Morgunblaðið - 25.09.2007, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 25.09.2007, Qupperneq 44
ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 268. DAGUR ÁRSINS 2007 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Ungbarnadeildir  Undirbúningi við opnun ung- barnadeilda 0–3 ára barna við leik- skóla í Reykjavík miðar vel. Þessar deildir eiga að vera valkostur við dagforeldrakerfið. »Forsíða Læstur neyðarútgangur  Í gærmorgun var loks brugðist við ítrekuðum tilmælum slökkviliðs og lögreglu um að læstur neyð- arútgangur á Café Victor yrði opn- aður. »2 Landsnet stækkar  Landsnet hf. hefur keypt há- spennulínur af Orkuveitu Reykja- víkur og á nú allt meginflutningsnet raforku í landinu. Orkuveitan er nýr hluthafi í Landsneti. »9 Óttast blóðbað í Búrma  Um 100.000 manns tóku þátt í mótmælum sem búddamunkar stóðu fyrir í Búrma í gær. Einn af ráðherr- um herforingjastjórnarinnar í Búrma varaði munkana við og virtist beinlínis hóta því að beitt yrði vopnavaldi til að kveða andófið nið- ur. Margir óttast að niðurstaðan verði blóðbað. »Miðopna Segir ekki hættu á stríði  Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, sem ávarpar allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York í dag, kvaðst í gær ekki telja að Bandaríkjastjórn væri að undirbúa stríð við Íran. »13 SKOÐANIR» Staksteinar: Framsýni Eykons Forystugreinar: Dauðagildrur | Misræmi í greiðslum foreldra Ljósvaki: Menningaraukinn við … UMRÆÐAN» Knúið á lokaðar dyr? Sýnileg löggæsla ber árangur Háhraðatengingar á landsbyggðinni Opið bréf til Geirs og Ingibjargar  1  1 1 21 12 1 2 ! 3  4" + (  5   0 . +   1!  1! 1 21!  1 2 !12 12 * 6&. "   1 1! 1 21!  1 21 !!1 7899:;< "=>;9<?5"@A?7 6:?:7:7899:;< 7B?"66;C?: ?8;"66;C?: "D?"66;C?: "/<""?0E;:?6< F:@:?"6=F>? "7; >/;: 5>?5<"/("<=:9: Heitast 10 °C | Kaldast 1 °C  Fremur hæg SV eða breytileg átt og bjart með köflum en skúrir á stöku stað SA-lands síðdegis. » 10 Þeir sem vilja styrkja gott málefni geta boðið í gler- augu gleðigjafans Jóns Gnarrs í gegn- um netið. »38 UPPBOл Gleraugu Jóns Gnarrs AF LISTUM» Ian Rankin og John Re- bus óaðskiljanlegir? »39 Listamaðurinn Darri Lorenzen vígði nýtt gallerí, Project Gentili, á Ítalíu með einkasýn- ingu. »36 MYNDLIST» Darri sýnir á Ítalíu LEIKLIST» Gagnrýnandi er hrifinn af Góðu kvöldi. »37 LEIKLIST» Óráðni maðurinn var svolítið óráðinn. »41 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Maður á fertugsaldri fannst látinn 2. Ekkert bendir til sjálfsvígs 3. Minntust látins félaga 4. Skeggið veldur vandræðum Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is UM TVÖ hundruð ungmenni frá ýmsum heimshornum, sem búsett eru á Íslandi, héldu í gær málþing þar sem þau ræddu um reynslu sína af ís- lensku samfélagi, skólakerfið, vinnu- markaðinn, framtíðarsýn sína, óskir og langanir. „Málþingið er fyrsta skrefið í þá átt að fá ungmenni af erlendum uppruna til þess að sýna kjark og þor til að segja okkur hinum hvernig þau upp- lifa sig í íslensku samfélagi,“ segir Anh-Dao Tran, verkefnisstjóri Fram- tíðar í nýju landi, sem stóð fyrir mál- þinginu. „Mér finnst þessi hópur, þ.e. ungmenni af erlendum uppruna, svo- lítið týndur í íslensku samfélagi. Það er stöðugt verið að tala um þau og ræða hvað hægt sé að gera betur fyrir þau, en hins vegar hefur vantað upp á að leitað sé eftir ábendingum þeirra sjálfra og óskum. Við þurfum að hafa fyrir því að ná til ungmenna af erlend- um uppruna, hvetja þau áfram og styðja þau til náms og starfa með mun markvissari hætti en gert er í dag,“ segir Anh-Dao. „Það er alls ekki auðvelt að flytjast búferlum til annars lands og byrja frá grunni að skapa sér nýtt líf og fram- tíð,“ sagði Jorge Montalvo frá Kól- umbíu, jarðfræðinemi við HÍ. Segir hann vissulega ýmislegt neikvætt á Íslandi. „En ef við erum hingað komin til að setjast að þá reynum við að horfa framhjá því neikvæða. Mörg trúum við því að við getum átt betra líf hérlendis en heima. Við útlending- ar erum komnir hingað til þess að læra, en við getum samtímis miðlað af reynslu okkar, t.d. varðandi menn- ingu okkar og bakgrunn.“ | Miðopna Framtíð í nýju landi Málþinginu ætlað að skapa umræðuvettvang fyrir ungmenni af erlendum uppruna til þess að tjá sig um reynslu sína af því að setjast að á Íslandi Morgunblaðið/RAX Framtíð í nýju landi Um tvö hundruð ungmenni af erlendum uppruna voru saman komin í hátíðarsal MH í gær til að ræða reynslu sína af því að setjast að í nýju landi og aðlagast nýrri menningu og tungumáli. SIGURBERGUR Elísson, 15 ára knattspyrnumaður úr Keflavík, skráði nafn sitt í sögubækurnar þegar hann kom inn á í síðari hálfleik í viðureign Fylkis og Kefla- víkur sl. sunnudag í Lands- bankadeild karla. Hann er yngsti leikmaðurinn frá upphafi sem leikur í efstu deild en gamla metið átti Árni Ingi Pjetursson, frá árinu 1994. „Ég neita því ekki að mér brá mikið þegar Kristján þjálfari kallaði í mig og sagði mér að fara inn á. Ég fann fyrir miklum fiðringi í maganum,“ sagði Sigurbergur í gær. | Íþróttir „Með fiðring í maganum“ Sigurbergur Elísson ÞAÐ eru að verða talsvert miklar breytingar á fíkniefnamarkaðnum og þær eru allar í þá átt sem menn hafa verið að sjá erlendis. Þetta segir Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir meira fara fyrir hörðum efnum en að sama skapi sé hass ekki jafn ríkjandi á markaðnum og áður. Karl Steinar segir atburðarás undanfarinna daga sýna að lögreglan sé að kljást við menn sem vinna með mjög skipulögðum hætti, og því sé nauðsynlegt að lögregla geri slíkt hið sama. „Þetta kemur allt út á það sama. Við erum að tala um mjög skipulagða starfsemi og eina leið yfirvalda til að sporna við því er að vera með mjög skipulagðar aðgerðir sjálf, og það teljum við okkur hafa gert,“ segir Karl Steinar. | 8 Breyttur fíkniefnamarkaður Markaðurinn er að færast í átt að því sem gerist erlendis Morgunblaðið/Júlíus Fíkniefni Mikið af hörðum fíkniefnum fannst í skútu í höfninni á Fáskrúðsfirði í síðustu viku.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.