Morgunblaðið - 25.09.2007, Qupperneq 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
WWW.SAMBIO.IS SAMBÍÓIN - EINA BÍÓKEÐJAN Á ÍSLANDIVERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á
MR. BROOKS kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára
BRATZ kl. 5:30 LEYFÐ
ASTRÓPÍA kl. 6 LEYFÐ
LICENSE TO WED kl. 6 - 8 B.i. 7 ára
THE BOURNE ULTIMATUM kl. 8 - 10 B.i. 14 ára
THE TRANSFORMERS kl. 10:30 B.i. 10 ára DIGITAL
/ KRINGLUNNI
CHUCK AND LARRY kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12.ára
CHUCK AND LARRY kl. 8 - 10:30 LÚXUS VIP
MR. BROOKS kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16.ára
BRATZ kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ
DISTURBIA kl. 8 - 10:30 B.i.14.ára
ASTRÓPÍA kl. 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
ASTRÓPÍA LÚXUS VIP kl. 6 LEYFÐ
RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 5:30 LEYFÐ
/ ÁLFABAKKA
SÝND Í KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG Á SELFOSSI
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
HVERSU LANGT
MYNDIRU GANGA
FYRIR BESTA
VIN ÞINN?
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
ALLIR EIGA SÍN LEYNDARMÁL
ÓVÆNTASTI SÁLFRÆÐITRYLLIR ÁRSINS
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í KRINGLUNNI
eeee
– KVIKMYNDIR.IS
eee
– L.I.B TOPP5.IS
BANDARÍSKA gamanmyndin I
Now Pronounce You Chuck and
Larry var mest sótta myndin í ís-
lenskum kvikmyndahúsum um
helgina. Þar með er íslenska æv-
intýramyndin Astrópía fallin úr
efsta sætinu, en þar hefur hún setið í
heilar fjórar vikur. Rétt tæplega
4.000 manns sáu I Now Pronounce
You Chuck and Larry um helgina,
en myndin fjallar um tvo menn sem
ákveða að þykjast vera samkyn-
hneigðir til þess að öðlast réttindi
hjóna. Sæbjörn Valdimarsson kvik-
myndagagnrýnandi er ekki hrifinn
af myndinni og fær hún aðeins tvær
stjörnur hjá honum í Morgunblaðinu
í dag.
Tæplega 2.500 manns skelltu sér á
Astrópíu um helgina, en alls hafa nú
um 39.000 manns séð myndina sem
verður að teljast mjög góður árang-
ur þegar tekið er mið af því að um ís-
lenska mynd er að ræða.
Þá er íslenska kvikmyndin Veðra-
mót að sækja í sig veðrið, en nú hafa
tæplega 10.000 manns séð þá mynd.
Hasar og hákarlar
Auk myndarinnar um þá Chuck
og Larry voru tvær myndir frum-
sýndar fyrir helgi, en hvorug þeirra
náði miklum vinsældum.
Teiknimyndin Shark Bait sem
trúlega er ætluð yngstu kynslóðinni
situr í fimmta sætinu. Myndin fjallar
um ástir og örlög lífveranna neð-
ansjávar.
Hasarmyndin Shoot ’Em Up er
svo í sjötta sætinu, en myndin skart-
ar þeim Clive Owen, Paul Giamatti
og Monicu Bellucci í aðalhlut-
verkum. Myndin segir sögu manns
sem tekur að sér að vernda ungbarn
fyrir brjáluðum leigumorðingja.
Vinsælustu myndirnar í íslenskum kvikmyndahúsum
Chuck og Larry stöðvuðu
sigurgöngu Astrópíu
4%G "" #2""
! "#$
%& '"!
() #
*
+)!
*!
,-'
.#
/!! )00
1 2
+
+ !3
!
14)
5 6
.#
Hýrir Kevin James úr King Of Queens sjónvarpsþáttunum og Adam Sand-
ler í hlutverkum sínum sem slökkviliðsmennirnir Chuck og Larry.
OFURHASARMYNDIN Skot-
leikur (Shoot ‘em Up) fellur í ein-
falda gildru. Hasarmyndahefðin hef-
ur nefnilega allt frá því á 9.
áratugnum boðið upp á afskaplega
takmarkað rými fyrir íróníu og grín-
útúrsnúninga, en slíkir útúrsnún-
ingar eru einmitt helsti útgangs-
punktur Skotleiks. Ástæðan er sú að
lítið er upp úr því að hafa að gera
grín að kvikmyndahefð sem ómögu-
legt er að taka alvarlega og býr að
mörgu leyti yfir innbyggðri sjálfs-
paródíu. En Skotleik má kannski sjá
sem birtingarmynd ákveðinnar
kreppu sem blasir við hasarmynda-
hefðinni í kjölfar lykilverka Hong
Kong-jöfursins John Woo. Við-
brögðin felast í því að ýkja hasarinn
enn meira en Woo gerði, færa hefð-
ina yfir í annað veldi, og reka sig
þannig á vegg gríneftirlíking-
arinnar. En sá veggur er vandyf-
irstiginn, eins og hér sést, því út-
koman virðist bæði tilgangslaus og
endurtekningasöm. Myndina má
reyndar lesa sem ákveðna tilraun
um hasar, spurt er hvort frásögn og
persónusköpun skipti yfirleitt ein-
hverju máli eða hvort óhætt sé að
varpa slíkum hlutum fyrir róða ef
nóg er af drápum, fögrum fljóðum
og æsilega hönnuðum hasaratriðum.
En tilraunin mistekst. Fyrsta atriðið
af þessum toga í myndinni hefur
e.t.v. eitthvað fram að færa en eftir
það skýtur myndin sig í fótinn og
fellur á eigin bragði.
Skotleikur „En Skotleik má kannski sjá sem birtingarmynd ákveðinnar
kreppu sem blasir við hasarmyndahefðinni í kjölfar lykilverka Hong Kong-
jöfursins John Woo,“ segir Heiða Jóhannsdóttir m.a í dómnum.
Hasarmynd í kreppu
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Regnboginn, Sam-
bíóin Akureyri
Leikstjórn: Michael Davis. Aðalhlutverk:
Clive Owen, Paul Giamatti og Monica
Belluci. Bandaríkin, 86 mín.
Skotleikur (Shoot ‘em Up)
Heiða Jóhannsdóttir