Morgunblaðið - 25.09.2007, Síða 37

Morgunblaðið - 25.09.2007, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007 37 Leikhúsin í landinu www.mbl.is/mm/folk/leikh/ Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl.12:30-18:00, aðra daga vikunnarfrá kl. 12:30 til 20, og alltaf klukkustund fyrir sýningu ef um breyttan sýningartíma er að ræða. MIÐASALA Í SÍMA 4 600 200 MIÐASALA LA ER OPIN FRÁ KL. 13-17 W.LEIKFELWW AG.IS ALA@LEIKFELAGMIDAS .IS Óvitar! Aukasýningar í sölu núna! Kortasala í fullum gangi! Fim 27/9 kl. 20 6.kortas. UPPSELT Fös 28/9 kl. 20 7.kortas. UPPSELT Lau 29/9 kl.16 AUKASÝN UPPSELT Lau 29/9 kl. 20 8.kortas. UPPSELT Sun 30/9 kl. 20 AUKASÝN UPPSELT Fim 4/10 kl. 20 9.kortas. UPPSELT Fös 5/10 kl. 20 10.kortas. UPPSELT Lau 6/10 kl. 20 11.kortas. UPPSELT Sun 7/10 kl. 20 AUKASÝN UPPSELT Fim 11/10 kl. 20 AUKASÝN örfá sæti laus Fös 12/10 kl. 20 12.kortas. UPPSELT Lau 13/10 kl. 16 AUKASÝN UPPSELT Lau 13/10 kl. 20 almenn sýn. í sölu núna Fim 18/10 kl. 20 AUKASÝN í sölu núna Fös 19/10 kl. 20 13.kortas. örfá sæti laus Lau 20/10 kl. 20 14.kortas. UPPSELT Sun 21/10 kl. 20 AUKASÝN í sölu núna Næstu sýn: 26., 27. október LEIKRITIÐ Gott kvöld sem frum- sýnt var í Kúlunni síðastliðinn sunnudag er byggt á samnefndri bók eftir Áslaugu Jónsdóttur og fjallar um strák sem er skilinn eftir einn heima á meðan pabbi hans skreppur frá. Þegar strákurinn ger- ir sér grein fyrir því að pabbi hans er farinn verður hann smeykur og til að stappa í sig stálinu þykist hann vera að vernda bangsann sinn gegn ófreskjum. Bangsinn lifnar síðan við og þeir félagar hitta alls konar verur í ímynduðum heimi, verur sem þeir þurfa að fást við á einhvern hátt. Þessar verur eru „búnar til“ úr þekktum orðum og orðatiltækjum sem við notum daglega en hugsum okkur þau venjulega sem formlaus. Þannig að fýlupokinn er í þessu til- felli sýndur sem talandi poki sem heldur á svipmikilli leiðindaskjóðu. Allt þetta er í höndum þriggja leik- ara og frábærlega vel gert en að- allega er það Baldur Trausti Hreins- son sem fær að njóta sín í mörgum mismunandi gervum. Búningar, brúður og skuggaleikhús eiga óvenju stóran þátt í sýningunni og eru hönnuð af Helgu Arnalds með aðstoð Steinunnar Gunnlaugsdóttur. Sigurður Bjóla sá um tónlist og hljóðmynd en það er óhætt að segja að fullkomið samspil sé á milli allra þátta sýningarinnar. Bók Áslaugar er snjöll en yf- irfærslan í leikritsform er tóm snilld. Það var leikstjórinn, Þórhallur Sig- urðsson, sem taldi Áslaugu trú um að vel væri hægt að túlka þetta á sviði og það er enginn vafi í mínum huga um að hann hafði rétt fyrir sér. Skilaboðin eru einföld og vel kunn – aðeins sá sem þekkir hræðslu getur sýnt hugrekki – en útfærslan á þess- ari hugmynd er bæði fersk og gríp- andi. Sýningin er ætluð börnum frá 3–10 ára en Áslaug er ófeimin við að nota flókin orð og hugtök sem eldri börn og fullorðnir kunna að meta. Með því tekur hún áhættu og heppn- ast það vel. Vignir Rafn og Þórunn Erna passa sérstaklega vel saman í hlut- verk stráksins og bangsans með til- heyrandi kátínu. Söngrödd Þór- unnar er mjög tær og hún geislar af gleði. Baldur Trausti fer á kostum í öllum hlutverkum sínum en er fram- úrskarandi sem Hávaðaseggurinn og Fýlupokinn. Það er gott jafnvægi á milli hláturs og ótta og auk þess galdraheimur sem krökkunum á frumsýningunni fannst ekki síður spennandi. Stutt, skemmtilegt og óvenjulega gefandi – og enn sem komið er fylgir henni engin markaðsherferð! Gott kvöld „Þannig að fýlupokinn er í þessu tilfelli sýndur sem talandi poki sem heldur á svipmikilli leiðindaskjóðu.“ Einn en ekki yfirgefinn Leiklist Þjóðleikhúsið Höfundur: Áslaug Jónsdóttir. Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson. Tónlist og hljóð- mynd: Sigurður Bjóla. Leikmynd, brúðu- gerð og búningar: Helga Arnalds. Lýsing: Páll Ragnarsson. Leikarar: Baldur Trausti Hreinsson,Vignir Rafn Valþórsson og Þórunn Erna Clausen. Gott kvöld Martin Regal

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.