Morgunblaðið - 25.09.2007, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 25.09.2007, Qupperneq 36
Þá er íslenska kvik- myndin Veðramót að sækja í sig veðrið … 40 » reykjavíkreykjavík Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „GALLERÍIÐ er í Prato sem er rétt við Flór- ens. Það heitir Project Gentili og er alveg nýtt, þetta er fyrsta sýningin í því,“ segir Darri Lor- enzen myndlistarmaður sem opnaði einkasýn- ingu á Ítalíu á laugardaginn. „Þeir ætla að vera með listamenn í yngri kantinum, eru búnir að búa til prógram ár fram í tímann. Þeir eru að gera mjög spennandi hluti,“ segir Darri enn fremur um Project Gentili. En hvernig kom það til að hann var beðinn að sýna í galleríinu? „Annar þeirra sem reka galleríið er frá New York og hann sá sýningu sem ég var með þar í borg í fyrra,“ segir Darri, en um er að ræða hans fyrstu sýningu á Ítalíu. Auk Bandaríkj- anna og Íslands hefur hann hins vegar sýnt í Belgíu og í Berlín, þar sem hann býr. Aðspurður segir Darri opnunina hafa gengið rosalega vel. „Þetta var náttúrulega fyrsta opnunin hérna þannig að það komu mjög marg- ir. Ég veit þó ekki nákvæma tölu enda var þetta löng opnun, frá sjö til miðnættis,“ segir hann og bætir við að rýmið sé mjög stórt. „Þetta er alveg risa rými, rosa flott. Þetta er gömul vefnaðarverksmiðja.“ Sex litlir pallar Darri segir svolítið erfitt að lýsa því sem hann er að sýna með orðum, en gerir þó til- raun. „Þetta er samtvinnað verkefni sem ég vann sérstaklega fyrir þessa sýningu og þetta rými,“ segir hann. „Ég er með video-innsetningu á risastórum skjá sem er 4 x 4 metrar. Svo er líka hljóðinnsetning með nokkrum skúlptúrum. Svo er ég með svona platform, og print,“ segir Darri, en verkið var allt unnið á svæðinu í kringum galleríið. „Ég smíðaði sex litla palla sem við fórum með út í skóg um miðja nótt. Í myndbandinu er karakter sem er með vasaljós, öxi og kaðal. Hann finnur sér tré og prílar upp í það og kemur pallinum þar fyrir. Hann notar öxina til að forma það til, svo það passi. Svo prílar hann upp á pallinn,“ segir Darri sem fer sjálfur með „aðalhlutverkið“ í myndbandinu. „Þetta eru sex mismunandi pallar og þeir eru sýndir hver á eftir öðrum þannig að þetta er nokkuð langt myndband, 50 til 60 mínútur.“ Að skrúfa skrúfur Þá segir Darri að gestir sýningarinnar hafi sín áhrif á myndbandið því skuggi þeirra kem- ur inn á það. „Þetta er líka reiknað út þannig að það sem er á skjánum er í raunstærð. Þetta er eins og gluggi út í skóg. En svo eru pallarnir sjálfir á öðrum stað í rýminu og inni í þeim eru hátalarar þaðan sem spiluð er hljóðupptaka af því ferli þegar farið var með pallinn upp í tréð. Þetta er sex rása innsetning.“ Eins og áður segir býr Darri í Berlín þar sem hann hefur verið við nám. Hann segist ekkert vera á förum þaðan, enda sé borgin góð- ur staður fyrir myndlistarmenn. „Það er mikið að gera í Berlín, mikil stemning og gróska í myndlist og tónlist. Það er gott að vera þar,“ segir Darri og viðurkennir að vissulega geti verið erfitt að lifa af listinni. Hann seldi þó sitt fyrsta stóra verk fyrir skömmu, verk sem hann sýndi í leikfimisal Austurbæjarskóla á menn- ingarnótt. „Þannig að þegar ég var að skrúfa skrúfurnar í verkinu hérna á Ítalíu fór ég að hugsa að maður væri hálfpartinn að fá borgað fyrir að skrúfa þessar skrúfur.“ Prílað á pöllum í Prato Vegnar vel Þessa trjámynd, sem er tekin úr myndbandsverki, segir Darri Lorenzen vera aðal kennileiti sýningarinnar sem hann opnaði nýlega í galleríinu Project Gentili á Ítalíu. www.projectgentili.it www.darrilorenzen.net Darri Lorenzen opnaði einkasýningu í nýju galleríi á Ítalíu sem ætlar að sýna verk yngri listamanna Pétursson gítarleikari, Birgir Bald- ursson trommuleikari, Jakob Smári Magnússon bassaleikari og Arndís Hreiðarsdóttir, sem leikur á píanó og klukkuspil. Hin stórefnilega hljómsveit Mammút hitar upp og hefjast tón- leikarnir á Organ stundvíslega kl. 21.00. Verð aðgöngumiða er aðeins 1.000 kr . Á MORGUN, miðvikudaginn 26. september, heldur Elíza Geirsdóttir Newman útgáfutónleika á tónleika- staðnum Organ til að fagna fyrstu sólóbreiðskífu sinni, Empire Fall. Elíza er þekkt í íslensku tónlist- arlífi sem söngkona hljómsveitanna Kolrössu krókríðandi/Bellatrix og Skandinavíu, en hún hefur verið búsett erlendis og starfað við tón- list um nokkurt skeið. Verða þetta fyrstu tónleikar Elízu á Íslandi í rúm þrjú ár. Með Elízu, sem syngur og spilar á fiðlu, kemur fram ný hljómsveit hennar, hana skipa: Guðmundur Elíza með út- gáfutónleika Elíza Með útgáfutónleika á morgun á Organ ásamt nýrri hljómsveit. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Í gamla daga Elíza var fyrst þekkt á Íslandi sem söngkonan í hljómsveit- inni Kolrössu krókríðandi sem átti marga aðdáendur hér á landi. www.myspace.com/elizanewman www.myspace.com/lava- landrecords

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.