Morgunblaðið - 08.11.2007, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
úrslit
KÖRFUKNATTLEIKUR
Iceland Express-deild kvenna
Grindavík – Haukar ...........................88:90
Grindavík: Joanna Skiba 32., Tiffany Ro-
berson 31, Ólöf H. Pálsdóttir 9, Petrúnella
Skúladóttir 7, Berglind A. Magnúsdóttir
4, Íris Sverrisdóttir 3, Jovana L. Stefáns-
dóttir 2.
Haukar: Kiera Hardy 40, Kristrún Sig-
urjónsdóttir 19, Unnur T. Jónsdóttir 16,
Telma B. Fjalarsdóttir 5, Kristín F. Reyn-
isdóttir 4, Bára F. Hálfdanardóttir 3,
Hanna S. Hálfdanardóttir 3.
Keflavík – KR .....................................69:66
Keflavík: TaKesha Watson 23, Margrét
K. Sturludóttir 12, Pálína M. Gunnlaugs-
dóttir 10, Marín R. Karlsdóttir 10, Rann-
veig K. Randversdóttir 6, Hrönn Þor-
grímsdóttir 5, Ingibjörg E. Vilbergsdóttir
3.
KR: Monique Martin 26, Sigrún S.
Ámundadóttir 12, Hildur Sigurðardóttir
11, Guðrún G. Þorsteinsdóttir 8, Guðrún
Ó. Ámundadóttir 4, Sigurbjörg Þorsteins-
dóttir 3, Helga Einarsdóttir 2.
Staðan:
Keflavík 5 5 0 467:341 10
Haukar 6 5 1 509:474 10
KR 5 3 2 404:331 6
Grindavík 5 3 2 417:367 6
Fjölnir 5 1 4 311:391 2
Hamar 4 0 4 262:329 0
Valur 4 0 4 238:375 0
NBA-deildin
Leikir í fyrrinótt:
Charlotte – Phoenix ..........................83:115
New Jersey – Atlanta .........................87:82
New York –Denver .........................119:112
Milwaukee –Toronto .........................112:85
Minnesota – Orlando.......................103:111
Chicago – LA Clippers .......................91:97
Houston – San Antonio .......................89:81
Sacremento – Seattle ........................104:98
LA Lakers – New Orleans..............104:118
Golden State – Cleveland ...............104:108
KNATTSPYRNA
Meistaradeild Evrópu
E-RIÐILL
Barcelona – Rangers .............................2:0
Thierry Henry 6., Lionel Messi 43. –
86,476.
Lyon – Stuttgart.....................................4:2
Hatem Ben Arfa 6., 37., Kim Källström
15., Pernambucano Juninho 90. – Mario
Gomez 16., 56. – 35,000.
Staðan:
Barcelona 4 3 1 0 7:0 10
Rangers 4 2 1 1 5:3 7
Lyon 4 2 0 2 6:8 6
Stuttgart 4 0 0 4 3:10 0
F-RIÐILL
Manchester Utd. – Dynamo Kiev..........4:0
Gerard Piqué 31., Carlos Alberto Tevez
37., Wayne Rooney 76., Cristiano Ronaldo
88. – 75,017.
Sporting Lisbon – Roma........................2:2
Liedson 22., 64 – Marco Cassetti 4., And-
erson Polga (sjálfsmark) 89. – 32,273.
Staðan:
Man. Utd. 4 4 0 0 10:2 12
Roma 4 2 1 1 6:4 7
Sporting Lissabon4 1 1 2 5:6 4
Dynamo Kiev 4 0 0 4 3:12 0
G-RIÐILL
Fenerbahce – Eindhoven.......................2:0
Dirk Marcellis (sjálfsmark) 28., Senturk
Semih 30. – 47,000.
Inter Mílanó – CSKA Moskva................4:2
Zlatan Ibrahimovic 32., 75., Esteban
Cambiasso 34., 67. – Jo 23., Vagner Love
31.
Staðan:
Inter Mílanó 4 3 0 1 8:4 9
Fenerbache 4 2 2 0 5:2 8
PSV Eindhoven 4 1 1 2 2:5 4
CSKA Moskva 4 0 1 3 6:10 1
H-RIÐILL
Slavia Prag – Arsenal ............................0:0
Steaua Búkarest – Sevilla .....................0:2
Renato 25., 65.
Staðan:
Arsenal 4 3 1 0 11:0 10
Sevilla 4 3 0 1 8:6 9
Slavia Prag 4 1 1 2 4:12 4
Steaua Búkarest 4 0 0 4 2:7 0
HANDKNATTLEIKUR
Þýskaland
Lemgo – Balingen–Weilstetten .........30:28
Flensburg – Wetzlar...........................37:20
í kvöld
HANDKNATTLEIKUR
N1 deild kvenna:
Mýrin: Stjarnan – Valur ..........................18
N1 deild karla:
Mýrin: Stjarnan – HK .............................20
1. deild karla:
Seltjarnarnes: Grótta – Haukar 2...........19
KÖRFUKNATTLEIKUR
Iceland Express-deild karla:
Grindavík: Grindavík – Skallagrímur19.15
Njarðvík: UMFN – Stjarnan .............19.15
Seljaskóli: ÍR – Fjölnir .......................19.15
Stykkishólmur: Snæfell – Tindastóll .19.15
BADMINTON
Iceland Express International hefst í
TBR-húsinu. Undankeppni hefst kl. 13.30
og lýkur kl. 16.30.
íþróttir
Í ár koma erlendu keppendurnir frá
17 löndum úr Evrópu, Norður-, Mið-
og Suður-Ameríku og Asíu.
Ragna Ingólfsdóttir er fremst í
flokki íslensku keppendanna en hún
var í 53. sæti heimslistans þegar hann
var síðast gefinn út, fyrir viku. Hún er
metin þriðja sterkust í einliðaleik
kvenna en fyrir ofan hana eru Agnese
Allgrini frá Ítalíu sem er í 38. sæti og
Kati Tolmoff frá Eistlandi sem er í 45.
sæti. Mótið er því sterkara en opna
ungverska mótið í Búdapest sem
Ragna vann um síðustu helgi. Hún
mætir Stephanie Romen frá Ítalíu í
fyrstu umferð á morgun klukkan 15
en Romen er í 301. sæti heimslistans.
Ef úrslit verða eftir bókinni og
Ragna kemst í undanúrslit mætir hún
þar Kati Tolmoff. Sigri hún Stephanie
Roman í fyrstu umferðinni mætir
Ragna annaðhvort Christinu Ander-
sen frá Danmörku eða Rakel Jóhann-
esdóttur í 16-manna úrslitum kl. 20
annað kvöld
Fjöldinn í einliðaleik karla er það
mikill að leika þarf undankeppni í dag
sem hefst kl. 13.30 og lýkur kl. 16.30
en úr henni komast fjórir áfram í að-
alkeppnina sem hefst kl. 11 á morgun,
föstudag. Mótið heldur síðan áfram
allan laugardaginn og lýkur með úr-
slitaleikjum á sunnudag.
Fremstur í einliðaleik karla á
mótinu er Peter Koukal frá Tékklandi
sem er í 41. sæti heimslistans og hann
mætir Íslandsmeistaranum Magnúsi
Inga Helgasyni í fyrsta leik. Í tvíliða-
leik karla mæta til leiks þrjú pör sem
eru í hópi 100 efstu á heimslistanum,
og í tvíliðaleik kvenna mæta til leiks
pör sem eru í 39. og 52. sæti.
Ragna fær
harða keppni
Erlendir keppendur 58, íslenskir 29 Koma frá 17 löndum
og þremur heimsálfum Undankeppni í TBR-húsum í dag
Morgunblaðið/Kristinn
Sterk Ragna Ingólfsdóttir, Íslands-
meistari í badminton
HVORKI fleiri né færri en 58 er-
lendir keppendur taka þátt í al-
þjóðlega badmintonmótinu Iceland
Express International sem hefst í
TBR-húsunum í Reykjavík í dag.
Þeir eru helmingi fleiri en Íslend-
ingarnir sem eru 29 talsins. Þátt-
takendur eru fimmtán fleiri en í
fyrra en þá voru þeir 72, þar af 49
erlendir. Í ár koma erlendu kepp-
endurnir frá 17 löndum úr Evrópu,
Norður-, Mið- og Suður-Ameríku
og Asíu.
SPÆNSKA blaðið El
Mundo Deportivo hef-
ur útskýrt hvers vegna
Ronaldinho og Eiður
Smári Guðjohnsen
fögnuðu síðara marki
Brasilíumannsins gegn
Real Betis á þann hátt
sem þeir gerðu.
Ronaldinho skoraði
öðru sinni beint úr aukaspyrnu, á loka-
mínútunni, og hann og Eiður fögnuðu
þannig að Ronaldinho benti ákveðið með
fingri, upp og niður, og Eiður hneigði
sig. Blaðið skýrði frá því að þeir Ronald-
inho og Eiður hefðu setið að spjalli yfir
kaffibolla á hóteli liðsins fyrir leikinn.
Ronaldinho hefði þá sagt við Eið að hann
ætlaði að þagga niður í gagnrýnisrödd-
um í sinn garð með því að skora tvö
mörk beint úr aukaspyrnum.
Blaðið segir að hinn geðþekki Eiður,
sem sé afar vinsæll í leikmannahópi
Barcelona, hafi hlegið dátt að þessari yf-
irlýsingu félaga síns en síðan verið fljót-
ur að taka undir með honum þegar hann
skoraði seinna markið. Enda sé Eiður
góður félagi sem hiki ekki við að sýna til-
finningar sínar og faðmi liðsfélaga sína
af afli, eins og björn. Þá er sagt í grein-
inni að Eiður og Ronaldinho hafi stutt
hvor annan á erfiðum tímum, og Eiður
hafi fengið góðan stuðning frá Brasilíu-
manninum snjalla á meðan hann var ekki
í náðinni hjá Frank Rijkaard, þjálfara
Barcelona, fyrr í haust.
Fagn Eiðs og
Ronaldinhos
útskýrt
Eiður Smári
Það var mikil spenna í leikjum gær-
kvöldsins í Iceland Express-deild
kvenna í körfuknattleik.
Kiera Hardy skoraði 40 stig fyrir
Íslandsmeistaralið Hauka sem sigr-
aði Grindavík á útivelli, 90:88, í
framlengdum leik. Staðan var 81:81
að loknum venjulegum leiktíma.
Keflavík sótti KR heim og þar var
einnig mikil spenna á lokamínútum
leiksins. Keflavík hafði betur, 69:66,
og hefur liðið sigrað í fimm fyrstu
leikjunum á leiktíðinni en Íslands-
meistaralið Hauka hefur einnig 10
stig en liðið hefur leikið 6 leiki.
Hardy og Joanna Skiba, leik-
maður Grindavíkur, settu upp mikla
skotsýningu í gær. Skiba skoraði 32
stig fyrir Grindavík og Tiffany Ro-
berson var með 31 stig fyrir heima-
liðið. Hardy skoraði 8 þriggja stiga
körfur í leiknum úr alls 19 tilraunum
en samtals skoraði Haukaliðið 11
slíkar körfu. Skiba skoraði einnig 8
þriggja stiga körfur en hún þurfti
aðeins 12 tilraunir. Þegar 5 sek-
úndur voru eftir af venjulegum leik-
tíma fékk Skiba tækifæri til þess að
koma Grindavík yfir í leiknum.
Skiba tók tvö vítaskot en hún hitti
ekki úr þeim og leikurinn fór því í
framlengingu þar sem að Haukar
voru með yfirhöndina. Kristrún Sig-
urjónsdóttir skoraði síðasta stig
leiksins úr vítaskoti tveimur sek-
úndum fyrir leikslok.
Efsta lið deildarinnar, Keflavík,
tók á móti KR. Þar hafði Keflavík
betur, 69:66, en þetta er fimmti sig-
urleikur Keflavíkurliðsins í röð í
deildinni. TaKesha Watson skoraði
23 stig fyrir Keflavík en Margrét
Sturludóttir var með 12. Í liði KR
var Monique Martin með 26 stig og
20 fráköst. Sigrún Ámundadóttir lék
vel í liði KR en hún skoraði 12 stig
og tók 13 fráköst. Keflavíkurliðið
varð fyrir miklu áfalli í upphafi vik-
unnar þegar landsliðskonan Bryndís
Guðmundsdóttir sleit krossband í
hné í leik með unglingaflokki. Bryn-
dís verður ekki meira með liðinu í
vetur en hún hafði skorað 20 stig að
meðaltali í fyrstu fjórum leikjunum.
Kiera Hardy
og Skiba með
skotsýningu
Morgunblaðið/G. Rúnar
Lykilmaður TaKesha Watson hefur leikið frábærlega með Keflavíkurliðinu.
PETR Cech markvörður Chelsea og tékkneska landsliðsins verður frá
keppni í næstu leikjum vegna meiðslanna sem hann hlaut í leiknum gegn
Schalke í Meistaradeildinni í fyrrakvöld. Cech þurfti að hætta leik eftir fyrri
hálfleikinn en hann meiddist á kálfa og við myndatöku í gær kom í ljós rifa á
kálfavöðva. Tékkinn snjalli mun því ekki verja mark Chelsea gegn Everton í
úrvalsdeildinni á laugardaginn og hann kemur til með að missa af leikjum
Tékka gegn Slóvökum og Kýpurbúum í undankeppni EM sem fram fara 17.
og 21. þessa mánaðar.
,,Ég veit ekki hvað gerðist. Ég fann bara fyrir verk í kálfanum eftir tíu
mínútna leik en spilaði þó út fyrri hálfleikinn. Ég er slæmur í fætinum og
verð frá í einhvern tíma,“ sagði hinn 25 ára gamli Cech í samtali við fréttavef
BBC.
Meiðsli Cech koma á vondum tíma fyrir Lundúnaliðið því þrír varnarmenn
liðsins eru á sjúkralistanum, fyrirliðinn John Terry, Ashley Cole og Paulo
Feirrera.
Á síðustu leiktíð gekk Chelsea allt í mót þegar Cech og Terry voru fjarri
góðu gamni vegna meiðsla. Cech höfuðkúpubrotnaði og missti af 24 leikjum
liðsins en hann er af mörgum talinn einn besti markvörður heims í dag.
Cech frá keppni
E
2
v
N
v
T
m
ö
s
i
a
I
m
h
v
S
í
M
v
s
a
g
K
A
g
f
i