Morgunblaðið - 25.09.2007, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007 41
WWW.SAMBIO.IS
/ KEFLAVÍK / SELFOSSI
CHUCK AND LARRY kl. 8 - 10:10 B.i. 12 ára
BRATZ kl. 8 LEYFÐ
DISTUBIA kl. 10:10 B.i. 14 ára
/ AKUREYRI
SHOOT'EM UP kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
MR. BROOKS kl. 8 B.i. 16 ára
VACANCY kl. 10 B.i. 16 ára
BRATZ kl. 6 LEYFÐ
ASTRÓPÍA SÍÐUSTU SÝNINGAR kl. 6
SÝND Á AKUREYRI
eeee
- E.E., DV
eeee
- S.V., MBL
eeee
- S.G., Rás 2
SÝND Á SELFOSSISÝND Á SELFOSSI
eeee
JIS, fIlm.IS
BÝR RAÐmORÐINGI
Í ÞÍNU HVERfI?
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
4 VIKUR Á TOPPNUM
eeee
- JIS, FILM.IS
eeee
- A.S, MBL
eeee
- RÁS 2
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SKEMMTILEGUSTU
VINKONUR Í HEIMI ERU MÆTTAR.
MYND Í ANDA CLUELESS OG MEAN GIRLS.
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI,
KEFLAVÍK OG AKUREYRI
SÝND Á AKUREYRI
KNOCKED UP kl. 8 - 10:30 B.i. 14 ára
VEÐRAMÓT kl. 8 - 10:20 B.i. 14 ára
22.09.2007
3 9 28 31 34
3 0 3 0 4
7
19.09.2007
5 8 14 33 35 36
3218 28
2 9 2 0 8
ÞAU leiðu mistök
urðu í dómi gagn-
rýnanda Morg-
unblaðsins við
umsögn á leik-
sýningunni
Óhappi að nafn
leikkonunnar
Kötlu Margrétar
Þorgeirsdóttur
var misritað og
hún sögð heita
Katla María.
Beðist er velvirðingar á mistök-
unum.
LEIÐRÉTT
Katla Margrét
Katla Margrét
Þorgeirsdóttir
BRESKI söngvarinn James Blunt
segir landa sína hafa lítið tískuvit.
Hann kennir þjóðerni sínu um
sinn lélega fatasmekk. „Eins og þið
sjáið hef ég ekkert nef fyrir tísku
enda breskur,“ sagði Blunt í veislu
sem GQ tímaritið hélt í seinustu
viku.
Þrátt fyrir óheillandi fataskáp
náði stjarnan athygli óþekktrar
ljósku sem hann yfirgaf veisluna
með.
Aðrir gestir í GQ veislunni voru
m.a Kanye West, Beyoncé Knowles,
Jay-Z, P. Diddy, LL Cool J og Cindy
Crawford.
Fyrr í þessum mánuði við-
urkenndi Blunt að hann notaði
frægð sína til að sofa hjá grúppíum.
„Ég hef alltaf talið það til skyldu
minnar að hitta fallegar konur. Fólk
hefur sagt mér að ég eigi ekki að láta
sjá til mín á skemmtistöðum með fal-
legum konum, en ég get ekki séð
hvers vegna. Hvers vegna ætti ég
annars að vera poppstjarna,“ sagði
kappinn um kvensemi sína.
„Ég skemmti mér vel og ég er
hreinskilinn um það hvernig ég lifi
lífinu.“
Reuters
Larfar James Blunt illa klæddur?
Kvensamur
Blunt
ÓRÁÐNI maðurinn er nýtt verk eft-
ir Þorvald Þorsteinsson sem frum-
sýnt var í Tjarnarbíói síðastliðinn
laugardag. Í fréttatilkynningu er
tekið fram að höfundur verksins hafi
samið það „sérstaklega fyrir leik-
hópinn Stoppleikhús“ og að „við-
fangsefnið sé í senn sígilt og óvenju-
legt; nefnilega leit mannsins að
„réttu útgáfunni“ af sjálfum sér inni
í öllum þeim aragrúa hlutverka sem
hann verður að leika á lífsleiðinni“.
Svolítið heimspekilegt en gott og vel.
Þetta er góð lýsing á viðfangsefni
margra frægra leikrita, alveg frá
Hamlet eftir Shakespeare fram að
Sex persónur í leit að höfundi eftir
Pirandello, en það kann að vera að
Þorvaldur hafi fundið einhvern nýj-
an flöt á þessu sígilda viðfangsefni
sem höfðar ágætlega til Íslendinga í
dag. Einhvers staðar í þessu öllu var
þó söguþráður. Það er líka tekið
fram að verkið fjalli einnig um „leik-
arahjón sem virðast hafa lokast inni
í eigin leikhúsi“.
Því miður vantaði ýmislegt í dæm-
ið til að það gengi upp eins og ætlað
var. Í fyrsta lagi hefði einhver hjá
Stoppleikhúsinu átt að sjá til þess að
Tjarnarbíó troðfylltist af áhorf-
endum og þá helst af börnum og
unglingum sem leikhópurinn segist
sérhæfa sig í að þjóna. Í staðinn sát-
um við í hálftómu leikhúsi með nán-
ast enga stemningu. Þegar Magnús
Guðmundsson leikari stóð upp úr
sæti sínu og byrjaði að leika datt ein-
hverjum áhorfanda í hug að svara
honum og tala við hann eins og hann
væri sjálfur að taka þátt í þessu.
Kannski var hann fenginn til þess en
ef svo var virkaði það illa á mig.
Byrjunin sem sagt lofaði ekki góðu.
Hins vegar vantaði ekki kraft í
leikhópinn. Magnús Guðmundsson,
Sigurður Eyberg Jóhannesson og
Katrín Þorkelsdóttir gáfu allt sem
þau áttu í hlutverk sín og skiptu
jafnoft á búningum og á persónum.
Margt var vel gert og hæfilega fram-
andi og oftar en ekki leiddi snögg
breyting á hlutverkum leikenda eða
skipting um umræðuefni til þess að
við vissum ekki hvort við værum að
horfa á harmleik eða gamanleik.
Þetta var sennilega aðaltilgangur
verksins – að halda okkur einhvers
staðar mitt á milli hláturs og gráts,
svona óráðnum. Hvort þetta er
þægilegt að hanga svona í lausu lofti
er annað mál.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Óráðni maðurinn „Því miður vantaði ýmislegt upp í dæmið til að það gengi upp eins og ætlað var.“
Óráðni maðurinn – eða þrjár
verur í leit að sjálfum sér
LEIKLIST
Tjarnarbíó
Höfundur: Þorvaldur Þorsteinsson. Leik-
stjóri: Sigrún Sól Ólafsdóttir. Leikmynd
og búningar: Þorvaldur Þorsteinsson.
Leikarar: Katrín Þorkelsdóttir, Magnús
Guðmundsson og Sigurður Eyberg Jó-
hannesson.
Ferðasýning fyrir grunn-/framhaldsskóla
o.fl. Frumsýnt 22. september.
Óráðni maðurinn
Martin Regal