Sverrir Bergsson,
N1 Willysinn, Ísl.
9. Benedikt Sigfússon,
Hlunkurinn, Ísl.
Úrslit
keppninnar