Morgunblaðið - 20.12.2007, Blaðsíða 3
Pét-
ang-
eyfð
virt-
sér.
r og
mjög
riðji
s og
p að
p úr
andi
gröf
rum
mega
n við
um,“
alte-
aður
færi
g nú
pp á
mum
þýðir
ætum
m alls
agði
a
nna
r
m
r í
a
ast
u
ga.
n
m
þeir
egn
Unit-
m
Ne-
á
on
an
on
a-
r
rir
m
ki,
nu
ð
ur
nu-
li
en
eó-
nska
m í
son
r
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2007 3
Ragna Ing-ólfsdóttir,
Íslandsmeistari í
einliðaleik
kvenna, sigraði
Carolu Bott frá
Þýskalandi í gær
á alþjóðlegu móti
sem fram fer í
Grikklandi.
Ragna tapaði fyrstu lotunni, 15:21,
en hún sneri leiknum sér í hag í
tveimur næstu lotum þar sem hún
vann, 21:11 og 21:10.
Ragna vann einnig dönsku stúlk-
una Lotte Bonde í gær og leikur
Ragna í 8-manna úrslitum í dag þar
sem hún mætir Karin Schnaase frá
Þýskalandi. Ragna er í Ólympíusæti,
miðað við stöðuna í dag, samkvæmt
lista sem Badmintonsamband Evr-
ópu hefur birt yfir sterkasta bad-
mintonfólk álfunnar. Ragna er í 16.
sæti listans en 19 Evrópubúar fá
keppnisrétt á Ólympíuleikunum í
Peking á næsta ári.
Padraig Harrington frá Írlandier kylfingur ársins 2007 að mati
samtaka golfíþróttafréttamanna í
Evrópu en hann er fjórði Írinn sem
fær þessa viðurkenningu.
Á heimasíðu knattspyrnuliðsinsBarcelona á Spáni er greint frá
því að franski landsliðsframherjinn
Thierry Henry sé byrjaður að æfa
með félaginu á ný eftir meiðsli. Allar
líkur eru á því að Henry verði á með-
al leikmanna Barcelona gegn Real
Madrid á sunnudaginn en gríðarleg
spenna er að myndast fyrir þá við-
ureign.
Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraðisex mörk og Snorri Steinn
Guðjónsson tvö þegar lið þeirra
GOG frá Svendborg vann Fred-
ericia, 34:31, í dönsku úrvalsdeild-
inni í handknattleik í gærkvöldi.
Hannes Jón Jónsson skoraði þrjú
marka Fredericia og Gísli Krist-
jánsson eitt en Fannar Þorbjörns-
son komst ekki á blað en var að
vanda fastur fyrir í vörninni eins og
Gísli. Hann var reyndar veikur og
gat ekki tekið þátt í nema hluta
leiksins. Með sigrinum komst GOG í
2. sætið en Fredericia stendur í stað
í 8. sæti.
ValdimarÞórsson
skoraði 7 mörk
fyrir HK Malmö
sem lagði Trelle-
borg 36:28 í
sænsku úrvals-
deildinni í hand-
knattleik í gær-
kvöld. Guðlaugur Arnarsson
skoraði 2 mörk fyrir Malmö. Liðin
voru í 12. og 13. sæti fyrir leikinn af
alls 14 liðum sem eru í deildinni en
Malmö náði að lyfta sér aðeins upp
töfluna með sigrinum sem var mjög
mikilvægur. Haukur Andrésson
komst ekki á blað hjá Guif sem tap-
aði á útivelli gegn Drott, 31:28.
Fólk folk@mbl.is
Eftir góðan leik og dýrmætan sigur
á Val á sunnudaginn virtist Fram-
liðið ekki vera klárt í annan baráttu-
leik á skömmum tíma. Stjörnumenn
léku frábæra vörn í fyrri hálfleik,
Roland Eradze fór á kostum í mark-
inu og sóknarleikurinn gekk svo að
segja fullkomlega upp. Framliðið var
mest allt úti á þekju, a.m.k. flestir
burðarásar þess og engu var líkara
en leikmenn hefðu haldið hlutirnir
kæmu af sjálfu sér.
„Við náðum virkilega að mæta
Framliðinu af krafti og síðan virtist
það vanmeta okkur. Þannig er það í
þessum handbolta að komi menn
ekki af heilum huga í leikina þá er
þeim refsað. Það gerðist hjá Fram að
þessu sinni og hefur svo sem einnig
komið fyrir okkur í vetur,“ sagði Pat-
rekur Jóhannesson, aðstoðarþjálfari
Stjörnunnar í leikslok og var eðlilega
glaður í bragði eftir þennan örugga
sigur.
„Við lékum varnarleikinn af mikilli
festu og sóknarleikurinn var ekkert
sérstakur rétt í upphafi leiks en
batnaði þegar á leið,“ sagði Patrekur
ennfremur.
„Ég veit ekki hvað var að burðar-
ásum í liði mínu. Annað hvort voru
þeir þreyttir eða yfirspenntir á taug-
um. Þeir voru að minnsta kosti ekki
sjálfum sér líkir að þessu sinni og því
fengum við níu marka skell,“ sagði
Ferenc Byday, þjálfari Fram, sem
reyndi allan leikinn að stappa stálinu
í sína menn en hafði ekki erindi sem
erfiði.
„Ég reyndi að búa menn eins vel
undir leikinn og kostur var en án ár-
angurs. Að þessu sinni reið reynsla
Stjörnumanna baggamuninn og þeir
unnu verðskuldaðan sigur. Stjarnan
lék af mikilli skynsemi á meðan við
lékum of hægt og af miklu örygg-
isleysi. Sendingar manna á milli voru
slakar, skotin slæm og síðan brennd-
um við af fjórum vítaköstum,“ sagði
Buday og bætti við að nú yrðu allir
að leggjast á árarnar í janúar og
halda áfram að þróa sig og bæta sem
handknattleiksmenn.
Það var aðeins á fyrsta stundar-
fjórðungi leiksins sem leikurinn var
jafn. Eftir það tóku Stjörnumenn öll
völd og breyttu stöðunni úr 6:6, í
11:6. Frábær varnarleikur lokaði öll-
um leiðum fyrir leikmenn Fram sem
virkuðu mjög spenntir og sumum féll
allur ketill í eld í sókninni. Má þar
nefna Jóhann Gunnar Einarsson
sem var hreinlega miður sín.
Brotthvarf Kysil breytti engu
Volodimyr Kysil, varnarmaður
Stjörnunnar, var rekinn af leikvelli á
28. mínútu eftir að hafa gengið of
hressilega út í Halldór Jóhann Sig-
fússon sem lá óvígur eftir í nokkra
stund. Brottför Kysil úr vörninni
varð hins vegar ekki vatn á myllu
sóknarleiks Fram.
„Vandinn hjá Kysil í vetur hefur
verið sá að okkar mati að hann hefur
ekki verið nógu aðgangsharður. En
nú þegar hann var ákveðnari þá varð
hann of ákafur. Það komu hins vegar
menn í hans stað og það kom ekki
niður á varnarleik okkar í síðari hálf-
leik,“ sagði Patrekur, aðstoðarþjálf-
ari Stjörnunnar.
Í upphafi síðari hálfleik freistuðu
Framarar þess að hleypa meiri
hraða í leik sinn og reyna þannig að
slá Stjörnumenn út af laginu. Sú
hernaðaraðferð gekk ekki upp, vopn-
in snérust í höndum leikmanna
Fram og það braust fram í vonleysi
og ergelsi þeirra. Stjörnumenn
héldu áfram að bæta við forskot sitt,
þeir léku eins þeir sem valdið hafa og
náðu um tíma tíu marka forskoti. Í
örvæntingu á lokakaflanum fóru
leikmenn Fram að leika „maður á
mann“ í vörninni, en það var of lítið
og of seint. Stjarnan gaf ekkert eftir
og vann verðskuldaðan sigur í leik
sem á köflum minnti á úrslitaleik lið-
anna í bikarkeppninni í mars í fyrra.
Eins og fram hefur komið lék
Stjörnuliðið afar vel að þessu sinni.
Fremstir meðal jafningja voru
Heimir Örn Árnason, Gunnar Ingi
Jóhannsson og Roland Eradze.
Gunnar er að verða einn skemmti-
legasti hornamaður deildarinnar
sem nýtir færi sín vel, hvort heldur
er í horninu eða í hraðaupphlaupum.
Gunnar hefur sannarlega sprungið
út á þessari leiktíð. Þá virðist Ólafur
Víðir Ólafsson loks vera að ná sér á
strik eftir að hafa átt erfitt uppdrátt-
ar eftir erfið meiðsli í fyrra og Ragn-
ar Helgason fellur betur inn í liðið
með hverjum leiknum í stöðu horna-
manns hægra megin. Björgvin
Hólmgeirsson er hins vegar sem fyrr
á tíðum full-ákafur en skemmtilegur
leikmaður.
Framliðið olli, sem fyrr segir, von-
brigðum. Þar stóð vart steinn yfir
steini. Eini leikmaður liðsins sem á
hrós skilið er Jón Þorbjörn Jóhanns-
son, sem vafalaust er einn allra besti
varnarmaður deildarinnar. Hann
reyndi sitt besta en mátti lítt við
margnum að þessu sinni.
Stjörnumenn tóku
Framara í kennslustund
Morgunblaðið/Golli
Lok, lok og læs Rúnar Kárason, hin unga skytta Framliðsins, sækir að Volodimyr Kysil og Björgvini Hólmgeirssyni. Eins og svo oft í leiknum þá áttu
Rúnar og samherjar hans erfitt uppdráttar gegn frábærri vörn Stjörnumanna. Með sigrinum tryggði Stjarnan sér annað sætið í N1-deild karla.
STJÖRNUMENN tylltu sér í annað
sæti úrvalsdeildar karla, N1
deildarinnar, þegar þeir tóku leik-
menn Fram í kennslustund í hand-
knattleik á heimavelli Fram í gær-
kvöldi, lokatölur 35:26. Greinilegt
var að leikmenn Stjörnunnar ætl-
uðu sér ekki að endurtaka leikinn
frá því í bikarleik liðanna á sama
stað fyrir hálfum mánuði þar sem
þeir glopruðu sigri úr höndum sér á
lokakaflanum. Nú tóku þeir Fram-
ara föstum tökum frá byrjun og
voru nánast búnir að gera út um
leikinn að loknum fyrri hálfleik. Þá
var munurinn átta mörk, 18:10.
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Ekki stóð steinn yfir steini í leik Fram Frábær vörn og Roland í ham
ÍSLENSKA karlalandsliðið í handknattleik er í áttunda sæti á
stigalista Handknattleikssambands Evrópu sem gefin var út í
gær. Það er fyllilega í samræmi við niðurstöðu heimsmeist-
aramótsins sem fram fór í Þýskalandi í ársbyrjun. Þegar árang-
ur 19 og 21 árs landsliðsins í undankeppni heimsmeistaramóts-
ins er lagður saman við árangur A-liðsins eru íslensku
karlalandsliðin samtals í 10. sæti í Evrópu. Danir eru í efsta sæti
en yngri landslið þeirra stóðu sig vel á árinu.
Kvennalandslið Íslands er í 24. sæti á Evrópulistanum en 49
þjóðir eru á listanum. Þegar árangur 19 og 21 árs landsliðanna í
undankeppni heimsmeistaramótsins er lagður saman við stig A-
landsliðsins er Ísland í 25. sæti sem er svipaður árangur og und-
anfarin ár. Kvennalistinn hefur verið uppfærður eftir heims-
meistaramótið sem lauk í Frakklandi um nýliðna helgi og for-
keppni Evrópumótsins sem kvennalandsliðið tók þátt í fyrir
skömmu í Litháen.
Ísland í áttunda sæti
RAMON Calderon, forseti Real Madrid,
segir lið sitt vera svo gott um þessar mund-
ir að það hafi ekki not fyrir brasilíska
knattspyrnumanninn Kaká, sem á dögunum
var kjörinn knattspyrnumaður ársins hjá
Alþjóðaknattspyrnusambandinu, FIFA.
„Það kann að vera að fullyrðing mín hljómi
digurbarkalega en mér er sama. Eins og
Real Madrid leikur um þessar mundir þá er
ekkert pláss fyrir Kaká í liðinu,“ sagði
Calderon í gær er hann var spurður hvort
félagið hefði ekki reynt að bera víurnar í brasilíska knatt-
spyrnukappann.
„Real Madrid-liðið er mjög vel skipað um þessar mundir og
erfitt að finna á því veikan blett. Þar af leiðir að erfitt er að
gera það betra,“ segir Calderon glaður í bragði.
Engin not fyrir Kaká
Kaká
CHELSEA tryggði sér sæti í undanúrslitum enska deildabik-
arsins í gær með 2:0-sigri gegn Liverpool í gær á Stamford
Bridge. Það gekk mikið á um miðjan síðari hálfleik þar sem
Frank Lampard kom Chelsea yfir á 58. mínútu en skömmu síð-
ar fékk Peter Crouch, framherji Liverpool, rautt spjald fyrir að
því er virtist litlar sakir. Andrei Shevchenko skoraði síðan fyrir
Chelsea undir lok leiksins en það vakti einnig athygli að Mich-
ael Ballack fékk að spreyta sig með Chelsea í gær eftir margra
mánaða fjarveru vegna meiðsla. Dregið var í gær um hvaða lið
mætast í undanúrslitum keppninnar. Arsenal mætir Totten-
ham og Chelsea leikur gegn Everton.
Liðin eigast við tvívegis og Arsenal fær fyrst heimaleik gegn
Tottenham. Chelsea mætir Everton fyrst á heimavelli en síðari
leikurinn fer fram í Liverpool þann 21. janúar. Chelsea hefur
titil að verja í þessari keppni en liðið lagði Arsenal í úrslita-
leiknum s.l. vor, 2:1.
„Slagur“ í London