Morgunblaðið - 25.09.2007, Qupperneq 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
IRMA, SÁPAN Á
KARLAKLÓSETTINU ER BÚIN
TAKK,
JÓN
EKKI SNERTA
BORÐIÐ!
ÖRYGGI!!
HMMPH!
JÁ... ÉG ER ÖRUGGUR
Í HEIMSKU MINNI
EF ÞÚ VISSIR BARA HVAÐ
ÞÚ LÍTUR HEIMSKULEGA ÚT
HALDANDI Á ÞESSU TEPPI!
ER ÞÉR ALVEG SAMA HVAÐ
ÞÚ LÍTUR HEIMSKULEGA ÚT
SVO LENGI SEM ÞÚ ERT
ÖRUGGUR...
GOTT AÐ
SJÁ AÐ VIÐ ERUM
KOMIN HEIM
GET ÉG
AÐSTOÐAÐ YKKUR
HERRAMENNINA?
GÆTIR ÞÚ
SAGT MÉR HVAÐA
FISKUR ER Í RÉTTI
DAGSINS?
EKKI VERA
KJÁNI... ÞAÐ
STENDUR Á
MATSEÐLINUM
ÞAÐ ER
FISKUR
DAGSINS!
ÞETTA ER BARA KJÁNALEGT!
ÉG VEIT EKKI EINU SINNI AF
HVERJU HUNDAR GELTA
ALLTAF Á BRÉFBERA!
GETUM VIÐ EKKI BARA LIFAÐ
Í SÁTT OG SAMLINDI?
ÞEIR HAFA
ALDREI GERT
MÉR NEITT!
HEFUR ÞÚ TEKIÐ EFTIR ÞVÍ HVAÐ KALLI
ER ORÐINN HÁÐUR TÖLVULEIKJUM?
HÁÐUR? ÉG
VEIT AÐ HANN
SPILAR ÞÁ...
SPILAR ÞÁ?!? HANN
HUGSAR EKKI UM ANNAÐ!
HANN DREYMIR ÞÁ
ÖRUGGLEGA LÍKA!
EKKI LÁTA
SVONA! ÞÚ
ERT AÐ ÝKJA!
ÉG ER EKKI
AÐ ÝKJA
HAFÐU ÞETTA!
OG ÞETTA!
HELDUR
ÞÚ AÐ
ÞETTA HAFI
VERIÐ
KÓNGULÓAR-
MAÐURINN?
NEI, ÞETTA
VAR ÖRUGG-
LEGA EINHVER
Á LEIÐ Á
GRÍMUBALL
EÐA
KANNSKI
EKKI
KONUNNI
MINNI FINNST
KANNSKI
GAMAN AÐ
LEIKA Í
KVIKMYNDUM
EN ÞETTA
ER ÞAÐ EINA
SEM HENTAR
MÉR!
dagbók|velvakandi
Lágu launin
SENNILEGA hefur sjaldan eða
aldrei verið eins erfitt að skrimta af
lágu laununum eins og nú. Ég veit
um konu sem leigir á 90 þúsund á
mánuði og er með 125 þús. í laun fyr-
ir skatt, fyrir 8 tíma vinnu. Hún
veiktist og þurfti að leita á bráðamót-
töku.
Þegar hún nokkrum klukkutímum
seinna fór heim hljóðaði reikningur
hennar eitthvað á þessa leið: Mynda-
taka 10 þús., blóðtaka eitt þúsund
krónur, komugjald 3.700. Hvernig á
fólk með þessi laun að geta borgað
svona mikið fyrir læknishjálp?
Margt það fólk sem er í þessum
sporum og þarf að leigja á almennum
leigumarkaði má greiða 120-130 þús-
und fyrir 2ja til 3ja herb. íbúð. Her-
bergið kostar 60-80 þúsund, húsa-
leigubætur eru hæstar 12.500 kr.
Það sjá allir að þetta er ekki hægt.
Og hvers vegna svo lág laun í þessu
gósenlandi allsnægta? Fjölmiðlar
fjalla lítið um mál af þessum toga.
Hins vegar er það sagan endalausa
um hversu fyrirtækin og bankar geri
það gott. Það er ágætt, en það þarf
að lagfæra hlut láglaunafólks.
Í komandi kjarasamningum ætti
það að vera skýlaus krafa að lægstu
laun hækki í 250 þús. á mánuði og
ekki krónu minna en það og skatt-
leysismörkin fari upp í 150 þúsund.
Það þarf að meta betur störf verka-
fólks en gert hefur verið hingað til.
Hvað mundi gerast ef þetta fólk
mundi einn daginn ekki mæta til
vinnu?
Ég er hrædd um að hjól atvinnu-
lífsins myndu lamast. Það eru stórir
hópar af fólki sem er á þessum laun-
um og það má helst ekki tala um
þessa hluti. Því er við að bæta að
þessi kona leitaði hjálpar hjá velferð-
arsviði Reykjavíkurborgar eftir
þessi veikindi því hún þurfti líka að
leysa út rándýr lyf sem hún þarf að
vera á um ótilgreindan tíma, en hún
fékk synjun um aðstoð.
„Ég verð víst að fara út að betla,
fullvinnandi manneskjan,“ sagði kon-
an.
Ég vil segja að lokum að þetta er
til skammar fyrir þetta ríka sam-
félag að fara svona með verkafólkið.
Sigrún Reynisdóttir.
Þáttur á röngum tíma og miðli
UNDANFARIN ár hefur á laugar-
dögum verið þáttur í útvarpi sem
nefnist Úti um græna grundu. Ágæt-
ur þáttur og fróðlegur, spannar
landafræði, sögu þjóðarinnar og
ferðasögur. Að mínu mati of kröfu-
harður á athygli hlustenda á síðasta
vikudeginum þegar stærsti hluti
þjóðarinnar er að hvíla sig eftir ann-
ríki vikudaganna. Aftur á móti er
þáttur sem nefnist Stefnumót tekinn
af dagskrá þennan sama vikudag,
þessi þáttur var vinsæll hjá hlust-
endum á þessum degi. Þátturinn Úti
um græna grundu ætti frekar heima
í sjónvarpi, ef ekki, mætti flytja hann
á útsendingartíma Rásar 1 sem hent-
ar betur fólki sem vill leggja á sig að
einbeita huganum að efni sem krefst
meiri athygli en á laugardags-
morgnum.
Hlustandi.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
MIKIÐ og fjölbreytt fuglalíf er á Álftanesi þar sem þessir tveir vaðfuglar
leituðu að æti í gogginn. Álftanes er mikilvægur viðkomustaður farfugla
og sjaldgæfra fuglategunda.
Morgunblaðið/Ómar
Stinga saman nefjum
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofunni,
ekki í síma eða á netinu.
Skráin á netinu: www.fyrirtaeki.is
Elsta fyrirtækjasalan á landinu.
Óvenjuleg tækifæri
1. Gamla mjólkur– og ostabúðin á Selfossi er til sölu.
Skemmtilegt fyrirtæki fyrir fyrrverandi bóndahjón sem flutt eru á mölina.
Þarna versla allir bændur í sveitinni og Selfyssingar ungir sem gamlir.Ekki
þarf sérkunnáttu umfram framsóknargenið og góða skapið. Hafið samband
við okkur sem fyrst. Ótrúlega gott verð.
2. Söluskáli á Suðurlandi.
Til sölu er einn skemmtilegasti og þekktasti söluskáli á Suðurlandi. Þar er
bensínsala, bílavörusala, matarsala, íssala, skyndibitasala, sælgætissala,
lottó, spilakassar, veislueldhús, samkomur, nýjar innréttingar og mikið ný-
legt. Þegar samgöngur við Vestmannaeyjar komast á frá Bakka þá verður
sölusprenging þarna og er mikil fyrir. Glæsilegur framtíðarstaður. Vínveit-
ingar á staðnum. Tækjalisti til staðar. Einstakur framtíðarstaður.
3. Glæsieign á Reykjanesi.
Nýupptekið einbýlishús á dýrasta og glæsilegasta hátt sem um getur. Flott
eldhús og baðherbergi. Einnig innréttuð góð skemma fyrir hundahótel eða
hundaræktun, eins og nú er. Heitur pottur, golfvöllur við hliðina, stórkost-
leg fjara og miðnætursól, margvísleg aðstaða. Lesið um þessa glæsieign á
netinu og sjáið ótrúlegar myndir .Farið inn á fyrirtaeki.is og kallið fram
Hafurbjarnarstaði. Glæsilegur framtíðarstaður.
Lögg. fasteignasali: Bergur Guðnason hdl.