Morgunblaðið - 08.12.2007, Page 46
46 LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Arndís GuðrúnÓskarsdóttir
(Lillý) fæddist á
Sleitustöðum í Kol-
beinsdal 28. júlí.
1941. Hún lést á
Heilbrigðisstofnun
Sauðárkróks laug-
ardaginn 1. desem-
ber síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Sigrún
Sigurðardóttir hús-
freyja á Sleitustöð-
um, f. 16.10. 1910, d.
23.9. 1988 og Óskar
Gíslason bóndi á Sleitustöðum, f.
12.7. 1897, d. 27.7. 1977. Bróðir
Lillýjar er Þorvaldur Gísli, f. 2.10.
1933, kvæntur Sigurlínu Eiríks-
dóttur, f. 30.8. 1932.
Lillý giftist 14.10. 1962 Brodda
Skagfjörð Björnssyni bónda, f.
19.7. 1939. Foreldrar hans voru
hjónin Björn Sigtryggsson bóndi á
Framnesi í Akrahreppi, f. 14.5.
1901, d. 26.8. 2002, og Þuríður
Jónsdóttir húsfreyja, f. 10.3. 1907,
d. 3.7. 2002. Börn Lillýjar og
Brodda eru: 1) Sigrún Þuríður, f.
Kjøsnes, f. 28.6. 1964. Synir þeirra
eru Gunnar Þór, f. 26.11. 1999 og
Jónatan, f. 3.8. 2001.
Lillý ólst upp á Sleitustöðum í
Kolbeinsdal. Hún gekk í Barna-
skóla Óslandshlíðar í Hlíðarhúsi
og fór síðan einn vetur í Héraðs-
skólann í Reykholti en lauk gagn-
fræðaprófi frá Gagnfræðaskóla
Sauðárkróks. Lillý vann í Reykja-
vík veturinn. 1958-1959 og sum-
arið eftir starfaði hún við síldar-
söltun á Siglufirði. Veturinn.
1959-1960 stundaði Lillý nám við
Húsmæðraskólann Ósk á Ísafirði.
Sumarið. 1960 var hún kokkur á
síldarbáti en veturinn. 1960-1961
starfaði Lillý sem ráðskona við
Bændaskólann á Hólum í Hjalta-
dal. Lillý og Broddi hófu búskap á
Framnesi í Akrahreppi. 1962 og
þar bjó Lillý allt þar til hún lést
eftir hetjulega baráttu við krabba-
mein. Hún var virkur félagi í
Kvenfélagi Akrahrepps og sat um
tíma í stjórn Sambands skag-
firskra kvenna.
Lillý verður jarðsungin frá
Miklabæjarkirkju í Akrahreppi í
dag og hefst athöfnin klukkan 14.
5.5. 1962, gift Stein-
dóri Gunnari Magn-
ússyni, f. 28.6. 1962.
Dætur þeirra eru
Freydís Dögg, f. 21.3.
1984 og Bergdís
Björk, f. 1.8. 1997.
Unnusti Freydísar
Daggar er Björn
Daníel Svavarsson, f.
8.7. 1982. 2) Hrafn-
hildur Ósk, f. 4.8.
1963, gift Jóni Thor-
berg Jenssyni, 24.12.
1964. Börn þeirra
eru Arndís Embla, f.
30.9. 1995 og Tumi Thorberg, f.
4.12. 2001. 3) Óskar Gísli, f. 28.4.
1966, kvæntur Láru Gunndísi
Magnúsdóttur, f. 11.1. 1970. Börn
þeirra eru Svanhildur Arna, f. 6.6.
1995, Sigurður Sölvi, f. 6.8. 1997
og Lilja Margrét, f. 6.2. 2002. 4)
Hjördís Edda, f. 14.5. 1968, sam-
býlismaður Gunnar Kjartansson, f.
23.9. 1965. Börn þeirra eru
Broddi, f. 25.6. 1999, Benedikt
Darri, f. 10.4. 2003 og Glódís
María, f. 1.7. 2006. 5) Birna Björk,
f. 24.3. 1975, sambýlismaður Odd
Ég gái út um gluggann minn
hvort gangir þú um hliðið inn.
Mér alltaf sýnist ég sjái þig.
Ég rýni út um rifurnar.
Ég reyndar sé þig alls staðar.
Þá napurt er, það næðir hér
og nístir mig.
(Vilhjálmur Vilhjálmsson)
Elsku hjartans mamma.
Ástarþakkir fyrir allar góðu sam-
verustundirnar og allt það góða
veganesti sem þú gafst okkur fyrir
lífið. Kærleikur þinn, ástúð og gjaf-
mildi mun fylgja okkur alla tíð. Við
söknum þín mikið. Það er alltaf sárt
og ósanngjarnt að sjá lífið fjara svona
út hjá þeim sem maður elskar og eru
manni kærir, þó svo að öll þín erfiðu
veikindi séu nú að baki. Við varðveit-
um minningarnar um þig og miðlum
áfram til barna okkar. Við biðjum
Guð að geyma þig og styrkja pabba á
þessum erfiðu tímum.
Guð þig leiði sérhvert sinn
sólarvegi alla.
Verndarengill varstu minn,
vissir mína galla.
Hvar sem ég um foldu fer,
finn ég návist þína.
Aldrei skal úr minni mér,
mamma, ég þér týna.
(Jón Sigfinnsson)
Sigrún, Hrafnhildur,
Óskar Gísli, Hjördís Edda
og Birna Björk.
Elsku besta amma mín.
Mér þykir svo afskaplega vænt um
þig og vildi ekki að Guð tæki þig til
sín strax. Ég man þegar þú varst ung
og litaðir í litabók með mér. Mér
þótti mjög vænt um þegar þú prjón-
aðir peysu á mig og bangsann minn.
Bara svo þú vitir það þá er bangsinn
sem þú gafst mér í jólagjöf á fyrstu
jólunum mínum, uppáhaldsleikfangið
mitt. Ég sakna þín mjög mikið en ég
veit að þú ert alltaf hjá mér. Þú varst
líka merkileg kona og öllum þótti
vænt um þig og þú veist hversu mik-
ið.
Ég mun alltaf minnast þín fyrir
það hversu góð og þolinmóð þú varst
við mig, þó að ég væri stundum sjálf
óþolinmóð og vildi að allt gerðist
strax.
Þín
Bergdís Björk.
Elsku góða amma Lillý.
Við söknum þín mikið. Það var allt-
af gaman og gott að koma í sveitina
til ykkar afa Brodda. Þú hugsaðir vel
um okkur og alltaf fengum við eitt-
hvað gott að borða hjá þér. Þú steikt-
ir heimsins bestu pönnukökur og
kleinurnar voru svo góðar. Þó svo að
við vöknuðum snemma í sveitinni þá
varst þú alltaf komin á fætur á undan
okkur og tilbúin með heitan hafra-
grautinn. Mikið fannst okkur leiðin-
legt hvað var langt að fara til ykkar
afa Brodda, annars hefðum við komið
oftar. Eftir að þú veiktist komst þú
oftar í bæinn til þess að hitta lækninn
þinn, þá gátum við hitt þig oftar. Við
áttum margar góðar samverustundir
í Mávahlíðinni sem við geymum og
gleymum aldrei. Þegar þú komst í
bæinn færðir þú okkur svo oft litlar
fallegar gjafir og mikið urðum við
glöð þegar þú birtist og við fengum
nýja litabók, bíl, bók eða hlýja sokka.
Þú varst alltaf að hugsa um ömmu-
börnin þín og vildir gleðja okkur.
Takk fyrir allar fallegu gjafirnar,
stórar og smáar.
Alltaf fengum við koss frá þér,
þegar mamma var búin að tala við
þig í síma. Takk fyrir öll fallegu póst-
kortin þín, þú mundir alltaf eftir okk-
ur þegar þú fórst til útlanda. Við ætl-
um að geyma þau vel.
Mamma sagði okkur að þú værir
orðin mikið veik. Það var gott að hún
gat verið hjá þér síðustu vikuna, því
þú ert mamma hennar mömmu. Nú
ert þú orðinn engill hjá Guði og getur
fylgst ennþá betur með okkur. Þú ert
ekki lengur með krabbamein og þér
líður vel, það er gott. Við elskum þig
mikið og við ætlum að tala oft um þig
við Glódísi Maríu, svo hún muni líka
eftir þér, en núna er hún svo lítil. Við
kveikjum á kerti fyrir þig og horfum
á myndina af þér og okkur saman.
Takk fyrir allt, elsku amma Lillý.
Þegar við förum með bænirnar okkar
á kvöldin biðjum við Guð að hugsa vel
um þig og afa Brodda.
Broddi, Benedikt Darri
og Glódís María.
Elsku besta amma mín.
Það er svo sárt að þurfa að kveðja
og mér finnst það svo alltof snemmt.
Ég á samt svo margar yndislegar
minningar og fyrir þær er ég þakk-
lát. Það var alltaf svo gott að koma í
sveitina og mér fannst ekkert verra
að vera eina barnabarnið á þeim
tíma. Ég gat alltaf fundið upp á ein-
hverju og húsið á Framnesi var æv-
intýraheimur. Ég fór í fjársjóðsleit
upp á loft og inn í forstofu og sýndi
þér svo gersemarnar sem ég fann.
Aldrei bannaðir þú mér að hnýsast
um allt og oft vildir þú helst að ég
fengi að eiga fjársjóðinn. Þú bakaðir
líka bestu pönnukökur og kleinur í
heimi og það var líka það sem ég
borðaði helst í sveitinni, kleinur og
soda stream, fyrir utan hafragraut-
inn á morgnana. Það var líka alltaf
skúffukaka í ofninum þegar ég kom
því þú vissir hvað mér fannst best.
Jólin á Framnesi voru æðisleg. Öll
fjölskyldan saman komin, mamma og
systkini hennar og svo ég. Birna setti
vöfflur í hárið á mér og þú stóðst í
eldhúsinu og sást til þess að allir
fengju eitthvað gott að borða. Það
eina sem skyggði á var hvað upp-
vaskið tók langan tíma svo biðin eftir
því að opna pakkana var endalaus að
mér fannst. Í seinni tíð komum við
sjaldnar í sveitina en þú komst þeim
mun oftar til okkar og var það ekki
verra. Þú gast alltaf hjálpað mér að
laga kjóla sem ég hafði keypt í se-
cond hand-búðum og sást til þess að
ég ætti nóg af sokkum og vettlingum.
Það var svo gaman að geta kynnst
þér líka þegar ég var orðin aðeins
eldri. Við áttum sameiginleg áhuga-
mál og mér fannst aldrei leiðinlegt að
fara með þér í svokallaðar skranbúð-
ir og svo kíktum við á kaffihús á eftir.
Ég held að þú hafir nefnilega líka
haft gaman af fjársjóðsleit. Við höfð-
um líka báðar ótrúlega gaman af
töskum og nælum og slæðum og mér
fannst svo skemmtilegt að skoða það
með þér og líka að kíkja í hattabúðir.
Það var líka stundum svo notalegt
að sitja með þér í eldhúsinu heima
fyrir svefninn og spjalla saman. Mér
finnst ég svo ótrúlega heppin að hafa
upplifað sveitina hjá þér sem barn og
að hafa svo fengið að eiga þig að vin-
konu líka þegar ég varð eldri.
Þú varst líka alltaf svo ánægð með
mig og það skipti mig svo miklu máli.
Ég er svo glöð yfir að þú skulir hafa
lagt þig fram um að mæta á tón-
leikana mína flesta og þú misstir
aldrei af neinum atburði í mínu lífi.
Það var yndislegt að hafa þig á út-
skriftartónleikunum mínum í vor og
ég veit að þú vildir líka alls ekki
missa af þeim. Engillinn sem þú
færðir mér er líka svo fallegur og ég
mun passa hann alltaf.
Ég á eftir að sakna þín svo mikið
og ég vildi að þú hefðir verið hress
lengur og að þú værir hér enn, þú
varst enn svo ung.
Ég veit að ég sé þig aftur, fallega
amma mín, en þangað til mun hugur
minn vera hjá þér því þú ert mér svo
dýrmæt.
Þín
Freydís Dögg.
Hún amma bakaði góðar pönnu-
kökur. Amma bjó líka til bestu fiski-
bollur í heimi. Já, hún amma Lillý
vildi alltaf gefa okkur eitthvað gott.
Hún hafði hlýjan faðm sem við skrið-
um oft upp í. Þegar við vorum lítil
hlupum við oft milli húsanna á nátt-
fötunum í von um gott í munninn og
ömmuknús. Besta byrjun á góðum
degi þá var að borða hafragraut og
lýsi í ömmuhúsi með afa og ömmu.
Það voru forréttindi að eiga skjól hjá
ömmu þegar hitt fullorðna fólkið var
upptekið.
Nú er hún amma farin til himna í
faðm mömmu sinnar og pabba. Jólin
verða öðruvísi en áður. Núna er okk-
ur kalt í sálinni og við vermum okkur
við fallegar minningar um ömmu
Lillý. Með tímanum kemst ylur í all-
an kroppinn á ný.
Elsku amma, takk fyrir allt.
Svanhildur Arna,
Sigurður Sölvi og
Lilja Margrét.
Arndís Guðrún Óskarsdóttir
Fleiri minningargreinar
um Arndísi Guðrúnu Óskarsdóttur
bíða birtingar og munu birtast í
blaðinu á næstu dögum.
✝
Elskulegur sonur okkar, bróðir, barnabarn og
barnabarnabarn,
KRISTINN VEIGAR SIGURÐSSON,
Birkiteig 17,
Keflavík,
lést af slysförum laugardaginn 1. desember.
Jarðarförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
þriðjudaginn 11. desember kl. 14:00.
Anna Guðbjörg Kristinsdóttir, Birgir Stefánsson,
Sigurður Óskar Sólmundarson, Vilborg Rós Eckard,
systkinin, afar, ömmur, langamma og langafi.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna
fráfalls
STEFÁNS LÁRUSAR ÁRNASONAR
múrara.
Kristín Haraldsdóttir,
Stella K. Stefánsdóttir, Stefán Valdimarsson,
Sigrún M. Stefánsdóttir,
Erla D. Stefánsdóttir,
Helga Stefánsdóttir, Leifur Þórsson,
Halla Björk Stefánsdóttir,
barnabörn.
✝
DR. HANS MARTIN LIPP,
fyrrum prófessor við háskólann í Karlsruhe,
Þýzkalandi, og tengiliður íslenskra verkfræðinema
þar, lést að heimili sínu í Stupferich fimmtudaginn
5. desember.
Jarðarförin fer fram í Stupferich föstudaginn
14. desember kl. 14:00.
Barbara Lipp,
Andreas Lipp, Agnezieska Lipp,
Hartmut Lipp, Anne-Marie Metzker.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi,
langafi og bróðir,
HARALDUR TEITSSON
matreiðslumaður,
lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Lundi, Hellu
(líknardeild), laugardaginn 10. nóvember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Fyrir hönd aðstandenda,
Heiða Magnúsdóttir,
Atli Haukur Haraldsson,
Teitur Haraldsson,
Haukur Haraldsson.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURJÓN JÓSEP FRIÐRIKSSON,
Smyrlafelli,
Bakkafirði,
lést fimmtudaginn 6. desember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Helga Guðrún Sigurjónsdóttir,
Stefanía Sigurjónsdóttir, Jón Eyþór Steinþórsson,
Reimar Sigurjónsson, Dagrún Þórisdóttir,
Friðbjörg J. Sigurjónsdóttir,
afabörn og langafabörn.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
MARÍA SIGURÐARDÓTTIR
viðskiptafræðingur,
lést á Vífilsstöðum miðvikudaginn 5. desember.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn
14. desember klukkan 15.00.
Rannveig Rist, Jón Heiðar Ríkharðsson,
Guðbjörg Rist Jónsdóttir,
Hólmfríður Vigdís Rist Jónsdóttir,
Bergljót Rist, Sveinn Atli Gunnarsson,
Hekla Rist,
Kolka Rist.