Morgunblaðið - 25.09.2007, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 25.09.2007, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007 39 Stærsta kvikmyndahús landsins Miðasala á Kauptu bíómiða í Háskólabíó á Kauptu bíómiða í Háskólabíó á www.haskolabio.is Sími - 530 1919 Chuck and Larry kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára Hairspray kl. 5:30 - 8 - 10:30 Veðramót kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára Astrópía kl. 6 The Bourne Ultimatum kl. 8 - 10:30 B.i. 14 ára eeeee - LIB, TOPP5.IS eeeee - SV, MBL eeee - JIS, FILM.IS eee - FBL ÞAR SEM REGLURNAR BREYTAST www.laugarasbio.is Sýnd kl. 8 og 10:30 B.i. 14 ára Sagan sem mátti ekki segja. eeee - S.V., MORGUNBLAÐIÐ eeee - B.B., PANAMA.IS eeee - E.E., DV eeee - S.G., Rás 2 eeee - R.H., FBL eeee - VJV, TOPP5.IS eeee - R.V.E., FRÉTTABLAÐIÐ eeee - S.V., MORGUNBLAÐIÐ - T.V., KVIKMYNDIR.IS Sýnd kl. 5:45, 8 og 10:20 B.i. 12 ára HVERSU LANGT MYNDIRU GANGA FYRIR BESTA VIN ÞINN? Sýnd kl. 5:30, 8 og 10:20 - T.V., KVIKMYNDIR.IS eeee - R.V.E., FRÉTTABLAÐIÐ eeee - S.V., MORGUNBLAÐIÐ HVERSU LANGT MYNDIRU GANGA FYRIR BESTA VIN ÞINN? -bara lúxus Sími 553 2075 Það er ekki merkilegt í sjálfusér að menn skrifi mikinnglæpasagnabálk með eina höfuðpersónu, en vissulega óvenju- legra ef sú höfuðpersóna er sífellt að þróast, verða raunverulegri og trúverðugri með hverri bókinni. Eins og þeir fjölmörgu þekkja sem lesið hafa bækur Ians Rankins um John Rebus þá er Rebus einmitt per- sóna sem hefur breyst í gegnum ár- in, tekið út þroska án þess þó að breytast í aðalatriðum. Lykillinn að því er sjálfsagt sá að Rebus hefur elst í gegnum tíðina og nú þegar sautjánda bókin kemur út, Exit Mu- sic, þá er hann kominn á aldur og hættir í lögreglunni í Edinborg.    Exit Music er semsé lokabókinum lögregluforingjann John Rebus, gallagripinn þverlundaða sem finnst ekkert skemmtilegra en vera yfirmönnum sínum óþægur ljár í þúfu; hatast við prjál og yfirborðs- mennsku og kann illa að meta millj- ónunga og stjórnmálamenn. Það er því viðeigandi að í sínu síðasta verk- efni sem lögregluforingi, en bókin gerist á tíu síðustu vinnudögum Re- bus, þurfi hann einmitt að glíma við spillta stjórnmálamenn, nýríka uppa og yfirmenn sína, en inn í blönduna blandast líka rússneskir auðjöfrar og gamall djöfull Rebus, Morris „Big Ger“ Cafferty, en samskipti þeirra á síðustu blaðsíðu bókarinnar eru í senn óttaleg og bráðfyndin. Fyrsta bókin um John Rebus, Knots & Crosses, kom út 1987 og síðan hefur hver bókin rekið aðra, sautján alls eins og getið er. Tíminn hefur liðið í bókunum líkt og í raun- veruleikanum og því gerast atburðir Exit Music tuttugu árum eftir at- burði Knots & Crosses, enda tuttugu ár liðin frá því sú kom út. Rebus er fertugur í Knots & Crosses og því sextugur í Exit Music og kominn á aldur miðað við skoska lög- reglumenn (það var rætt á skoska þinginu að breyta lögum um eft- irlaunaaldur lögreglumanna til að tryggja fleiri Rebus-bækur, en ekk- ert varð úr).    Rebus-bækur Rankins eru mestseldu glæpasögur í Bretlandi og vinsældir þeirra eru litlu minni víða um heim. Hann hefur fengið ýmis verðlaun fyrir bækurnar; Chandler-Fulbright-verðlaunin, verðlaun samtaka breskra glæpa- sagnahöfunda, Gullrýtinginn og Demantsrýtinginn, Edgar- verðlaunin, Þýsku glæpasagnaverð- launin, smásagnaverðlaun CWA, bresku bókaverðlaunin og frönsku verðlaunin Grand Prix du Roman Policier. Einnig hafa verið gerðir sjónvarpsþættir um Rebus.    Í viðtali við Morgunblaðið á síð-asta ári sagðist Rankin ekki vita hver framvindan yrði þegar Rebus færi loks á eftirlaun: „Kannski tekur Siobhan við sem aðalpersóna en Re- bus verður í aukahlutverki, kannski skrifa ég eitthvað allt annað, hver veit,“ sagði hann og vissulega virtist sem hann væri að gera Siobhan að veigameiri persónu í þarsíðustu bók, The Naming of the Dead, en í henni fáum við til að mynda að hitta foreldra hennar. Það er þó erfitt að sjá það fyrir sér að hún nái að standa undir seríu á viðlíka hátt og Rebus, hún er ekki nógu mikill töff- ari og ekki nógu gölluð til að vera ekta.    Að þessu sögðu þá hef ég öruggarheimildir fyrir því að næsta bók Ians Rankins verði um Rebus, en muni þá segja frá atvikum áður en fyrsta bókin, Knots & Crosses, og sama heimild hefur eftir Rankin að bókin sú muni væntanlega segja frá því er Rebus var í hernum. Það rím- ar vel við orð Rankins í áðurnefndu viðtali: „Ég hef haldið áfram að skrifa bækur um John Rebus vegna þess að ég á enn eftir að komast að kjarna hans. Ég veit ekki allt það sem er um hann að vita og held því áfram.“    Það má líka lesa sitthvað út úr Ex-it Music, til að mynda þá spurn- ingu sem réttarmeinafræðingur beinir til Rebus hvort hann ætli að sækja um vinnu í SCRU, deild rann- sóknarlögreglumanna á eft- irlaunum sem skoða óleyst mál. Eins hugsar Siobhan fulloft til þess hvað Rebus hafi verið duglegur að halda að henni gömlum málum, „köldum málum“, sem bendir til þess að Rankin vilji undirbúa menn fyrir nýtt líf lögregluforingjans. Ég sé því fyrir mér að Rebus eigi eftir að lifa með okkur lengi enn og fagnaðar- efni á meðan bækurnar halda áfram að batna. Hann tekur örugglega uppklapp. Lokasprettur lögregluforingjans » Það er viðeigandi að ísínu síðasta verkefni þurfi Rebus að glíma við spillta stjórnmálamenn, nýríka uppa og yf- irmenn sína. Iðinn Skoski rithöfundurinn Ian Rankin er einn vinsælasti glæpasagnahöf- undur heims fyrir bækur sínar um John Rebus. arnim@mbl.is AF LISTUM Eftir Árna Matthíasson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.