Morgunblaðið - 08.12.2007, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2007 39
UM mánaðamótin
júlí-ágúst síðastliðinn
var byggðakvóta út-
hlutað til báta á Sauð-
árkróki fyrir fisk-
veiðiárið 2006-2007.
Þessi kvótaúthlutun
var reyndar nokkuð
seint á ferðinni þar
sem nýtt kvótaár byrj-
ar 1. september. Þá er
þess að geta að kærur
vegna úthlutunar geta
borist, og þær þurfa
að fá sína máls-
meðferð, og ekki er
hægt að hefja veiðar
fyrr en þær hafa verið
afgreiddar.
Einnig voru þau
skilyrði sett fyrir út-
hlutun að aflanum
skyldi landað á Hofs-
ósi, hjá fiskvinnslu
sem tæki aflann til
vinnslu. Verðlagning
skyldi vera sam-
kvæmt Verðlagsstofu
skiptaráðs og sett veð
fyrir greiðslu.
Bátur undirritaðs,
Helga Júlíana SK-23, fékk úthlutað
6.570 þorskígildum, þar af voru tæp
fimm tonn þorskur. Um mán-
aðamótin september-október var
komið grænt ljós frá Fiskistofu um að
hefja mætti umræddar veiðar.
Farið var í róður seinnipartinn
hinn 2. október sl. og ætlunin að
landa seinnipart daginn eftir. Ekki
gekk það eftir þar sem gerði brælu
um nóttina (sem betur fór) og var því
báturinn kominn að bryggju á Hofs-
ósi að morgni 3. október. Ekki var nú
aflinn mikill, eða um 300 kg þorskur
og rúm 600 kg ufsi, aðgerður, sem
landað var á Sauðárkróki seinna um
daginn.
Samkvæmt vigtarnótu frá Hofs-
óshöfn var þorskur 270 kg + 23 kg
undirmál sem glatast hefur á leiðinni
frá hafnarvog að fiskvinnslu þar sem
hann kemur hvergi fram á afreikn-
ingi, einungis 270 kg þorskur.
Fiskurinn var veginn og flokkaður
af kaupanda, sem þótti við hæfi að
borga 122 krónur fyrir kílóið. Lagt
var upp með að landa þyrfti tonni á
móti tonni og stóðum við í þeirri trú
að við hvert landað tonn fengjum við
tonn af byggðakvóta á móti. En ekki
var því nú aldeilis fyrir að fara,
gleymst hafði að lesa smáa letrið.
Við nánara samtal við Fiskistofu
kom í ljós að fiska þurfti tvö tonn á
móti hverju lönduðu tonni og landa
því öllu áður en byggða-
kvótinn fengist afhentur.
Það þýðir að ég hefði
þurft að landa tíu tonnum
fyrir áramót til að fá þessi
fimm tonn afhent en
haust- og vetrarmánuðir
eru ekki heppilegasti tím-
inn til handfæraveiða. En
allt um það.
Kostnaðarhliðin
Þá er það hin hliðin á
málinu sem snýr að
kostnaði. Segjum svo að
leigja hefði þurft stóran
hluta aflans, skiptir reynd-
ar ekki máli þar sem leigu-
verðmæti er það sama.
Leiguverð í krókaafla-
marki á þorski er í dag 220
þúsund krónur sem þýðir
að leiga á 10 tonnum kost-
ar 2,2 milljónir króna.
Miðað við að fá 122 krónur
fyrir kílóið fást 1,220 millj-
ónir fyrir 10 tonnin. Það
vantar því rétt um eina
milljón til að endar nái
saman í aflaverðmæti mið-
að við þessar forsendur og
er þá eftir útgerðarkostn-
aður og mannakaup. (Það er eins gott
að vera í þokkalega launuðu starfi til
þess að geta staðið í þessu!).
Einnig landaði báturinn Vinur
SK-22 um 600 kílóum af þorski og er
svipaða sögu að segja af útkomunni
úr því dæmi.
Til að fullkomna vitleysuna hvarf
fiskverkandinn af svæðinu og hefur
ekki spurst til hans. Það er því enginn
á Hofsósi sem getur tekið á móti fiski
og fullnægt þeim skilyrðum sem
gerðar eru samkvæmt reglum um út-
hlutun byggðakvóta.
Það er því ljóst að samkvæmt áætl-
un um að efla atvinnulíf á Hofsósi með
90.000 þorskígildum af byggðakvóta,
og tvö tonn á móti tonni eða samtals
270.000 þorskígildum, verður ein-
ungis landað tæpu tonni af þorski á
þessu ári, hitt fellur dautt niður.
Þessi framkvæmd skýtur ef til vill
sterkari stoðum undir það að við bú-
um við besta fiskveiðistjórnunarkerfi
í heimi. Hefði ekki verið betra að
FISK Seafood hf. á Sauðárkróki hefði
fengið að njóta góðs af þessu þar sem
skerðingin var um tvö þúsund tonn?
Byggðakvóti til
bjargar Hofsósi
Steinar Skarphéðinsson
skrifar um úthlutun byggða-
kvóta í Skagafirði
Steinar Skarphéðinsson
» Það er þvíenginn á
Hofsósi sem
getur tekið á
móti fiski og
fullnægt þeim
skilyrðum sem
gerðar eru sam-
kvæmt reglum
um úthlutun
byggðakvóta.
Höfundur er vélfræðingur og starfar
sem öryggisvörður á Landspítalanum
við Hringbraut.
SVEITARFÉLÖGIN hafa
ákveðnar lögskyldur vegna veiða á
ref og minki og ber að ráða kunn-
áttumenn til veiða á þeim villidýr-
um. Væntanlega eru þær skyldur
settar til að koma í veg fyrir óhóf-
lega fjölgun þessa vargs í þeim til-
gangi að draga úr
þeim skaða sem hann
veldur í náttúru lands-
ins.
Verndun náttúrunn-
ar er ekki einkamál
íbúa einstakra sveitar-
félaga. Fjölskrúðugt
fuglalíf er hluti ís-
lenskrar náttúru og
allir landsmenn hafa
möguleika á að njóta
þess unaðar sem það
veitir. Refir og minkar
eru skaðsamir í varp-
löndum, valda fuglum
grandi og minkurinn er auk þess af-
kastamikill skaðvaldur í seiðabú-
skap laxa og silunga í ám og vötn-
um. Af framangreindri ástæðu eru
refirnir unnir og minkurinn líka
drepinn.
Hluti kostnaðar sveitarfélaga
vegna refa- og minkaveiða er end-
urgreiddur úr ríkissjóði. Í því felst
viðurkenning á því sjónarmiði að
það sé ekki einkamál íbúa einstakra
byggðarlaga að halda varginum í
skefjum. Upphaflega var ráð fyrir
því gert að endurgreiðslan næmi
50% af kostnaði við veiðarnar. Um
endurgreiðsluna gilda nú ákveðnar
reglur og fjármunir til verkefnisins
ráðast af því hvað tilgreint er í fjár-
lögum hverju sinni. Séu þessar end-
urgreiðslur skoðaðar sem hlutfall af
heildarkostnaði kemur í ljós að
heldur betur hallast þar á, sveit-
arfélögunum í óhag.
Á árinu 2006 námu endurgreiðsl-
urnar tæplega 24% af heildarkostn-
aði. Sé tekið tillit til þess að ríkið
innheimtir virð-
isaukaskatt af kostnaði
við veiðarnar nemur
kostnaðarhlutdeild rík-
isins aðeins um 12% af
heildarkostnaðinum. Á
því ári nam heild-
arkostnaður við veið-
arnar rúmlega 114
m.kr. en endurgreiðsla
ríkisins að frádregnum
tekjum þess af virð-
isaukaskatti rúmum 14
m.kr.
Kostnaður sveitarfé-
laganna vegna þessa
verkefnis er hæstur í víðáttumiklum
sveitarfélögum og þar getur hann
jafnframt verið mjög hár á hvern
íbúa og sem hlutfall af skatttekjum
sveitarfélagsins. Hæstur er kostn-
aðurinn tæplega 17.000 kr. á íbúa
og nemur um 3,4% af heildarskatt-
tekjum þess sveitarfélags. Fjöl-
mennustu sveitarfélögin þurfa engu
til að kosta í þessu náttúruvernd-
armáli.
Ríkisvaldið hefur ákveðið að friða
ref innan marka þjóðgarða, eins og
á Hornströndum. Að áliti kunnugra
hefur það leitt til fjölgunar refs í ná-
grenni friðunarsvæða, valdið mikl-
um skaða á fuglalífi, og leitt til auk-
ins kostnaðar þeirra sveitarfélaga
sem næst þeim liggja. Í ljósi um-
ræddrar friðunar og þess hve ríkið
tekur lítinn þátt í kostnaði við þetta
verkefni, sem þó varðar landsmenn
alla, er ekki nema eðlilegt að sumir
velti því alvarlega fyrir sér hvort
hlutaðeigandi sveitarfélög eigi ekki
að hætta refa- og minkaveiðum.
Í frumvarpi til fjárlaga 2008, sem
nú er til umfjöllunar á Alþingi, er
gert ráð fyrir 30 m.kr. til þessa
verkefnis. Sú fjárhæð þarf að
hækka í 60 m.kr. til að endur-
greiðsluhlutfallið nemi um 50% eins
og upphaflega var ætlunin. Auðvit-
að er endurgreiðsluhlutfallið þó
lægra sé tekið tillit til þeirra tekna
sem ríkið hefur af virðisaukaskatt-
inum og ekki fæst endurgreiddur.
Réttast væri að ríkið bæri kostn-
að af því að verja náttúru landsins
fyrir skaða af völdum refa og
minka. Lágmarkskrafa er að ríkið
greiði helming þess kostnaðar sem
hlutaðeigandi sveitarfélög hafa af
því verkefni. Ákvörðun þar um ligg-
ur hjá ráðherrum og alþing-
ismönnum.
Til hvers eru refirnir unnir?
Þórður Skúlason segir ríkið
ekki greiða sinn hlut í eyðingu
refa og minka
»Réttast væri að ríkiðbæri kostnað af því
að verja náttúru lands-
ins fyrir skaða af völd-
um refa og minka.
Þórður Skúlason
Höfundur er framkvæmdastjóri
Sambands íslenskra sveitarfélaga.
JÓN Þ. Þór, sá ágæti sagnfræð-
ingur, skrifar nokkuð harða ádrepu
um bók Guðna Ágústssonar og Sig-
mundar Ernis Rúnarssonar í Morg-
unblaðið á fimmtudaginn. Jón, sem
venjulega er kurteis og sanngjarn í
dómum, nær varla upp í nefið á sér,
talar um ,,marflatan blaðamanna-
texta“ og ,,flaustursleg vinnubrögð“
og klykkir út með því að líkja bók-
inni um Guðna við heilagra manna
sögur.
Jón er líka búinn að reikna út hve
langur (eða stuttur, öllu heldur) tími
fór í ritun bókarinnar, og finnst ekki
mikið til um. Þá bendir hann á að
Freysteinn Jóhannsson er ranglega
sagður Guðmundsson, og það bæði í
texta og nafnaskrá. Síðast en ekki
síst er Sigmundur Ernir skamm-
aður eins og skólakrakki fyrir að
skrifa að Albert Guðmundsson hafi
verið ,,veðraður af veraldarbrölti“
og loks gerir Jón stólpagrín að Sig-
mundi fyrir að líkja ríkisstjórn-
arsamstarfi við ráðahag.
Þetta eru auðvitað misþungar
sakargiftir. Þær sem snúast um
smekk verður ekki deilt um. Þar
sem Jón Þ. Þór sér marflatan blaða-
mannatexta sé ég fantavel skrifaða
og safaríka frásögn, ríkulega krydd-
aða kímni, af pólitískri sögu síðustu
áratuga. Auðvitað frá sjónarhóli
Guðna Ágústssonar, en það er líka
skemmtilegur sjónarhóll, og í hæsta
máta fróðlegt að skoða landslagið
þaðan. Ég dáðist einmitt mjög að
frásagnaraðferð Sigmundar Ernis,
því úr verður einskonar pólitísk
spennusaga með litríkri aðal-
persónu, sem bæði hefur húmor fyr-
ir sjálfum sér og öðrum.
Nei, það verður ekki deilt um
smekk, en mér fannst Jón Þ. Þór
óþarflega strangur í einstökum at-
hugasemdum. Fólk veðrast í verald-
arinnar brölti – og hvað er að því að
líkja samstarfi í ríkisstjórn við ráða-
hag? Ég skil ekki aðfinnslur Jóns í
þessum efnum, en ugglaust hefur
hann bara þróaðri máltilfinningu en
ég.
Um leið og ég ítreka, að ég ber
fulla virðingu fyrir sjónarmiðum
sagnfræðingsins Jóns Þ. Þór, þá vil
ég þakka fyrir að deila þeim ekki
með honum. Mér fannst bókin um
Guðna stórskemmtileg lesning. Vel
skrifuð og fróðleg. Og svei mér ef ég
varð ekki framsóknarmaður í sælu-
ríkt korter, eftir að lestri lauk. En
bara í korter!
Hrafn Jökulsson
Guðni frá mínum bæjarhóli
Höfundur býr í Trékyllisvík.
Sóleyjarimi 5, íbúð 0602, Rvk.
Opið hús í dag á milli 14 og 16
M
bl
9
46
40
5
Til sölu glæsileg og vel skipulögð 104,4 fm. 3ja til 4ra herb. íbúð á 6. og
efstu hæð í nýlegu fjölbýlishúsi við Sóleyjarima 5 í Reykjavík. Glæsilegar
innréttingar og skápar. Falleg gólfefni, parket og flísar. Vandað baðherbergi
með nuddbaðkeri. Stórar svalir. Glæsilegt útsýni er úr íbúðinni.
Tvinn ísskápur og uppþvottavél fylgja íbúðinni. Stutt er í alla þjónustu.
Stæði í opnu bílskýli fylgir. Verð 29,9 millj.
Guðni, sími: 895-0102, og Bertha
sýna íbúðina á milli 14 og 16 laugardag og sunnudag.