Morgunblaðið - 25.09.2007, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007 35
Krossgáta
Lárétt | 1 planta, 4 loð-
skinns, 7 ílátin, 8 trassar,
9 nóa, 11 vitlaus, 13 grein,
14 ófullkomið, 15 kúnst,
17 máttar, 20 gyðja,
22 rotin, 23 brennur,
24 dagsláttu, 25 heyið.
Lóðrétt | 1 landræmur,
2 gljúfrin, 3 meðvitund,
4 kák, 5 látin, 6 harma,
10 hús, 12 aðgæsla,
13 saurga, 15 blítt, 16 úr-
koma, 18 iðngreinin,
19 benin, 20 klettanef,
21 feiti.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 flakkarar, 8 bokka, 9 tínir, 10 fár, 11 tjara,
13 aurar, 15 hosan, 18 hluta, 21 ala, 22 fleðu, 23 ruddi,
24 flatmagar.
Lóðrétt: 2 lukka, 3 krafa, 4 aftra, 5 annir, 6 ábót, 7 frár,
12 róa, 14 ull, 15 höfn, 16 svell, 17 naust, 18 harka,
19 undra, 20 alin.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Velgengni þín er í beinu sambandi
við hversu einbeittur þér tekst að vera.
Vertu því ekki að safna í sarpinn, það
dreifir athyglinni.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Peningarnir flæða til þín. Vinnan er
minnsta málið – þú laðar að þér mikla
fjárhagslega heppni með því að vera eins
og þér er eðlilegt. Hvílíkur gleðidagur!
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Franskt orðatiltæki segir: „Til
að geta gleymt einhverju þarf að hugsa
um það.“ Að loka málinu fyrir fullt og allt
er lykillinn að því að gleyma algerlega.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Einhver kallar: „Bjargið mér!“
En meinar þessi manneskja það? Þú ætt-
ir að komast að því áður en þú mögulega
setur sjálfan þig í hættu út af engu.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þegar þú ert á veiðum – ljónið sjálft
– ættu önnur frumskógardýr að draga sig
í hlé. Þú ert alveg til í að vera vingjarn-
legur, en því miður, þú ert svangur!
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það er sama hversu þróað sjálfs-
öryggi þú hefur, það er alltaf smuga fyrir
smáefa til að laumast að þér. Hleyptu
honum inn. Það gerir þig vingjarnlegri.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Áhugamál þín og hæfileikasvið eru
svo mörg og misjöfn að það er synd ef
fólk vill raða þér á bás. Það er gott að
vinnan er opin í báða enda.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Nýleg viðskiptaævintýri þín
eru farin að spyrjast út. Þér þætti betra
ef fólk talaði ekki um líf þitt – en það er
ekki þér að kenna ef fréttir af þér eru
alltaf safaríkar.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Finnst þér þú fá dillur?
Nennir jafnvel ekki að hugsa rökrétt? Þú
ert bara svo andlegur að efnislegar
áhyggjur gærdagsins eru flognar út í
veður og vind.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Hæfni þín til gagnrýni hefur
þjónað þér vel undanfarinn mánuð. Þú
hefur ekki farið ofan í skotgrafir, heldur
leyst vandamál. Nú er mál að slaka á.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Yndi þitt á dramatík kemur
upp á yfirborðið. Fólkið í kringum þig
nýtur þess en þú gerir það seinna meir
þegar þú lítur baka á þessar skemmtilegu
uppákomur.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Til að forðast það að brenna út í
náinni framtíð skaltu koma reglu á
orkuna þína. Hvíldu þig vel og lengi og
segðu fólki að þú sért ekki latur bara
klár.
stjörnuspá
Holiday Mathis
STAÐAN kom upp á heimsmeistara-
móti FIDE sem stendur nú yfir í
Mexíkó. Ísraelski stórmeistarinn
Boris Gelfand (2.733) hafði hvítt
gegn rússneskum kollega sínum
Alexander Morozevich (2.758). 28.
Rxg7! Hxg7 hvítur hefði einnig stað-
ið til vinnings eftir 28. … Bxg7 29.
Hf7. 29. Bh3! Hxg4+ 30. Bxg4+
Kd8 31. Hxf6 Bxd5 32. a3 b5 33. h4
hvítur hefur nú unnið tafl þó að það
hafi tekið sinn tíma að innbyrða
vinninginn. 33. … b4 34. axb4 axb4
35. Hf4 b3 36. Bf5 Bf7 37. Kf2 Ke7
38. Ke1 Kf6 39. Bd3+ Kg7 40. Kd2
Be6 41. Kc3 Bf7 42. Bc4 Bxc4 43.
Hxc4 Kg6 44. e4 Re6 45. Kxb3 Kh5
46. e5 d5 47. Hb4 Kg6 48. Hb8
Rd4+ 49. Kb2 Rf5 50. Hf8 og svart-
ur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Rökstudd ágiskun.
Norður
♠KG872
♥ÁK5
♦K6
♣Á63
Vestur Austur
♠95 ♠4
♥DG1086 ♥732
♦G953 ♦D10842
♣94 ♣D875
Suður
♠ÁD1063
♥94
♦Á7
♣KG102
Suður spilar 7♠.
Sagnhafi þarf að finna laufdrottn-
ingu til að vinna slemmuna. Það
verður á endanum ágiskun, en með
réttum undirbúningi gæti það orðið
RÖKSTUDD ágiskun. Útspilið er
hjartadrottning. Sagnhafi drepur
með ás, tekur trompin í tveimur um-
ferðum, spilar svo hjartakóngi og
trompar hjarta. Ef vestur fylgir lit í
hjörtun með sexu og áttu getur sagn-
hafi með góðum rökum reiknað með
upphaflegum fimmlit. Ásamt tvíspili í
trompi er þá vitað um sjö spil á hendi
vesturs, en aðeins fjögur á hendi
austurs. „Rýmið“ fyrir laufdrottn-
inguna er þar með meira í austur –
það eru níu „laus sæti“ í austur á
móti sex lausum sætum í vestur. Þótt
ekkert sé öruggt eru þetta nokkur
rök fyrir því að staðsetja laufdrottn-
inguna í austur.
En vestur átti auðvitað að fylgja lit
í hjörtun tvö með tíu og gosa.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
1 Hvar var loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna ígær haldin?
2 Ragnar Bjarnason er að fara að stíga aftur á svið.Hvar?
3 Hver er nýr sjónvarpsstjóri Skjás eins?
4 Hvað fengu Framarar greitt fyrir leikstjórnandann,Sigfús Pál Sigfússon?
Svör við spurningum
gærdagsins:
1. 32 íslenskir keppendur eru
á leið á Special Olympics.
Hvar eru leikarnir haldnir?
Svar: Sjanghæ í Kína. 2. Mik-
illi bílasýningu lauk um
helgina. Hvar var hún haldin?
Svar: Í Frankfurt. 3. Hverjir
stjórna hinum nýja spurn-
ingaþætti sjónvarps, Útsvari?
Svar: Sigmar Guðmundsson
og Þóra Arnórsdóttir. 4. Hvað-
an er Avram Grant sem tók við
af Mourinho sem fram-
kvæmdastjóri hjá Chelsea?
Svar: Ísrael.
Spurter… ritstjorn@mbl.is
dagbók|dægradvöl
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
NORRÆNU félögin í höfuðborgum
Norðurlandanna efna til höfuð-
borgamóta til skiptis, árlega, í höf-
uðborgum landanna. Að þessu sinni
er mótið haldið í Reykjavík í tengsl-
um við 85 ára stofnafmæli Norræna
félagsins á Íslandi. Þema mótsins að
þessu sinni er „Sameiginlegur arfur
í norrænu goðafræðinni og tengsl
hans inn í nútímann og kristni“.
Boðið verður upp á dagskrárliði í
Reykjavík dagana 28.-30. september
sem hefst með dagskrá í Perlunni,
föstudaginn 28. september kl. 15.
Þar munu Vigdís Finnbogadóttir,
Þórarinn Eldjárn, Terry Gunnell og
Þorvaldur Friðriksson fjalla um
þema höfuðborgamótsins frá ýmsum
sjónarhornum.
Göngukort gefið út
Þá hefur verið gefinn út vegvísir
með tilstyrk SPRON og Reykjavík-
urborgar með göngukorti um þann
hluta Reykjavíkur þar sem götur
eru nefndar eftir norrænum goðum.
Hátíð verður á Óðinstorgi í
Reykjavík laug-
ardaginn 29.
september en þá
fagnar Norræna
félagið 85 ára af-
mæli og býður
borgarbúum og
gestum Reykja-
víkur að njóta
þess með félags-
mönnum á Óðins-
torgi milli kl. 14
og 17.
Höfuðborgamóti verður slitið eftir
norræna hátíðarmessu í Hallgríms-
kirkju sunnudaginn 30. september
kl. 11. Ritningargreinar dagsins
verða lesnar af þátttakendum frá öll-
um Norðurlöndunum. Sálmar og
tónlist verða einnig af norrænum
toga, en biskup Kaupmannahafnar,
hr. Erik Norman Svendsen, predik-
ar. Þessi messa er ætluð öllum al-
menningi en á ekki síst erindi til
þeirra sem eiga rætur og tengsl á
hinum Norðurlöndunum, segir í
fréttatilkynningu.
Norræn goð og kristin trú
á höfuðborgamóti
Vigdís
Finnbogadóttir
RÖÐ hádegisfyrirlestra Sagnfræð-
ingafélags Íslands, „Hvað er Evr-
ópa?“ heldur áfram í dag, þriðju-
daginn 25. september. Magnús Árni
Magnússon Evrópufræðingur spyr í
erindi sínu „Erum við þá Rómverj-
ar núna?“.
Í fyrirlestri Magnúsar verður
fjallað um grunnspurninguna
„Hvað er Evrópa?“ út frá tengslum
við táknmyndir fortíðar og spurn-
ingunni um hvaða máli þær kunna
að skipta í stjórnmálum samtímans.
Hádegisfyrirlestrar Sagnfræð-
ingafélagsins fara fram í fyrir-
lestrasal Þjóðminjasafnsins og
standa frá klukkan 12.05 til klukk-
an 12.55. Aðgangur er ókeypis og
öllum heimill.
Fyrirlestur
um Evrópu
HEIMDALLUR telur ríkisfyrir-
tækið Íslandspóst ohf. vera komið
langt út fyrir hlutverk sitt, sem er
„að veita almenna og sérhæfða
bréfa-, pakka- og sendingarþjón-
ustu fyrir einstaklinga og fyrir-
tæki“.
Samkvæmt framtíðaráformum
fyrirtækisins hyggst það útvíkka
starfsemina og hefja sölu á ýmsum
vörum, eins og skrifstofuvörum,
pappír, geisladiskum, kortum og
öðrum svipuðum vörum. Eins vill
ríkisfyrirtækið bjóða fólki upp á að
kaupa netaðgang, prenta út gögn
og ljósmyndir, skanna og ljósrita
svo eitthvað sé nefnt. Allt er þetta
þjónusta sem einkaaðilar hafa verið
fullfærir um að sjá um hingað til,
segir í ályktun Heimdallar.
„Heimdallur telur þetta afar nei-
kvæða þróun og telur Íslandspóst
ohf. færa sér í nyt aðstöðu sína sem
fyrirtæki í opinberri eign. Þessi
þróun er óásættanleg og ekki leng-
ur hægt að horfa upp á fyrirtækið
ríkisvæða fleiri fyrirtæki eða
þröngva sér inn á samkeppnis-
markað í skjóli stöðu sinnar sem
ríkisfyrirtæki. Heimdallur telur
tímabært að fyrirtækið Íslands-
póstur verði einkavætt líkt og önn-
ur ríkisfyrirtæki sem ekki er leng-
ur þörf fyrir, þar sem virk sam-
keppni er fyrir á markaðinum,“
segir m.a. í ályktuninni.
Íslandspóstur
einkavæddur