Morgunblaðið - 08.12.2007, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2007 41
AÐ undanförnu hafa verið gerðar
umfangsmiklar kjarakannanir á veg-
um heildarsamtaka launafólks og
einstakra stéttarfélaga sem hafa
leitt það ótvírætt í ljós að almanna-
þjónustan er að dragast aftur úr
einkageiranum hvað launakjör
áhrærir. Enda þótt þetta sé ekki ein-
hlítt og til séu svið bæði innan al-
mannaþjónustunnar og á einka-
markaði þar sem þróunin hefur ekki
verið á þennan veg þá er þetta engu
að síður hin almenna regla. Í könnun
sem framkvæmd var á vegum SFR –
stéttarfélags í almannaþjónustu kom
til dæmis í ljós að launamunur var að
meðaltali um 20% milli starfsmanna
á almennum vinnumarkaði og þeirra
sem vinna hjá hinu opinbera. Þessi
munur kom bæði fram þegar bornar
voru saman sambærilegar starfs-
greinar og einnig þegar borin voru
saman sambærileg störf eða starfs-
heiti. Í samanburðinum milli starfa
var munurinn allt upp í 39% milli
sambærilegra starfa.
Í rauninni þarf þetta ekki að koma
neinum á óvart því slík hefur þensl-
an verið í ýmsum atvinnugreinum
með tilheyrandi eftirspurn eftir
vinnuafli. Afleiðingarnar hafa meðal
annars verið þær að fólk sem ella
hefði farið til starfa innan almanna-
þjónustunnar leitar nú á gjöfulli mið.
Ekki hvað síst á það við um ungt fólk
sem er að festa kaup á húsnæði með
lánum sem nú rjúka upp úr öllu valdi
með ofurþungum vaxtaklyfjum.
Eðlilegt er að þetta fólk sæki í þau
störf sem vel gefa af sér.
Aðalfundur BSRB ályktar
Afleiðingarnar innan almanna-
þjónustunnar segja þegar til sín,
m.a. í vaxandi erfiðleikum fjölda
stofnana við að manna störf. Í allt
sumar hafa borist fréttir af mönn-
unarvanda á velferðarstofnunum.
Um þetta var sérstaklega fjallað á
nýafstöðnum aðalfundi BSRB. Í
ályktun fundarins sagði um þetta
efni: „Sums staðar er manneklan slík
að horfir beinlínis til landauðnar. Á
sjúkrahúsum og dvalarheimilum fyr-
ir aldraða, á stofnunum fyrir fatlaða,
innan löggæslunnar og víðar í
grunnþjónustu samfélagsins verður
sífellt erfiðara að ráða fólk til starfa
á þeim kjörum og við þau skilyrði
sem starfsfólki eru búin. Manneklan
veldur síðan enn meira
álagi á starfsfólkið og
vinda erfiðleikarnir
þannig upp á sig.“
Með puttann
á púlsinum
Nú er það ekkert
nýtt að fólk kvarti und-
an allt of lágum laun-
um sem greidd eru
víða innan velferð-
arþjónustunnar. Það
er hins vegar mik-
ilvægt að viðsemj-
endur stéttarfélaga
innan almannaþjónustunnar búi sig
undir komandi kjarasamninga með
það í huga að verði ekki gerð veruleg
bragarbót á kjörum starfsfólks eru
alvarlegar blikur á lofti. Á aðalfundi
BSRB kemur saman fólk sem hefur
fingurinn á púlsi velferðarkerfisins.
Umræðan á fundinum var öll á einn
veg og ályktun sem aðalfundurinn
sendi frá sér endurspeglar þann
þunga sem var í fundarmönnum.
Eigi lakara en best gerist
Í niðurlagi ályktunarinnar segir:
„Samfélagið þarf að horfast í augu
við þá staðreynd að ef lengur verður
látið reka á reiðanum stefnir í óefni,
ef ekki neyðarástand. Í ljósi þessa
krefst BSRB … að kjör innan al-
mannaþjónustunnar verði stórbætt
og starfsfólki þar eigi búin lakari
kjör en þau sem best gerast á vinnu-
markaði.“
Rétta þarf hlut
almannaþjónustunnar
Árni Stefán Jónsson og Elín
Björg Jónsdóttir skrifa um
kjarakannanir á vegum
heildarsamtaka launafólks
og einstakra stéttarfélaga
»Bæta þarf kjörstarfsfólks í al-
mannaþjónustu verulega
í komandi samningum.
Elín Björg Jónsdóttir
Árni Stefán er formaður SFR – stétt-
arfélags í almannaþjónustu. Elín
Björg er formaður Félags opinberra
starfsmanna á Suðurlandi. Bæði eru
jafnframt varaformenn BSRB.
Árni Stefánsson
GREIN þessi er skrifuð í tilefni út-
komu bókarinnar Tíu litlir negra-
strákar og vil ég þakka Gauta Egg-
ertssyni fyrir frábæra grein, „Viðhorf
einsleitninnar afhjúpaðar“, sem birt-
ist í Morgunblaðinu. 1. nóvember. Í
greininni fjallar Gauti um vanþekk-
ingu Íslendinga á þjáningum banda-
rískra blökkumanna,
ekki síst þeirri meðferð
sem þeir sættu eftir að
þeir fengu frelsi. Ég
skynjaði sambærilega
vanþekkingu hjá sjálfri
mér gagnvart helför
gyðinga þegar ég kom
til New York fyrir þrjá-
tíu árum. Þar kynntist
ég börnum fólks sem
hafði lifað af hörm-
ungar útrýmingarbúð-
anna og það sló mig
þegar ég áttaði mig á
að einu ættingjar vin-
konu minnar á lífi voru
foreldrar hennar og
föðurbróðir. Mér varð
hugsað til Íslands, til
pabba, mömmu, afa og
ömmu og endalausra
raða frændsystkina,
sem öll lifðu góðu lífi á Íslandi. Eini
stríðsglæpurinn sem hafði snert fjöl-
skyldu mína var að móðursystir mín
hafði gifst bandarískum hermanni.
Ég hafði alist upp í þeirri trú að slík
ástarsambönd hefði verið það versta
sem kom fyrir íslensku þjóðina á
stríðsárunum. Áðurnefnd vinkona
mín var ofurnæm á allt sem bar vott
um gyðingahatur og kynni mín af
henni gerðu mig læsa á orð, tákn og
myndir sem ég hafði ekki áður borið
skynbragð á. Ég áttaði mig á að
brandarinn sem sagður var á Íslandi
um gyðinga sem gengu fram hjá Slát-
urfélagi Suðurlands, merkt SS, og
hlupu á brott, var ekkert fyndinn,
heldur smekklaus og sýndi ótrúlegt
ónæmi á þjáningar gyðinga. Engum
stafaði ógn af Sláturfélagi Suðurlands
nema íslenskum búfénaði en það ber
vott um ónæmið sem ég tel að hafi al-
mennt ríkt á Íslandi á hörmungar
stríðsins, að það hafi aldrei svo mikið
sem hvarflað að neinum að breyta
skammstöfun félagsins eftir stríð úr
SS í til dæmis, SLS. Tákn eins og SS
eru í sjálfu sér merkingarlaus það er
menningarlegt og sögulegt samhengi
sem gefur þeim merkingu. Eftir
stríðið varð skammstöfunin SS að
tákni grimmdar í meðvitund heimsins
og aðrar merkingar viku til hliðar og
fáir nema þá öfgahópar leyfa sér að
halda þessu tákni á lofti í dag. Það var
annað tákn sem fór að velkjast fyrir
mér eftir kynni mín að vinkonu minni
í New York. Það var tákn þjóð-
arstolts Íslendinga, Eimskipafélags-
ins, hakakrossinn. Sem krakka var
mér sagt að hakakross Eimskipa-
félagsins væri ekki eins og hakakross
nasista, hakarnir sneru í aðra átt og
krossinn hallaði á annan hátt en
hakakross Hitlers. Þegar ég síðar var
blaðamaður kynnti ég mér þetta og
komst að því að það var enginn mun-
ur á hakakrossi Eimskipafélagsins og
hakakrossi Hitlers, því til staðfest-
ingar birti ég mynd af nasistaflaggi
við hlið hakakross Eimskipafélagsins.
Við engan var að sakast. Hakakross-
inn er ævafornt sóltákn, tákn upprisu
og vonar og Eimskip tók þetta tákn
upp löngu fyrir tíma Hitlers. En
reynsla stríðsáranna breytti merk-
ingu þessa tákns upprisu og vonar í
tákn grimmdar og dauða, en þessi
merkingarbreyting skilaði sér ein-
hvern veginn ekki inn í meðvitund Ís-
lendinga. Starfsmaður Eimskips tjáði
mér að eftir að útgáfa flugtímaritsins
„Atlantica“ hófst hafi Eimskip aug-
lýst starfsemi sína þar með haka-
krossinum og hafi fengið kvört-
unarbréf erlendis frá og fór svo að
lokum að Eimskip felldi táknið niður.
Ég hélt að alþjóðavæðingin á und-
anförnum árum hefði útmáð þetta
ólæsi á merkingu erlendra tákna, en
útgáfa bókarinnar Tíu litlir negra-
strákar gefur þó til kynna að svo er
ekki með öllu. Það er áhugavert í mál-
flutningi þeirra sem verja útgáfuna
að þeir telja að hér sé um verndun
þjóðararfsins að ræða þetta sé al-
íslensk bók eftir ástsælustu lista-
menn þjóðarinnar. Textinn algjör
snilld og orðið negri ákaflega gott
orð. Myndir bókarinnar bera vott um
íslenska listsnilld og eftir Mugg liggi
önnur þjóðargersemi,
sagan af Dimmalimm.
Munurinn er bara sá að
Dimmalimm var und-
urfögur og alíslensk og
þjáðist ekki af sjálfseyð-
ingarhvöt, eins og neg-
rakrúttin tíu. En er það
bara verndun þjóð-
ararfsins sem vakir fyrir
útgefendum? Býr eitt-
hvað annað og meira að
baki útgáfunnar? Ég las
einhvers staðar að lengi
hafi ekkert forlag viljað
ráðast í endurútgáfu
bókarinnar, en nú væru
breyttir tímar. Já, tím-
arnir eru vissulega
breyttir, nú búa á Ís-
landi 17 þúsund erlendir
verkamenn, auk nokk-
urra þúsunda barna og
fullorðinna íslenskra ríkisborgara af
erlendum toga, sumir dekkri á húð og
hár en hinn almenni Íslendingur. Er
það algjör tilviljun að einmitt nú hafi
sprottið upp þessi þörf til að vernda
þjóðararfinn og gefa út bók, sem var
upphaflega rituð á tímum magnaðs
kynþáttahaturs og var liður í því að
halda hinum „útlendu“, hinum
„óæðri“, hinum „lituðu“ undir hæl og
utangátta í samfélaginu? Mér er
spurn. Ég vona svo sannarlega að út-
gáfa þessarar bókar verði til að vekja
Íslendinga til meðvitundar um sögu
kynþáttahaturs og grimmilegar af-
leiðingar þess. Á Íslandi bjó lengst af
einsleit þjóð, sem stóð utan við kyn-
þáttablöndun og kynþáttaátök. Nú
eru breyttir tímar og því þörf að ræða
þessi mál til að varna því að í framtíð-
inni verði sýningarbás á Þjóðminja-
safninu sem sýnir sögu kynþáttahat-
urs á Íslandi í máli og myndum.
Verndun
þjóðararfsins?
Inga Dóra Björnsdóttir
skrifar í tilefni af endurútgáfu
bókarinnar Tíu litlir
negrastrákar
Inga Dóra Björnsdóttir
» Textinn al-gjör snilld og
orðið negri ákaf-
lega gott orð.
Höfundur er mannfræðingur.
Náttsloppar
og náttfatnaður
í úrvali
Gott verð
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
frá kr. 19.990
Nú er
frábær
t
skíðafæ
ri í
Austur
ríki!
Austurríki
Skíðaveisla í
Þú mætir með miðann sem fylgdi Morgunblaðinu laugardaginn 8. des. til
Heimsferða, Skógarhlið 18, eða á einhverja af umboðsskrifstofum þeirra.
Einnig er unnt að bóka tilboðið á www.heimsferdir.is
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
3
12
24
Frábært sértilboð fyrir áskrifendur Morgunblaðsins
10 eða 11 dagar
– frábært sértilboð!
Morgunblaðið, í samstarfi við Heimsferðir,
býður áskrifendum sínum frábær tilboð í
ferðir til Austurríkis í janúar. Um er að ræða
frábær sértilboð á flugsætum og á vinsæl-
um gististöðum í Flachau, Lungau og víðar,
5. eða 15. janúar í 10 eða 11 nætur. Þarna
eru frábær skíðasvæði, með góðum brekk-
um af öllu tagi og net af afbragðs lyftum
sem ætti að tryggja öllum skíðamönnum
það besta sem völ er á í fríinu. Gríptu þetta
frábæra tækifæri og smelltu þér í einstaka
skíðaveislu með Heimsferðum og njóttu
lífsins til hins ýtrasta í Austurríki.
Ath. takmarkaður fjöldi flugsæta og
herbergja í boði á þessu tilboðsverði!
5. eða
15. janúar
Frábær jóla-
gjöf fyrir alla
fjölskylduna.
Áskr. verð Alm. verð Þú sparar
5. / 15. jan. allt að
Flugsæti
Flugsæti báðar leiðir með sköttum 19.990 30.790 10.800
Skihotel Speiereck (með hálfu fæði) - Lungau
Gisting í tvíbýli með hálfu fæði 66.990 89.590 22.600
Hotel Unterberghof (með hálfu fæði) - Flachau
2 fullorðnir og 2 börn (2-11 ára) í fjölsk.herbergi 89.990 125.195 35.205
Gisting í tvíbýli með hálfu fæði 99.990 129.190 29.200
Pension „án nafns“ í Zell am See/Schuttdorf/Kaprun (með morgunv.) *
Gisting í tvíbýli með morgunverði 54.990 85.590 30.600
Innifalið í verði er flug, skattar, gisting í viku (fæði skv. því sem valið er) og fararstjórn.
Birt með fyrirvara um prentvillur. Verð getur breyst án fyrirvara.
* Gististaður án nafns, þ.e. farþegi fær uppgefið nafn gististaðar í síðasta lagi 4 dögum fyrir brottför. Er að öllu jöfnu
„pension“, þ.e. einfalt snyrtilegt gistihús eða heimagisting, herbergi með sér baðherbegi. Oftast er setustofa eða annað
sameiginlegt rými og öll nauðsynleg þjónusta, en sjaldnast veitingastaður fyrir kvöldmat.
Fjölbreyttir valkostir - frábært verð!
Þú sparar allt aðkr. 35.205á mann- allt að 140.820 kr. fyrir fjölskylduna
Netverð á mann