Morgunblaðið - 20.12.2007, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.12.2007, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ úrslit Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is Það mátt fljótlega greina hvort liðið hafði meiri matarlyst. Það voru Vals- menn sem höfðu viljann og barátt- una umfram Kópavogsliðið sem virk- aði hálf áhuga- og stemningslaust allt frá byrjun leiksins. Valsmenn komust í 6:2 og höfðu eftir það und- irtökin í leiknum og gerðu endanlega út um leikinn í upphafi síðari hálf- leiks þegar þeir skoruðu þrjú fyrstu mörkin. Þar með náðu þeir sex marka forskoti og eftir það var sigur Hlíðarendaliðsins aldrei í hættu. Náðum réttum anda ,,Þetta var góður leikur af okkar hálfu. Við gerðum okkur ljóst fyrir leik- inn að við yrðum að vinna til að vera með í toppbaráttunni og við náðum upp góðum anda sem ekki var til staðar á móti Fram um síðustu helgi. Mér fannst við ákveðnari allan tímann og höfðu meiri vilja til þess að vinna,“ sagði Akureyringurinn Baldvin Þor- steinsson, hornamaðurinn knái í liði Vals, við Morgunblaðið eftir leikinn, en Baldvin var atkvæðamikill og skoraði 7 af mörkum sinna manna. ,,Það hefði verið erfitt að vera átta stigum á eftir toppliði Hauka en ég lít svo á að fimm efstu liðin eigi öll mögu- leika á titlinum. Það eru allir að vinna alla nema ÍBV og ég held að spennan verði rosalega mikil þegar þráðurinn verður tekinn upp að nýju eftir HM,“ sagði Baldvin. Haukar hafa sýnt mestan stöðugleika Valsmenn eru sex stigum á eftir Haukunum og segir Baldvin að úrslitin séu hvergi nærri ráðin. ,,Haukarnir hafa sýnt mestan stöð- ugleika. Þeir hafa ekki rúllað yfir mót- herja sína en þeir hafa sýnt seiglu og festu, spilað góðan varnarleik og mark- varslan hefur verið góð hjá þeim. Við ætlum svo sannarlega að sauma að þeim eftir áramótin. Við mætum sterk- ari til leiks eftir fríið enda komnir með gleðigjafann aftur á Hlíðarenda sem er Sigurður Eggertsson,“ sagði Baldvin sem átti mjög góðan leik og var með af- ar góða nýtingu. Ernir Hrafn Arnarson var einnig mjög drjúgur í annars jafnri og góðri liðsheild hjá Val. Vörnin var lengst af nokkuð öflug og Pálmar ursson stóð vaktina vel á milli sta anna. Eins og áður segir var mikil d ríkjandi hjá leikmönnum HK sem v ust ekki hafa neina trú á sjálfum Sóknarleikurinn var afar einhæfur ómarkviss á köflum, vörnin var m götótt og markvarslan eftir því. Þ tapleikur HK í röð leit dagsins ljó HK-ingar verða að stokka spilin up nýju. Grófum okkar eigin gröf ,,Við náðum ekki rífa okkur upp þeirri deyfð sem hefur verið ríkja hjá okkur. Við grófum okkar eigin strax í byrjun leiksins og við vo sjálfum okkur verstir. Valsmenn m eiga það að þeir voru mjög góðir en getum gert miklu betur en við sýndu sagði hornamaðurinn Ragnar Hja sted, en hann var einn skásti ma HK-liðsins. ,,Við erum búnir að glopra tæki til að koma okkur í góða stöðu og verðum við að meta stöðu okkar up nýtt og finna út hvað er að. Við kom til með að nýta fríið vel því það þ ekkert að hengja haus. Við mæ tvíefldir til leiks eftir fríið og höfum ekki sagt okkar síðasta orð,“ s Ragnar. Valur hafði meiri vilja ÍSLANDSMEISTARAR Vals unnu afar sannfærandi sigur á daufum HK-ingum þegar liðin áttust við í Vodafone-höllinni í gærkvöld. Vals- menn höfðu undirtökin allan tím- ann og innbyrtu sjö marka sigur, 33:26. Með sigrinum höfðu liðin sætaskipti á stigatöflunni. Meist- ararnir eru komnir í fjórða sætið og náðu að komast í deildabikarkeppn- ina sem leikin verður á milli jóla ný- árs en HK-menn sitja eftir í fimmta sætinu eftir þriða tapleikinn í röð í úrvalsdeildinni. Þetta var síðasti leikurinn í deildinni fyrir frí sem gert verður vegna EM. Morgunblaðið/Golli Drjúgur Ernir Hrafn Arnarson var atkvæðamikill í gær og hér reynir að hann að brjótast framhjá Brynjari Hreggviðssyni. Íslandsmeistararnir áttu ekki í vandræðum með dauft HK-lið sem tapaði sínum þriðja leik í röð  Ernir Hrafn og Baldvin Þorsteinsson atkvæðamiklir hjá Val Í HNOTSKURN »Ólafur H. Gíslason mark-vörður Vals gekkst undir lið- þófaaðgerð á hné í fyrradag og hann lék því ekki með Vals- mönnum í gær. Það kom þó ekki að sök því Pálmar Pétursson átti góðan leik á milli stanganna og varði alls 15 skot í leiknum. »Valsmenn náðu fjórða sætinumeð sigrinum á HK en fjögur efstu liðin, Haukar, Stjarnan, Fram og Valur, keppa á milli jóla og nýárs um deildabikarmeist- aratitilinn. HK-ingar sitja hins vegar eftir en liðið hafði sæta- skipti við Val með tapinu og er í fimmta sætinu nú þegar gert verður hlé á Íslandsmótinu fram yfir EM í Noregi. HANDKNATTLEIKUR Fram – Stjarnan 26:35 Fram-höllin í Safamýri, úrvalsdeild karla, N1-deildin, miðvikudaginn 19. nóvember 2007. Gangur leiksins: 0:1, 1:3, 4:4, 5:6, 6:6, 6:11, 9:16, 10:18, 10:19, 13:21, 15:22, 18:23, 19:28, 22:30, 23:33, 26:35. Mörk Fram: Haraldur Þorvarðarson 6/1, Rúnar Kárason 5, Guðjón Finnur Drengs- son 3, Filip Kliszczyk 3, Stefán Baldvin Stefánsson 3, Einar Ingi Hrafnsson 2, Jó- hann Gunnar Einarsson 2/2, Halldór Jó- hann Sigfússon 1, Hjörtur Hinriksson 1. Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 5/1. Magnús Gunnar Erlendsson 11/2 (þaraf 4/1 aftur til mótherja). Utan vallar: 10 mínútur, þar af fékk Einar Ingi Hrafnsson rautt spjald við þriðju brottvísun á 44. mínútu. Mörk Stjörnunnar: Heimir Örn Árnason 8/1, Gunnar Ingi Jóhannsson 7, Björgvin Hólmgeirsson 6, Ragnar Helgason 5, Ólaf- ur Víðir Ólafsson 4, Björn Friðriksson 3, Bjarni Þórðarson 1, Daníel Einarsson 1. Varin skot: Roland Eradze 197 (þaraf 5 aft- ur til mótherja). Hlynur Morthens 2/2. Utan vallar: 10 mínútur, þar af fékk Volodi- myr Kysil rautt spjald fyrir leikbrot á 28. mínútu. Dómarar: Anton Pálsson og Valgeir Óm- arsson, höfðu föst og góð tök á leiknum. Áhorfendur: 250. Valur – HK 33:26 Vodfone-höllin: Gangur leiksins: 0:1, 2:2, 6:2, 7:6, 10:8, 13:9, 16:13, 19:13, 23:17, 28:25, 32:26. Mörk Vals: Ernir Hrafn Arnarson 9, Bald- vin Þorsteinsson 7, Fannar Þór Friðgeirs- son 5, Ingvar Árnason 3, Arnór Malmqvist Gunnarson 3/1, Elvar Friðriksson 2, Sigfús Páll Sigfússon 2, Hjalti Þór Pálmason 1, Anton Rúnarsson 1. Varin skot: Pálmar Pétursson 15 (þar af 5 til mótherja). Utan vallar: 10 mínútur. Mörk HK: Augustas Straszdas 5, Ragnar Hjaltested 5/2, Brynjar Hreggviðsson 4, Ólafur Bjarki Ragnarsson 2, Gunnar Steinn Jónsson 2, Tomas Eitutis 2, Sergey Petraytis 2, Arnar Þór Sæþórsson 2, Bjarki Gunnarsson 1. Varin skot: Egidijus Petkevicius 10 (þar af 2 til mótherja). Utan vallar: 6 mínútur. Dómarar: Jónas Elíasson og Ingvar Guð- jónsson, þokkalegir. Áhorfendur: 250. Staðan: Haukar 14 10 3 1 399:343 23 Stjarnan 14 9 1 4 418:373 19 Fram 14 9 1 4 394:371 19 Valur 14 7 3 4 378:343 17 HK 14 8 1 5 390:357 17 Akureyri 14 3 2 9 376:387 8 Afturelding 14 2 3 9 343:368 7 ÍBV 14 1 0 13 350:506 2  Haukar, Fram, Stjarnan og Valur fara í deildabikarinn sem fer fram á milli jóla– og nýárs. KÖRFUKNATTLEIKUR Iceland Express-deild kvenna Grindavík – KR.....................................86:84 Stig Grindavíkur: Tiffany Roberson 39, Petrúnella Skúladóttir 11, Joanna Skiba 20, Ingibjörg Jakobsdóttir 8, Íris Sverrisdóttir 6, Ólöf H. Pálsdóttir 2. Stig KR: Monique Martin 37, Hildur Sig- urðardóttir 16, Sigrún S. Ámundadóttir 10, Helga Einarsdóttir 5, Guðrún Ó. Ámunda- dóttir 5, Lilja Oddsdóttir 4, Þorbjörg A. Friðriksdóttir 3, Guðrún G. Þorsteinsdóttir 2, Sigurbjörg Þorsteinsdóttir 2. Keflavík – Hamar...............................100:81 Staðan: Keflavík 12 10 2 1076:864 20 KR 12 9 3 987:852 18 Grindavík 12 9 3 1000:897 18 Haukar 12 8 4 972:970 16 Valur 12 3 9 773:908 6 Hamar 12 2 10 788:901 4 Fjölnir 12 1 11 751:955 2 NBA-deildin Leikir í fyrrinótt: New Jersey – Sacramento............... 101:106 Chicago – LA Lakers ......................... 91:103 LA Clippers – Toronto......................... 77:80 KNATTSPYRNA England Deildabikar, 8-liða úrslit: Chelsea – Liverpool .................................2:0 Frank Lampard 58., Andrei Shevchenko 88. Rautt spjald: Peter Crouch, Liverpool (59.). UEFA-bikarinn E-RIÐILL:  Spartak, Zürich og Leverkusen komust áfram í 32-liða úrslit. F-RIÐILL:  Bayern München, Braga og Bolton kom- ust áfram í 32-liða úrslit. G-RIÐILL:  Getafe, Tottenham og Anderlecht kom- ust áfram í 32-liða úrslit.. H-RIÐILL:  Bordeaux, Helsingborg og Galatasaray komust áfram í 32-liða úrslit.. BJARNI Þór Viðarsson er í 18 man leikmannahópi Everton sem mætir Grétari Rafni Steinssyni og félögum hans í hollenska liðinu AZ Alkmaar lokaumferð riðlakeppni UEFA- keppninnar í Hollandi í kvöld. Everton er þegar búið að tryggja sér sæti í 32 liða úrslitunum en AZ Alkmaar, Nürnberg og Zenit berja um hin tvö sætin. Everton hefur níu stig í efsta sæti, Zenit fimm, AZ Alkmaar og Nürnberg fjögur og á botninum er Larissa sem er án stig Safna kröftum fyrir leikinn gegn United á Old Trafford David Moyes, knattspyrnustjóri Everton, valdi í leikmannahóp sinn marga unga leikmenn félagsins sem eiga að fylla skörð lykilmanna en þ fá að safna kröftum fyrir leikinn ge Englandsmeisturum Manchester U ed í ensku úrvalsdeildinni sem fram fer á Old Trafford á sunnudaginn. Tim Howard, Joseph Yobo, Phil ville, Mikel Arteta og Tim Cahill fá hvíld frá leiknum og þá eru Leighto Baines, Alan Stubbs og Leon Osma ekki leikfærir vegna meiðsla. Bjarni Þór í hópi Everto SÆNSKA meistaraliðið IFK Gauta borg hefur áhuga á að fá Theódór Elmar Bjarnason til liðs við sig fyr næstu leiktíð. Theódór Elmar, sem lék á árinu sína fyrstu A-landsleik hefur verið á mála hjá skoska liðin Celtic frá árinu 2004 og í sumar framlengdi hann samning sinn við skoska meistaraliðið um þrjú ár í sumar ,,Hann er áhugaverður leikmað sem við höfum fylgst með,“ segir Håkan Mild, yfirmaður knattspyrn mála hjá IFK Gautarborg í samtal við sænska blaðið Göteborgsposte en fleiri félög hafa augastað á The dóri sem var besti leikmaður íslen landsliðsins í 3:0 tapi gegn Dönum síðasta mánuði. Fyrir hjá sænsku meisturunum eru Ragnar Sigurðs og Hjálmar Jónsson. Gautaborg með Theódór í sigtinu íþróttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.